24 stundir - 24.07.2008, Blaðsíða 15
Tilvalið í ferðalagið
Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs!
Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is
24stundir FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 15I . Í
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@24stundir.is
„Notkunin á vefnum hefur aukist
eftir því sem eldsneytisverð hefur
hækkað. Ég sé greinilega breytingu
frá því í apríl,“ segir Birgir Þór
Halldórsson, stofnandi samferda-
.net.
Á vefnum geta ferðalangar boð-
ist til að taka farþega eða óskað eft-
ir fari á tiltekinni leið. Í gær voru
skráð 54 slík boð. 22 einstaklingar
buðu fólki far á þeirri leið sem þeir
voru á tilteknum tíma og 32 ósk-
uðu eftir fari á áfangastað.
Félagsskapur á leiðinni
„Það fékk stelpa far hjá mér til
Hafnar á sunnudaginn. Hún tók
þátt í bensínkostnaði,“ segir Ægir
Freyr Birgisson sem notfærði sér
samferda.net í fyrsta skipti í síð-
ustu viku. Hann telur sjálfsagt að
nýta þessa þjónustu þar sem hún er
til staðar. „Ég ætlaði að fara þetta
einn en það var fínt að hafa fé-
lagsskap á leiðinni. Ég mun eflaust
notfæra mér þennan möguleika
aftur.“
Birgir Þór stofnaði samferda.net
fyrir verslunarmannahelgina 2005.
Vefurinn hefur því verið í loftinu í
þrjú ár og notkun hans er að
aukast, að sögn Birgis. Í fyrstu hafi
aðallega útlendingar notfært sér
vefinn en nú séu Íslendingar í
meirihluta, þó engin sérstök athug-
un hafi farið fram. Yfir vetrarmán-
uðina sé skólafólk áberandi sem vill
komast til sín heima yfir helgi eða í
lengri frí.
Þýsk hugmynd
Birgir segir að fyrirmyndin komi
frá Þýskalandi og í upphafi hafi
stúlka að nafni Anita Hubner
stungið hugmyndinni að honum.
Hann hefði haft þekkingu til að
hanna vefinn og henda honum í
loftið. Ekkert annað en hugsjónin
hafi í upphafi búið að baki þessu
framtaki en nú séu einhverjar
tekjur að koma inn í formi auglýs-
inga. Það rétt dekki kostnað og lítið
annað.
Karítas Sif Halldórsdóttir ætlaði
að notfæra sér vefinn til þess að
fara norður til Akureyrar á morgun
en hafði ekki enn fengið hringingu
í gær. Reyndar segir hún að ástæð-
an geti verið sú að hún ætli að taka
með létt mótorhjól og fáir hafi að-
stöðu til þess. „Ég hef reyndar ekki
heyrt af neinum sem hefur fengið
far á þessari síðu og veit ekki hvort
hún virkar. Ég heyrði af þessu frá
kunningja mínum og ákvað að láta
á það reyna,“ segir Karítas.
Ferðafélagi á tónleika
Kristján Már Ólafsson ætlar til
Borgarfjarðar eystri á morgun til
að sjá Damien Rice á tónleikum.
Auglýsti hann eftir ferðafélaga „til
að spjalla við og taka þátt í bens-
ínkostnaði“.
Kristján Már segir að ein fyrir-
spurn hafi borist frá því hann setti
auglýsinguna inn.
Hins vegar hafi hann hætt við að
fara á bíl og fái far hjá vini sínum.
Því skipti það ekki máli.
Birgir Þór Halldórsson segir að
vefurinn muni þróast nokkuð á
næstunni. Í haust bætast nýjungar
við. Þá verður mögulegt að óska
eftir fari eða bjóða fólki far á styttri
leiðum. Hann nefnir sem dæmi ef
fólk býr í Vogum en sækir vinnu til
Reykjavíkur.
Þá geti viðkomandi skráð niður
ferðir fyrir alla vikuna í stað þess að
skrá hverja ferð fyrir sig. Þeir sem
eiga samleið geta þá parað sig sam-
an og sparað heilmikið í kostnaði
sem fylgir bensíneyðslu og al-
mennu viðhaldi. Þetta geti auðvit-
að líka nýst skólafólki sem býr til
dæmis í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins en sækir skóla í borginni.
Vefurinn er á ensku og stílaður
inn á útlendinga.
Ókunnugir
ferðast saman
Bensínverð rekur fólk til að bjóða öðrum far og deila kostnaði
Húkk Hægt er að
spara peninga og
vera samferða.
➤ Níu einstaklingar óska eftirfari eða bjóða öðrum að
ferðast með sér á morgun á
samferda.net.
➤ Einn ferðalangurinn óskareftir fari frá Egilsstöðum til
Akureyrar. Annar vill sitja í
frá Reykjavík til Akureyrar. Sá
þriðji býður fólki að sitja í hjá
sér er hann heldur til Ak-
ureyrar frá Reykjavík klukkan
19 annað kvöld. Svo fer Torfi
Jóhannsson frá Reykjavík
áleiðis til Ísafjarðar á morgun
klukkan 17.
➤ Hann býðst til að stoppa íBorgarnesi, Búðardal, Ísafirði,
Flateyri eða Þingeyri.
VILJA VERA SAMFERÐA
MARKAÐURINN Í GÆR
● Heildarviðskipti í Kauphöllinni
á Íslandi í gær námu 15,4 millj-
örðum króna. Þar af voru viðskipti
með skuldabréf fyrir 13,6 milljarða
og með hlutabréf fyrir 1,7 millj-
arða.
● Úrvalsvísitalan hækkaði um
1,09% og er lokagildi hennar 4,159
stig.
● Mest viðskipti voru með hluta-
bréf Glitnis banka, eða fyrir 517
milljónir króna og bréf Kaupþings
banka fyrir 479 milljónir.
● Mest hækkun varð á hlutabréf-
um Teymis, en þau hækkuðu um
5,96% í tæplega 18 milljóna króna
viðskiptum. Þá hækkuðu bréf Eik
Bank um 2,4%.
● Hlutabréf tveggja félaga lækk-
uðu í gær, bréf Atorku Group, sem
lækkuðu um 0,72%, og Føroya
bank, 0,32%.
!" ##$
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
01
2
345
61
'
'7.
.8
1
*9
/
01,,
: ,
; 1 ;
,/
!
"
:,
0
, <
" & >?@A@3?>
>54BACC
>D5CD?@3
>@D?4>>>A
5>4?3?B?A
@44A?
>B5>>D5D
ABCDA>>5?
3C3@55>>3
5D?455D
+
CC5B4AA>
>B4?B@C@
C?AB?C
+
D
>@4D?C
BA4>A5
4CD?5?3
+
+
+
>DD>55DDD
@??ABDBD
+
4EC@
5E5A
@5E>5
4E@B
>AEC?
>AE>5
>4EC5
B@3EDD
@3EDD
?AECD
3E>D
CE@4
>E5C
?5E5D
+
>C@EDD
>5D5EDD
@D?EDD
>A3EDD
+
+
+
A>B5EDD
>DEDD
+
4ECA
5E4>
@5E5D
4E3>
>AECC
>AE3D
>BE>D
B@5EDD
@3E>D
?5E4D
3E5D
CE3@
>E4D
?4E@D
>EAC
>C5EDD
>5>3EDD
@>3EDD
>AAE5D
@@EDD
+
?E5D
A@35EDD
>DE5D
5E5D
./
,
A
@
5
3A
3C
@
A
54
3>
A
+
@@
@3
@
+
+
>
A
>?
+
+
+
?
>
+
F
, ,
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@@B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
CB@DD?
@@B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
>4B@DD?
4>@@DDB
34@DD?
@3B@DD?
@3B@DD?
B3@DD?
Viðskiptavild er yfir helmingur
eigna sumra fyrirtækja í Kaup-
höll Íslands. Stefán Svavarsson
endurskoðandi segir að það séu
sterkar vísbendingar um að
stjórnendur hafi ekki farið að
leikreglum ef það er taprekstur á
fyrirtækjum og menn haldi inni
einhverri viðskiptavild í bók-
unum af því að þeir vilji ekki af-
skrifa viðskiptavildina í gegnum
reksturinn. Sjá Viðskiptablað
Morgunblaðsins.
Fara ekki að
leikreglum
Seðlabankinn mun hefja stýri-
vaxtalækkunarferli sitt í nóv-
ember en ekki á fyrsta fjórðungi
næsta árs, segir í stýrivaxtaspá
Landsbankans sem birt var í gær.
Þar sem alþjóðlega lánsfjár-
kreppan og mikil skuldsetning fái
stýrivextina til að virka sem aldr-
ei fyrr megi telja líklegt að
óbreyttir stýrivextir geti valdið
meiri efnahagssamdrætti en
Seðlabankinn hafði gert ráð fyrir
næstu árin, segir í spánni. mbl.is
Lækkunin hefst
í nóvember
Greiningardeild
Kaupþings banka
spáir því að vísi-
tala neysluverðs
(VNV) hækki um
0,6% í júlí. Mun
þá 12 mánaða
verðbólga standa
í 13,2%. Segir
deildin að útlit sé fyrir að há-
markinu verði náð í ágúst, um
14%. Útsöluáhrif til lækkunar á
neysluverðsvísitölunni verði
töluverð að þessu sinni. gjg
Spá 13,2%
verðbólgu
FÉ OG FRAMI
frettir24stundir.is a
Notkunin á vefnum hefur aukist
eftir því sem eldsneytisverð hef-
ur hækkað. Ég sé greinilega breyt-
ingu frá því í apríl.
SALA
JPY 0,7421 -0,23%
EUR 125,95 0,11%
GVT 161,18 0,16%
SALA
USD 79,87 0,31%
GBP 159,08 0,27%
DKK 16,879 0,23%
Gengi krónunnar
styrktist um
0,16% í gær og
stóð gengis-
vísitalan í 160,4
stigum við lokun
markaða. Velta á
gjaldeyrismark-
aði nam um 35,4
milljörðum
króna samkvæmt
upplýsingum frá Glitni.
Gengi Bandaríkjadals í lok dags
var 79,65 krónur, sterlingspunds-
ins 159,4 krónur og evrunnar
125,15.
Er gengi krónunnar nú jafnhátt
og það var í upphafi mánaðarins,
en mun lægra en 10. júlí, þegar
vísitalan var tæp 152 stig. SRB
Krónan styrktist
aðeins í gær
Japanski bílaframleiðandinn
Toyota var á öðrum ársfjórðungi
áfram stærsti bílaframleiðandi
heims og hefur Toyota nú selt
278.000 fleiri bíla en GM það sem
af er ári, en GM var í 77 ár stærsti
bílaframleiðandi heims. SRB
Áfram stærsti
framleiðandinn
McDonald’s-
skyndibitarisinn
skilaði á öðrum
fjórðungi þessa
árs hagnaði upp á
1,19 milljarða
dala, jafnvirði um
95 milljarða ís-
lenskra króna,
eftir að hafa skilað tapi á sama
tíma í fyrra. Fór árangurinn fram
úr væntingum fjárfesta en Evr-
ópubúar borðuðu hamborgara og
samlokur frá McDonald’s sem
aldrei fyrr og hífðu upp hagn-
aðinn að því er segir á vef Bloom-
berg.
SRB
McDonald’s
hagnast vel