24 stundir - 14.08.2008, Qupperneq 40
24stundir
Sparaðu umtalsverðar fjárhæðir með kaupum á nýjum Polo eða Passat.
Takmarkað magn af þessum frábæru bílum á mögnuðum kjörum - enn
hagstæðara verð og 100% erlent lán. Komdu núna. Við tökum vel á
móti þér og gamla bílnum þínum líka!
Betra verð, sparneytni og 80% lán að fullu í erlendri mynt
Volkswagen kynnir nýjar leiðir til að
spara umtalsverðar fjárhæðir.
Volkswagen Passat
Verð áður
3.570.000 kr.
Verð nú
3.355.000 kr.
*Sjálfskiptur Passat Comfortline Plus 2.0 FSI
kostar nú aðeins 44.750 kr. á mán. í 84 mán. m.v.
100% myntkörfulán með 20% útborgun. Árleg
hlutfallstala kostnaðar 11,5%.
Volkswagen Polo
Verð áður
1.990.000 kr.
Verð nú
1.875.000 kr.
*Beinskiptur Polo Comfortline 1,4 kostar nú
aðeins 24.950 kr. á mán. í 84 mán. m.v. 100%
myntkörfulán með 20% útborgun. Árleg
hlutfallstala kostnaðar 11,78%.
Þú færð Passat fyrir aðeins
44.750 krónur á mánuði*
Þú færð Polo fyrir a
ðeins
24.950 krónur á má
nuði*
A
uk
ah
lu
tir
á
m
yn
d:
Á
lfe
lg
ur
.
Das Auto.
? Geir H. Haarde varpar öndinni léttarþessa dagana. Engin þörf á því lengur aðdreifa athygli þjóðarinnar með vangavelt-um um geigvænlega losun gróðurhúsa-lofttegunda í von um að hún steingleymimínusnum á bankareikningnum. Ís-lenska karlalandsliðið í handbolta er búiðað redda þessu. Gefa íslensku þjóðinni
von og trú á sjálfa sig á ný.
Þjóðin var komin með upp í kok af
lánakrepputali. Búin að fá nóg af bar-
lómi, væli og volæði. Við vildum sigur.
Jákvæðni. Aðgerðir. Og þótt hagstjórn
landsins gæti ekki gefið okkur þetta þá
voru aðrir sem gátu það: Sjö kátir karlar
í bláum búningum. Sjálfstraustið upp-
málað og með sigurglampa í augum.
Þegar allt kemur til alls er þetta auð-
vitað bara spurning um hugarfar.
Íþróttasálfræði 101. Eitthvað sem ráða-
menn þjóðarinnar ættu kannski að
kynna sér. Frekar en að þegja þunnu
hljóði gæti fyrirliði lands og þjóðar æft
sig í að fara með ræðuna hans Óla Stef.
sem hann frussaði út úr sér móður og
másandi eftir Þjóðverjaleikinn:
„Þetta var bara snilld. Mjög gott.
Massa karakter. Við sýndum þrýsting,
sýndum bara að við erum góðir. Þetta
var enginn grís eða neitt. Við erum
þéttir í vörn, markvarslan, hraðaupp-
hlaupin og sóknin öll stabíl. Allt mjög
jákvætt.“
Þetta myndi svínvirka. Stjórnin
myndi fyllast nýjum eldmóði og þjóðin
snúa bökum saman sem aldrei fyrr.
Við tökum þetta í seinni hálfleik.
Gengið til búningsherbergja
Heiðdís Lilja Magn-
úsdóttir vill handboltasál-
fræði í hagstjórnina
YFIR STRIKIÐ
Hvernig er
liðsheildin?
24 LÍFIÐ
Nýtt lag með Sálinni hans Jóns
míns verður frumflutt í dag. Yrk-
isefni lagsins er ást-
arsorg.
Glænýr Sálar-slagari
fer í spilun
»33
Helgi Björnsson leikur skúrkinn í
nýjustu mynd Júlíusar Kemp og
fagnar velgengni
kántríplötu sinnar.
Kántríkóngur leikur
hvalaskúrk
»38
Kynbomban Scarlett Johansson
lætur ekki slæma plötudóma
stöðva sig og vill gera
aðra plötu og leikstýra.
Vill syngja meira
og leikstýra
»35
● Sílamávafjöld
„Þeir eru duglegir
að bjarga sér,“
segir Gunnar Þór
Hallgrímsson líf-
fræðingur um
ágang máva í mið-
borginni upp á
síðkastið. „Að-
alfæða þeirra er uppsjávarfiskur, til
dæmis sandsíli, en ef verulega
þrengir að sækja þeir í það fæði
sem þeir finna og gefur þeim orku.
Slíkt fæði finna þeir við Tjörnina
og í miðborginni.“
Gunnar segist ekki halda að neinna
aðgerða sé þörf. „Ef ekki er nægileg
fæða fyrir máva í framtíðinni eru
líkur á að mávum fækki.“
● Gegn hatrinu
„Fólk erlendis tek-
ur eftir því sem
við erum að gera
því við notum
mikið MySpace til
að auglýsa tón-
leika. Fólk vill
bara taka þátt og
sýna stuðning,“ segir Dane Magn-
ússon hjá Félagi Anti-rasista varð-
andi þann mikla fjölda erlendra
flytjenda sem leika á styrktartón-
leikum félagsins á Organ á laug-
ardaginn kemur. Þar munu meðal
annars flytjendur frá Bretlandi,
Danmörku og Bandaríkjunum
koma fram. Tónleikarnir munu
hefjast klukkan 22 og kostar litlar
1000 krónur inn.
● Makedónía
kvödd „Það er
rosalega gott að
vera komin heim í
sveitasæluna og
náttúruna hérna í
Borgarnesi,“ segir
Auður H. Ingólfs-
dóttir, sem und-
anfarið ár hefur unnið á vegum
UNIFEM í Skopje í Makedóníu. „Í
Makedóníu unnum við mikið við
stefnumörkun varðandi jafnrétt-
isáætlun og heimilisofbeldi. Þetta
er hörkuvinna, en mér þótti mjög
fróðlegt að kynnast Sameinuðu
þjóðunum svona innan frá. Svo er
Balkanskaginn mjög spennandi.“
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við