24 stundir - 24.07.2008, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Grill og
ostur
– ljúffengur
kostur!
VÍÐA UM HEIM
Algarve 23
Amsterdam 20
Alicante 26
Barcelona 28
Berlín 22
Las Palmas 26
Dublin 19
Frankfurt 22
Glasgow 19
Brussel 20
Hamborg 21
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 20
London 24
Madrid 35
Mílanó 21
Montreal 26
Lúxemborg 21
New York 31
Nuuk 8
Orlando 26
Osló 25
Genf 18
París 25
Mallorca 28
Stokkhólmur 21
Þórshöfn 14
Suðaustan 8-13 m/s suðvestanlands, annars
hægari vindur. Bjartviðri á Norður- og Austur-
landi, en lítilsháttar væta sunnan- og vest-
anlands.
Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐRIÐ Í DAG
13
13
20
12 16
Lítilsháttar væta
Austlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 syðst.
Dálítil væta öðru hverju sunnan- og aust-
anlands, en annars skýjað með köflum.
Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á Norðurlandi.
VEÐRIÐ Á MORGUN
13
16
17
15
19
Dálítil væta
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að Sigurður G. Guð-
jónsson geti ekki verið í hópi verj-
enda athafnamannsins Jóns
Ólafssonar í máli vegna meintra
efnahagslagabrota Jóns.
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi
Jóns, kærði úrskurðinn þegar til
Hæstaréttar.
Þegar málið var þingfest benti
Helgi Magnús Gunnarsson, sak-
sóknari efnahagsbrota, á að Sig-
urður gæti ekki varið Jón þar sem
hann kynni að vera kallaður til
vitnis í málinu.
Jón Ólafsson er ákærður fyrir að
telja ekki fram til skatts rúmlega
360 milljónir króna, þar af um tvö
hundruð milljónir í tekjuskatt og
rúmlega 150 milljónir í fjármagns-
tekjuskatt. hos
Sigurður G. gæti verið kallaður til vitnis
Má ekki verja Jón
Má ekki verja Sigurður í
héraðsdómi í gær.
Siglufjarðarflugvöllur í Fjalla-
byggð liggur undir skemmdum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Byggðastofnunar um sveitarfélög
með viðvarandi fólksfækkun og er
ástand flugvallarins talið ein helsta
ógnin við búsetuskilyrði á svæð-
inu. Áætlunarflug á flugvellinum
hefur verið aflagt og verður hann
lagður niður þegar þegar Héðins-
fjarðargöng verða opnuð í lok
næsta árs.
Kristján Möller samgönguráð-
herra segir að þegar göngin verði
opnuð muni bærinn tengjast
„Stór-Akureyrarsvæðinu“ vel með
tíðari ferðum almenningssam-
gangna og það muni breyta miklu.
„Við höfum alltaf talið að Siglfirð-
ingar muni þá sækja sitt flug mest
til Akureyrar.“
elias@24stundir.is
Siglufjarðarflugvöllur í slæmu ásigkomlagi
Göngin leysa flug-
völlinn af hólmi
Heimsmarkaðsverð á hráolíu held-
ur áfram að lækka og fór verð á
hverja tunnu niður í tæpa 126
Bandaríkjadali í viðskiptum í gær.
Hermann Guðmundsson, forstjóri
N1, telur lækkanir hér á landi einn-
ig vera í deiglunni. „Við höfum
fylgst grannt með gjaldeyrismark-
aðnum, þar sem hefur verið mikið
rót síðustu daga. Við erum á vakt-
inni, en eins og staðan er nú þá er
lækkunar von.“ Hann útilokar ekki
að eitthvað gerist í dag, ef stöðugleiki verður á mörkuðum.
Ástæður lækkunarinnar á heimsmarkaði eru meðal annars styrking
Bandaríkjadals, minnkandi eftirspurn í Bandaríkjunum og að fellibyl-
urinn Dolly hafði mun minni áhrif á olíuframleiðslu en upphaflega
var talið.
Verð á olíutunnu náði hæst um 147 dölum 11. júlí síðastliðinn og hef-
ur því lækkað umtalsvert frá þeim tíma. atlii@24stundir.is
Olían heldur áfram að lækka
Félagsfundur verður haldinn í
Flugfreyjufélagi Íslands í dag þar
sem nýr kjarasamningur félagsins
við Flugfélag Íslands frá í fyrra-
dag verður kynntur.
Flugfreyjur felldu sem kunnugt
er fyrri samning félaganna en
kjörfundur er opinn til kl. 16 í
dag og milli 9 og 14 á morgun. aak
Kjósa um nýjan
kjarasamning
„Samkvæmt gildandi deiliskipu-
lagi má ekki rífa Laugaveg 43,“
segir Þórður Magnússon, stjórn-
armaður í Torfusamtökunum, en
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
LHÍ, sagði í 24 stundum í gær að
húsið mætti rífa. Vinningstillaga í
samkeppni um hús LHÍ gerir ráð
fyrir að húsið við Laugaveg 41
standi en Húsafriðunarnefnd hef-
ur lagt til að það verði friðað.
Húsin við Laugaveg 43 og 45 eru
hins vegar látin víkja. Samþykkja
þarf nýtt deiliskipulag áður en
LHÍ byggir en það er alvanalegt í
skipulagi borgarinnar. aak
Má ekki rífa Laugaveg 43
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Gæsluvarðhald yfir tveimur
mönnum sem grunaðir eru um að
hafa flutt og skipulagt innflutning
á m.a. um 190 kílóum af hassi, var
framlengt um þrjár vikur í gær.
Mennirnir tveir, Hollendingur
um sjötugt og Íslendingur á
fimmtugsaldri, munu sitja í
gæsluvarðhaldi til 13. ágúst hið
minnsta vegna rannsóknarhags-
muna.
Hollendingurinn var handtek-
inn eftir að efnin fundust í húsbíl
sem hann ferðaðist á, en Íslend-
ingurinn síðar.
Íslendingurinn hefur kært úr-
skurð um áframhaldandi gæslu-
varðhald til Hæstaréttar, en Hol-
lendingurinn hefur ekki tekið
ákvörðun um neitt slíkt.
Aðrir en þessir tveir hafa ekki
verið handteknir vegna málsins,
segir Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. Hann seg-
ir rannsókn málsins ganga vel.
Taka nýja aðstöðu í notkun
„Við erum að fá mjög bætta að-
stöðu og höfum fengið fjárveit-
ingar til búnaðarkaupa,“ segir Jó-
hann Freyr Aðalsteinsson,
deildarstjóri tollgæslunnar á
Seyðisfirði. „Þetta verður til mik-
illa bóta og gleðjumst við mjög yf-
ir því.“Hann segir að fyrir um
tveimur vikum hafi verið hafið að
nýta nýju aðstöðuna að hluta, en
eftir þrjár vikur mun hún líklega
verða tilbúin. „Við höfum fengið
miklu stærra húsnæði. Hingað til
höfum við ekki getað ekið hús-
bílum eða öðrum stærri bílum
inn í húsnæði okkar.
Það verður hins vegar hægt að
aka þeim inn í nýja húsið. Þar
verðum við með gegnumlýsing-
arvél sem maður getur sett hluti í
gegnum, en ekki bíla.“
Jóhann Freyr segir auknar fjár-
veitingar hafa komið til fyrir stóra
hassfundinn og tengist honum
því ekki beint. Sama gildi um nýja
húsnæðið. „En það má kannski
segja að þetta mál hafi undirstrik-
að þörfina.“
Áfram í haldi
vegna hasshlass
Gæsluvarðhald framlengt um þrjár vikur í hassfundarmálinu
Málið undirstrikaði þörfina á nýjum búnaði á Seyðisfirði
Fullur af dópi Í húsbílnum
var líklega mesta magn ka-
nabisefna sem lagt hefur
verið hald á hér á landi.
➤ Þann 10. júní sl. fann toll-gæslan á Seyðisfirði um 190
kíló af hassi, um 1,5 kíló af
kókaíni og kíló af marijúana í
húsbíl sem komið hafði með
Norrænu.
➤ Héraðsdómur Reykjavíkur úr-skurðaði í gær Hollending og
Íslending í gæsluvarðhald til
13. ágúst vegna málsins.
HASSHLASS Í HÚSBÍL
● Ísafjörður Meiri afla var land-
að í Ísafjarðarhöfn á fyrstu sex
mánuðum ársins en í fyrra
vegna aukningar á öðrum teg-
undum en þorski, svo sem ýsu
og ufsa.
● Djúpavík Fjölþjóðleg sirk-
ussýning verður í Síldarverk-
smiðjunni í Djúpavík næsta
föstudag. Sýna fjöllistamenn
frá Svíþjóð, Bandaríkjunum
og Finnlandi listir sínar.
● Húnaþing vestra Íbúar vilja
að sveitarfélagið hlutist til um
að allur hraðakstur innanbæjar
á Hvammstanga verði stöðv-
aður. Hafa undirskriftir þess
efnis verið lagðar fram í byggð-
arráði. þkþ
STUTT
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Fjöldi árásarhunda er í þjón-
ustu breska hersins í Írak en
nú eru uppi áform um að
þjálfa þá í fallhlífarstökki.
Þannig væri hægt að koma
þeim inn á óvinveitt svæði þar
sem þeir gætu þefað uppi
óvini. Hundarnir væri búnir
litlum myndavélum sem gætu
sent njósnamyndir heim í
stjórnstöð hersins. aij
Sérsveit breska hersins
Stríðshundar
SKONDIÐ