24 stundir - 29.02.2008, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
í dag
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
Það hefði ekki verið hægt að troða miklu fleiri
unglingum inn í kennslustofuna þar sem fyrsta
Viltu getta? keppni Hagaskóla var haldin. Berg-
þóru Njálu Guðmundsdóttur tókst að klemma sér
inn milli spenntra áhorfenda.
» Meira í Morgunblaðinu
Spurningaflóð í Hagaskóla
Föstudagur 29. febrúar 2008
Það er meira
í Mogganum
Matgæðingurinn Petrína Rós Karlsdóttir er
áhugakona um gómsæta suðræna Miðjarðarhafs-
rétti. Hún gaf Jóhönnu Ingvarsdóttur hugmynd að
veislu nú þegar landinn liggur yfir sumarleyfisbækl-
ingum og lætur sig dreyma um sól, sjó og slökun
eftir alla ótíðina.
» Meira í Morgunblaðinu
Ferskleikinn í fyrirrúmi
reykjavíkreykjavík
Lagið „The One“ kom fyrir í hinum geysivinsælu
bandarísku spennuþáttum.
» Meira í Morgunblaðinu
Trabant í CSI: Miami
Daglegt líf
LOGI GEIRSSON
» Meira í Morgunblaðinu
Aðalsmaður vikunnar
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Mikið var gert úr verkefninu á sínum
tíma enda hönnuður vallarins hinn
heimsfrægi kylfingur Nick Faldo.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Metnaðarfullar áætlanir um upp-
byggingu heimsklassa golfvallar-
svæðis á söndunum við Þorláks-
höfn sem fyrst voru kynntar árið
2005 hafa tafist von úr viti en þær
áætlanir gerðu ráð fyrir að slíkur
völlur yrði tilbúinn haustið 2008.
Þrátt fyrir að engar framkvæmdir
hafi enn átt sér stað er verkefnið á
nokkrum rekspeli. Hönnun vallar-
ins og umhverfis hans er lokið en
hún þykir það umfangsmikil að
setja þarf verkefnið í umhverfis-
mat.
Mikið var gert úr stórhuga hug-
myndunum á sínum tíma en
hönnuður vallarins, kylfingurinn
heimsfrægi Nick Faldo, sem hann-
ar, völlinn taldi víst að hann gæti á
skömmum tíma orðið einn þekkt-
asti golfvöllur heims. Átti hann þar
við þá svörtu fjörusanda sem völl-
urinn á að rísa við sem þykja ein-
stakir á heimsvísu. Hefur verkefnið
þegar fengið afar jákvæðar um-
sagnir í erlendum tímaritum.
Fjárfestingarfélagið Nýsir hefur
með verkefnið að gera en það tók
við því af félaginu Golf ehf. sem
annaðist það í upphafi. Það snýst
ekki aðeins um heimsklassa golf-
völl heldur ennfremur hótel og
íbúðir á svæðinu í sama klassa og
völlurinn skal vera í. Er slíkur völl-
ur talinn grundvallarforsenda þess
að hingað sé hægt að fá fleiri er-
lenda golfáhugamenn
Tafir Heimsklassa golfvöllur átti að
vera risinn við Þorlákshöfn næsta
haust en framkvæmdir eru ekki hafnar.
Faldo-æv-
intýrið tefst
Verulegar tafir á uppbyggingu heims-
klassa golfvallar í Þorlákshöfn
Nick Faldo Í fararbroddi verk-
efnisins á sínum tíma.
➤ Heilinn á bak við framtakið ásínum tíma var Margeir Vil-
hjálmsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri GR og GKG.
➤ Fjárfestingarfélagið Nýsir tókfljótlega við verkefninu.
UPPÁTÆKIÐ
Ljós er að renna upp fyrir mörg-
um þátttakendum á næstu Ólymp-
íuleikum í sumar að markmið kín-
verskra stjórnvalda að lágmarka
loft- og sjónmengum fyrir leikana
næst ekki og íþróttafólkið er farið
að búa sig undir slæmt ástand.
Allnokkrar þátttökuþjóðir hafa
til að mynda tekið þá ákvörðun að
senda íþróttafólk sitt eins seint til
leikanna og hægt er enda þykir sýnt
að helsti andstæðingur íþrótta-
manna allra verði mengun en ekki
aðrir keppinautar. Æfingar fari
þannig fram annars staðar og talið
er jákvætt að borða appelsínur og
stöku íþróttamenn æfa nú þegar
með andslitsgrímur til að venja sig
við komi til þess að loftmengun
verði vandamál.
Þó var ekki laust við mengun á
leikunum í Seúl og Los Angeles en
þar tókst að hemja mengun meðan
þeir leikar stóðu yfir að nokkru
leyti. Mörg þúsund verksmiðjum í
Peking verður lokað áður en ágúst
gengur í garð og fyrr kemur ekki í
ljós hvort mengun verður stórt
vandamál eða lítið.
Undarlegar aðfarir fyrir Ólympíuleikana
Appelsínur og seinkun
Þrátt fyrir að Alþjóða aksturs-
íþróttasambandið hafi form-
lega lokið sinni rannsókn á
njósnamáli því innan Form-
úlu 1 er komst í hámæli í fyrra
eru forsvarsmenn McLaren
ekki alveg komnir út úr skóg-
inum ennþá. Ítölsk yfirvöld
rannsaka nú sama hlut og
breytir niðurstaða FIA þá
engu en McLaren hefur þegar
verið gert að greiða háar fjár-
sektir og þær gætu hækkað
enn meira.
Undir smásjá
Athyglisverðar umræður eiga
sér stað í bandaríska þinghús-
inu en þar ræða þingmenn við
helstu framámenn íþrótta-
hreyfinga þess lands um hvort
þörf sé á afskiptum ríkisins í
íþróttastarfi. Umræðan er
sprottin af tíðum fregnum af
lyfjamisferli í flestum íþrótta-
greinum sem keppt er í og
mörgum finnst nóg um enda
líður vart dagur án þess að
einhverjar stjörnur landsins
fái dóma fyrir slíkt.
Deilt um
inngrip ríkis
Stigamaskínan LeBron James
hjá Cleveland varð yngsti
maðurinn til að skora tíu þús-
und stig í NBA-deildinni í
gærnótt heilu ári yngri en
Kobe Bryant sem var sá síðasti
sem slíkt met setti. Hins vegar
er James aðeins í níunda sæti
yfir þá sem fljótast hafa náð
slíkum stigafjölda.
Yngstur, ekki
fljótastur
Hin 35 ára gamla Maria Mu-
tola telur sig eiga eftir að
vinna eins og einn titil enn í
safn sitt. Framundan er
heimsmeistarakeppnin í
frjálsum innanhúss í Valenciu
á Spáni en Mutola sem hlotið
hefur fleiri verðlaun á þessum
mótum en nokkur annar
íþróttamaður segir hækkandi
aldur ekki enn hafa neitt að
segja um sigurmöguleika sína.
Þar ráði sigurvilji enn mestu.
Nóg eftir enn