24 stundir - 13.08.2008, Blaðsíða 34

24 stundir - 13.08.2008, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir Feim-Lene Bjerre • Bæjarlind 6 • Kóp. Sími 534 7470 • Vefverslun www.feim.is Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-15. Vaxtalaus lán til allt að 12 mán. Lokadagar útsölunnar milli, en flest eru þau tilgerðarleg, líkt og verið sé að reyna of mikið. Myndin státar þó af góðri frammistöðu Diddu Jóns, sem gerir þó lítið annað en að vera hún sjálf. Einnig má lofa kvikmynda- töku og útlit myndarinnar, en út- lendingarnir eiga eflaust eftir að froðufella yfir hinni einstöku ís- lensku náttúru. Skrapp út er betri en margar ís- lenskar bíómyndir. En nú er sam- anburðurinn annar og meiri. Og betur má ef duga skal. Eftir Trausta Kristjánsson traustis@24stundir.is Það hefur löngum verið til siðs hjá gagnrýnendum að gefa íslenskum bíómyndum þrjár stjörnur, þó svo að þær verðskuldi ekki fleiri en eina til tvær. Sú óþarfa kurteisi verður ekki sýnd hér, enda þarf ís- lensk kvikmyndagerð síst á slíkum bjarnargreiðum að halda, því bjart er framundan og íslenska kvik- myndagerðarminnimáttarkenndin loksins að eldast af okkur eyj- arskeggjum. Tilraun til frumleika Skrapp út er lítil saga af sölu- konu dauðans, sem fengið hefur leiða á skeytingarlausum, kæru- leysislegum og tilviljanakenndum lífsstílnum sem fylgir hasshaus- unum og jónubjánunum sem hún umgengst alla daga og tilheyrir. Útrás fær hún í ljóðagerð, sem best sómir sér þó á flísalögðum hlandskálaveggjum útmiginna baðherbergja. Kúnnalisti hennar rúmast í rauðum síma sem hún ákveður að selja og hefja þannig nýtt líf. Tilgerðarleg og tilgangslaus Skrapp út er ágætis hugmynd að bíómynd, en þó vantar töluvert upp á handritið til að það teljist boðlegt bíótjaldi. Myndin er ekki um neitt sérstakt, persónum er ofaukið og afskaplega lítið gerist sem talist getur spennandi. Vissulega eru fyndin atriði inn á 24 stundir/Árni Sæberg Gullgæsin Didda týnir verðmætum síma sínum á undarlegum stað. Gengið á eftir grasösnum með grasið í skónum Nýjasta viðbótin í heim Star Wars, teiknimyndin The Clone Wars, fær sæmilega dóma hjá gagnrýnendum ytra og er jafnvel sögð betri en fyrstu tveir kaflarnir í myndaseríunni. Myndin rétt nær ferskri einkunn á síðunni Rottentomatoes.com en hún fær slétt 60% eftir að fyrstu dómarnir komu inn. Fyrir þá sem ekki vita þá mun fylgja teiknimyndinni sjónvarps- þáttaröð er segir sögur frá Klóna- stríðinu er gerðist á milli Episode 2: The Attack of the Clones og Ep- isode 3: The Revenge of the Sith. Þar með er Anakin Skywalker ekki orðinn að hinum illa Svarthöfða og berst enn fyrir réttlæti. Gagnrýnendur gefa ekki mikið út á söguþráð myndarinnar og segja hana aðallega innihalda bar- daga og flottar senur. Aðdáendur Star Wars eiga svo eftir að fá enn meira fyrir sinn snúð því George Lucas er einnig að undirbúa leikna sjónvarpsþáttaröð er gerist á árunum áður en Luke Skywalker tekur upp geislasverðið. Vitað er að Anthony Daniels, er talar fyrir C-3PO, mun fara með hlutverk gyllta vélmennisins á nýj- an leik. Einnig er orðrómur á kreiki um að Daniel Logan, er fór með hlutverk hins unga Boba Fett í Episode 2, leiki einnig í þáttunum. Það er því ekkert útlit fyrir að Stjörnustríðssögunni sé að ljúka. Klónin fá sæmilega dóma Aðþrengdur Afsakið að ég er til! SPONSOR FYRIR BROADWAY UPPFÆRSLU HVAÐ SEGIR ÞÚ ... VILTU EKKI TAKA EINN HRING Á HONUM Bizzaró Þetta er hann! Síðasti gaurinn sem notar ekki farsíma Já, ég þekki hann, aldrei hægt að ná í hann nema hann sé heima Náum honum! MYNDASÖGUR FÓLK 24@24stundir.is a Skrapp út er ágætis hugmynd að bíó- mynd, en þó vantar töluvert upp á handritið til að það teljist boðlegt bíótjaldi. fréttir Sean Paul var handtekinn í Sví- þjóð um helgina fyrir eitur- lyfjamisferli. Paul sem þekktur er fyrir reggítónlist sína var á þekktri reggíhátíð þegar hann var tekinn. Það kemur aðdáendum hans ef- laust ekki á óvart að hann var gripinn með marijúana. Paul hef- ur meðal annars gefið út lög með stórstjörnunum Beyoncé og Rih- anna. iav Sean Paul tek- inn með gras Tyra Banks er á leiðinni upp að altarinu að sögn slúðurvefsíð- unnar www.mediatakeout.com. Síðan vitnar í heimildarmann sem segir að Banks hafi þegar ráðið lögfræðing til að útbúa kaupmála en hún vilji fara mjög leynt með málið. Hinn heppni heitir Jon Udenhtahl (fyrir aft- an Tyru á myndinni) og er for- ríkur fjárfestingamaður en par- ið hefur verið saman í um tvö ár. Banks er ein af uppteknustu konunum í Hollywood þessa dagana en hún stjórnar einum vinsælasta spjallþætti þar ytra ásamt því að framleiða Am- erica’s Next Top Model og sinna öðrum verkefnum. Hún mun því líklega eiga í erfiðleikum með að finna tíma fyrir brúð- kaup. iav Tyra Banks í hjónaband Slúðurmiðlar ytra birtu í vikunni fréttir þess efnis að dóttir Lil Wayne hefði látist í bílslysi. Mys- pace-síða kappans fylltist sam- stundis af samúðarkveðjum en talsmaður hans hefur nú gefið út yfirlýsingu um að Raginae Carter sé eldhress og hafi ekki lent í neinu slysi. Atvikið hefur leitt til umræðu um ábyrgð slúðurblogg- ara en þeir telja sig oft ekki þurfa að staðfesta fréttir áður en þær eru birtar. Raginae er aðeins níu ára gömul en móðir hennar er Antonia Toya Johnson fyrrverandi eiginkona Lil Wayne. iav Falskar fréttir um banaslys Leikstjóri: Sólveig Anspach Aðalhlutverk: Didda, Ingvar E. Sigurðsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jörundur Ragnarsson. ÚT

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.