Eintak

Tölublað

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 39

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 39
Myndirðu láta selja hring í gegnum geiwört- unaá þér? Bára Kemp hár- greiðslumeistari: „Nei, það myndi ég ekki láta gera. Mér finnst það al- veg hræðilegt til- hugsunar." Unnur Steins- son þula: „Nei, mér finnst það ósmekklegt. Hringir eiga bara að vera á fingrun- um.“ Birgir Andrésson myndlistarmaður: „Ég hef nú aldrei hugleitt það en ég held ég myndi sleppa því.“ Eyþór Arnalds tónlistarmaður: „Það er ekki á dagskránni, en ég held það sé ekkert verra en að setja hring í eyrun." Davíð Scheving Thorsteinsson framkvæmdastjóri: „Nei, mér finnst það ekki henta mér á neinn hátt. Ég myndi ekki einu sinni fá mér hring í eyrað hvað þá í nefið! Mér fyndist ég eins og mannýgt naut.“ Eins og lesendur rekur eflaust minni til, gaf á að líta viðtal í síðasta EIN- TAKI þar sem fólk sagði frá reynslu sinni af götun. Þar birtust meðal annars myndir af fólki með hringa í geirvörtum, augabrún, nefl og kyn- fcerum. í framhaldi af því spurði EINTAK fáeina, valinkunna íslend- inga hvort þeir gœtu hugsað sér að vera með hring ígeirvörtunni, en það ku víst hafa góð áhrif á ástarleiki, ef marka má viðtölin við hringafólkið í síðustu viku. Hand- fræsari Tæki vikunnar aö þessu sinni er breskur handfræsari meö demantsoddi, sem er ómiss- andi hjálpartæki hins listræna og haga manns eins og sjá má á myndinni aö ofan. Fræsarinn hefur þó hagnýtara gildi, því meö honum fylgja tvö skapalón, sem koma í góöar þarfir viö merkingar á tækjum og öörum eigum, sem þjófapakk ágirnist helst, því fræsarinn vinnur jafnt á málmi, gleri og plasti. Handfræsarinn, sem er af geröinni Minicraft, fæst í versluninni Brynju aö Laugavegi 29 og kostar 2.850 krónur með straumbreyti og ööru tilheyrandi. O Fœðing í háloftunum O Myndlyklum Stöðvar 2 má breyta amshafandi kona var á leið til landsins með flugi frá Amsterdam í vikunni. Kon- an hélt að tvær vikur væru enn í fæðinguna, en þar sem hún var stödd uppi í háloftunum fékk hún skyndilega hríðir. En lukkan var með henni, því það var ekki nóg með að Ijósmóðir væri fyrir tilviljun stödd í vélinni, heldur líka prófess- or í fæðingum og kvenlækningum. Þetta endaði með farsælli aðgerð á jörðu niðri og fór því allt vel að lokum... ígur hefur löngum verið á milli framhaldsskólanna í Reykjavík og nú eru sumir nemenda Fjölbrautaskólans í Breiðholti ekki par ánægðir. Leik- stjórinn sem þangað var ráðinn til að setja upp The Hobbit tók nefni- lega líka að sér að leikstýra söng- leiknum Jesus Christ Superstar sem Verslunarskóli íslands sýnir á Hótel íslandi. Það vissu æði fáir úr leikfélagi Fjölbrautunga, fyrr en tveir leikarar úr Jesú súperstjörnu sögðu frá sýningunni í viðtalsþætti fyrir skömmu og bar þá nafn leik- stjórans á góma... Stöð 2 gengur illa að girða fyrir að myndlyklum sé þreytt þannig að handhafar þeirra komist hjá því að greiða áskriftina. Nýlega tapaði íslenska útvarpsfélagið máli sem það höfðaði á hendur manni sem breytti fjölda myndlykla af gömlu gerðinni. Þar sem fólk keypti myndlyklana hafði það rétt á að þreyta þeim að vild. Ein helsta ástæða þess að íslenska útvarpsfélagið ákvað að eiga nýju myndlyklana og leigja þá út til áskrifenda var einmitt sú að koma í veg fyrir að þetta væri hægt. En nú er sami maður víst kominn á fulla ferð að breyta nýju lyklunum fyrir þá sem þess óska og ekki er ósennilegt að hann komist upp með það. í leigusamningnum er ákvæði um að ef handhafi mynd- lykils í eigu íslenska útvarpsfé- lagsins skemmi hann eða týni honum, skuli viðkomandi greiða 14 þúsund krónur í skaðabætur. Eftir það teljast lyklamir ekki leng- ur eign íslenska útvarpsfélagsins. Óvenju margir hafa víst borgað skaðabæturnar á þessum for- sendum frá því farið var að taka nýju myndlyklana í gagnið. Margir þeirra munu hafa endað á verk- stæði mannsins þar sem hann hefur breytt þeim. Hann lætur ekki þar við sitja heldur breytir hann jafnframt myndlyklum sem afrugla gervihnattastöðvar... Hér gefur á að líta Madsíóne, flokk ungra manna sem hittast alltaf síðustu helgina íjanúar og gera eitthvað skemmti- legt saman. Flokkinn fylla þeir Eiður Snorri, Einar Snorri (sem sést ekki á myndinni), Naldó, Róbert, Beysi, Daði, Jói, Brinni og Raggi. í ár héldu Madsíóne-menn á Borgina og leigðu sér herbergi. Um kvöldið snæddu þeir Ijúffengan málsverð og héldu svo teiti í svítunni. Að því loknu var farið út að skemmta sér. í Madsíóne hafa allir sérsmíðaðan hring sér á fingri til að tengja sig betur saman. Nafn hópsins er þannig til komið að eitt kvöld þegar piltarnir voru saman úti að skemmta sér bauð Áskell Másson þeim upp á glas. Þeim flaug þá þessi „ítalska þýðing“ á föðurnafni hans í hug. Madsíóne hefur verið við lýði í fjögur ár og verður til meðan hópurinn getur enn lyft glösum. Flugur í posti íslendingar er'u greini- lega enn helteknir af keðjubréfadellunni sem reið húsum allharka- lega fyrir jólin i formi Akureyrarkeðjunnar og annarrar þýskrar ættar sem margir höfðu tals- verða peninga út úr. Nú hefur verið stofnuð nýrri og öllu óvenjulegri keðja sem kallast Flugnafár. Illa haldnir veiðimenn sem geta ekki beðið eftir vorinu komu flugnafárinu af stað. Keðjan gengur út á að senda efsta manni á nafnalista eina flugu og senda siðan þremur veiðifélögum keðjubréfið. Ef keðjan slitnar ekki er þátttak- endum lofað 243 flug- um inn um bréfalúguna. Flugurnar sleppa, að minnsta kosti á meðan bréfberarnir stinga sig ekki á önglunum, en hvað nú ef golfarar eða áhugamenn um segl- bretti taka upp á því að stofna keðju? ÉQ VEIT PAÐ EKKI EFTIR HALLGRlM HELGASON Vörður gegn virðisauka Síðastliðið haust kom út á vegum Rithöfundasambands íslands ljóð- asafnið Vörður. Það samanstendur af ljóðum eftir um það bil sjötíu yrkjandi félagsmenn í sambandinu og var gefið út til að mótmæla virðisaukaskattinum sem lagður var á bókaútgáfu þann fyrsta júlí síðastliðinn. Safnið heitir Vörður eftir einu ljóðanna eftir Njörð P. Njarðvík. I stuttu máli segir þar frá vörðum sem „Enn ganga...yfir heiðina / þótt leiðin sé fáförul / og ekki margir / sem telja sig þurfa leiðsagnar / þangað sem förinni er heitið.“ Þessar vörður „...kæra sig kollóttar / þótt úr þeim hrynji / steinn og steinn / því erindið er brýnt: / að varða leið.“ og „Það er ekki þeirra að ákveða ( hverjir fylgja þeim / en þeir sem vilja leiðsögn / eiga að vita hvar þær er að finna.“ í ljósi ljóðtilefnis eiga vörðurnar vafalítið að tákna hin íslensku skáld og ljóð þeirra. Þau halda áfram að yrkja þó fáir fylgi þeim, þó engin lesi ljóðin, þó bækurnar séu skatt- lagðar. Skáldin standa sig á verðin- um. Saman þokast þau „...upp úr dalbotnunum / feta sig meðfram gilskorningunum / stika svo fram klifið / stefna rakleitt inn í þoku- bakkann“. Á meðan þjóðin æðir áfram í stressbílnum sínum um bæinn og austur fyrir fjall standa skáldin stóísk úr alfaraleið og standa vörð um þjóðlega arfleið, standa með náttúrunni, hinum ei- lífu og „góðu“ gildum. Þau varða leiðina sem liggur frá spilltu og „- vondu“ borgarlífinu útí hina heil- ögu náttúru. I þessu ljóði heldur skáldið á táknrænan hátt uppi minnis-vörðu um vanda íslenskrar samtíma- ljóðlistar. Skáldin hafa dagað uppi, tröll sem urðu að steinum í sterku ljósi nútímans og standa eins og einskis nýtar vörður upp um fjöll og firnindi. Og ekki einu sinni skemmtilega beinakerlingarvísu þar að finna í sauðalegg. Eins og sést á flestum ljóðum í Ljóðasafni RSÍ er náttúran yrkisefni númer eitt á íslandi í dag. Hún er uppspretta helmings ljóðabóka sem hér eru gefnar út. Fínast þykir að yrkja beinlínis ljóð um litla fallega uppsprettulind með mosató á la Snorri Hjartar. Þegar skáldið les upp ljóðið verður það svo of- urmjúkt á svipinn, eins og dýja- mosi í framan og út úr litlum vel meinandi munni þess seytlar ljóðalind. Og allt með ljóðrænu uf- siloni. Ljóðaíynd. Hvenær ætla skáldin að koma í bæinn? Kannski Rithöfundasam- bandið ætti að senda leitarflokka eftir skáldunum, áður en þau ffjósa í hel uppi á heiði. Ekki kunna þau lengur að halda á sér hita með því að kveða rímur. Eina von þeirra er að prósagutlið leki niður af þeim ofan í finnsku Nokia stígvélin, en það er skammgóður vermir eins og allir vita. En til hægðarauka fyrir gagnrýnendur eru skáldin farin að yrkja þannig að ljóðin má auðveld- íega setja upp í prósalínur, þau breytast ekkert við það. Þetta sparar pláss í dagblöðunum eins og ég sannreyni hér að ofan. I ljóði sínu vill Njörður P. Njarðvík að skáldin standi áfram sína vakt upp á fáförnum heiðum og væli þar í holtaþokunni eins og útburðir, bornir út úr menning- unni, borgarmenningunni, þar sem þjóðin býr við sitt myndband og microwave. Fólkið hlustar á sína örbylgju en út úr skáldunum kem- ur bara gamla gufan. I passívri afstöðu vörðunnar er einnig fólgin lítillát afstaða Organ- istans og fleiri þjóðsagnapersóna úr bókum Laxness. Ég veit ekki af hverju þessi innflutti og ákaflega óíslenski búddismi er svona lífseig- ur í huga þjóðarinnar sem aldrei hefur praktíserað hann, nema á pappír. Samkvæmt honum á maður (milli þess sem maður vörðurnar vafalítið að tákna hin íslensku skáld og Ijóð þeirra. Þau halda áfram að yrkja þófáirfylgi þeim, þó engin lesi Ijóðin, þó bœkumar séu skattlagðar. stendur uppi á heiði „að varða leið“) bara að sitja heima og laga te, lesa Lao Tse og leggja bókina ffá sér annað slagið til að „nema tif klukkunnar". Brosa svo blítt þegar hún slær. „Hana, þar fór blessaður tíminn." Þar fór tíminn, þar fór nútíminn, án þess að nokkur yrti á hann, án þess að nokkurt skáld yrkti um hann. Erfiðasta verkefni hvers skálds er að horfast í augu við eigin tíma og finna honum sitt form. Enginn vandi er að feta í mosavax- inn fótspor feðranna og elta þá upp á úr sér gengnar heiðar þar sem fyr- ir löngu er búið að spræna kvæði utan í hverja hæð og hvern hól. Og það á hraustlega íslenska vísu en ekki með þessu tebollatuði sem ís- lensk ljóðlist er orðin. En skáldin velja samt þá fót- umtroðnu leið. Þau eru jafn til- gerðarleg og maður sem býr á Sel- fossi en vinnur í Reykjavík og kem- ur ríðandi yfir heiðina á hverjum morgni, gömlu reiðgötuna, ffam- hjá útvörðum íslenskrar menning- ar sem standa á miðri Hellis- heiðinni, úr alfaraleið, í sinni mótmælastöðu gegn virðisauka- skattinum. Vita þeir ekki að það er búið að malbika? FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 39

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.