Eintak

Issue

Eintak - 03.02.1994, Page 6

Eintak - 03.02.1994, Page 6
=+ Sjónvarpsáhorfendur fengu ekki að sjá stuttan kafla þar sem Leoncie sagði frá og sýndi nærbuxur sem Jón Bald- vin Hannibalsson ga f henÍB^mi^Smitun í Fest Atriði með kratanærbuxum og ummælum um utanrikisráðherrahjónin klippt út á síðustu stundu Síðasta föstudagskvöld var sýnd- ur í Ríkissjónvarpinu bráð- skemmtilegur þáttur um indversku prinsessuna, erótíska dansarann og söngkonuna Leoncie. Það tóku ef- laust fáir eftir því, en undir lok þáttarins kom furðuleg klipping sem var á skjön við annars ágæta vinnslu hans. Þennan hnökra er ekki hægt að hengja á kvikmynda- gerðarfólkið í Andrá, sem sá um dagskrágerð þáttarins, heldur á hann sér aðra og mun furðulegri skýringu. Hún er sú, að aðeins fá- einum klukkustundum áður en þátturinn fór í loftið tók Svein- bjöm I. Baldvinsson, dagskrár- stjóri innlendrar dagskrárdeildar, þá ákvörðun að láta klippa um það bil tveggja mínútna kafla burt úr honum. Forsaga málsins er sú að kvik- myndagerðarfólkið skilaði þættin- um tilbúnum inn til Sjónvarpsins nokkrum vikum fyrir útsendingu. Og þar lá hann um tíma án þess að valda usla. Vegna einhverra smávægilegra tæknigalla þurfti þátturinn að fara aftur til kvik- myndagerðarfólksins sem bætti úr þeim. Þegar hann kom til baka ákvað Sveinbjörn að eigin sögn, að líta aftur á þáttinn. Þá fær hann einhverja bakþanka vegna stutts kafla í þættinum þar sem Leoncie minnist á Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra, og tekur Sveinbjörn þá ákvörðun að láta klippa kaflann úr þættinum. I umræddum kafla segir Leoncie frá nærbuxum sem Jón Baldvin færði henni að gjöf í veislu sem Lionsklúbburinn í Grindavík hélt í Festi fyrir nokkrum árum. Leoncie sýnir buxurnar, sem eru forláta boxer nærbuxur, skreyttar með rauðri kratarós, og mátar þær fyrir sjónvarpsmyndavélarnar. Tildrögþess að Jón Baldvin færði Leoncie nærbuxurnar voru þau að eftir að Leoncie hafði skemmt með söng og dansi í veislu Lions- klúbbsins, steig Jón Baldvin fram og þakkaði henni skemmtunina fyrir hönd veislugesta og gaf henni buxurnar sem þakldætisvott. Það sem hefur sjálfsagt helst farið fyrir brjóstið á Sveinbirni og Jóni Bald- vini voru hlýleg orð sem Leoncie lét falla í garð utanríkisráðherrahjón- anna og illgjarnir gætu mistúlkað. Hér á eftir fer það sem Leoncie seg- ir í þættinum. Dæmi nú hver fýrir sig hvort ástæða hafí verið til ritskoðunar: „Ah, hérna eru nærbuxur sem Jón Baldvin gaf mér. Viljið þið að ég fari í þær? Kannski eru þær of stórar á mig, en ég skal reyna. Það vantar bara Jón Baldvin hér (bendir á aðra skálmina). Hann er mjög skemmtilegur, þessi Jón Baldvin, mjög áhugaverður ráð- herra, alls ekki leiðinlegur. Hvern- ig lít ég út? (komin í nærbuxum- ar). Þetta er frá Jóni Baldvini, sér- stök gjöf handa mér. Bryndís, eig- inkona hans, hún er frábær mann- eskja. Hún er ekkert afbrýðisöm, hún er svo víðsýn manneskja. Ég vil fá hana til að vera í næsta tón- listarmyndbandi mínu, dansandi fyrir aftan mig. Frá því að Jón Baldvin gaf mér þessar buxur hugsa ég alltaf þegar ég sé hann að hann hefði átt að skrifa á þær: To Leoncie with love. Jón Baldvin Hannibalsson. Ég nota buxurnar í næsta tónlistarmyndbandi mínu. Can you imagine, the ministers are as normal as everybody else in this country. Sweetiepie, believe me. They are not anything differ- ent.“ EINTAK hafði samband við Svein- björn og spurði hann af hverju kaflinn hefði verið klipptur burt. „Ef þessi saga hefði bætt einhverju við um Leoncie sjálfa, hefði hann að sjálfsögðu fengið að standa. En þar sem sagan snerist fyrst og fremst um fólk sem kom ekki nálægt þessum þætti að nokkru leyti, fannst mér engin ástæða til að birta hana. Mér fannst að þessi mínútu kafli, eða hvað sem hann er nú langur, væri einvörðungu til þess fallinn að velta einhverjum manni, sem ekki kemur þættinum um Leoncie við, upp úr einhverjum getgátum og sögusögnum." Svein- björn sagðist hafa talað við Jón Baldvin en mundi ekki nákvæmlega hvenær. Lagði Svein- björn áherslu á að þetta hefði al- farið verið hans ákvörðun og að engar þumalskrúfur hefðu komið þar við sögu. Leoncie sagðist í samtali við EIN- TAK, hvorki skilja upp né niður í því af hverju sú ákvörðun hefði verið tekin að klippa þennan kafla burt. Hún sagði að Jón Baldvin hefði gefið sér nærbuxurnar í mesta sakleysi og að hún hefði einungis verið að grínast með þetta í þættin- um. Fannst henni þetta framtak innlendrar dagskrárdeildar bera vott um mikinn skort á kimnigáfú þar á bæ og sárnaði henni það mjög. Innanhúss hjá Sjónvarpinu þykir þetta mál stórfyndið. Sagan segir að starfsmenn á fréttastofu hafi til dæmis lagt á sig töluvert erfiði við að útvega sér margumræddan kafla. Það tókst hjá þeim, og fylgdi það sögunni að ætlunin væri að sýna atriðið á árshátíð Rík- isútvarpsins næsta laugardag. Það er auðvelt að ímynda sér að Jóni Baldvini hafi runnið kalt vatn milli skinns og hörunds þegar Sveinbjörn hringdi í hann. Sérstak- lega í ljósi þess að Jón hefúr lengi mátt þola glósur um smygl og drykkjuskap. Líklega hefur honum ekki fundist á það bætandi að fólk færi að spinna upp sögur í kringum hann og Leoncie. © 6 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 -f

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.