24 stundir - 16.07.2008, Síða 17
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 17
KYNNING
Kjarnafæði var stofnað árið 1985 af bræðrunum
Eiði og Hreini Gunnlaugssonum. Fyrstu árin var
aðaláherslan lögð á að framleiða pitsur og hrásalat
en í dag framleiðir Kjarnafæði flestar þær afurðir úr
íslensku gæðakjöti sem í boði eru á íslenskum neyt-
endamarkaði. Afurðir úr reyktu og söltuðu kjöti má
telja sem sérgrein fyrirtækisins en auk þess fram-
leiðir fyrirtækið fjölda kjötvara, bæði lítið unnar og
meira unnar, s.s. pylsur, álegg t.d. hið fræga peppe-
róní og búðinga af ýmsu tagi. Kjötiðnaðarmeistarar
fyrirtækisins hafa hlotið fjölda verðlauna og við-
urkenninga fyrir færni sína. Núverandi kjötiðn-
aðarmeistari Íslands og kjötiðnaðarnemi ársins
starfa hjá fyrirtækinu sem leggur mikla áherslu á
vöruvöndun og gæði framleiðslunnar og að veita
skjóta og góða þjónustu. Það hefur á að skipa mjög
hæfu starfsfólki og góðum tækjakosti en nú starfa
um 130 manns hjá Kjarnafæði og hafa margir þeirra
starfað þar allt frá fyrstu árum fyrirtækisins.
Aukið úrval af pylsum
„Helsta nýjungin hjá okkur er léttreyktar BBQ-
svínakótilettur í hunangslegi sem hafa slegið í gegn
en almennt hefur verið mikil sala í grillkjöti í góða
veðrinu í sumar. Þá hefur verið mikil söluaukning í
pylsum en þar höfum við aukið við úrvalið með
nýjum Mexíkógrillpylsum sem eru mátulega sterkar
og góðar á grillið. Fyrir nokkrum árum hófum við
einnig sölu á Bratwurst-pylsum og í fyrra á pólsk-
um pylsum sem hafa orðið sívinsælli. Auk þess hef-
ur mikil aukning orðið í sölu á hefðbundnum
heimilispylsum. Sem áður er þó vinsælasta tegundin
okkar villibráðarkryddaðar lambalærissneiðar og þá
er merkilega mikil sala í hangikjöti á sumrin,“ segir
Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Kjarnafæðis.
maria@24stundir.is
Mexíkópylsur góðar á grillið
Breitt vöruúrval hjá Kjarnafæði
Grillsumar Auðjón segir ýmiss konar pylsur hafa verið vinsælar á grillið í sumar og nýjungum í slíku vel tekið.
KYNNING
Indversk matargerð hefur verið
vinsæl hér á landi svo árum skiptir
enda með eindæmum hvernig mis-
munandi krydd í indverskum mat
bætir hvað annað upp svo úr verð-
ur fullkomin veisla fyrir bragðlauk-
ana. Alls kyns krydd er órjúf-
anlegur þáttur indverskrar
matargerðar en það er notað til að
bæta við bragð réttar og skapa ein-
staka blöndu bragðs og lyktar.
Matur er mikilvægur hluti af ind-
verskri menningu og gegnir
ákveðnu hlutverki, hvort heldur
sem er í daglegu lífi eða í veislu-
höldum. Þó hefur indversk mat-
argerð orðið fyrir áhrifum svæða
eins og Vestur-Asíu, Mið-Asíu og
Evrópu.
Stór hluti indverskrar matargerðar
er grænmeti en margir hefð-
bundnir réttir innihalda þó líka
kjúkling, lambakjöt, fisk og fleira.
Indland er ekki síst þekkt fyrir Tan-
doori-eldamennsku sína en það er
ein elsta grillaðferð í heimi.
Einfaldur indverskur matur
Með indverskum mat er sér-
staklega gott að grilla naan-brauð
en það er bæði ljúffengt og einfalt.
Naan-brauð passar einstaklega vel
við allan indverskan mat og full-
komnar máltíðina ásamt fersku
salati. Eins hefur mango chutney
verið mjög vinsælt undanfarið
enda hentar það einkum vel bæði
eitt og sér og sem hráefni í alls kyns
sósur.
Hins vegar getur stundum
reynst erfitt að elda indverskan mat
svo vel takist til en með Patak’s-
kryddmaukinu verður verkið mun
auðveldara. Patak’s-kryddmaukið
er blanda af ferskum og möluðum
kryddjurtum en ferskleika þeirra er
haldið með því að varðveita þær í
olíu. Kryddmaukið er tilvalið til að
búa til einfaldar og gómsætar mar-
ineringar sem og krydd fyrir grill-
kjötið, kjúklinginn, sjávarfangið og
grænmetið. Hér að neðan eru tvær
einfaldar en ljúffengar indverskar
uppskriftir sem ættu að vera á allra
færi. Sem meðlæti er tilvalið að út-
búa ferskt og gott salat og ekki má
gleyma ljúffenga naan-brauðinu.
Keralan-sjávarréttapinnar með
kartöflusalati
fyrir 4
8 trépinnar (látið liggja í vatni í
30 mín.)
16 stk. hörpuskel
16 risarækjur
300 g lúða (eða fiskur að eigin
vali)
4 tsk. jógúrt
4 tsk. Patak’s Curry Paste
4 msk. kókosmjólk
2 hvítlauksgeirar
2 tsk. dill
50 g rauðlaukur, skorinn í stóra
bita
16 sveskjur (steinlausar)
Svartur pipar
Aðferð:
Setjið jógúrt, kókosmjólk ásamt
hvítlauknum í skál og blandið
saman við Patak’s Mild Curry
Paste. Kryddið síðan með svörtum
pipar og dilli. Fiskinum er síðan
bætt við og látið marinerast í um
það bil 30 mínútur inni í ísskáp.
Þræðið síðan hráefnið á pinnann
og grillið á meðalhita í um það bil
6 mínútur.
Kartöflusalat á indverska vísu
fyrir 4
250 g kartöflur
1½ tsk. Patak’s Madras Paste
2 msk. Patak’s Raita sósa
1 msk. ferskt mintulauf (nið-
urskorið)
sítrónusafi úr hálfri sítrónu
salt og pipar
Aðferð:
Skerið kartöflurnar í tvennt og
setjið í sjóðandi vatn ásamt 1 tsk. af
Patak’s Madras Paste. Sjóðið í 10-
15 mínútur eða þar til kartöflurnar
eru soðnar í gegn. Setjið síðan 1
tsk. af Patak’s Madras Paste og 1
tsk. af vatni í skál og blandið sam-
an. Bætið síðan Raita-sósunni við
ásamt sítrónusafanum og mintu-
laufinu. Kartöflunum er síðan
blandað vel saman við salatið og
borið fram.
Tandoori-kjúklingur með
fersku salati
fyrir 4
4 kjúklingabringur
6 tsk. jógúrt
10 tsk. Patak’s Tandoori Paste
salat
1 rauð paprika, niðurskorin
2 sellerístönglar, niðurskornir
8 kirsuberjatómatar, skornir í
tvennt
1 tsk. minta
100-150 g salatblöð
Aðferð:
Blandið saman jógúrt og Patak’s
Tandoori Paste og marinerið kjúk-
linginn í blöndunni í eina klst. í ís-
skáp. Setjið kjúklinginn á grillið og
eldið þar til hann er steiktur í gegn.
Berið síðan fram með salatinu og
gott er að grilla naan-brauð til að
hafa með.
svanhvit@24stundir.is
Ljúffengir en einfaldir indverskir réttir
Fullkomin veisla
fyrir bragðlaukana
Tandoori-kjúklingur
Góður indverskur réttur
sem einfalt er að útbúa.
Sjávarréttapinnar Það
er auðvelt að tileinka sér
indverska matargerð.
S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ...
Blandarinn sem allir eru
að tala um!
Mylur alla ávexti, grænmeti klaka
og nánast hvað sem er
Hnoðar deig
Býr til heita súpu og ís
Hraðastillir
Lífstíðareign!
y g