24 stundir - 16.07.2008, Blaðsíða 21
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Víða erlendis njóta sveita- og
bændamarkaðir mikilla vinsælda
jafnt meðal ferðamanna sem
heimamanna. Þar gefst fólki tæki-
færi til að kaupa ferskar og heima-
gerðar matvörur beint frá bónda.
Slíkir markaðir hafa einnig fest sig í
sessi hér á landi á undanförnum
árum.
Einn sá þekktasti er sveitamark-
aðurinn í Mosskógum í Mosfells-
dal sem er vel sóttur jafnt af nær-
sveitarmönnum sem öðrum
höfuðborgarbúum. Þar er aðallega
í boði nýtt grænmeti sem ræktað er
á staðnum.
Allt úr nágrenninu
„Við erum líka með heimaunnar
vörur, sultur og pestósósur og sil-
ung úr Þingvallavatni. Þetta er
mestmegnis úr nágrenninu eða
Þingvallasveitinni,“ segir Jón Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
markaðarins.
Öðru hverju eru tónleikar eða
aðrar uppákomur á markaðinum
en hápunktur sumarsins er þó um
miðjan ágúst. „Þá erum við alltaf
með sultukeppni hérna sem er
mjög skemmtileg,“ segir Jón.
Þjappar fólki saman
Fleiri sveitamarkaðir hafa verið
haldnir í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins. Næsta laugardag verður
slegið upp sveitamarkaði í Fé-
lagsgarði í Kjós þar sem vörur úr
sveitinni verða á boðstólum. Stein-
unn Hilmarsdóttir sem heldur ut-
an um markaðinn segir að þar
verði meðal annars á boðstólum
nautgripakjöt beint frá bónda, sil-
ungur og fleira fiskmeti, broddur,
mjólkurvörur og hugsanlega eitt-
hvað fleira matarkyns. „Svo er fólk
að föndra ýmislegt fleira, til dæmis
vörur úr roði, ull og silki. Þetta eru
prjónavörur, útsaumaðar vörur svo
sem handklæði, fatnaður og fleira,“
segir hún.
Steinunn segir að markaðurinn
hafi margþætt gildi fyrir samfélagið
í sveitinni. „Það var mjög mikil
ánægja meðal markaðsmanna í
fyrra með að taka á móti glöðum
gestum sem höfðu mikinn áhuga á
því sem var að gerast hér í sveit-
inni. Þá þjappar svona markaðs-
dagur fólki ótrúlega saman því að
um sameiginlegt átak er að ræða
sem byggist á samvinnu íbúa.“
Markaðsstemning Sveitamark-
aðir hafa notið vinsælda hér á landi
á undanförnum árum.
Sveitamarkaðir eru vinsælir síðsumars
Heimaunnar vörur
beint frá bónda
Sveitamarkaðir hafa fest
sig í sessi hér á landi á
undanförnum árum. Þar
gefst neytendum tæki-
færi til að kaupa ferskt
grænmeti og heimaunnar
matvörur beint af bónda.
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 21
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is neytendur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Stökktu til
Fuerteventura
22. - 29. júlí
frá kr. 39.990
Heimsferðir bjóða ótrúlegt sértilboð á síðustu sætunum til Fuerteventura
22. júlí í viku. Þessi skemmtilega eyja í Kanaríeyjaklasanum hefur svo
sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Njóttu lífsins á þessum vin-
sæla sumarleyfisstað í fríinu. Þú bókar flugsæti og 4 dögum fyrir brott-
för færðu að vita hvar þú gistir. Bjóðum einnig frábær sértilboð á vin-
sælum íbúðahótelum í Corralejo; Maxorata Beach, Oasis Dunas og
Oasis Papagayo.
Örfá sæti laus
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 saman í herbergi /
stúdíó / íbúð. Stökktu tilboð, 22. júlí í viku.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2 -11 ára saman í herbergi / stúdíó
/ íbúð. Stökktu tilboð, 22. júlí í viku.
STÓRÚTSALA
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
Útsala enn
í fullum gangi!
50 – 70% afsláttur
www.ferdalag.is
40
60 80 100
120
Á leið milli Þingeyrar við Dýrafjörð og Bolungarvíkur við Ísafjarðardjúp
eru tvö kauptún sem vert er að skoða, Flateyri við Önundarfjörð og
Suðureyri við Súgandafjörð.