24 stundir - 24.07.2008, Page 6

24 stundir - 24.07.2008, Page 6
Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is „Þetta eru ekki skítugu börnin hennar Evu sem við felum,“ segir Kristín Snorradóttir, móðir tvítugs sprautufíkils. Hún segir samfélagið verða að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru og að nauðsynlegt sé að vinna betur að bættum úrræð- um fyrir fíkla. „Við erum að ræða um mannslíf og þau ber að virða.“ Byrjaði 14 ára í neyslu Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ á Vogi, sagði í samtali við 24 stundir fyrr í vikunni að fíkniefna- vandinn væri nú álíka mikill og síð- ustu tvö til þrjú ár og hefði ekki ver- ið meiri í sögu Íslands. Sonur Kristínar hefur verið í neyslu frá fjórtán aldri, en hefur nú verið í meðferð í á sjöunda mánuð. „Þegar ákallið kemur um hjálp frá fíklinum er farið með hann á Vog eða inn á geðdeild. Þá tekur við þessi biðtími eftir því að komast í afeitrun, þar sem þeir komast ekki inn í áframhaldandi meðferð fyrr en að afeitrun lokinni. Misjafnt er hvað sá biðtími er langur.“ Hún segir það mjög sorglegt að kerfið skuli ekki geta brugðist þann- ig við að fíklar séu teknir inn um leið og ákallið um hjálp kemur. „Þess í stað er fíklunum vísað frá og sagt að koma á morgun. Við sem er- um innan um fíkla vitum hins vegar að sólarhringur í lífi fíkils getur öllu breytt. Ekki er víst að hann komi á morgun. Þá er hann kannski kom- inn í næsta skammt og örvæntingin farin. Við þurfum að ná þeim í ör- væntingunni, þegar þeir eru upp- gefnir.“ Ég er bara móðir Kristín segir að hún hafi margoft þurft að setja son sinn út á götuna. Hann hafi ekki getað verið inni á heimilinu þar sem eru önnur börn. „Núna síðast fann ég fyrir virki- legri uppgjöf hjá honum og ákvað að hjálpa honum í meðferð þar sem hann hefur nú verið í um sjö mán- uði. Það var þetta eina „móment“. Samt þurfti ég að vera með hann heima í afeitrun í fimm sólarhringa. Það er ekkert rétt við það. Ég er engin hjúkrunarkona. Ég er bara móðir.“ Mannslífin ber að virða  Móðir sprautufíkils segir samfélagið verða að horfast í augu við fíkniefnavandann  Nauðsynlegt að vinna að bættum úrræðum Dauðans alvara Kristín segir nauðsynlegt að ná fíklum í örvæntingunni. ➤ Samtök sem munu berjastfyrir bættum úrræðum fyrir fíkla og aðstandendur. ➤ Grunnurinn að samtökunumvar lagður á vormánuðum, en nú er unnið að því að setja fé- lagið formlega á laggirnar. FORELDRAR FÍKLA 24stundir/Frikki 6 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@24stundir.is „Svo virðist sem samgönguráð- herra skorti annað hvort skilning á náttúruvernd eða pólitískt þor til þess að taka tillit til náttúruvernd- arsjónarmiða,“ segir Bergur Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Land- verndar. „Það er kominn tími til þess að samgönguyfirvöld fari að sýna náttúru Íslands tilhlýðilega virðingu. Það er með öllu óþolandi hvernig Vegagerðin er farin að hegða sér eins og ríki í ríkinu á meðan samgönguráðherra skellir við skollaeyrum í hverju málinu á fætur öðru,“ bætir hann við og vís- ar þar til áforma um gerð Gjá- bakkavegar, vegar um Teigsskóg og Dettifossvegar þar sem hann segir verulega náttúruverndarhagsmuni í húfi. Skortir hvorki skilning né þor Kristján Möller samgönguráð- herra segist hvorki skorta skilning á náttúruvernd né pólitískt þor. „Öll þessi verk hafa farið í gegn- um mat á umhverfisáhrifum og verið samþykkt,“ segir Kristján og heldur áfram: „Eitthvað af þessu hefur verið kært til umhverfisráð- herra sem hefur síðan úrskurðað.“ Kristján bendir á að skipuð hafi verið sérstök samráðsnefnd árið 2001 sem Náttúruvernd ríkisins átti meðal annarra fulltrúa í til þess að ná niðurstöðu um lagningu Dettisfossvegar. „Allir komust að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að vegurinn ætti að liggja vestan Jök- ulsár og eftir því hefur verið unn- ið,“ segir hann. Framkvæmdastjóri Landverndar segir samgönguráðherra skorta skilning og þor í náttúruverndarmálum Samgönguráðherra segist hvorki skorta skilning né þor ➤ Landvernd telur að sá Detti-fossvegur sem Vegagerðin hefur boðið út muni rýra gildi svæðisins. Gert er ráð fyrir að hann verði uppbyggður heils- ársvegur með 90 km há- markshraða. GAGNRÝNI LANDVERNDAR Áætlað er að byggingarkostn- aður Menntaskóla Borgarfjarðar fari 160 milljónir króna fram úr áætlun sem gerð var síðasta haust. Var þá gert ráð fyrir heildarkostn- aði upp á 881 milljón en hann er nú áætlaður 1043 milljónir. Í upp- hafi, 2006, var gert ráð fyrir kostnaði upp á rúmar 600 millj- ónir, að sögn Torfa Jóhannesson- ar, formanns byggingarnefndar. Þá var gert ráð fyrir 1800 fermetra byggingu sem síðar var stækkuð í 3200 fermetra, m.a. vegna end- urmats á væntanlegum nemenda- fjölda. Segir Torfi 160 milljóna muninn vera vegna þess að nú reiknist verðbætur og fjármagns- kostnaður á byggingartíma með. Einnig hafi verkið dregist og verð- bólga verið meiri en gert var ráð fyrir. þkþ Bygging Menntaskóla Borgarfjarðar Kostar yfir milljarð „Reglurnar taka gildi 1. nóvem- ber en þar er m.a. tekið fram að erfðarannsóknir verða ekki lengur háðar leyfi frá Persónuvernd ef upplýst samþykki þátttakenda ligg- ur fyrir,“ segir Þórður Sveinsson, lögfræðingur hjá Persónuvernd. Hann tekur fram að breytingin miði að því að einfalda stjórnsýslu í kringum erfðarannsóknir. Einnig verður reglum um sam- keyrslu skráa með viðkvæmum persónuupplýsingum breytt. Orða- lagi var breytt um reglur um sam- keyrslu skráa. Þegar um var að ræða skrár sem sami ábyrgðaraðili hélt þurfti ekki leyfi. „Nú er búið að afnema þessa undantekningu þegar um er að ræða miðlægar skrár, t.d. hjá landlækni. Í tilvikum þar sem hann hefði ekki áður þurft leyfi, þarf nú að sækja um leyfi hjá okkur,“ segir Þórður. Að síðustu er að finna nýtt ákvæði um svokallaða svarta lista en nú verður leyfisskylt að færa nafn manns á skrá eftir fyr- irfram ákveðnum viðmiðum og miðla upplýsingum til þriðja aðila. asab@24stundir.is Nýjar reglur um tilkynninga- og leyfisskyldu persónuupplýsinga Samþykki þátttakenda er nóg Erfðarannsóknir Sam- þykki þátttakenda mun nægja frá 1. nóvember Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra hefur undanfarna daga skotið föstum skotum að Landsvirkjun fyrir að láta Norð- lendinga sitja á hakanum á með- an fyrirtækið aflar orku fyrir um- deilda stóriðju fyrir sunnan. Stjórnmálafræðingar sem 24 stundir hafa rætt við segjast ekki muna eftir öðrum eins deilum á milli iðnaðarráðherra og Lands- virkjunar. Samkvæmt lögum frá 2006 skipar fjármálaráðherra stjórn Landsvirkjunar, sem aftur skipar forstjóra fyrirtækisins. Fjármála- ráðherra er því æðsti yfirmaður forstjóra Landsvirkjunar, og má segja að iðnaðarráðherra standi í deilu við undirmann fjármála- ráðherra. Fyrir breytinguna frá 2006 skipaði iðnaðarráðherra þrjá af sjö stjórnarmönnum Landsvirkj- unar, á móti Reykjavík og Akur- eyri sem þá áttu enn hlut í fyr- irtækinu. Deila um Gjástykki Deilan hófst með áliti iðnaðar- ráðuneytisins þess efnis að rann- sóknarborhola Landsvirkjunar í Gjástykki skyldi fara í umhverf- ismat. Landsvirkjunarmenn voru ekki ánægðir með þá ákvörðun og hefur Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar, gagnrýnt seinagang hins opinbera í málinu. Ráðherra hefur hins vegar sagt að forystumenn Landsvirkjunar átti sig ekki á því að sveitarfélögin sem í hlut eiga hafi ákveðið að Gjástykki verði aftast í röð virkj- anaframkvæmda á svæðinu. Þeir sem hafi áhyggjur af því hvernig orkuöflun gangi fyrir norðan ættu að beina spjótum sínum að Landsvirkjun. „Hinn bitri sann- leikur í þessu máli er sá, að Húsa- vík hefur verið látin sitja á hak- anum vegna kapps Landsvirkjunar hér á suðvestur- horninu,“ er haft eftir ráðherran- um í 24 stundum 12. júlí. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu svara Landsvirkjunarmenn því til að við árslok 2008 hafi fyrirtækið varið um 3,9 milljörðum til að undirbúa jarðhitavirkjanir á Norðurlandi. Á sama tíma hafi Landsvirkjun varið um 2,2 millj- örðum til að undirbúa nýjar virkjanir við Þjórsá. „Því er það misskilningur sem heyrst hefur að Landsvirkjun leggi meiri áherslu á Suðurland en Norður- land.“ Fátítt að iðnaðarráðherra gagnrýni Landsvirkjun Össur deilir við undirmann Árna Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is FRÉTTASKÝRING

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.