24 stundir


24 stundir - 13.08.2008, Qupperneq 28

24 stundir - 13.08.2008, Qupperneq 28
Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Matsveppir stinga upp höfðinu víða um land á þessum árstíma og margir sem halda í sveppaleit með tágakörfu undir hendi. Meg- inregla í sveppatínslu er að fólk tíni ekki aðra sveppi en þá sem það þekkir. „Það er best að byrja á fáum, góðum og ljúffengum matsveppum því að það er til fullt af eitruðum sveppum á Ís- landi. Fólk langar ekki til að vera með alvarlegar magakvalir, nið- urgang og uppköst í tvo sólar- hringa af því að éta eitthvað sem er tiltölulega vægt eitrað,“ segir Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur. Hún mælir enn fremur með því að fólk tíni sveppina meðan þeir eru ennþá ungir og ferskir. „Þegar þeir eru linir og stórir eru þeir eiginlega orðnir ónýtir og best að láta þá standa úti í skógi til að sinna hlutverki sínu,“ segir hún. Frystir eða þurrkaðir Sveppirnir eru grófhreinsaðir úti í náttúrunni og síðan settir í tágakörfu eða hart ílát þar sem loftar vel um þá. Þegar heim er komið hreinsar maður þá eins fljótt og auðið er með beittum skrælihníf. Því næst má til dæmis frysta þá eða þurrka. „Maður brytjar sveppina og setur lítils- háttar vatnslögg annað hvort í pönnu eða í stóran víðan pott. Maður sýður vatnið, setur svepp- ina út í og hrærir stöðugt í þang- að til sveppabúkarnir gefa frá sér vatnið sem er í þeim,“ segir Guð- ríður og bætir við að þeir séu að mestu leyti vatn. Úr þessu verður sveppamassi sem er kældur niður, settur í plastpoka í hæfilegum skömmtum og frystur. Þarf að þurrka vel Ef menn vilja þurrka sveppina er að öllu jöfnu best að nota grænmetisþurrkara sem eru reyndar sjaldséðir í verslunum hér á landi. „Ef maður ætlar að gera þetta til dæmis í blástursofni verður maður að passa rosalega vel að hitastigið haldist lágt og að þeir verði ekki að klessu,“ segir Guðríður. Þegar sveppirnir eru orðnir þurrir og stökkir er best að geyma þá í glerkrukku með þéttu loki. „Maður ætti að athuga 1-2 sólarhringum eftir að maður set- ur þá í krukkuna hvort þeir séu enn stökkir. Ef þeir eru ekki stökkir þarf að þurrka þá pínulít- ið betur af því að þeir mega alls ekki vera rakir þegar þeir fara í geymslu af því að þá mygla þeir og verða ónýtir,“ segir Guðríður og bætir við að það sé mikil synd. Þurrkaðir eða frystir Villta matsveppi má frysta eða þurrka fyrir veturinn. Tínsla og meðhöndlun á villtum matsveppum Sveppir eru bestir ungir og ferskir Best er að tína matsveppi á meðan þeir eru ungir og ferskir. Fólk ætti ekki að tína sveppi sem það ekki þekkir. Hægt er að frysta þá og þurrka fyrir veturinn. ➤ Best er að tína sveppina ámeðan þeir eru ungir. ➤ Handbækur um sveppatínslueru illfáanlegar í bókaversl- unum en má sums staðar finna á bókasöfnum. ➤ Á vef Skógræktar ríkisinswww.skogur.is er einnig að finna leiðbeiningarbækling um matsveppi. SVEPPATÍNSLA 28 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir Á Íslandi er að finna ýmsa al- genga sveppi sem henta vel til matargerðar. Þá má yfirleitt tína frá miðju sumri og fram á haust eftir því sem veður leyfir. Lerki- og furusveppir eru hent- ugir matsveppir sem má finna víða í skógum. Lerkisveppurinn er algengur í lerkiskógum, til dæmis á Norður- og Austurlandi. Hann er gulur á lit, með gulbrúnan hatt og gult pípulag undir honum. Í grennd við höfuðborgarsvæð- ið ber minna á lerki en meira á furu. Furusveppurinn er með dökkbrúnan hatt sem er stundum slímugur og fölgult pípulag. Staf- urinn er hvítur og með hvítan kraga. Ullblekill heitir sveppur sem vex gjarnan í grennd við vegi. Hann er hávaxinn og með ullarkennda áferð á hattinum. Hann þarf að verka mjög fljótt eftir tínslu því að hann eyðileggst yfirleitt á fáeinum klukkustundum. ej Sveppir sem henta vel til matargerðar Algengir íslenskir matsveppir Lerkisveppur Í ungum lerkilundum má oft rek- ast á lerkisveppi. LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is neytendur 24stundir/Skafti Það er meira í Mogganum Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 í dag  Merktir hvalir gerðu vart við sig á Kanarí. » Meira í Morgunblaðinu Hrefna fór í jólafrí  Sveinn Hrafnsson hefur vakið athygli í enskum fjöl- miðlum fyrir vetnistilraun á Harley Davidson-mótorhjóli. »Meira í Morgunblaðinu Harley á vetni  LR, LA og Þjóðleikhúsið kynna dagskrá vetrarins. » Meira í Morgunblaðinu Leikárið byrjar  Ragnheiður Jónsdóttir og Trausti Guðjónsson fagna platínubrúðkaupi. » Meira í Morgunblaðinu Saman í 70 ár  Skuldatryggingarálagið lækkar tvo daga í röð. » Meira í Morgunblaðinu Viðskipti Miðvikudagur 13. ágúst 2008

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.