24 stundir - 13.08.2008, Page 21
24stundir MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 21
Það er algengt að börn kvíði fyr-
ir nýju skólaári, og það á sér-
staklega við ef þau eru að ganga
inn í nýtt og áður óþekkt um-
hverfi. Hvort sem börn eru að
byrja í leikskóla, fyrsta bekk eða
eru að skipta um skóla þá er margt
sem getur valdið þeim hugarangri
varðandi skiptinguna í nýtt um-
hverfi og aðstæður.
Ræðið breytingarnar
Fyrst af öllu er mikilvægt að
ræða breytingarnar sem fram-
undan eru í lífi barnsins. Láttu
barnið vita að það stendur alls ekki
eitt í þessum sporum. Hvettu
barnið til að lýsa því hvernig því
líður að skipta um umhverfi. Það
getur hjálpað að lesa bækur með
börnunum og ræða þær eftir á.
Heimsækið nýja skólann
Það getur verið gott að laga
barnið að breyttum háttum sem
tengjast skólagöngunni dagana áð-
ur en skólinn hefst. Það hjálpar
barninu að kannast við umhverfið
áður en skólinn hefst. Skipuleggið
því heimsókn í skólann áður en
hann byrjar og fáið að taka einn
hring í fylgd með barninu. Passið
að barnið sé vant því að vakna
snemma í skólann áður en skólinn
hefst til að koma í veg fyrir pirring
og þreytu hjá barninu fyrsta skóla-
daginn. Það getur verið gott að
kynnast verðandi bekkjarfélaga áð-
ur en skólinn byrjar til að gera um-
skiptin þægilegri.
Það er ekki ólíklegt að einhver
vandamál, stór eða lítil, komi upp
fyrstu dagana á skólagöngunni. Þá
er um að gera að vera tilbúin að
ræða þau við börnin og veita þeim
sjálfstraust til að takast á við nýjar
aðstæður.
haukurh@24stundir.is
Foreldrar geta gert margt til að hjálpa barninu að aðlagast skólanum
Að hjálpa barninu að aðlagast
Undirbúið barnið fyrir breytingarnar Það getur verið gott að sýna barninu skólann
og umhverfi hans áður en skólinn hefst.
Þegar velja á skólatösku fyrir barn er
margt sem þarf að hafa í huga og um
að gera að foreldrar gefi sér nægan
tíma og fari á fleiri en einn stað til að
skoða og máta. Ekki er síður mik-
ilvægt að gera verðsamanburð og at-
huga hvort töskuna megi fá á netinu
fyrir lægra verð.
Mestu máli skiptir að taskan sé af
réttri stærð miðað við stærð og
þyngd barnsins og að hún sitji rétt á
baki þess. Skólataskan má ekki vera
of breið og ekki of löng. Hún á helst
ekki að vera meira en tíu prósent af
líkamsþyngd barnsins.
Hún á að sitja vel við bak barnsins.
Dýrar töskur
Samkvæmt könnun Neytenda-
samtakanna kosta dýrustu skólatösk-
urnar með sundtösku, vatnsflösku og
matarboxi, 10.980 krónur í Penn-
anum, Griffli og Hagkaupum en
10.999 krónur í Skólavörubúðinni.
Verslum á vefnum
Neytendasamtökin hafa bent á
að viðskiptavinir geti snúið sér til
erlendra vefverslana til að kanna
verð hjá þeim. Slíkt sé til þess fallið
að auka samkeppni og þrýsta á
lægra vöruverð.
Sé farið á vefverslun Amazon
má finna gott úrval af skólatöskum
á mun viðráðanlegra verði.
dista@24stundir.is
Ekki of breiðar og ekki of síðar
Allt til alls Leikfimitaska og vatns-
brúsi. www.amazon.co.uk .
Skemmtileg Scooby Doo taska af
www.amazon.co.uk. Jeva skólataska Vinsælar en dýrar.
Að velja góða tösku