24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Vín Huberts var orðið ágætlega
kunnugt Íslendingum þar sem
hann hefur oft komið hingað til
lands og á hér vini sem kynnst hafa
víninu. Samstarf okkar spratt upp
úr því að þróa saman vín fyrir
Flugleiðavélarnar og síðan kom
upp sú hugmynd að tengja vínið
íslenskri myndlist. Vínið sem valið
var kom úr röð mismunandi víns
sem áður hefur verið framleitt af
Hubert Sandhofer nema hvítvínið
sem er sérsniðið og gert úr blöndu
tvenns konar víns,“ segir Arnar
Bjarnason hjá Víni og mat sem
flytur inn vínið.
Undirstrikar gæðin
Arnar segir að sjálfur hafi hann
enn ekki keypt vín eingöngu út af
fallegum miða en slíkt geti haft
mikil áhrif á sölu. Þannig hafi verið
gengið út frá því að miðarnir vektu
athygli en undirstrikuðu um leið
að í flöskunni væri virkilega gott
vín. Arnar segir vín frá Austurríki
ekki sérlega fyrirferðarmikið hér á
landi þar sem lítið sé flutt inn af
því og gjarnan sé það úr þrúgum
sem fólk þekki ekki til. Þó sé vissu-
lega til austurrískt vín sem selst
hafi vel hér á landi.
Færðar í nýtt samhengi
Um grafíska hönnun miðanna
sá Ámundi Sigurðsson, sem valdi
úr verkum Kristínar ásamt Hubert
en hluti hvers verks sem þótti passa
var tekinn út úr því og færður í
nýtt samhengi á miðunum. „Öll
heildin er hönnuð með það fyrir
augum að styðja að dýpri skilningi
á víninu og dýpri nautn af því að
drekka það. Val myndanna miðaði
að því að innri karakter þeirra og
vínsins tengdist. Þannig undir-
strikar svarti hundurinn á rauðvín-
inu eiginleika þess; djúpt, kraft-
mikið og dálítið karlmannlegt en
hvíti hjörturinn á hvítvíninu er
léttari og fínlegri. Á rósavíninu er
síðan móðir með barn en það var
ég sem hvatti til þess að þessi mynd
yrði notuð en kvenleiki og mýkt
myndarinnar nær að vinna vel
saman við bleika litinn,“ segir
Kristín Gunnlaugsdóttir og bætir
við að hið myndræna skipti sig
miklu máli við val á víni.
Íslenskar myndskreytingar á austurrísku víni
Fallegir flöskumiðar
hafa mikið að segja
Austurrískt vín frá fram-
leiðandanum Hubert
Sandhofer má nú finna í
hillum vínbúðanna í
Kringlunni og Heiðrúnu
en flöskumiðarnir eru
myndskreyttir með verk-
um listakonunnar Krist-
ínar Gunnlaugsdóttur.
Listamaðurinn Krist-
ín áritar flöskumiða.
24stundir/Valdís Thor
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
DUKA
Kringlunni 4-12
Sími 533 1322 | duka@duka.is
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan- Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað
klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur-
plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.