Eintak

Tölublað

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 10

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 10
EINTAK Gefið út af Nokkrum íslendingum hf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Framkvæmdastjóri: Níels Hafsteinsson Auglýsingastjóri: Örn (sleifsson HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI Andrés Magnússon, Bjarni Guðmarsson, Björn Bjarnason, Bonni, Davíð Alexander, Einar Ólason, Einar Örn Benediktsson, Gerður Kristný, Glúmur Baldvinsson, Hallgrímur Helgason, Haukur Snorra- son, Hilmar Örn Hilmarsson, Jói Dungal, Jón Kaldal, Jón Óskar Hafsteinsson, Júlíus Kemp, Óttarr Proppé, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Sigurður Pálsson, Sigurjón Kjartansson, Styrmir Guðlaugsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Setning og umbrot: Nokkrir íslendingar hf. Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi. Verð í iausasölu kr. 195. Áskriftarverð kr. 700 á mánuði. Tveir þreyttir listar Það er ekki hægt að segja að nýafstaðið prófkjör sjálfstæðis- manna í Reykjavík hafi skilið eftir sig mikla tilhlökkun til borg- arstjórnarkosninganna í vor. Úrslit prófkjörsins eru lítil tíðindi fyrir aðra en þá sem tengjast persónulegum böndum við ein- hvern frambjóðandann — góðum eða slæmum. Þeir geta samglaðst vinum sínum eða hlakkað yfir óförum andstæðinga sinna. Sú kosningabarátta sem fram fór fyrir opnum tjöldum var litlaus og skrif frambjóðendanna í blöð bentu ekki til þess að þeir hefðu skýrar hugmyndir um hvernig þeir vildu að borg- in þróaðist og hvert ætti að vera hlutverk hennar í framtíðinni. Þeir skrifuðu hins vegar mikið um áhuga sinn á fyrirbrigðum á borð við atvinnumálin, fjölskyldumálin og öðrum löngu dauðum hugtökum, sem í raun þýða ekki annað en að sá sem heldur þeim á lofti, hafi í raun ekkert að segja. Þau eru eins konar humm fyrir stjórnmálamenn sem annað hvort vilja ekki flagga meiningum sínum eða hafa engar. Aðeins löngun til metorða. Þeir sem þurftu að velja á milli þess fólks sem bauð sig fram, var vorkunn. Það getur verið erfið þraut að velja á milli áhuga Júlíusar Hafstein fyrir blómlegu atvinnulífi eða sama áhuga Sveins Andra Sveinssonar. Eða á milli fjölskyldumynda Árna Sigfússonar og Gunnars Jóhanns Birgissonar. Eða eindregins vilja Vilhjálms Vilhjálmssonar til að láta gott af sér leiða og samskonar vilja Ingu Jónu Þórðardóttur. Þeir sem ekki bar skylda til að taka þátt í þessu vali geta þakkað fyrir. Nú mun Sjálfstæðisflokkurinn hverfa í skuggann fyrir vali vinstri flokkanna á sínum frambjóðendum. Það val mun ekki heldur verða til þess að borgarbúar fyllist áhuga á málefnum borgarinnar. Þessi sameiningarlisti var búinn til út frá skoðanakönnunum sem ef til vill sýndu ekki annað en að borgarbúar væru tilbúnir í öðruvísi kosningar en undanfarna áratugi. Þessar kannanir sýndu að almenningur vildi ekki Sjálfstæðisflokkinn og engan stjórnarandstöðufloldcanna, en væri jafnvel til í að kjósa eitt- hvað nýtt. Vinstri flokkarnir túlkuðu þetta sem von um happdrættisvinning. Ef þeir sameinuðust um lista væri mögu- leiki á að þeir hrepptu borgina, ekki fyrir eigin verðleika heldur leiða borgarbúa á borgarmálefnum, eins og þau höfðu verið stunduð í borgarstjórn. Það er ekki rétt hjá sjálfstæðismönnum að sameinaður listi vinstri flokkanna sé hræðslubandalag. Það er miklu fremur eins konar happdrættisbandalag. Og sú hugsun mun stjórna vali vinstri flokkanna á lista sína. Það fólk sem undanfarin ár hefur talið sig dæmt til eilífs minni- hluta, mun öðlast endurnýjaða lífdaga. Gömlu kempurnar munu líta á listann sem laun erfíðis síns. Þær munu berjast fyr- ir sætunum sínum. Það er því líklegt að sameinaður listi minnihlutaflokkanna muni ekki bera með sér nýjan andblæ. Miklu heldur er líklegt að það fólk sem fengið hefur að eiga borgarmálefnin í sínum flokki, þar sem enginn annar leit við jafn vonlausu verkefni, muni halda sínum sætum. Eina breytingin í kringum vinstri flokkana verður sjálfsagt sú að ungt fólk mun hefja störf fyrir hann og fyllast síðan von- brigðum þegar fram í sækir, þegar það áttar sig á að í raun hef- ur elckert breyst. Og Ingibjörg Sólrún mun fljóta með gömlu kempunum á listanum eins og illa gerður hlutur. ©Ritstjórn og skrifstofur eru að Vatnsstíg 4, 101 Reykjavík sími 1 68 88 og fax 1 68 83. LETTVIQT cn o z 0 < 2 HUN SEQIR HANN SEQIR Eflum íslenskar skipasmíðar Skipasmíðaiðnaðurinn er rjúk- andi rúst og ekkert nema krafta- verk fær bjargað honum úr þessu. Þar sem ólíklegt er að almættið rétti fram hjálparhönd, setja menn allt sitt traust á ríkisstjórnina. Og nú bíða menn milli vonar og ótta; mun hún rétta fram lófa fullan af peningum (því reynslan hefur sýnt að loforð hennar duga skammt) eða veita rothöggið? Sumir vilja blóðgjöf, aðrir líknar- morð. í ár eru liðin 40 ár síðan fýrsta íslenska stálskipinu var hleypt af stokkunum. Þetta er ekki langur tími í sögu þjóðar, en þó nokkur ef litið er á hina stuttu íslensku iðnsögu. Stálskipasmíði átti erfitt uppdráttar því það var takmörkuð trú á að hægt væri að smíða stál- skip hér, en þau eru þó orðin tæplega 200, smíðuð víða um land. En íslenskur skipaiðnaður er ekki samkeppnisfær við niður- greiddan, erlendan og nú á tímum hagræðingar þykir sjálfsagt að kaupa ódýrari vöru. Það er athygl- isvert að meðan land eins og Pól- land, sem er í óheppilegri göngu- fjarlægð frá stórveldum, kýs að styrkja skipasmíðastöðvar sínar, gerum við það ekki, þó svo að við eigum allt okkar undir fiskveiðum og siglingum. Ég er ef til vill farin að ryðga í fslandssögunni, en var ekki ein ástæða þess að við misst- um sjálfstæði okkar til Noregs sú að við áttum engin skip og vorum því öðrum háð um alla flutninga? Það var ekki að ástæðulausu að Eimskipafélagið var síðar nefnt óskabarn þjóðarinnar. Reiði skipaiðnaðarmanna er skilianleg því þeim er ætlað að keppa við þjóðir sem njóta niður- greiðslna. Þeir hafa fjárfest í grein-, inni, ekki aðeins í vélum og tækjum heldur einnig í gífurlegri starfsreynslu og þekkingu sem mun hverfa með þeim sem nú vinna við iðnina. Það verður að hlúa að iðnaðinum, því atvinnu- leysi þar hefur keðjuverkandi á- hrif. Það má færa fyrir því rök að peningar sem lagðir eru í greinina skili sér beint í þjóðarbúið. Og hafa það hugfast að ástandið er víðar bágt en á Akureyri og ekki sjálfgefið að Slippstöðin ein þurfi Engar niður- greiðslur. Punktur. aðstoð, en hún virðist mest vera í umræð- unni — að minnsta kosti á Alþingi. Reynslan hefúr sýnt, að skipasmíða- stöðvar sem hafa haft að- stöðu til að annast sam- tímis viðgerðir og nýsmíði hafa frekar lifað af mögru árin, en þær sem sérhæfðu sig í nýsmíði. Því er til dæmis skammgóður vermir að smíða hér eitt nýtt varðskip (sbr. nýlegt viðtal við forstjóra Land- helgisgæslunnar í Mbl.), og hætta á að það skapi fleiri vandamál en það leysir. Nær væri að stefna að því að jafna samkeppnisstöðu þeirra, þannig að þær fái eðlilegan rekstrargrundvöll og geti gert raunhæfar áætlanir, en lendi ekki í hefðbundnum skammsýnum að- gerðum stjórnvalda. Fyrsta stálskipið, dráttarbátur- inn Magni, liggur við festar í Reykjavíkurhöfn þar sem hann mun verða varðveittur. Hvort hann verður jafnframt minnis- varði um íslenskan skipaiðnað kemur brátt í Ijós. A að niðurgreiða skipasmíðar? Kreppan geys- ar og atvinnu- leysið eykst. Hver er vand- inn og hvað er til ráða? Því miður er það staðreynd að þessi kreppa er af mannavöld- um. Því er rétt að minnast á þann hugsun- argang, sem nú veldur okkur þyngstum bú- sifjum. Hann felst í því að ætla ríkinu að vera upphaf og endi alls starfs í land- inu. En ef svo væri, mætti vita- skuld spyrja hvers vegna í ósköp- unum sé ekki fyrir löngu búið að lögbinda hamingju þegnanna eða efnalega velsæld þeirra. Allir gera sér grein fyrir því að slík lagasetn- ing væri hrein firra, en á sama tíma suða menn um sérstakar aðgerðir hins opinbera, hvenær sem eitthvað bjátar á. Það gleymist hins vegar að oftar en ekki eru það einmitt afskipti ríkisins sem vand- anum valda. Vandi skipasmíðaiðnaðarins er gott dæmi um þetta. Sem kunnugt er stendur hann afar höllum fæti þessa dagana og vandi hans er reyndar mun eldri þeirri kreppu sem þjóðin öll glímir við. Ekki síst stafa erfiðleikar hans af niður- greiddri samkeppni erlendis, en eins má nefna að nýsmíði inn- lendra útgerða er ekki svipur hjá sjón, og þeirri staðreynd að núver- andi ríkisstjórn hefur tekið fyrir björgunaraðgerðir einstakra fyr- irtækja í nafni byggðasjónarmiða, eða jafnvel enn annarlegri ástæðna, eins og tíðkaðist á árum áður. Og til hvaða bragða vilja menn taka? Eina hugmyndin sem heyrst hefúr, er að ríkið eigi að niður- greiða iðnaðinn svo hann geti keppt við erlenda skipasmíði, sem njóta slíkra styrkja. Afleiðingin yrði sú að um alla álfuna yrðu skattborgarar að styrkja óarðbær- ar iðngreinar. Svona líkt eins og gerist með íslenskan landbúnað. Prívat og persónulega treysti ég mér betur til þess að ráðstafa aur- unum mínum en Alþingi og ég held að þetta eigi við um alla. Sjálfur er ég í óniðurgreiddri vinnu, það er að segja, ég fæ ekki meiri peninga en aðrir eru tilbúnir til þess að reiða af hendi fyrir þjónustu mína af fúsum og frjál- sum vilja. Og þannig á það að vera. Niðurgreiðslur eru nefnilega ekkert annað en fals og svindl, þar sem peningar eru teknir úr grein- um, sem bera sig og látnir í grein- ar, sem það gera ekki. Fyrir vikið veit enginn hvers virði vinna hans er í raun og veru, efnalegur grund- völlur hvers og eins verður bara skáldskapur. Ef erlendar þjóðir vilja standa í svikamyllu niðurgreiðslna er það þeirra vandi og í takt við markaðs- lögmálin ættum við að notfæra okkur ástandið. Ef við fáum ódýr- ari skip eða nautakjöt utan frá eig- um við vitaskuld að kaupa þaðan og nota sparnaðinn í uppbyggingu þeirra greina, sem einhverju skila og við erum samkeppnisfær í. Ég hef ekkert horn í síðu skip- asmiða, ekki frekar en bænda. Líkt og svo margir aðrir standa þeir frammi fyrir erfiðum kostum og grípa hvert það hálmstrá sem þeir eygja. Að láta ríkið seilast í vasa náungans, bara af því að skatt- borgarar í útlöndum eru svo vit- lausir að láta það viðgangast, er hins vegar verri lausn en engin.© 10 FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.