24 stundir - 24.07.2008, Blaðsíða 16

24 stundir - 24.07.2008, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir Alla daga frá10til 22 800 5555 Sindri Sverrisson sindris@24stundir.is „Ég er alveg rosalega spenntur. Þetta eru mínir fyrstu leikar og al- veg meiriháttar tækifæri fyrir mig. Undirbúningurinn hefur enda ver- ið mikill undanfarna mánuði og gengið vel,“ sagði kraftlyftinga- kappinn Þorsteinn Magnús Sölva- son úr ÍFR sem heldur ásamt fjór- um öðrum íslenskum keppendum til Peking í september til að keppa á Ólympíumóti fatlaðra. „Ég hef keppt bæði í Frakklandi á heimsbikarmóti og í Grikklandi á Evrópumóti og bæði mótin hafa verið virkilega skemmtileg en þetta mót er klárlega mitt stærsta til þessa. Það er náttúrlega mikið ferðalag í kringum þetta en það er bara gaman,“ sagði Þorsteinn Magnús. „Átta mig kannski í Leifsstöð“ „Ég held að það sé toppurinn á ferli hvers íþróttamanns að komast á Ólympíuleikana og það er eitt- hvað sem ég gerði mér ekki í hug- arlund að myndi takast. Ég er sjálfur varla búinn að átta mig á þessu og það gerist kannski ekki fyrr en maður verður kominn upp í Leifsstöð,“ bætti hann við. Þorsteinn Magnús, eða Steini sterki eins og sumir kjósa að kalla hann, hefur æft stíft síðustu ár og nær í september langþráðu tak- marki þegar hann leggst á lyftinga- bekkinn í Peking. „Ég hef stefnt að þessu síðast- liðin fjögur ár og æft vel í vetur í sal Íþróttafélags fatlaðra og svo í sum- ar í Silfursporti í Hátúni. Arnar Már Jónsson hefur þjálfað mig og fleiri reglulega í nokkur ár og hann er manna reyndastur þeg- ar kemur að lyftingum fatlaðra. Hann er búinn að vera lengi með okkur og kann tökin á þessu,“ sagði Þorsteinn. Bekkpressa er eina lyftingagrein hreyfihamlaðra og þar hefur Þor- steinn mest lyft 135 kg á opinberu móti fatlaðra. Það gerði hann nú í ár á Íslandsmóti ÍF og setti með því glæsilegt Íslandsmet. Gaman að glíma við ófatlaða „Ég hef líka keppt á móti ófatl- aðra með öllum þeim búnaði sem því fylgir og þar hef ég mest náð 172,5 kg. Það er búið að vera rosa- lega skemmtilegt að keppa á móti þessum ófötluðu líka því þar er svolítið öðruvísi keppnisandi og stærri karlar að keppa og það er bara æðislega gaman,“ sagði Þor- steinn, sem hefur lagt mikið á sig síðustu mánuði fyrir mótið stóra. „Mesti sem ég hef lagt á mig“ „Ég þurfti aðeins að koma mér niður í líkamsþyngd og hef unnið hörðum höndum að því með breyttu mataræði og öðru því ég þarf að vera undir 75 kg og það er eiginlega komið. Núna þarf bara að halda því. Undirbúningurinn fyrir þetta mót er sá mesti sem ég hef lagt á mig og það er bara vonandi að mér takist að ná mínu besta þegar að keppninni kemur. Maður veit náttúrlega ekkert hvernig karla maður hittir þarna en þeir eru ansi sterkir margir hverjir,“ sagði Þor- steinn sem er ánægður með and- ann í hópi íslensku keppendanna. „Erum orðin bestu vinir“ „Við erum búin að fara á Laug- arvatn í æfingabúðir og gera ým- islegt til að þjappa okkur saman, og ég sé ekki betur en að við séum orðin bestu vinir í dag. Það er nátt- úrlega alveg nauðsynlegt þegar um er að ræða svona langt ferðalag,“ sagði Þorsteinn. Fyrsti íslenski keppandinn, Sonja Sigurðardóttir, hefur keppni í sundi 8. september en Þorsteinn keppir síðastur Ís- lendinga þann 14. september. Sterkur Þorsteinn setti Íslands- met fatlaðra í bekkpressu í ár þegar hann lyfti 135 kg. Mest hefur hann þó lyft rúmum 170 kg. á móti ófatlaðra. Gerði mér ekki í hug- arlund að þetta tækist  Steini sterki heldur til Peking í september til að keppa á sínu fyrsta Ólympíumóti  Hann hefur æft stíft síðustu ár og bætti Íslandsmet fatlaðra í bekkpressu á þessu ári Ísland sendir fimm íþróttamenn til keppni á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í september í höfðuborg Kína, Peking. Þar af eru tveir sund- menn og tveir frjáls- íþróttamenn, en einnig kraftlyftingamaðurinn Þorsteinn Magnús Sölva- son, eða Steini sterki eins og hann er kallaður, sem keppir í bekkpressu. ➤ Þorsteinn Magnús byrjaði aðæfa árið 1987 þegar hann var sextán ára gamall. Hann setti Íslandsmet í bekkpressu í ár þegar hann lyfti 135 kg. ➤ Hann hefur einnig unnið tilverðlauna í sundi, borðtennis og boccia. ➤ Þorsteinn er á leið á sitt fyrstaÓlympíumót en hefur áður keppt á Evrópumótum og heimsbikarmóti. STEINI STERKI 24stundir/Ómar ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Ég held að það sé toppurinn á ferli hvers íþrótta- manns að komast á Ólympíuleikana og það er eitt- hvað sem ég gerði mér ekki í hugarlund að myndi takast

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.