24 stundir - 13.08.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
tækni
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Acer Extensa 5620Z
Intel tveggja kjarna örgjörvi,
1.5Ghz, 1.5GB vinnsluminni,
80 GB geymslupláss, 15.4“
CrystalBrite skjár, Windows
Vista, 3 ára ábyrgð.
79.900-
Skólatilboð
Acer Extensa 5220B
Intel Celeron örgjörvi, 1.86Ghz,
1GB vinnsluminni, 80 GB
geymslupláss, 15.4“ CrystalBrite
skjár, Windows Vista, 3 ára
ábyrgð.
69.900-
Skólatilboð
Aðeins Kr. 2.406 á mánuði
m.v. 48 mán. Svar lán
Aðeins Kr. 2.714 á mánuði
m.v. 48 mán. Svar lán
24stundir
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árvakur hf.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Björg Eva Erlendsdóttir
Magnús Halldórsson
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is,
Prentun: Landsprent ehf.
Fasteignamarkaður er í heljargreipum lausfjárþurrðar hér sem og víðast
hvar á þróuðum fjármálamörkuðum í heiminum. Fólk á erfiðara með að
fá lán til fasteignakaupa en áður, sem dregur úr eftirspurn. Tólf vikna
meðaltalsvelta hér er nú um 70 prósentum minni en hún var á sama tíma í
fyrra, þegar áhrifa lausafjárkreppu gætti ekki. Fá dæmi – ef þá nokkur –
eru um viðlíka niðursveiflu á fasteignamarkaði milli ára. Forsvarsmenn
Félags fasteignasala hafa skiljanlega blandað sér í umræðu um þessa stöðu,
enda bitnar hún harkalega á félagsmönnum. Þeim hefur fækkað nokkuð
að undanförnu vegna minnkandi umsvifa í fasteignasölu.
Ein afleiðing svo mikillar breytingar á eftirspurn á fasteignamarkaði er
lækkun húsnæðisverðs. Seðlabanki Íslands fékk verulega bágt fyrir að spá
um 30 prósenta raunlækkun á húsnæðisverði fram til ársins 2010 frá for-
svarsmönnum Félags fasteignasala. Hafa þeir sagt bankann vera að reyna
að ,,tala verðið niður“ til þess að hemja verðbólgu, sem nú er sú mesta frá
því árið 1990. Milli 13 og 14 prósent.
Sé mið tekið af alþjóðlegum einkennum lausafjárþurrðarinnar og áhrif-
um hennar á fasteignamarkaði er gagnrýni Félags fasteignasala studd veik-
um rökum. Ekki er hægt að útiloka að sú almenna regla fasteignasala, að
taka til sín hlutfallslega þóknun af fasteignaverði sem þeir finna út sjálfir,
trufli þá þegar þeir berjast með orðum gegn lækkun húsnæðisverðs.
Víðast hvar í ríkjum með þróaða fjármálamarkaði hefur lausafjárvand-
inn – sem ekki enn sér fyrir endann á – leitt til skarprar lækkunar húsnæð-
isverðs. Fyrst og síðast vegna þess, að grunnvanda lausafjárþurrðarinnar
er að finna í fjármögnun fasteignalána. Hér á Íslandi eru þúsundir íbúða í
byggingu. Framboð á húsnæði er umtalsvert á meðan eftirspurnin hefur
tekið fordæmalausa kollsteypu. Þetta þýðir aðeins eitt, miðað við eðlilega
virkni lögmálsins um framboð og eftirspurn. Verðið lækkar; líklega mikið.
Í ofanálag eru lánakjör hér á landi meðal þeirra verstu
í heimi vegna hárra vaxta. Það dregur enn meira úr
eftirspurn. Tíu prósenta raunverðslækkun á húsnæði
það sem af er ári segir sína sögu um stöðuna. Fyrr-
nefnd spá Seðlabankans virðist í þessu samhengi vera
hófleg.
Kólnun fasteignamarkaðarins – eftir mikinn upp-
gangstíma síðustu ár – kann að vera sársaukafullur
sannleikur fyrir fasteignasala en það er ekki neinum
sem tengist fasteignamarkaðnum til hagsbóta – þar á
meðal kaupendum, seljendum og eigendum húsnæð-
is – að reyna að halda verðinu uppi með orðum og
nota þau til að berjast gegn lögmálsbundinni
verðþróun. Sú barátta er töpuð fyrirfram.
Töpuð barátta
Þegar ég frétti að Gunnar Smári
ætti að gera úttekt á upplýsinga-
málum hjá Reykjavíkurborg hélt
ég fyrst að hann
ætti að yfirfara vef
borgarinnar, prófa
notendaviðmótið
og mæla með end-
urbótum.
Svo fattaði ég að
hann ætti líklega
að auka vinsældir
Ólafs F. Magnússonar.
Það er dálítið annar handleggur.
Annars sé ég ekki betur en að
Guðni Ágústsson gefi Óskari
Bergssyni grænt ljós á að fara í
meirihluta með Sjálfstæðis-
flokknum í borginni – eins og
Þorsteinn Pálsson mælir með.
Óskar hefur engu að tapa, en þor-
ir Hanna Birna?
Egill Helgason
eyjan.is/silfuregils
BLOGGARINN
Þorir Hanna
Mikið happ hlýtur það að teljast
fyrir Hönnu Birnu, Gísla Martein
og þeirra samstarfsfólk í borg-
arstjórnarflokki
sjálfstæðismanna
að þeir fóstbræður
Ólafur borg-
arstjóri og Jakob
Stuðmaður skuli
hafa fengið Gunn-
ar Smára Egilsson
til að skipuleggja
spunamál ráðhússins.
Eða hvað? Getur verið að þessi
ráðning hafi verið án samráðs við
sjálfstæðismenn?
Gunnar Smári er þrautþjálfaður
spunamaður stórfyrirtækja,
þannig að forvitnilegt verður að
sjá hvaða tillögur hann gerir til
Ólafs og Jakobs, nú og til Hönnu
Birnu og Gísla Marteins.
Guðmundur Magnússon
gudmundurmagnusson.blog.is
Mikið happ
Nú keppast áróðursmeistarar
Sjálfstæðisflokksins við að
hvetja núverandi meirihluta
Sjálfstæðisflokks í
borginni til að
slíta samstarfi við
Ólaf F. og taka
upp gamla góða
Sjalla/Framsókn-
armódelið. Óskar
Bergsson er víst
þessi týpíski
framsóknarmaður og sjá þeir
fyrir sér á þeim bænum að það
samstarf gæti smollið líkt og í
gamla daga.
En nú er að vega og meta …
hvort bakar Sjálfstæðisflokk-
urinn sér meiri óvinsældir með
áframhaldandi setu með Ólafi
eða með enn einum slitunum?
Ég hreinlega veit það ekki.
Guðríður Arnardóttir
gudridur.blog.is
Vinsældir
Milli Hveragerðis og Selfoss má finna
einn hættulegasta vegarkafla landsins.
Þetta er samdóma álit yfirmanns löggæslu í Árnes-
sýslu og forstöðumanns Rannsóknarnefndar um-
ferðarslysa. Við íbúar á svæðinu tökum undir álit
sérfræðinganna. Við finnum það á eigin skinni þeg-
ar við förum á milli bæjarfélaganna að vegurinn
ber ekki þá miklu umferð sem um hann fer. Það er
þyngra en tárum taki að ávallt skuli þurfa slys til að
minna okkur á. Til að minna okkur á þá staðreynd
sem blasir við öllum þeim sem um veginn fara.
Nú þegar fyrir dyrum stendur upphaf skólastarfs
getum við ekki annað en hugsað til unga fólksins
sem sækir skóla héðan frá Hveragerði til Selfoss og
flest á eigin bílum. Þau eins og aðrir vegfarendur
eru grandalaus í umferðinni á vegi sem allir eru
sammála um að sé ekki boðlegur. Gríðarleg umferð,
mikill fjöldi afleggjara, mismunandi hámarkshraði
ökutækja og skemmdir á veginum vegna jarðhrær-
inganna í maí, allt leggst þetta á eitt til að gera
þennan kafla að einum hættulegasta vegi landsins.
Staðreynd sem við ættum öll að sameinast um að
breyta. Ríkisstjórnin hefur gefið út þá yfirlýsingu að
tvöföldun Suðurlandsvegar frá Litlu kaffistofu til
Hveragerðis muni hefjast á næsta ári. Sú fram-
kvæmd er brýn og skipulagsvinna á svæðinu langt
komin. Um leið verðum við að gera þá kröfu að
allir sem að málinu koma leggist á árarnar til að
tryggja sem hraðastan framgang tvöföldunar veg-
arins milli Hveragerðis og Selfoss. Þar má enginn
draga lappirnar heldur sameinast nú Sunnlendingar
allir ásamt öðrum landsmönnum í þeirri kröfu
sinni að tvöföldun vegarins verði
sett í skilyrðislausan forgang, allt
annað er of dýru verði keypt.
Á meðan ástand vegarins er eins og
það er í dag verðum við öll að
leggja okkar af mörkum með því að
aka á löglegum hraða og gæta þess
að auka ekki með aksturslagi okkar
þá hættu sem þarna er þegar til
staðar.
Höfundur er bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar
Fullkomin samstaða
ÁLIT
Aldís Haf-
steinsdóttir
aldis@hveragerdi.is
Magnús
Halldórsson
magnush@24stundir.is