24 stundir - 24.07.2008, Blaðsíða 21

24 stundir - 24.07.2008, Blaðsíða 21
24stundir FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 21 Lögmál 4: Bikarinn er fullur og froðutoppurinn rís upp yfir brúnina. Þá er froðusveðjan tekin. Henni er beint frá líkamanum og strokið lárétt með 45 gráðu halla, hársbreidd yfir brúninni. Stærstu loftbólurnar hafa leitað efst í froðuna og mistakist þetta skref munu þær springa þeim afleiðingum að froðan fellur hratt. Án froðunnar er ölið varnar- laust og verður flatt á skammri stundu. Lögmál 5: Að lokum verður að tryggja að froðu- toppurinn sé af nákvæmlega réttri þykkt. Fullkomnunin felst í smáatriðunum: Í 33 cl bikar skal froðan vera nákvæmlega 3 cm. Hvorki meira né minna. Þetta samsvarar samanlagðri breidd vísifingurs og löngutangar þess sem njóta skal. Hér er einföld uppskrift að holl- um og ljúffengum pastarétti með grilluðum kjúklingabringum, grænmeti og mozzarella-osti fyr- ir fjóra: 4 skinn- og beinlausar kjúk- lingabringur. 225 grömm pasta, til dæmis penne, skrúfur eða slaufur. 225 grömm mozzarella-ost- ur, skorinn í bita. 1 rauðlaukur, saxaður. 1 haus af rómversku salati (bindisalati), skorinn niður. 6 kirsuberjatómatar, skornir í bita. Grillið kjúklingabringurnar við háan hita í um 6 til 8 mín- útur á hvorri hlið. Takið svo af grillinu, látið kólna og skerið svo niður í bita. Sjóðið pastað á meðan í létt- söltuðu vatni. Látið það svo kólna eilítið á meðan þið blandið kálinu, lauknum, ostinum og tómötunum saman í stóra skál. Bætið svo pastanu og kjúklinga- bitunum að endingu út í. Til þess að fá meira bragð af kjúklingabitunum er gott að mar- ínera þá áður en þeir eru settir á grillið eða krydda þá með kryddi að eigin vali. Hins vegar er ekki mælt með neinni sósu út á þennan rétt, enda á hann að vera léttur og ferskur. Grillaður kjúklingur með græn- meti, pasta og mozzarella Hægt er að baka kartöflur jafnt í ofni sem á grillinu en þær eru mjög góðar með öllum grillmat. Ef kart- öflurnar eru bakaðar í ofni er skor- inn kross í þær, síðan eru þær penslaðar með olíu og góðu sjáv- arsalti stráð yfir. Bakið í eina klst. við 200°C. Einnig má pakka kart- öflunum inn í álpappír og setja á grillið. Þær eru þá undirbúnar á sama hátt. Passið að hafa ekki of mikinn hita á grillinu. Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er krossinn dýpkaður og þær klemmdar í sundur þannig að op myndist. Setjið kryddsmjör eða kaldan sýrðan rjóma með graslauk og kryddi í kartöfluna. Bakaðar kartöflur Salsasósa er góð með grillmat. Hér kemur uppskrift að salsasósu sem passar vel með nachos eða sterkk- rydduðum eða grilluðum mat. 1 dós ananas í bitum 1 epli 2 vorlaukar 1 rauður chili-pipar safi úr hálfri sítrónu 2 msk. olía ¼ tsk. pipar ½ tsk. salt Skerið eplið í bita, laukurinn er saxaður smátt og síðan er öllu blandað vel saman. Látið brjóta sig í ísskáp í að minnsta kosti eina klukkustund áður en lagt er á borð. Ananassalsa á Maður lifandi fyrir stuttu starf- aði hann á veitingastöðum á borð við Sjávarréttakjallarann og Silfur. „Ég er þannig maður að ég þarf alltaf að fá nýjar og nýjar áskor- anir og prófa mig áfram með eitt- hvað nýtt. Núna fer allur minn tími í að stúdera hráefnið en hér sleppum við sykri og hvítu hveiti og aukum vægi grænmetisins. Það hefur verið mikill skóli fyrir mig. Ég sem hélt á tímabili að ég væri eiginlega búinn að læra allt, eins og er kannski algengt með mat- reiðslumenn,“ segir hann. Rótargrænmeti í strimlum Steinn segist nota rótargræn- meti mikið með grillmat, enda passi það nánast við allt. Hann gefur uppskrift að gul- rótar-, rófu- og rauðrófu-„spaget- tíi“ sem hann segir bæði næring- arríkt og bragðgott. „Þetta bragðast vel með hvaða grillkjöti sem er og er líka gott með salati eða bara eitt og sér. Þetta er mar- inerað og borið fram hrátt þannig að vítamínin eru ekki soðin í burtu.“ Gulræturnar, rófurnar og rauð- rófurnar eru settar í sérstakt jap- anskt mandólín og gerðar að nokkurs konar spagettíi. „Rauð- rófan er svo marineruð í engifer og mangó „chutney“, rófan er marineruð í ólífuolíu og tamar- ínsósu og gulrótin í kókos og lime. Þannig er þetta látið standa í um klukkutíma og þá ætti þetta að vera orðið bragðmikið og gott. Ég set stundum lífrænar rúsínur með gulrótunum, þær bragðast vel með lime-inu og kókosinum.“ árið, ekki bara á sumrin,“ segir hann og bætir því við að hann grilli í raun allt sem er mögulega hægt að grilla. „Ég er sjálfur mikið fyrir fisk en börnin mín eru meira fyrir kjúkling og annað í þeim dúr. Svo legg ég alltaf meira og meira upp úr grænmeti, ekki síst eftir að ég byrjaði að vinna hér, enda er grænmeti iðulega í aðal- hlutverki í réttunum.“ Alltaf í þróun Áður en Steinn Óskar hóf störf Marineraðar rófur, gulrætur og rauðrófur Gott með öllum grillmat Ferskt, marinerað rót- argrænmeti bragðast vel með svo til hvaða grill- mat sem er að sögn Steins Óskars Sigurðs- sonar, matreiðslumeist- ara á Maður lifandi. „Ég legg mikið upp úr góðu grænmetismeðlæti, ekki síst með auknum aldri og þroska,“ segir hann. ➤ Hefur meðal annars starfað íSjávarréttakjallaranum og á Silfur. ➤ Var valinn matreiðslumaðurársins árið 2006. STEINN ÓSKAR Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is Steinn Óskar Sigurðsson, mat- reiðslumeistari á Maður lifandi, er mikill grillmaður. „Ég er með gasgrill úti á palli og nota það allt Steinn Óskar Sig- urðsson: Ég þarf alltaf að fá nýjar og nýjar áskoranir.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.