24 stundir - 29.02.2008, Page 46

24 stundir - 29.02.2008, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 2008 24stundir „Gróft klám í Fréttablaðinu. Við mér blasti fyrirsögnin „Dana reið kalkúnanum“ í innrammaðri frétt merktri Eurovision. Kalkúni þessi er leikari með kalkún- agrímu og hann er fulltrúi Íra í keppninni. En svona óheflað orðalag hentar ekki dagblaði sem börn geta komist í.“ Jens Kr. Guðmundsson jensgud.blog.is „Sé nafnið eitthvað að flækjast fyrir Barack Hussein Obama þá ætti hann að skoða nöfn fram- bjóðenda í Meghalaya-héraði á Indlandi. Þar eru m.a. í framboði Frankenstein Momin, Billy Kid Sangma og Adolf Lu Hitler Ma- rak. Aðrir heita t.d. Lenin R. Ma- rak og Stalin L. Nagmin.“ Eggert Sólberg truflun.net/eggert „Ef múslimi er gómaður fullur á almannafæri á hann yfir höfði sér nokkra mánuði í steininum, sam- kvæmt lögum í Pakistan. Það ku samt sjaldan enda þannig. Flestir múta bara löggunni. Það er eins með þetta og öll önnur for- sjárhyggjubönn; þeir sem virki- lega vilja drekka gera það.“ Egill Bjarnason austurlandaegill.blog.is BLOGGARINN Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur halldora@24stundir.is „Hr. Lordi ákvað fyrir mörgum ár- um að fara í kvikmyndaskóla, stofna hljómsveit og búa til bíó- mynd. Þetta er búið að vera ára- tuga plan og Eurovision var bara grín á leið hans að því að verða heimsfrægur,“ segir Júlíus Kemp hjá Kvikmyndafélagi Íslands, en hann er einn af meðframleiðend- um kvikmyndarinnar Dark Floors, The Lordi Motion Picture, sem frumsýnd er í Sambíóunum í kvöld. Eins og frægt er orðið leikur for- sprakki hljómsveitarinnar Lordi, sem fór með sigur af hólmi í Euro- vision fyrir tveimur árum, hlutverk í kvikmyndinni, en um er að ræða spennuhrollvekju sem hefur verið hugarfóstur hr. Lordi til margra ára. Í hrollvekjunni kennir ýmissa grasa en þar ber væntanlega hæst skrímslin sem stálu senunni svo eftirminnilega í Eurovision hér um árið. Alsæll með íslenska hvalinn Hr. Lordi lenti á Íslandi í fyrra- dag í þeim tilgangi að verða við- staddur frumsýningu mynd- arinnar hér á landi. Heimildir 24 stunda herma að kappinn dveljist á Hótel Fourth Floor, en þar er hann í svítunni ásamt konu sinni. Að sögn Júlíusar var Lordi hinn hress- asti við komuna til landsins, en með fyrstu áfangastöðum var að sjálf- sögðu Bláa Lónið. „Hann var með óskir um að fara í Bláa Lónið og konan hans vill skoða íslenska fatahönnun. Svo stendur til að fara í Laxnes á hest- bak og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Júlíus og bætir við að kapp- inn hafi heillast af landi og þjóð. „Hann er voða-ánægður með þetta allt saman. Fyrsta kvöldið var farið á Þrjá frakka þar sem þau borðuðu hval og voru veru- lega hrifin.“ Aðspurður um frum- sýninguna kveðst Júlíus vita fyrir víst að Lordi muni láta sjá sig í búningi skrímslisins og láta öllum illum látum. „Hann mætir að sjálf- sögðu í búningnum á sýninguna. Hann er reyndar fjóra tíma að klæða sig í hann, en það hefst fyrir rest. Það verður að sjálfsögðu að vera eitt skrímsli í saln- um á svona sýn- ingu.“ Forsprakki skrímslahljómsveitarinnar Lordi er komin til landsins Eurovision var grín Forsprakki Eurovision- faranna Lordi mætir á frumsýningu hrollvekj- unnar Dark Floors, The Lordi Motion Picture í kvöld Flott skrímsli Það tekur Hr. Lordi hvorki meira né minna en fjóra tíma að klæða sig í búninginn. Meðframleiðandi Júlíus Kemp er ásamt Ingvari Þórðarsyni með- framleiðanda myndarinnar. HEYRST HEFUR … Fréttablaðið birti í gær frétt af hrakförum frétta- mannsins Þóris Guðmundssonar, en hann brotn- aði í skíðaferð á Madonna di Campiglio-skíðasvæð- inu. Þórir er ekki eini fréttamaðurinn sem hefur skíðað í brekkum Madonnu undanfarið því að Sigmundur Ernir Rúnarsson var þar einnig fyrir skömmu. Sigmundur kom reyndar heill heim þótt hann hafi kvartað örlítið undan sólbruna. afb Aðalrokkararnir í bænum létu sig ekki vanta á Org- an á miðvikudagskvöld þegar hljómsveitin Deep Jimi and the Zep Creams hélt upp á að 15 ár voru liðin frá útgáfu plötu þeirra Funky Dinasaur í Bandaríkjunum. Þar voru meðal annars Addi söngvari og félagar hans í rokksveitinni Sólstöfum, Jenni og félagar í Brain Police og Halli Valli og Sveinn úr hljómsveitinni Ælu. re Heiðar Austmann, útvarpsmaður á FM 957, svo gott sem eyðir harðri ímynd Þorkels Mána, út- varpsmanns á X-inu, í nýjasta tölublaði Séð og heyrt. Í stuttu viðtali segir Heiðar að Máni sé mikið ljúfmenni og afar mjúkur og skemmtilegur í garð strákanna á FM 957, sem hann skýtur oft hörðum skotum á í fjölmiðlum. Þá segir Heiðar að hann fari stundum með Mána í IKEA að versla. afb „Ef ég kemst áfram og vinn þessa milljón dollara mun ég fjár- festa skynsamlega og gefa 10% af upphæðinni til góðgerðarmála. Þá hugsa ég helst til Styrktarsjóðs langveikra barna og málefna eins og brjóstakrabbameins. Ég vil alla- vega láta eitthvað gott af mér leiða ef ég vinn,“ segir fyrirsætan og at- hafnakonan Ásdís Rán Gunn- arsdóttir, en hún er nú skammt frá sigri í fyrirsætukeppninni Hot for the money sem fram fer á heima- síðunni www.isshehot.com. „Þetta er hjá fyrirtækinu savvy- .com, sem er vinsæl afþreying- arsíða fyrir karlmenn. Þarna fer fram val á T́he million dollar womań og er leitað að réttu stelp- unni sem er bæði falleg og gáfuð. Í hverjum mánuði ársins er ein kona kosin og í lokin komast sigurveg- arar hvers mánaðar í raunveru- leikaþætti þar sem vinnings- upphæðin er 67 milljónir íslenskra króna.“ Ánægð með velgengnina Ásdís sendi inn myndir eftir áskorun sænsks ljósmyndara, en hún trónir nú í öðru sæti keppn- innar og einvörðungu 0,02 stigum frá stúlkunni sem nú er efst. „Ég er rosalega stolt af því að vera svona ofarlega, enda tugir flottra stúlkna í keppninni. Nú þarf ég bara að treysta á að allir fari og kjósi áður en lokað verður á kosningu á morgun. Ef svona 50 manns kjósa mig næ ég örugglega að vinna,“ segir Ásdís að lokum. Hægt er að gefa Ásdísi atkvæði sitt á vefsíðunni www.isshehot.com. halldora@24stundir.is Ásdís Rán gæti unnið tugi milljóna Mun gefa 10% til góðgerðarmála Stutt frá sigri Ásdís Rán er hársbreidd frá því að vinna fyrirsætukeppni á netinu. Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Su doku 7 5 2 8 9 3 4 1 6 8 3 1 4 6 5 7 2 9 4 6 9 1 2 7 8 3 5 5 1 3 6 7 2 9 4 8 2 4 6 3 8 9 1 5 7 9 7 8 5 4 1 2 6 3 1 8 4 7 5 6 3 9 2 3 2 5 9 1 8 6 7 4 6 9 7 2 3 4 5 8 1 Við vorum fráskilin um tíma, en hún fann mig. 24FÓLK folk@24stundir.is a Mótmæli eru mikilvæg lýðræðinu, en glæran um Molotov-kokteilana er kaldhæðið grín, enda höfum við húmor fyrir sjálfum okkur. Er Molotov-kokteila kennsla ekki full langt gengið? Þórhildur Halla Jónsdóttir heldur fyrirlestur um fundi og mótmæli á vegum Stjórnmálaskóla ungra vinstri-grænna á Akureyri á laugardaginn. Ein glæran mun fjalla um Molotov-kokteila. Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is 250.000,- kr.AFSLÁTTUR Fullt verð kr. 1.100.000,- Tilboð kr. 850.000,- Árgerð: 2006 Aukahlutir: Grjótgrind, tvöföld gaskútafesting, 2 rafgeymar og svefntjöld STÓRLÆKKAÐ VERÐ ÁNOTUÐUM FERÐAVÖGNUM Colt fellihýsi

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.