24 stundir - 24.07.2008, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Ég held að svona ferðir séu mjög
gagnlegar fyrir krakka. Þau læra
um landið og náttúruna og að það
sé hægt að fara upp í fjöll,“ segir
Pétur um fjölskylduferðina en
hann hefur séð um hana á hverju
ári í um það bil áratug. „Og krakk-
arnir eru mjög ánægðir með þetta
og segjast flestir vilja koma ár eftir
ár.“
Eitthvað fyrir alla
Helgina í Básum verður bryddað
upp á ýmsu og séð til þess að jafnt
ungir sem aldnir hafi gaman af.
„Við vöknum á laugardags-
beljukjöt sem hægt er að fá um all-
an heim. Guð skapaði hvalina til að
éta þá. Ég gef öllum að smakka og
fólki finnst það mjög gott.“
Eftir mat er svo kvöldvaka og
eftir hana verður sungið og trallað
við varðeldinn.
Krakkarnir sleppa við tiltekt
Á sunnudagsmorgninum verður
farið með krakkana í góða göngu á
meðan tekið er til í vistarverunum.
En þó svo að fullorðna fólkið lendi
í þrifunum fá þau sín fríðindi njóta
þau barngæsku skipuleggjenda
líka.
„Það er ókeypis fyrir krakka
yngri en 12 ára og fólk getur því
sparað sér mikið ef það er með
nokkra krakka á þeim aldri.“
Fjölskylduferð í Bása þar sem allir fá eitthvað við sitt hæfi
Ratleikur, hrefnu-
kjöt og göngur
Sérstök fjölskylduferð
verður farin í Bása í Þórs-
mörk helgina 8. til 10.
ágúst en það er Pétur
Þorsteinsson, æskulýðs-
fulltrúi og prestur Óháða
safnaðarins, sem leiðir
hópinn. Farið verður í
göngur og verða leikir og
skemmtilegheit fyrir
krakkana.
Gagn og gaman Krakkarnir
fá tækifæri til að kynnast
náttúrufegurð Þórsmerkur.
➤ Ferðafélagið Útivist stendurfyrir ferðinni.
➤ Frekari upplýsingar má fá ávefsíðunni www.utivist.is.
FJÖLSKYLDUFERÐ Í BÁSA
Pétur Þorsteinsson
morguninn og ég elda hafragraut
og slátur fyrir liðið. Ég sé svo fyrir
mér að gamla gengið fari í um sex
tíma göngu en á meðan eru krakk-
arnir niðri við skálann, meðal ann-
ars í ratleik og öðrum leikjum.“
Um kvöldið verða svo grillaðar
pylsur en einnig hyggst Pétur mat-
búa íslenska dýrindismáltíð fyrir
þá sem vilja.
„Þá er náttúrlega hrefnukjöt sem
er miklu betra en þetta bandaríska
Hin árlega Hólahátíð verður
haldin dagana 15.-17. ágúst en á
meðal atburða verða pílagríms-
göngur heim að Hólum
„Þegar Jón Ögmundarson var
hér biskup árin 1106-1121 komu
menn heim að Hólum á hverju ári
úr stiftunum í kring og þá gengu
þeir þessar gömlu þjóðleiðir,“ segir
Málfríður Finnbogadóttir hjá Há-
skólanum á Hólum.
Göngurnar verða tvær; önnur úr
Svarfaðardal en hin frá Flugu-
mýri í Hvammsdal og verður sú
strembnari. Tekur sú fyrrnefnda
um átta tíma og sú síðari níu tíma.
Hefjast báðar kl 9. laugardaginn
16. ágúst en sætaferðir verða frá
Hólum kl. 7. Þátttakendur sendi
póst á malfridur@holar.is. hj
Pílagrímsgöngur heim að Hólum
Göngur á Hólahátíð
Hóladómkirkja 902 ár eru
síðan stofnað var til bisk-
upsstóls og skóla á Hólum.
„Það hefur verið hér í kringum
okkur tindaleikur þar sem fólk
hefur verið að ganga á fjöll og fá
stimpla. En okkur langaði svo að
reyna að hvetja almenning og
fjölskyldufólk til göngu, en ekki
bara einhverja göngugarpa,“ seg-
ir Hjördís hjá Ferðafélagi Fljóts-
dalshéraðs, en þau settu nýlega í
gang eins konar gönguleik. Hefur
félagið valið 18 náttúruperlur í
Fljótsdalshéraði, tvær í hverjum
hinna gömlu hreppa, og komið
fyrir stauk með upplýsingum og
stimpli hjá hverri þeirra.
Önnur gönguleiðin í hverjum
hreppi er létt og ætluð fyrir alla
fjölskylduna en sumar eru erf-
iðari að sögn Hjördísar.
„Þarna eru erfið fjöll innan um,
allt upp í Snæfell. En svo eru líka
mjög léttar leiðir sem þú getur
auðveldlega tekið litlu börnin
með í.“
Þeir sem vilja taka þátt geta keypt
sér stimpilkort í upplýsinga-
miðstöðinni á Egilsstöðum og í
gönguferðum Ferðafélags Fljóts-
dalshéraðs. Þegar fólk er búið að
safna 9 stimplum er kortunum
skilað og fær þá viðkomandi við-
urkenningu fyrir að vera „göngu-
garpur Fljótsdalshéraðs“. Þar að
auki fær hver og einn göngukort
af svæðinu og lendir í potti sem
dregið verður úr á Ormsteiti í
ágúst ár hvert.
Perlurnar sem um ræðir eru
Stapavík, Stórurð, Fardagafoss,
Vestdalsvatn, Valtýshellir, Höttur,
Stuttidalur, Sandfell, Hengifoss,
Snæfell, Hrafnafell, Spanarhóll,
Húsey, Heiðarendi, Hnjúksvatn,
Eiríksstaðahneflar, Landsendi og
Þerribjarg.
haukurj@24stundir.is
Göngukeppni á
Fljótsdalshéraði
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þá er náttúrlega hrefnukjöt sem er
miklu betra en þetta bandaríska
beljukjöt sem hægt er að fá um allan heim.
útivist