24 stundir - 29.02.2008, Síða 42
42 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir
Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur
Opið mán-lau kl. 11-17
Sendum frítt um land allt
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
ULL OG SILKI
Nærfatnaður
fyrir útivistina
Skíði, golf,
vélsleða, veiði
o.m.fl.
Tankini toppur í D,DD,E,F skálum
á kr. 6.850,-
buxur í stíl í S,M,L,XL kr. 3.690,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Mjög fallegur bikini toppur í
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.550,-
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
97
76
40
FLOTTAR
GALLABUXUR
Str. 36-56
Í tilkynningu frá Gay Pride á Ís-
landi eru samkynhneigðir, tvíkyn-
hneigðir og transgenderfólk var-
aðir við að fara til Belgrad í
Serbíu, þar sem Eurovisi-
on-keppnin fer fram í
maí. Eru mannréttindi
ofantalinna ekki virt í
landinu og standa öfga-
hópar ítrekað fyrir árásum
á hinsegin fólk, segir í til-
kynningunni.
Mikil öryggisgæsla
Að sögn Þórhalls
Gunnarssonar, dag-
skrárstjóra RÚV,
munu engar sérstakar
ráðstafanir verða
gerðar fyrir Euro-
bandið, en annar söngvari þess,
Friðrik Ómar Hjörleifsson, er sam-
kynhneigður. „Það er mjög ströng
öryggisgæsla fyrir keppendur
þarna úti og við göngum að því
vísu að öryggi keppenda sé
tryggt. Við gerum ekki neinar
sérstakar ráðstafanir, nema
keppendur okkar óski þess sér-
staklega, þá verður það skoð-
að bara.“
Höfundur
framlags Ís-
lands, Örlygur
Smári, segist
ekki hafa
miklar
áhyggjur.
„Án þess að
gera lítið úr
ástandinu, þá er oft minna tilefni
til ótta en fjölmiðlar vilja vera láta.
Við munum alltént ekki hætta við
förina, fáum kannski lífverðina
hennar Silvíu Nætur, nú eða bara
Gillzenegger og félaga til að gæta
okkar!“
Haft var samband við Friðrik
Ómar, en hann kaus að tjá sig ekki
um málið. traustis@24stundir.is
Samkynhneigðir illa séðir í Serbíu
Eurobandið hræðist ekki neitt
Óhrædd Örlygur Smári segir
Eurobandið ekki óttast
hommahatarana í Belgrad.
Aðhefst ekkert Þórhall-
ur treystir gæslunni ytra.
Breiðskífa Mínuss, The Great
Northern Whale Kill, fær frábæra
dóma í erlendum fjölmiðlum.
Skífan kom út á Íslandi í fyrra en
kemur út í Bretlandi og á meg-
inlandi Evrópu eftir helgi.
Breska rokktímaritið Kerrang!
gefur Mínus fjögur K af fimm
mögulegum. Blaðamaður tímarits-
ins líkir hljómsveitinni við Queens
of the Stone-Age og kallar skífuna
„skítugt riffaþon“.
Þá gefur tímaritið Rock Sound
The Great Northern Whale Kill
átta af tíu í einkunn, eins og fram
kom í 24 stundum í gær, og vef-
miðillinn Penny Black Music segir
skífuna koma til greina sem plata
ársins þrátt fyrir að aðeins tveir
mánuðir séu liðnir af nýju ári.
atli@24stundir.is
Mínus gerir
það gott
Hvaladrápið fær
prýðisdóma erlendis
Thom Yorke, söngvari Radio-
head, segir hljómsveit sína ekki
spila á Glastonbury-hátíðinni í
sumar vegna stefnu þeirra í um-
hverfismálum. Hann sagði Ra-
diohead bara spila þar sem sam-
göngur væru umhverfisvænar.
„Við reynum að spila eingöngu á
þeim stöðum sem hafa gert sam-
göngukerfi sín eins umhverf-
isvæn og mögulegt er,“ sagði
Yorke og bætti við: „Radiohead
vill skaða umhverfið sem minnst.
Því höfum við keypt tvennt af öll-
um græjum og geymum bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum. Þá
þurfum við aldrei að fljúga
dótinu okkar um heiminn.“ re
Glastonbury
óumhverfisvæn
Þetta árið munu hinir sívinsælu
Strumpar birtast aftur á Nóa Sí-
ríus-páskaeggjunum eftir nokk-
urra ára hlé. Í fjarveru Strumpanna
hafa hinir umdeildu púkar prýtt
páskaegg Nóa Síríuss en nú með
endurkomu hinna bláu Strumpa
hafa púkarnir verið settir á hilluna,
kirkjunnar mönnum til ómældrar
ánægju sem voru ósáttir við að
púkar skyldu tengjast páskahátíð-
inni.
„Strumparnir eru fimmtugir nú
í ár þannig að mér finnst þeir eiga
að koma aftur í ljós og láta í sér
heyra,“ segir Þórhallur Sigurðsson
sem hefur tengst Strumpunum
hvað mestum tryggðarböndum
enda léði hann Strumpunum rödd
sína á árum áður.
Laddi hefur nú nýlokið við að
lesa inn á auglýsingar fyrir
Strumpaeggin en hann reiknar
með að hann muni gæða sér á
Strumpaeggi þessa páskana.
„Það er alveg pottþétt að ég
kaupi mér Strumpaegg.“ vij
Páskarnir verða bláir í ár
Betri en púkarnir? Strumparnir
komnir aftur á kreik.
Eftir Ragnheiði Eiríksdóttur
heida@24stundir.is
„Við rákumst á þessa hugmynd í
erlendum bæklingum og fannst að
þetta vantar algjörlega á íslenskan
markað,“ sagði verslunarstjórinn
Arnaldur Haukur Ólafsson sem í
dag opnar verslunina HobbyRoom
í Garðabæ. Þar verður meðal ann-
ars hægt að fá billjardborð fyrir
snóker og pool, þythokkí, rúllettu-
borð, pókerborð, stór fótboltaspil,
spilakassa með yfir 150 kunn-
uglegum leikjum, píluspjöld, glym-
skratta, borðtennisborð, míníbari,
æfingatæki og hlaupabretti.
Vörurnar fjölskylduvænar
Arnaldur segir að oft sé einblínt
of mikið á að hlutir eins og billj-
ardborð eða pókerplötur séu bara
fyrir stráka. En þrátt fyrir öll
mannalætin í kringum slíka hluti
sé staðreyndin sú að tækin séu fjöl-
skylduvæn fjárfesting.
„Billjardborð, fótboltaspil eða
aðrar svona græjur eru líklega ein
fjölskylduvænsta fjárfesting sem
dellufólk getur ráðist í. Í stað þess
að kaupa vélsleða, mótorhjól eða
rándýra stangveiði þar sem þú ferð
út af heimilinu til að sinna áhuga-
málinu ertu að þjappa fjölskyld-
unni saman og gera eitthvað með
henni.“
Þarf ekki að vera dýrt
„Við erum með ýmsar skemmti-
legar vörur. Við seljum meðal ann-
ars sams konar æfingalóð og Beck-
ham er að nota. Svo erum við með
gamaldags spilakassa með sam-
ansafni af öllum gömlu skemmti-
legu leikjunum, meira að segja
Pacman. Spilakassinn kostar tæpar
250 þúsund. Billjardborðin okkar
kosta svo frá nokkrum tugum þús-
unda til tæplega hálfrar milljónar,
allt eftir gæðum.“
Verslunin HobbyRoom er opin
frá klukkan 11 til 19 alla daga vik-
unnar. Vefur verslunarinnar opnar
bráðlega á vefslóðinni www.hob-
byroom.is.
Ný búð í Garðabæ sem sérhæfir sig í hobbýherbergjum
Hobbý eru ekki
bara fyrir stráka
Arnaldur Hefur sjálfur
mörg áhugamál og spilar
bæði golf og pool.
➤ Fullbúið hobbýherbergi kost-ar 1,8 milljónir og innifalin er
heimsókn sérfræðinga sem
koma með tillögur að upp-
setningu og sjá um hana.
➤ HobbyRoom er í Miðhrauni íGarðabæ, í sama húsi og
Just4Kids.
HOBBÝHERBERGI
Í dag opnar verslunin
HobbyRoom í Garðabæ,
sem sérhæfir sig í vörum
fyrir hobbýherbergi
heima við. Þar má meðal
annars finna glymskratta
og billjardborð.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Við munum alltént ekki hætta við förina, fáum
kannski lífverðina hennar Silvíu Nætur, nú eða
bara Gillzenegger og félaga til að gæta okkar!