24 stundir


24 stundir - 14.08.2008, Qupperneq 2

24 stundir - 14.08.2008, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 24stundir ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 42 04 0 04 .2 00 8 VÍÐA UM HEIM Algarve 31 Amsterdam 18 Alicante 30 Barcelona 27 Berlín 23 Las Palmas 26 Dublin 17 Frankfurt 19 Glasgow 16 Brussel 20 Hamborg 19 Helsinki 18 Kaupmannahöfn 20 London 17 Madrid 28 Mílanó 28 Montreal 16 Lúxemborg 19 New York 22 Nuuk 6 Orlando 23 Osló 16 Genf 22 París 22 Mallorca 29 Stokkhólmur 22 Þórshöfn 12 Suðvestanátt, víða 5-10 metrar á sekúndu. Dálítil væta norðvestantil. Úrkomulítið suð- vestanlands, annars bjartviðri. Hiti yfirleitt 10 til 16 stig að deginum. VEÐRIÐ Í DAG 12 12 16 12 12 Úrkomulítið Sunnan 5-10 m/s og rigning eða súld með köflum sunnan- og vestantil, annars bjart- viðri. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 12 13 15 14 13 Rigning eða súld „Þessa dagana er ég í upplýs- ingastríði gegn innrás Rússa í Georgíu,“ segir Ot Alaas, síberískur læknir og blaðamaður sem sótt hefur um pólitískt hæli á Íslandi. „Það hefur ekkert breyst í Rúss- landi – þar kunna menn bara að láta vopnin tala.“ Dr. Alaas fór í hungurverkfall í júlí síðastliðnum, eins og frá var sagt í 24 stundum. Vildi hann þannig þrýsta á um að Útlendinga- stofnun sinnti beiðni hans um að hljóta pólitískt hæli hér á landi. Alaas kom til landsins 1. desember síðastliðinn, en hafði ekkert heyrt af máli sínu í sjö mánuði. „Ég hef enn ekki fundið mér vinnu,“ segir Ot. „En mér skilst að Útlendingastofnun sé farin að vinna í beiðni minni, eftir umfjöll- un 24 stunda.“ andresingi@24stundir.is Mál hælisleitanda mjakast áfram Leitar sér að vinnu Í Njarðvík Dr. Ot Alaas. Hópur aðstandenda Sparisjóðs Skagafjarðar hefur ákveðið að óska eftir því að farið verði ofan í saum- ana á gjörningum tengdum yfir- töku Sparisjóðs Mýrasýslu og tengdra aðila á Sparisjóði Skaga- fjarðar, en sú yfirtaka fór fram í ágúst 2007. Þá segja þeir líklegt að farið verði fram á lögreglurann- sókn á undirbúningi og fram- kvæmd yfirtökunnar. Bjarni Jónsson og Gísli Árnason eru í forsvari fyrir þennan hóp skagfirskra sparisjóðsmanna. Það sem þeir vilja að rannsakað verði lýtur að ýmsum þáttum og gjörð- um sem tengjast yfirtökunni. „Við erum þess fullvissir að yfirtaka sparisjóðsins samræmdist ekki lög- um og að Fjármálaeftirlitið hafi alls ekki sinnt skyldum sínum í eftirliti með sölunni.“ mbl.is Aðstandendur Sparisjóðs Skagafjarðar Vilja rannsókn á yfirtöku sparisjóðs Orkustofnun og iðnaðarráðuneyti munu halda alþjóðlega ráðstefnu til kynningar á olíuleit á Dreka- svæðinu svokallaða í byrjun næsta mánaðar. Að sögn Ingu Dóru Guðmunds- dóttur, kynningarstjóra Orkustofn- unar, ganga skráningar vel. „Við opnuðum fyrir skráningar í apríl. Kynning á ráðstefnunni hér á landi hófst svo í síðustu viku. Ráðstefnan er aðallega ætluð sem kynning fyrir sérfræðinga – til dæmis jarðfræðinga og stjórnendur hjá olíu- fyrirtækjum – til að auglýsa útboðið sem verður hjá okkur í febrúar.“ Drekasvæðið er um 42.700 ferkílómetra svæði í norðausturjaðri land- helginnar – norður undir Jan Mayen – þar sem talið er að olía geti leynst undir hafsbotni. Gert er ráð fyrir að leyfi til rannsókna og vinnslu á svæðinu verði boðin út í byrjun næsta árs, svo boranir geti hafist árið 2011. aij Olíuleitarráðstefna í haust Eldri borgari fannst meðvit- unarlaus á botni Laugardalslaug- arinnar í gærmorgun. Lífg- unartilraunir báru ekki árangur og maðurinn var úrskurðaður látinn á staðnum. Þrír sjúkrabílar voru kallaðir til eftir að neyðarkall barst í gegnum Neyðarlínuna. áb Eldri borgari andaðist í sundi Árlega koma eitt til tvö mál, í lík- ingu við það sem sagt var frá á for- síðu 24 stunda í gær, til kasta ut- anríkisráðuneytisins, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. Í fréttinni var fjallað var Íslending sem settur var í fangelsi í Banda- ríkjunum, grunaður um að hafa stundað þar vinnu án tilskilinna leyfa. Hann fékk að dúsa í fanga- klefa í 15 daga áður en hann var leiddur fyrir dómara og bar hann vistinni ekki vel söguna. Honum var sleppt úr haldi gegn loforði um að fara úr landi, og kemur til Íslands um miðjan ágúst. hos Einn til tveir á ári teknir vestra STUTT ● Afskráning Í dag verður hald- inn hluthafafundur í Teymi, þar sem meðal annars verður kosið um tillögu um að stjórn félags- ins verði falið að óska eftir af- skráningu úr Kauphöllinni. ● Leiðrétt Í blaðinu í gær var sagt að Þórunn Sveinbjarn- ardóttir umhverfisráðherra hefði ekki þegið boð umhverf- isnefndar Alþingis um að koma á fund nefndarinnar til að ræða úrskurð sinn um ál- ver á Bakka og tengdar fram- kvæmdir. Þetta er ekki rétt. Umhverfis- ráðherra var aldrei boðið til fundar við umhverfisnefnd. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Nýbyggður æfingasalur í bak- garði enska knattspyrnu- mannsins Stevens Gerrards er svo stór að hann er í öðru póstnúmeri en heimilið sjálft. Nágrannar Liverpool-leik- mannsins hafa lýst yfir mikilli óánægju með ferlíkið og segja það úr stíl við aðrar byggingar í hverfinu. Gerrard hefur þó látið mótmælin eins og vind um eyru þjóta. aí Risastór æfingasalur Tvö póstnúmer SKONDIÐ Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Snarræði flugmanns Iceland Ex- press bjargaði lífi konu um þrítugt sem missti meðvitund á leiðinni frá Barcelona til Íslands síðastliðinn föstudag. Konan hné niður 45 mínútum eftir flugtak, með óreglu- legan hjartslátt og miklar öndunar- truflanir. „Áhöfnin byrjaði á því að kanna hvort um borð væri læknir. Svo reyndist vera og eftir að hafa kann- að ástand konunnar lagði hann til að við lentum eins fjótt og mögu- legt var,“ segir flugmaðurinn. Hann vill af virðingu við kollega sína ekki láta nafns síns getið „enda hefðu þeir allir brugðist eins við“. Um mjög alvarlegt astmakast var að ræða, en konan hafði gleymt að hafa lyf sín í meðferðis. Reynt var að gefa henni súrefni og astmalyf um borð, en án árangurs. Hefði getað látist Flugmanninum tókst að lenda í Basel í Sviss. Þar dvaldist konan í einn og hálfan sólarhring á spítala, en er nú komin til Íslands þar sem hún heimsækir ættingja. Læknar tjáðu henni að hún hefði trúlega látist af súrefnisskorti ef ekki hefði verið fyrir snarræði flugmannsins. Flugmaðurinn segir að lending- in hafi gengið vel, en þegar vél er þetta nýlega tekin á loft og full af eldsneyti, er erfitt að lenda henni með góðu móti. Því þurfti flug- maðurinn að bregða á það ráð að brenna eldsneyti eins og hægt var áður en hann lenti, meðal annars með því að setja niður hjólin. Aðspurður segir hann ákvörðun um að lenda ekki hafa verið erfiða. Hann segist hafa lent í því einu sinni til tvisvar á ári á flugmanns- ferli sínum að þurfa að lenda vél sökum veikinda farþega. „Ég drýgði enga hetjudáð. Þetta er hluti af starfi okkar og við erum þjálfaðir til að taka ákvarðanir við erfiðar aðstæður.“ Vegna vinnu- verndarlöggjafar mátti áhöfnin ekki halda áfram flugi. „Því var ekki ann- að í stöðunni en að koma farþegum á hótel yfir nótt- ina,“ segir Lára Ómarsdóttir, fjöl- miðlafulltrúi Ice- land Express. Hún segir farþega um borð hafa sýnt þessu mikinn skilning, en þeir gátu haldið áfram ferð sinni daginn eftir. Lára segir flugfélagið hafa greitt fyrir dvöl farþeganna á hóteli, en reiknar með að tryggingafélag greiði kostnaðinn til baka. Mannbjörg í háloftunum  Snarræði flugmanns bjargaði lífi konu um þrítugt í vél Iceland Express  „Ég drýgði enga hetjudáð,“ segir flugmaðurinn ➤ Kona um þrítugt missti með-vitund í vél frá Barcelona sl. föstudag. ➤ Læknar tjáðu henni að snar-ræði flugmanns hefði bjargað lífi hennar. LÍFI BJARGAÐ Lífshætta Konan hefði getað látist í háloftunum. Lára Ómarsdóttir

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.