24 stundir - 13.08.2008, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2008 24stundir
Padraig Harrington erenginn Tiger Woods,allavega ekki hvað að-
dráttarafl varð-
ar. Sjónvarps-
mælingar að
loknu æsi-
spennandi
PGA-
meist-
aramótinu um
helgina sýna að áhorf á golf fer
hríðfallandi og eru stórmótin í
golfinu ekki lengur vinsælasta
íþróttaefni í sjónvarpi eins og
raun hefur verið á undanfarin
ár. Þvert á móti eru tölurnar
svo hrapallegar að áhorf á
PGA-mótið nú og fyrir ári síð-
an minnkaði um meira en
helming eða 55 prósent. Það
þrátt fyrir að slagurinn á
toppnum hafi verið harður og
kannski harðari en oft áður.
Slakið á og spilið ykkargolf er ráð Jack Nicklaustil fyrirliða og keppenda
Bandaríkjanna
fyrir Ryder-
keppnina í
golfi sem fram
fer í næsta
mánuði í Val-
höll. Ekki höll
Sjálfstæðisflokksins heldur á
golfvelli í Kentucky vestanhafs.
Valhallarvöllurinn er að taka
nokkrum breytingum en sá er
hannaður af Nicklaus og reynir
hann nú að breyta brautum
með það að markmiði að gera
púttin erfiðari fyrir Ryder-
keppendurna. Segir Nicklaus
engan vafa í sínum huga að lið
Bandaríkjanna sigri að þessu
sinni þó Tiger Woods sé fjarri
góðu gamni.
Bandaríska pressan hættirseint að fjalla um verstahring Colin Montgo-
merie um daginn en þá fór
karlinn annan
hringinn á
PGA-meist-
aramótinu á 84
höggum og var
langt frá því að
komast áfram.
Höggin 84 eru
versta skor Monty nokkru
sinni á stórmóti í Bandaríkj-
unum og sama skor og hann
fékk á Opna breska meist-
aramótinu á Muirfield árið
2002. Velta spekingar nú fyrir
sér hvort Mony hafi leikið sinn
síðasta leik en ekkert hefur til
hans spurst síðan hann gekk
álútur af velli á föstudaginn
var.
Meðan mest athygligolfunnenda var áPGA-meist-
aramótinu var
aðra sögu að
segja um Svía.
Þeir flykktust á
lokamót An-
niku Sörens-
tam á heima-
velli í Svíþjóð en þar tókst
hinni sænsku, sem hættir
keppni í árslok, ekki betur upp
en svo að hún endaði sjötta
þrátt fyrir að vera í öðru sæt-
inu eftir fimmtándu braut og
þrátt fyrir mikinn fjölda landa
hennar sem hvöttu hana
áfram. Annika tekur þátt í
nokkrum kvennamótum til
víðbótar vestanhafs en eftir
það fer settið inn í geymslu en
ekkert liggur fyrir hvað hún
hyggst taka sér fyrir hendur
eftir að ferlinum lýkur.
ÚR GOLFHEIMUM
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
Æskudýrkun landsmanna er slík að
stundum kemur fyrir að helstu
íþróttaafrek Íslendinga fara fyrir
ofan garð og neðan hjá þorra fólks
þar sem ekki er um íþróttafólk
milli tvítugs og þrítugs að ræða.
Þess vegna hefur ekki farið mikið
fyrir umfjöllun um landslið Íslands
skipað leikmönnum 70 ára og eldri
en sveitin var hársbreidd frá því að
tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í
ár. Leiddi hún mótið fyrstu tvo
dagana af þremur en á lokasprett-
inum seig sveit Austurríkis fram úr.
Ísland engu að síður í sætum 2-4 á
mótinu sem fram fór í Hollandi.
Mikið ævintýri
Sveitina skipuðu Ríkharður
Pálsson, Sigurður Albertsson,
Björn Karlsson, Júlíus Sólnes, Hans
Kristinsson og Páll Bjarnason og
fararstjóri var forseti Landssam-
bands eldri kylfinga, Lúcinda
Grímsdóttir. Vakti Lúcinda alveg
sérstaka athygli að sögn Júlíusar
Sólness enda fyrsta konan sem
mætti á mótið sem forseti golfsam-
bands. „Margir ráku upp stór augu
þarna úti enda alls ekki venjan að
kona sé að þvælast í þessu mikla
karlavígi en ég er nú ekki frá því að
sumir hafi bara spilað betur vitandi
af henni.“
Stutt frá sigri
Árangur Íslands á mótinu hefur
aldrei verið betri en umrætt mót er
tiltölulega nýlegt fyrirbæri. Aðeins
hefur verið keppt á því síðan árið
2000. Júlíus segir að sveitin hefði
átt að vinna mótið enda leiddi Ís-
land fyrstu tvo dagana af þremur
alls. „Við gáfum aðeins eftir á loka-
holunum og Austurríkismenn
náðu að síga fram úr á endasprett-
inum. En það er óhætt að segja að
við rétt misstum af efsta sætinu.“
Sveit Austurríkis vann mótið, þá
komu jafnar sveitir Íslands, Portú-
gals og Noregs og stórveldin
Spánn, Frakkland og Bretland þar á
eftir.
Á sama tíma að ári.
En íslensku sveitinni gefst kjörið
tækifæri til að ná fram sigri og
fyrsta Evrópumeistaratitli sínum á
sama tíma að ári en þá fer umrætt
mót fram hér á Íslandi. Fer mótið
fram á golfvelli GS, Hólmsvelli,
sem betur er þekktur sem Leiran.
Júlíus segir það jafnan vekja mikla
athygli keppenda erlendis hversu
langt golfíþróttin er komin á þess-
ari litlu eyju. „Það er mikið spurt
og það var einmitt kynning á Leir-
unni í lok mótsins um daginn og
margir sem furða sig á fjölda golf-
valla hér og eins fjölda kylfinga því
Ísland er ólíkt flestum öðrum þjóð-
um að því leyti að golfið hér er að
heita má almenningsíþrótt en ekki
lokaðir klúbbar. Það verður spenn-
andi að taka á móti gestunum að
ári.“
Útvaldir í landsliðið
Það er enginn hægðarleikur að
komast að í neinu landsliði og það
á líka við um landslið 70 ára og
eldri. Eru nokkur stigamót haldin
hvert sumar fyrir þennan aldurs-
flokk og í landsliðið komast aðeins
þeir sex efstu að þeim mótum
loknum. Júlíus segir það jákvæð-
asta mál að hafa dálítið fyrir hlut-
unum en hann var að spila fyrir Ís-
lands hönd í annað skipti í röð á
mótinu í Holland. „Það eru fjöl-
margir góðir kylfingar á þessum
aldri enda fer heilsa almennt batn-
andi og aðstæður hér batna ár frá
ári.
Svo er þetta kjörin íþrótt fyrir
unga sem aldna og ein af fáum
íþróttum þar sem afinn getur tekið
barnabarnið með sér að spila nú
eða þá heilu fjölskyldurnar sam-
an.“
Hin sjö fræknu Íslenska liðið ásamt fararstjóra. Frá v. Rík-
harður Pálsson, Sigurður Albertsson, Björn Karlsson, Lúcinda
Grímsdóttir, Júlíus Sólnes, Hans Kristinsson og Páll Bjarnason.
Mikið er fjallað um helstu
vonarstjörnur Íslands í
golfinu dagsdaglega í
fjölmiðlum. Þær blikna
samt í samanburði við
landslið okkar, 70 ára og
eldri, sem var nálægt því
að verða Evrópumeistari
nú í byrjun ágúst.
➤ Varast skal að rugla samanöldungamótum og öld-
ungamótum. Þar er í raun um
tvo aldursflokka að ræða.
Annars vegar 55-69 ára og
hins vegar kylfinga eldri en
70 ára.
➤ Evrópumót kylfinga eldri en70 hefur aðeins verið haldið
síðan um aldamótin og er til-
tölulega ungt mót.
➤ Á næsta ári fer þetta samamót fram hér á Íslandi, í Leir-
unni hjá Golfklúbbi Suð-
urnesja.
MÓTIÐ OG SVEITIN
Ekki dapurlegar aðstæður Völlurinn sem keppt var á er í námunda við borgina Til-
burg í Hollandi.
Rétt misstum af
efsta sætinu
Elsta landslið Íslands, var nálægt því að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í golfi
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
En íslensku sveitinni gefst kjörið tækifæri til að
hampa titlinum að ári en þ́á fer Evrópumót 70 ára
og eldri fram hér á landi á Hólmsvelli á Suðurnesjunum.
golf