24 stundir - 29.02.2008, Page 48

24 stundir - 29.02.2008, Page 48
24stundir Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322 OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16 NÝJAR VÖRURDÖMU OG HERRA VOR 08 -50% TILBOÐ TILBOÐSHORNIÐ eldri vörur verðhrun - 60-80% ? Nú skulum við tala um dýrmætarmanneskjur. Fólk sem auðgar tilveruokkar hinna. Fólk sem leggur á sig erfiði íannarra þágu. Fólk sem fórnar tíma ogkröftum til að láta hlutina gerast. Guð-fríður Lilja Grétarsdóttir er slík afreks-kona. Hún er vinkona mín, svo ég veitum hvað ég er að tala þegar ég segi að hún sé andríkasta snilldarpersóna sem ég hef kynnst á þeim 42 árum sem ég hef verið á vappi um plánetuna Jörð. Lilja hefur í fjögur ár verið forseti Skáksambands Íslands, og lagt af mörk- um þúsundir vinnustunda. Ég endurtek: Þúsundir vinnustunda. Það tekur mann brot úr sekúndu að lesa þessi tvö orð – en það tekur mann þúsundir vinnustunda að skilja hvað þau þýða. Nú fer í hönd síðasta veislan sem Lilja heldur sem for- seti Skáksambandsins. Um helgina verð- ur Íslandsmót skákfélaga haldið í Rima- skóla (einum mesta skákskóla í heimi) og í næstu viku verður alþjóðlega Reykjavík- urskákmótið, þar sem andi Fischers mun svífa yfir borðum. Spassky er á leiðinni, söngfuglinn Lajos Portisch og Hort gamli, sem fyrir einum mannsaldri setti heimsmet á Seltjarnarnesi þegar hann tefldi við 600 skák-óða Íslendinga á einu bretti. Það er dásamlegt að fá þessar kempur. Í forsetatíð Lilju hafa þúsundir krakka byrjað að tefla. Salaskóli er heims- meistari grunnskóla, Rimaskóli og Laugalækjarskóli hafa sópað til sín Norð- urlandatitlum. Íslensk börn hafa upp- götvað einföld sannindi: Skák er skemmtileg. Það er bjart framundan í ís- lensku skáklífi. Takk, Lilja. Lilja heldur veislu Hrafn Jökulsson skrifar um fólk sem lætur gott af sér leiða. YFIR STRIKIÐ Hvernig gerast góðir hlutir? 24 LÍFIÐ Hulk Hogan átti í ástarsambandi við vinkonu dóttur sinnar áður en skilnaður við eiginkon- una gekk í gegn. Tekinn í bólinu með vinkonu dótturinnar »40 Forsprakki Eurovisionskrímslanna í Lordi er kominn til landsins ásamt eiginkonu sinni, sem ku vera mennsk. Skrímslið Lordi er komið til landsins »46 Gay Pride á Íslandi varar Euro- bandið við að fara til Belgrad þar sem Evróvisjón-keppnin verður haldin í ár. Euroband óttast ekki hommaofsóknir »42 ● Gestadómari „Það hefur ekkert upp á sig að ljúga að krökkunum, ef þau standa sig ekki vel,“ segir Margrét Eir Hjartardóttir, sem verður gesta- dómari í sjónvarpsþætti Bubba Morthens, Bandinu hans Bubba, á Stöð 2 í kvöld. „Ég verð bara hrein- skilin, og er oft harðari við þá sem ég veit að er eitthvað varið í, því þá geta þau nýtt sér gagnrýnina. Ann- ars heyrist mér að það sé mikið af óvönum söngvurum þarna, sem er bara soldið sætt. Ég er orðin þreytt á svona karaókí-röddum.“ ● Ekki nein út- rásargrúppía Hafliði Helgason, sem snýst til varn- ar gegn þeim sem telja íslensku út- rásina blekkingu er kallaður útrás- argrúppía á blogg- síðu Egils Helgasonar og vísað til kaupréttarsamninga og Rei- málsins. Hafliði segist ekki vera nein grúppía íslensku útrásarinnar. „Hinsvegar tel ég útrásina mjög mikilvæga fyrir framtíðarefnahag landsins. Og mér svíður sú Þórð- argleði sem glittir í þegar á móti blæs. Ég tel að við eigum að halda til haga og varðveita þann árangur sem hefur náðst.“ ● Á Seyðisfirði „Seyðisfjarð- arbær veitir okkur vissulega innblástur í listaverkunum,“ segir Páll Hauk- ur Björnsson, nemi á þriðja ári í myndlistardeild Listaháskóla Ís- lands, en hann og nokkrir sam- nemenda hans opna sýninguna Hardware/Software í listamiðstöð- inni Skaftfelli á morgun. „Við sótt- um mikið af efniviðnum í verk- smiðjur í bænum og áttum samstarf við bæjarbúa og verkin bera þess vel merki.“ Ritstjórn Sími: 510 3700 ritstjorn@24stundir.is Auglýsingar Sími: 510 3700 auglysingar@24stundir.is Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.