24 stundir - 16.07.2008, Page 13

24 stundir - 16.07.2008, Page 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 13 Verið velkomin í Nettó Mjódd - Salavegi - Akureyri - Höfn - Grindavík ...ekki bara matur! TILBOÐIN GILDA 17. - 20. JÚLÍ w w w .m ar kh on nu n. is 49.990kr 499kr/stk WEBER GRILLKRYDD FRÁBÆRT VERÐ! GRILLÁHÖLD 4 BRENNARA GRILL 4 BRENNARAR! www.signature.is Fiskislóð 45 • 101 Reykjavík • Sími 565 3399Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 Útisófasett frá Saccaro Hvers á færeyska krónan aðgjalda? Af hverju villenginn taka hana upp? Hvar er Vestnor- ræna ráðið núna? Árni Johnsen, halló!“ segir Árni Snævarr og gerir harða hríð að forsætisráðherra. „Á sama tíma skilur Geir H. Haarde ekki neitt í neinu og minnir sífellt meir á Mr. Chance í ógleymanlegri skáldsögu Kozinski og kvikmyndinni Being there,“ segir Árni Snævarr, sem ekki fékk inni með Evrópuþátt á RÚV – og áfram: „Crisis? What Crisis? segir Geir, eins og hljómsveitin Super- tramp. Krónan kostaði með- alskuldarann 1,7 milljónir á síð- asta ári.“ „Afneitun,“ segir Árni. Og fast er skotið úr hinniáttinni. Vefþjóðviljinntalar um sísöng Evr- ópusinna í garð forystu Sjálfstæð- isflokksins. Að krefja hana um af- stöðu í Evrópumál- unum sé eins og að krefja VG um af- stöðu til virkjana í Þjórsá. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur skýra stefnu í Evrópumálum og Geir H. Haarde, formaður hans, er eindreginn og skýr, jafnt í and- stöðu við inngöngu í ESB sem við upptöku evru sem gjaldmiðils á Íslandi. En á Evrópufjölmiðl- unum heitir það ekki afstaða nema menn vilji að Ísland renni inn í evrópska stórríkið. … Og þegar einhver, … skrifar hundr- uðustu greinina eða sendir frá sér þúsundustu ályktunina, dettur fréttamönnum það eitt í hug að hringja í Baldur Þórhallsson og spyrja hvort nú hafi ekki orðið vatnaskil. Og hann heldur það nú.“ Leiðsögumenntala um evr-ugúrku- umræðu, stóra mál- ið nú séu kamrar. „Þetta er sumar hinna lokuðu sal- erna,“ sagði einn þeirra við RÚV. Lára Hanna Einarsdóttir, fræg fyrir að stöðva Bitruvirkjun, blandar sér í slaginn og þá mega einhverjir fara að vara sig. „Hver ber ábyrgð á því að náttúruperlur okkar séu ekki útmignar og -skitnar og mishuggulegur pappír fjúkandi …?“ spyr Lára Hanna og furðar sig á að Ferðamálastofa komi upp kömrum – og þar við sitji. beva@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Samtökin Saving Iceland hafa um nokkurra ára skeið mótmælt því að byggð yrðu vistvæn orkuver á Íslandi. Aðallega hafa mótmælin beinst gegn byggingu Kárahnjúka- virkjunar en nú einnig að jarð- varmaveitunni á Hellisheiði. Sam- tökin leggja sérstaka rækt við að mótmæla vistvænustu orkuverum í veröldinni. Þá hafa samtökin mót- mælt stóriðjustefnu. Félagar í samtökunum hafa sama rétt og aðrir til að halda fram skoð- unum sínum og mótmæla í lýð- frjálsu landi. Samt sem áður verða mótmælin að vera innan þeirra marka sem lög heimila. Vandamál við mótmæli Saving Iceland hafa komið til vegna þess að félagar og/ eða áhangendur samtakanna hafa iðulega farið langt út fyrir eðlileg mörk í mótmælum og staðið fyrir skemmdarverkum og lögbrotum. Nefna má í því sambandi skemmd- arverk sem unnið var hjá ræðis- manni Íslands í Edinborg en einnig má benda á að lögregluyfirvöld hafa oft þurft að hafa afskipti af mótmælum samtakanna. Árið 2006 voru 14 félagar í samtökunum kærðir og dæmdir fyrir að standa í skemmdarverkum og fara ekki að tilmælum lögreglu svo dæmi séu tekin. Þegar þetta er skrifað hafa mótmæli samtakanna við Hellis- heiðarvirkjun verið friðsamleg. Ís- lensk sumarrigning er meira en margir mótmælendurnir gátu þol- að og urðu því að sækja sér aðstoð og hlýju frá þeim orkuverum sem mótmæli þeirra beinast gegn. Þó á þessum inngangi megi skilja að ég er ekki sérstakur aðdáandi samtakanna Saving Iceland, þá hækkuðu þau verulega í áliti hjá mér í dag. Vistvæni varaformaður Orkuveitu Reykjavíkur, Ásta Þor- leifsdóttir úr Íslandshreyfingunni, segist í frétt dást að hugsjón sam- takanna Saving Iceland. Hún bauð samtökunum óformlega að sækja um styrk hjá fyrirtækinu. Varafor- maður Orkuveitunnar vildi hlutast til um að mótmælasamtökin, hvers félagar eru margdæmdir fyrir óhlýðni og skemmdarverk, fengju styrk af almannafé frá Orkuveitu Reykjavíkur. Í sjálfu sér kom mér þessi hugsun Ástu Þorleifsdóttur „umhverfis- verndarsinna“ ekki á óvart. Hún er greinilega vön að vasast þannig með opinbert fé að henni finnst eðlilegt að því megi eyða eftir hent- ugleikum. Þá hefur hún vafalaust einnig haft í huga þegar Landsvirkj- un af gjafmildi sinni styrkti for- mann Íslandshreyfingarinnar um margar milljónir vegna mótmæla hans við Kárahnjúkavirkjun. For- manninum fannst eðlilegt að taka við styrknum frá Landsvirkjun og hvers vegna þá ekki Saving Iceland. Nú brá svo við að hugsjónafólkið í Saving Iceland sagði nei takk við Ástu Þorleifsdóttur. Því fannst ekki eðlilegt að þiggja styrk úr hendi þeirra sem mótmæli þeirra beinast gegn. Ég tek ofan fyrir þessari af- stöðu félaga Saving Iceland. Af- staða nefndardrottningar Reykja- víkur er hins vegar dæmigerð fyrir þann fáránleika sem einkennir meirihlutann í Reykjavík. Í sama dagblaði og lesa mátti frétt um að Saving Iceland hefði kurteislega af- þakkað boð Ástu Þorleifsdóttur, varaformanns Orkuveitunnar, var frétt þar sem Ásta, sem fær yfir hálfa milljón á mánuði fyrir nefnd- arsetur og önnur viðvik hjá Reykja- víkurborg, kvartar yfir því að þurfa að borga símkostnað og akstur fyrir REI. Það er raunar með ólíkindum að milljarðafyrirtækið REI skuli gera svona illa við stjórnarmann sinn. Ásta upplýsir að hún fái 125 þúsund á mánuði fyrir stjórnarsetu hjá REI en það er ekki nóg því að engir aksturspeningar fylgja og símann sinn verður hún að borga sjálf. Stjórn Orkuveitunnar gæti e.t.v. hlutast til um að veita Ástu styrkinn sem Saving Iceland hafnaði. Þá gæti þessi umhverfissinni sem er vara- formaður Orkuveitunnar haldið áfram að nota bílinn sinn til hins ýtrasta auk símans. Það er engin ástæða til þess að umhverfisvernd- arsinnar í orði noti vistvæn farar- tæki. Eða hvað? Af orðum og af- stöðu nefndardrottningar Reykjavíkurborgar Ástu Þorleifs- dóttur að dæma, virðist brýnna að sérgróða liðinu í stjórn Reykjavík- urborgar verði vikið burt en fé- lögum úr Saving Iceland. Höfundur er alþingimaður Burt með þá VIÐHORF aJón Magnússon Afstaða nefnd- ardrottn- ingar Reykja- víkur er hins vegar dæmi- gerð fyrir þann fáránleika sem ein- kennir meirihlutann í Reykjavík.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.