24 stundir - 13.08.2008, Page 15
24stundir MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 15
Mig dreymdi óhugnanlegan
draum í nótt. Mig dreymdi að búið
væri að eyðileggja alla banka í
landinu og aðeins einn banki stóð
eftir. Búið var að kjafta hina bank-
ana niður í fjölmiðlum og blekkja
almenning um leið. Þessum eina
banka sem eftir var tókst að fá fjöl-
miðla á sveif með sér og telja al-
menningi trú um að gamli bankinn
þeirra væri ótraustur og honum
yrði brátt lokað. Almenningur lét
blekkjast og færði allt sitt yfir í
þennan banka sem varð hrikalega
stór. Þessi nýja bankastærð var bú-
in að innlima alla aðra banka í
landinu og stjórnaði nú hagkerfi
Íslands og Alþingi um leið. Engin
samkeppni lengur, himinháir vext-
ir, allt almennt fólk sett í ánauð
eins og til forna. Þetta var mjög
óþægileg tilfinning í draumnum og
ég fann hvernig möguleikar al-
mennings í landinu rýrnuðu og
frelsið hvarf með innlimun allra
banka í einn risastóran. Allt per-
sónulegt samband við bankann
minn hvarf í draumnum. Nú var ég
bara ónefnd stærð en fólk var að-
allega flokkað eftir því hversu ríkt
það var. Ef ég átti ekkert fé og
skuldaði bara, þá gat bankinn
kreist líftóruna úr mér.
Ég vaknaði upp af þessum vonda
draumi og ég óttast hreinlega að
þetta sé að gerast nú hér á Íslandi.
Þetta má ekki verða og það er okk-
ar allra sem enn erum vakandi að
stöðva þessa þróun.
Gamli góði bankinn minn
Þar sem ég ólst upp var í raun
bara einn banki sem skipti ein-
hverju máli, Sparisjóðurinn í Kefla-
vík og þennan banka þekktu allir
bæjarbúar mjög vel. Í dag er þessi
banki meira en 100 ára gamall,
skiptir enn jafn miklu máli og alltaf
jafn persónulegt og notalegt að
koma þangað inn. Ég hef prófað
viðskipti við aðra banka en ég
saknaði alltaf heimilislega and-
rúmsloftsins og viðmótsins í gamla
bankanum mínum. Þar eru allir
jafnir, hvort sem þeir eiga peninga
eða ekki. Þú skiptir nefnilega máli
hjá Sparisjóðnum sem persóna.
Eftir að KB innlimaði SPRON
nýlega, las ég grein eftir einhvern
fjármálaspekúlant að sparisjóðirnir
væru að líða undir lok. Þá datt mér
strax í hug að nú ætti að fara að
kjafta niður alla banka nema Kaup-
þing banka. Það líst mér ekki á.
Heilaþvottur fjölmiðla
Við höfum nú fylgst með því á
þessu ári hvernig það virðast sam-
antekin ráð þeirra sem stýra heila-
þvottinum á almenningi í gegnum
fjölmiðla, hvernig þeir hafa kjaftað
okkur til að trúa því að allt væri á
niðurleið. Og það fór allt niður
þegar búið var að telja fólkinu trú
um það. Nema hjá þeim sem hugs-
uðu nýjar leiðir til að vinna á
ástandinu og bjarga sér. Af hverju
erum við ekki frekar hvött til dáða í
gegnum fjölmiðla þegar ástandið
er slæmt? Af hverju allt þetta nið-
urrifstal?
Fjölmiðlar eru gríðarlega öflugir
og móta alla umræðu í landinu og
þess vegna þurfa þeir að vanda sig,
hvetja og byggja upp. Ef allt er á
niðurleið þá eigum við ekki að sog-
ast inn í þá umræðu, ekki að velta
okkur upp úr henni endalaust. Við
eigum frekar að horfa í nýja átt og
sjá hvar sólin getur skinið niður á
okkur næst.
Ekki gleyma upprunanum!
Ég fæddist rétt eftir miðja síð-
ustu öld og þekki því gamla hljóm-
inn í klukkunni í stofunni heima
hjá ömmu og afa. Fyrir mér eru
raunveruleg verðmæti fólgin í fólki
sem hefur lifað en ekki átt eitthvað.
Þetta nýríka Ísland og græðgi er að
villa okkur sýn. Ég er orðin hund-
leið á því að lesa um ríka fólkið,
það er alls staðar verið að hampa
nýríku fólki og þeim sem eiga pen-
inga og merkjavörur. Þetta er bara
bull!
Ég elska að lesa og heyra um
hvunndagshetjur og kynnast fólki
með safaríkar lífsskoðanir. Þættirn-
ir hans Gísla þar sem hann fer út og
suður eru þess vegna ómissandi.
Við skulum ekki gleyma upp-
runa okkar, við erum bara nýstigin
út úr moldarkofanum. Allt þarf
sinn tíma. Núna erum við dálítið
að tapa rótinni og að breyta stemn-
ingunni í landinu okkar í eitthvað
sem virkar yfirborðskennt, inni-
haldslaust og froðukennt með
þessari ofuráherslu á peninga og
auðæfi, eða hvað finnst þér?
Höfundur er kennari
Ekki láta plata þig!
UMRÆÐAN aMarta Eiríksdóttir
Þá datt mér
strax í hug að
nú ætti að
fara að kjafta
niður alla
banka nema
Kaupþing
banka. Það líst mér ekki
á.
Banki „Ég hef prófað viðskipti við
aðra banka en ég saknaði alltaf
heimilislega andrúmsloftsins og við-
mótsins í gamla bankanum mínum.“
Verslanir Apple, Kringlunni og Laugavegi 182. Apple IMC/Humac er umboðsaðili Apple á Íslandi.
Þú sérð framtíðina í stjörnunum
iWork
Frábær ritvinnslupakki með öllu.
Les og skrifar Office-skjöl.
7.990 kr. Fjölskylduútgáfa: 8.990 kr.
Neoprene Sleeve
Frá 5.990 kr.Frá 3.990 kr.
Verndar fartölvuna og
passar vel í bakpokann.
Þunn, þægileg og örugg. MacBook er ein af þeim öflugustu. Með 2,1 eða 2,4 GHz Intel Core 2 Duo
örgjörva og 1 GB vinnsluminni vinnur hún jafn ljúflega með Mac OS X og Windows. Með skínandi
björtum 13,3” hágljáa breiðtjaldsskjá er hún fullkomin fyrir þá sem vilja almennilegan kraft í fallegri,
einnar tommu þykkri skólatölvu.
Nylon Sleeve Plus
Nettar og snyrtilegar töskur
fyrir MacBook og MacBook Pro.
Áður 134.990 kr., nú
124.990 kr.