Eintak

Tölublað

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 35

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 35
avíkur á frgpgasta djassklúbb Evrópu Jazzkvartett I Vikaá félögum „Þegar við spiluðum síðasta nóv- ember í Waterdale menning- armiðstöðinni í London kippti okkar ágæti menningarfulltrúi, Jakob Magnússon, í fáeina spotta og fékk aðalbókara Ronnie Scótt’s til að koma og hlusta á okkur. Hon- um líkaði svo vel það sem hann heyrði að hann bókaði okkur í klúbbinn vikuna sjöunda til íjór- tánda febrúar.“ Það er Tómas R. Einarsson bassaleikari 5em hefúr orðið og seg- ir frá því hvernig það bar við að Jazzkvartett Reykjavíkur var boðið að koma og spila á Ronnie Scott’s djassklúbbnum í SoHo. Ronnie Scott’s, sem var stofnaður 1959 og dregur nafn sitt af eiganda sínum, er frægasti djassklúbbur Evrópu og er þetta mikill heiður fyrir kvar- tettinn. En það að 1 H hafa klúbbinn á _ . . -i-áL_ afrekaskránni er ■ ’ ■ viss gæðastimpill sem getur opnað kvartettnum ýmsar dyr. Það eru engir aukvisar sem eru á leið til London í víking: auk Tóm- asar eru í bandinu Eyþór Gunn- arsson píanóleikari, Sigurður Flosason saxófónleikari og Einar Valur Scheving sem leikur á trommur. Þeir þrír fyrstnefndu eru margsjóaðir djasshljóðfæraleikarar og Einar Valur er ungur og upp- Einar Valur og Siggi Ffósa klárir fslai rennandi trommuleikari. í London fá þeir síðan góðan liðsstyrk þegar þekktasti trompetleikari Breta af yngri kynslóðinni, Guy Barker, bætist í hópinn, en hann mun leika með þeim öll sjö kvöldin. Það muna eflaust einhverjir djassunn- endur eftir komu Barkers hingað til lands síðasta vetur. Eftirminnilegt var þegar hann blés Tin Tin Deo af mikilli list með kvartettnum á Sól- on íslandus. I kvöld ætlar kvartettinn síðan að halda tónleika á Sólon Islandus og leyfa löndum sínum að heyra pró- grammið sem þeir hyggjast bjóða upp á í Ronnie Scott’s. Meðal verka sem verða á efnisskránni eru fjögur spánný lög, tvö eftir Tómas, eitt eft- ir Sigurð Flosason og eitt eftir Einar Val.© EFTIR ÞORVALD ÞORSTEINSSON Áfengi Til þess eins að eyða mannkyninu. Kynlíf Unaður til að viðhalda mannkyninu. Trúarbrögð Heimspeki kœrleikans. heiðar um helgina og opna sýningu í Listasafninu á Akureyri á laugardag- inn. Sama dag verður opnuð sýning á sama stað á verkum Karls Kvaran frá tveimur síðustu áratugunum í lífi hans. Jón Óskar mun sýna eins konar veggfóðurspjötlur, svipaðar þeim sem hann hefúr sýnt að undanförnu. Daníel verður með verk úr samlímdu Formaica eða því sem Daníel kallar eldhúsfílabein. Það er því óhætt að segja að þeir félagar séu heimilislegir í verkum sínum. Mjúkir menn, þrátt fyrir karlmannlegt útlit — en það mun erfitt að finna tvo myndlistar- menn íslenska sem eru jafn hávaxnir samanlagt. © Kaffiterían á Hótel Loftleiðum er fyrsta merki um líf í höfuðborginni. Þar opnar klukkan fimm á morgnana fyrir þá sem eru vaknaðir eða ekki enn farnir að sofa. Það er aðeins morgun- matur á borðum svo enginn kemur þar f endann á fyllerfinu sínu. Aðeins syfjað fólk eöa lúið. Og svo amerískir gyðingar á heimleið. Þeir vakna annað hvort klukkutíma fyrr en annað fðlk til að liðka á sér málbeinin eöa sofa talandi. Morgun- maturinn er ekkert til að hrópa húrra fyrir — enda er sjaldnast tilefni til þess nema þá í Cheerios-auglýsingum. Þarna er kornilex, sú- rmjólk, appelsinusafi, brauðhorn, vínarbrauð, oslur, skinka, kæfa, kaffi og te. VEITINGAHÚS Eldsmiðjan er týnd einhvers staðar upp í Þingholtum. Það er þó þess virði að finna þenn- an stað öðru hverju. Pizzurnar eru betri beint úr ofninum en heimsendar og þær eru helvífi góðar á Eldsmiðjunni. En einhverra hluta vegna hefur ekki tekist að búa til almennilega pizzeríu þarna á efri hæðinni. Staðurinn er oftast tómur. Andrúmsloftið er liklega heimilislegt. Þó ekki þannig að manni líði eins og heima. Frekar eins og maður sé heima hjá einhverjum öðrum — einhverjum sem er ekki heima. En þetta hefur líka kosfi. Maður er ekki alltaf f þörf fyrir að fara á kliðandi veitingahús. Á Eldsmiðjunni er gott að lesa blöð á meðan maður borðar og fara með börnum út að borða. En þaö er ekki gott að tala saman. Til þess eru hávaðasöm veitingahús betri. Við tiörnina er marnlolaður slaður on ekki al ástæðulausu. Þar er gott að borða on aott að vera. Staðurinn er udd á annarri hæð oo ef til vill er bað ástæðan fyrir bví að tíminn líður ein- hvern veoinn öðruvísi á Við tiörnina. Það er eins 00 hann sé ekki tullkomleoa í takt við lílið á aanastéttinni tvrir utan. Hann helur huoouleori takt á annarri hæðinni en beirri tvrstu. Staðurinn er líka bað lítill að bað er enoinn asi á neinum. Mataroerð Rúnars Marvinsson- ar er marglotuð on líkast til otlotuð. En bað er aldrei vondur matur á Við tibrn- ina. Tindabikkian er til dæmis sérdeilis oóð. B A R I R Café Romance hefur fengið sömu örlög og flestir þeir staöir sem reyna að laða til sfn ríka og fína fólkið. Þeir fá yfirleitt yfir sig fólk sem vinnur með peninga (bankastarfsmenn, af- greiðslufólk í herrafataverslunum, end- urskoöendur) og þá sem vinna við að gera fólk fínt (hárgreiðslusveina, förðunarstúlkur, fyr- irsætur). Og svo allt fólkið sem kemur að sjá ríka og fína fólkið en þarf að láta sér gjaldkera og nuddkonur duga. En þótt ríka og fína fólkið vanti þá eru allir í sínu fínasta og drekka skreytta drykki. Sá hópur sem má hafa mesta skemmtun at á Café Romance eru þeir sem einu sinni héldu sig ríka en hafa áttað sig á að það er blekking. Þeir koma þangað í von um hitta ein- hvern ríkan til að geta slegið hann um lán. 22 er elsti barinn á takmörkuðu svæði trá Bank- astræti að Klapparstíg þar sem nú eru sex vinsælir barir; 22, Kaffibarinn, Sólon, Bióbarinn, Café list og jafnvel litli Grand. Og það sést dá- litið. Fastakúnnar 22 eru einhvern veginn fastari en flestir fastakúnnar. Eigendurnir eru annarrar eða þriðju kynslóðar. Það voru einhverjir allt aðrir sem löðuðu þetta fólk til sin og þeir eru hálfgert stílbrot fyrir innan barinn. Fyrst eftir opnun 22, fyrir um fimm árum, blandaðist þar saman fólk sem datt í það í Tjarnarbúð í gamla daga og var meira og minna enn aö og fólk sem var rétt að byrja að feta sig út á lífið. Þetta fólk er þarna enn. Bara fimm árum og nokkrum koll- um eldra. PANSSTAÐIR Rosenbergkjallarinn er lokahnykkur. Sá sem kemur þar upp úr miðnætti á staðinn, einn. Það er ekki fyrr en um tvö sem fólkið kemur og þá fyllist hann á mettíma. Hann tæmist hins vegar seint. Rosenberg hefur skánað aftur eftir að Casablanca rétti úr kútnum. Traustustu gestirnir eru aftur komnir I aðalhlutverk, fólkið er ekki eins blandað. Og allt er samt við sitt; tónlistin, dansinn, hitinn. Ingðlfscafé er á breytingaskeiöi eftir aö fólkið hvarf allt i einu fyrir fáeinum heigum. Efri hæðin er oröin að rólyndisstað; einskonar bar, pöbb, eða kaffihúsi. Niðri er diskóiö. Það á eftir að koma í Ijós hvort breytingar lukkist og nýtt fólk komi. Kannski kemur það í Ijós um þessa helgi. B í Ó BIOBORGIN Mrs. Doubtfire **** Robin Williams er frábær í oervi aamallar barnlóstru, Myndin bvður uppá fiölmarqar hláturs- rokur 00 baktöll. Orlando ** Falleg mynd fyrir þá sem þola Sally Potter og lesbískl Irtíboð hennar. Mikið lagl íbúninga, lörðun og ytri umgerð og þvi Irábær mynd lyrir lesbíska btíningahönnuði. BÍÓHÖLLIN Fullkominn heimur A Perfect World Ekki óskarsverðlaunadæmi eins og seinasta mynd Eastwoods en fin samt sem áður. Demolition Man *★ Stallone átli gott kom- bakk I Cliffhanger og þessi mynd átti að festa hann í sessi sem eina helstu hetju milljón doll- ara harðhausamyndanna, stí áætlun gekk ekki eftir. Alladín ★★★ Fullorðnir jatnt sem börn geta hatt gaman atþessari frábæru teiknimynd. Þrir kossar draga myndina niður. Njósnararnir Under Cover Blues ★ Fremur vond gamanmynd. Skömm sé Kathleen Turner og Dennis Quaid. Addams fjölskyldugildin Addams Family Values *★ Hérna gerist hið óvænta; fram- haldsmyndin erbetri en tyrirrennarinn. HÁSKÓLABÍÓ Vanrækt vor Det fors'ömte for'ar ★★ Dönsk títgáfa afBig Cbill. T ó n 1 i s t G a u k s i n s n æ s t u V i k u FIMMTUDAGUR 3. febrúar FÖSTUDAGUR 4. febrúar LAUGARDAGUR 5. febrúar SUNNUDAGUR 6. febrúar MÁNUDAGUR 7. febrúar ÞRIÐJUDAGUR 8. febrúar MIDVIKUDAGUR 9. febrúar Sunnan3 Lipstick Lovers Lipstick Lovers K.K. band K.K. band SS Sól SS SÓI FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 35

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.