24 stundir - 14.08.2008, Side 35
24stundir FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 35
Scarlett Johansson hefur engan
áhuga á að gefa söngferilinn upp á
bátinn þótt fyrsta hljómplata
hennar, Anywhere I Lay My Head,
hafi fengið misjafna dóma gagn-
rýnenda. Platan sem samanstóð af
ábreiðum af Tom Waits-lögum féll
illa í kramið hjá tónlistarrýnum en
rýnir breska tímaritsins Mojo lýsti
plötunni sem auðgleymanlegri.
Þrátt fyrir þetta er engan bilbug
að finna á hinni 24 ára gömlu
Scarlett en hún sagði í nýju viðtali
að hún vildi gefa út aðra hljóm-
plötu.
„Það var frábært að gera þessa
plötu og ég vildi gjarnan gera aðra.
En eins og staðan er núna vil ég
frekar leikstýra mynd,“ sagði Scar-
lett sem hefur greinilega sett mark-
ið hátt.
viggo@24stundir.is
Scarlett Johansson hyggst gera aðra plötu
Vill syngja meira
Leikkonan Scarlett Joh-
ansson er hæfileikarík
stúlka. Hún gaf nýverið
út sína fyrstu hljómplötu
sem fékk misjafna dóma
gagnrýnenda. Hún játar
sig þó ekki sigraða og
hyggst gefa út aðra plötu
en vill þó fyrst prófa að
leikstýra bíómynd.
Vill gera aðra plötu Scarlett
hefur ekki sungið sitt síðasta en
vill þó fyrst leikstýra mynd. Mynd/Getty Images
Hljómsveitin Radiohead hefur
tekið að sér að semja alla tónlistina
fyrir kvikmyndina Choke sem er
væntanleg í kvikmyndahús í nóv-
ember. Myndin sem skartar meðal
annars Sam Rockwell og Anjelicu
Huston í aðalhlutverkum er byggð
á samnefndri bók rithöfundarins
Chuck Palahniuk.
Palahniuk hefur meðal annars
skrifað bókina Fight Club sem hin
eftirminnilega samnefnda kvik-
mynd er byggð á og er ofarlega á
lista margra yfir uppáhalds-
kvikmyndirnar.
Palahniuk sagði í viðtali við BBC
6 Music að Radiohead hefði upp-
haflega bara átt að semja þemalag
myndarinnar en svo hafi hlutur
Radiohead í myndinni aukist
skyndilega þegar í ljós kom að
Pablo Honey, fyrsta hljómplata Ra-
diohead, lék veigamikið hlutverk
þegar Palahniuk sat sveittur við að
skrifa Choke.
„Clark Gregg [leikstjóri mynd-
arinnar] vissi að ég hafði hlustað
mikið á Pablo Honey þegar ég
skrifaði Choke og þá sérstaklega
Creep, aftur og aftur og aftur.
Clark fékk Radiohead til að semja
lokalagið fyrir myndina en svo lík-
aði þeim myndin svo vel að þeir
hafa samið nánast alla tónlistina
fyrir myndina,“ sagði hinn vinsæli
en umdeildi rithöfundur. vij
Radiohead sér um
tónlistina í Choke
Hrifust af Choke
Meðlimir Radiohead
sömdu nær alla tón-
listina fyrir Choke.
Mynd/Getty Images
FÓLK
24@24stundir.is a
Clark fékk Radiohead til að semja lokalagið fyrir
myndina en svo líkaði þeim myndin svo vel að þeir
hafa samið nánast alla tónlistina fyrir myndina.
poppmenning