24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 27
Amsterdam 18
Alicante 26
Barcelona 27
Berlín 22
Las Palmas 20
Dublin 21
Frankfurt 25
Glasgow 17
Brussel 17
Hamborg 20
Helsinki 21
Kaupmannahöfn 22
London 22
Madrid 29
Mílanó 27
Montreal 18
Lúxemborg 25
New York 24
Nuuk 9
Orlando 25
Osló 18
Genf 22
París 26
Mallorca 28
Stokkhólmur 23
Þórshöfn 11
Vestan og norðvestan 3-10 m/s. Skýjað á
Norðausturhorninu en annars léttskýjað að
mestu. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐRIÐ Í DAG
11
13
10
10 14
Hlýjast sunnanlands
Norðvestan 8-13 m/s og dálítil væta norð-
austanlands, en annars hægari vindur, skýjað
með köflum og stöku skúrir.
Hiti 8 til 17 stig, hlýjast sunnan til.
VEÐRIÐ Á MORGUN
12
13
12
9 11
Skýjað og stöku skúrir
Gunnar Svavarsson, fulltrúi
Hafnarfjarðar í stjórn Hitaveitu
Suðurnesja (HS), segir að í ljósi ný-
legra ummæla Hjörleifs Kvaran,
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) ekkert eiga að standa í vegi
fyrir því að OR uppfylli kaupsamn-
ing sinn við Hafnarfjarðarbæ um
kaup á 14,6 prósenta hluta bæjar-
ins í HS fyrir 7,7 milljarða króna.
„Í samræmi við nýju orkulögin
ætti Orkuveitan auðveldlega að
geta eignast 30 prósent í sérleyf-
isfyrirtækinu,“ segir Gunnar.
Hjörleifur lýsti því yfir á dög-
unum að OR gæti áfram átt sín 16
prósent í HS þrátt fyrir að áfrýj-
unarnend samkeppnismála hefði
úrskurðað að hún mætti ekki eiga
meira en 10 prósent og vísaði þar
til þess að hún gæti átt meira í sér-
leyfishlutanum. elias@24stundir.is
Hlutur Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja
OR getur víst keypt
Vörn Jóns Ólafssonar kaupsýslu-
manns og meðákærðu í einu um-
fangsmesta skattamáli sem rann-
sakað hefur verið hér á landi mun
að stórum hluta byggjast á því að
leyst hafi verið úr ágreiningi hjá yf-
irskattanefnd og því sé ákæran
byggð á ónægum forsendum.
Þá hafi upphæðirnar, samtals á
annan milljarð, verið greiddar til
baka, samkvæmt heimildum 24
stunda.
Ákæran á hendur Jóni, Hregg-
viði Jónssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Norðurljósa og Ís-
lenska útvarpsfélagsins, Ragnari
Birgissyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Skífunnar, og Sím-
oni Ásgeirssyni endurskoðanda
verður þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í dag. mh
Ákæra á hendur Jóni Ólafs þingfest í héraði
Segja málið leyst
hjá yfirskattanefnd
Landspítalinn hefur formlega ósk-
að eftir því við heilbrigðis- og fjár-
málaráðuneyti að fá greitt fyr-
irfram af fjárlögum til þess að geta
greitt niður skuldir sínar, að sögn
Önnu Lilju Gunnarsdóttur, starf-
andi forstjóra LSH. Segir hún
stofnunina hafa fengið slíkar fyr-
irframgreiðslur „nokkrum sinn-
um“ áður.
Jafnframt hefur stofnunin óskað
eftir auknu fé úr fjáraukalögum, sem afgreidd verða í haust.
Skuldir Landspítalans nema um 800 milljónum, mest vegna lyfja.
Áætlar Anna Lilja að um helmingur skuldanna sé vegna vanskila ann-
arra heilbrigðisstofnana sem keypt hafa ýmis konar vöru og þjónustu
af Landspítalanum. Þá segir hún lækkandi gengi krónunnar eina meg-
inástæðu skuldasöfnunarinnar því samningar stofnunarinnar séu í
mörgum tilfellum gengisbundnir. þkþ
LSH vill fá greitt fyrirfram
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem tal-
inn er hafa stungið annan mann með hnífi í hálsinn við skemmtistað á
Tryggvagötu aðfaranótt laugardags.
Í læknisskýrslu segir að litlu hafi mátt muna að árásin hafi leitt til lífs-
hættulegs ástands, örkumla eða jafnvel dauða.
Það er mat dómsins að miklar líkur séu á því að sakborningurinn hafi
framið brot sem varðar allt að sextán ára fangelsisvist.
Hæstiréttur staðfesti því gæsluvarðhaldssúrskurðinn og stendur hann
til föstudagsins 18. júlí.
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir
hnífamanni staðfestur í Hæstarétti
Evrópusambandið, ESB, leggur
til að borgað verði fyrir að
binda fiskiskip aðildarríkjanna í
höfn á meðan unnið er að til-
lögum um hvernig hjálpa megi
útgerðum til þess að lifa af hið
gríðarlega háa olíuverð. ESB
leggur til að styrkir til sjávar-
útvegs verði auknir í allt að 2
milljarða evra eða 240 milljarða
króna. Árlegir styrkir nú eru 84
milljarðar króna á ári, að því er
greint er frá á vef Lands-
sambands íslenskra útvegs-
manna. Samkvæmt upplýsingum
ESB er fiskiskipafloti aðild-
arlandanna 40 prósentum stærri
en æskilegt getur talist miðað
við veiðiþol fiskistofnanna.
Fiskiskip ESB verði bundin í höfn
Eftir Þröst Emilsson
the@24stundir.is
„Ég er þeirrar skoðunar að það eigi
að kanna kosti þess að hafa frítt
fyrir alla í strætó. Hugarfarsbreyt-
ingin sem af því hlýst að fjölga far-
þegum strætó og fækka þar með
bílum á götum borgarinnar er
mikils virði,“ segir Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri.
Ókeypis verður
í strætó fyrir reyk-
víska námsmenn í
framhalds- og há-
skólum í vetur, líkt
og var á síðasta
ári. Borgarráð
samþykkti þetta á
dögunum. Um
10% aukning varð
á strætónotkun
eftir að verkefnið
hófst, skv. mælingu frá í mars.
Stefnt er að enn frekari niður-
fellingu strætisvagnafargjalda fyrir
börn og unglinga að 18 ára aldri og
fyrir aldraða og öryrkja.
Þetta er í samræmi við málef-
naáherslur borgarstjórnarmeiri-
hlutans en þar segir að gera eigi til-
raun til að efla
almenningssamgöngur með
ókeypis strætó fyrir tiltekna hópa.
Borgarstjóri vill hins vegar skoða
hvort ekki beri að stíga skrefið til
fulls fyrir lok kjörtímabilsins.
„Það mælir ótal margt með því
að koma á fríum almenningssam-
göngum. Það tónar við okkar
grænu skref og á tímum hás olíu-
verðs yrði þetta tvímælalalust
kjarabót fyrir borgarbúa.“
Hvorki hafa verið settar fram
formlegar tillögur í þessum efnum
né hafa viðræður farið fram við
fulltrúa sveitarfélaganna sjö á höf-
uðborgarsvæðinu, sem standa að
rekstri Strætó bs.
Þá liggur ekki fyrir hve mikið
það kostar að hafa frítt í strætó fyr-
ir alla en viðbótarkostnaður borg-
arinnar vegna niðurfellingar far-
gjalda fyrir námsmenn nemur um
270 milljónum króna.
Vill ókeypis í
strætó fyrir alla
Borgarstjóri vill efla almenningssamgöngur á krepputímum
Vill kanna möguleika á gjaldfrelsi fyrir alla fyrir lok kjörtímabils
➤ Strætó bs. er byggðasamlag íeigu sjö sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu.
➤ Strætó tók við af SVR og AV1. júlí 2001.
➤ Rekstur Strætó kostar um 3milljarða króna á ári.
➤ Farmiðatekjur eru um 700milljónir króna.
➤ Sveitarfélögin leggja Strætótil um 2,3 milljarða króna.
Reykjavíkurborg greiðir tæp
70% eða rúman einn og hálf-
an milljarð króna.
STRÆTÓ BS
Ólafur F.
Magnússon
LEIÐRÉTT
● Prestar Í umfjöllun um af-
stöðu presta til staðfestrar sam-
vistar láðist að taka fram að í
hópi presta sem hvorki sögðu
nei né já voru bæði þeir sem
sögðust vera óákveðnir og þeir
sem neituðu að svara.
● Vildi víst Í helgarviðtali féll
út orðið „ekki“ þar sem Garð-
ar Thór Cortes segir frá störf-
um með þroskaheftum. Þar
átti að standa: „Ég ákvað að ég
vildi ekki vera maðurinn sem
gæti ekki unnið þetta starf.“
● Oddviti Flosi Eiríksson er
ekki oddviti Samfylkingar í
Kópavogi, eins og sagt var í 24
stundum, heldur Guðríður
Arnardóttir.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Breskur ekkill hefur lokið við
að púsla saman fleiri þús-
undum pappírssnifsa af ást-
arbréfum sem hann sendi til
látinnar eiginkonu sinnar á
þeim tíma er hann biðlaði til
hennar. Ted Howard kláraði
verkið eftir 15 ára vinnu, en
kona hans reif bréfin í sundur
og kom þeim fyrir í púða eftir
að einhver hafði laumast til að
lesa þau. aí
Trúr ekkill í Bretlandi
Púsl ástarinnar
SKONDIÐ