Eintak

Tölublað

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 37

Eintak - 03.02.1994, Blaðsíða 37
“Keith Richards, talar tungu sem oft á tíðum er undarleg samblanda af gömlu jazzslangri, hippafrösum og götumáli, og það að koma honum til skila á þann hátt að ég get vel heyrt hann fyrir mér með Bubba og Rúna Júl í rútunni á leið á Hvolsvöll, er ótrúlegt afrek." „Síðustu plötur hans hafa daðrað við leikgyðjuna en aldrei gengið skrefið til fulls. Þær hafa virkað ósannfærandi og lítt heilsteyptar. Nú fer Egill loksins alla leið og var löngu kominn tími til. “ Viðbót við leikskrú EGILL ÓLAFSSON & LEIKFÉLAG REYKIAVÍKUR EVALUNA ★★★ Sem kunnugt er hefur Leikfélag Reykjavíkur ráðist í uppsetningu á söngleik byggðum á skáldsögu Isa- bel Allende, Evu Lunu. Það var til- valið og að því er manni finnst næsta sjálfgefið að poppkamel- ljónið Egill Ólafsson fengi það hlutverk að semja tónlistina í uppfærsluna og koma henni út á geislaplötu. Egill er orðinn að stofnun innan leikhússins. Síðustu plötur hans hafa daðrað við leikgyðjuna en aldrei gengið skrefið til fulls. Þær hafa virkað ósannfæ- randi og lítt heilsteyptar. Nú fer Eg- ill loksins alla leið og var löngu kominn tími til. Það verður að segjast að Agli tekst margt vel upp á Evu Lunu. Hann hefur augljóslega gott vald á kabaretthliðum leikhústónlistar og tónlistin við uppfærsluna hneigist nokkuð í þá átt. Á köflum bregður Egill undir sig betri fætinum og daðrar við suðræna sveiflu, jafhvel austræna. Hann kokkar upp léttdjassaða stemmningu sem minnir jafhvel á Tom Waits þegar best lætur. Tónlistin er afslöppuð og þægileg. Auðheyrt er frá byrjun að útsetningar Ríkharðs Arnar Pálssonar eiga veigamikinn þátt í að byggja upp þennan dulúðlega blæ sem er aðalsmerki plötunnar. Útsetningarnar, snilldarlegar á köflum, eiga stærstan þátt í hvað tónlistin á auðvelt með að standa ein sér. Söngurinn á skiljanlega erfiðar með að standa einn utan leiksýningarinnar. Þó er gaman að heyra innlegg Eddu Heiðrúnar Bachmann sem sjaldan eða aldrei hefur náð að skila jafn góðum per- formans á band. Minna ber á öðrum söngvurum enda eru lög þeirra háðari verkinu og skila sér ekki fyllilega á plötunni. Það er ljóður á útgáfunni að hljóðfæra- leikara skuli ekki getið í innleggi. Sérstaklega er það sárt vegna þess að spilamennskan er öll fyrsta flokks og á köflum brillíant svo maður iðar af forvitni yfir hver sé að verki. Eins má nefha að í ein- hverjum lögum er söngur merktur karakter án þess að neinn söngvari sé skrifaður fyrir honum. Þessi al- deilis óþarfa yfirsjón skemmir dá- lítið fyrir sjálfstæði plötunnar og límir hana enn fastar við uppfærslu leikfélagsins. Að öðru leyti er um- slag Óskars Jónassonar prýði- legt. Auðvitað er tónlistin ekki samin fyrir plötuna heldur sýninguna og platan líður nokkuð fyrir það hafi maður ekki skellt sér upp í Borgar- leikhús. Það má eiginlega segja að platan sé nokkurs konar viðbót við leikskrána frekar en sjálfstætt verk. Bækur HILMAR ÖRN HILMARSSON Byrott. rokksins finnur stnn Boswell VICTOR BOCKRIS KEITH RICHARDS - ÆVISAGA FORLAGIÐ ★★★★ Frank Zappa sagði einhverju sinni að rokkblaðamennska væri það þegar óskrifandi fólk tæki viðtöl við það ótalandi fyrir hina ólæsu. Því miður er þetta hættulega satt, því þær sviptingar sem rokkið hefur komið af stað og/eða tákn- gerði hafa hlotið litla vitræna um- fjöllun sem verður að teljast fúrðu- legt í ljósi þess að fæðing æsku- menningar á þessari öld er ein merkilegasta þjóðfélagsbreyting í sögu mannsandans. Þetta kunna að þykja stór orð sérstaklega í ljósi þess að byltingin sem fólk hélt að væri að verða á sjöunda áratugnum fór veg allra hungraðra hreyfinga og kjamsaði í sig króana sína, — en eftir stendur að æskan í dag hefur völd og áhrif sem hefðu þótt óhugsandi fyrir fimmtíu árum síðan, hvað þá fyrir hundraðog- fimmtíu árum. Auðvitað hefúr á öllum tímum verið uppi skapandi, skemmtilegt og umbyltandi æskufólk og Grikkir til forna kvörtuðu sáran undan yngri kynslóðum sem rifu kjaft við kennara, sýndu eldra fólki óvirðingu og slæptust um hallæris- plön Aþenu öllum til armæðu. I Frakklandi á síðustu öld má merkja marga prótó-hippa og fýrirbærið „poét maudit“ sem ölvaði sig á á- fengi, listum og fögrum konum, — auk ópíata og kannabisefna, varð mörgum æskulýðsleiðtoganum upp úr 1960 uppspretta innblásturs þó oft á tíðum hafi Kaliforníuútgáf- an verið helst til gagnsæ saman- borið við Baudelaire og co. Bretar áttu líka sinn skammt af siðspillt- um ungskáldum og í kringum fólk eins og Byron, Shelley og Mary Woolstonecraft var álitlegur hóp- ur sem sukkaði og subbaðist eins og það ætti lífið að leysa. Menn lifðu hátt, dóu ungir og urðu misfalleg lík. En allt var þetta gert í litlum kreðsum og þó að fólk væri oft þekkt langt út fýrir raðir ljóða- og listunnenda varð það fáum fýrir- mynd nema á einhverjum háskóla- árum þar sem menn stungu við í Byronsgervinu meðan þeir undir- bjuggu karríer í kennslu og utan- ríkisþjónustunni. Allt þetta breyttist svo um munaði á fýrstu árum sjöunda ára- tugarins og megin efnahvatinn var fimm manna hljómsveit sem hét Rolling Stones. Sjaldan hefúr tíðar- andinn setið nokkurn hóp manna af meiri krafti en í því tilfelli, og þó margir hafi viljað sjá Stones sem eins konar andhverfu Bítlanna (sem umboðsmanni þeirra, Brian Epstein, hafði tekist þó nokkuð vel að markaðssetja sem skemmtilega sómapilta, sem væri meira að segja hægt að bjóða heim til drottningar- innar...), þá voru þeir svo mikið meira en bara antí-eitthvað. Þessi roggni uppreisnarandi og þetta kaldhæðnislega og kærulausa ffat sem Stones gáfú í allt og alla sem fylgdu hefð og siðvenjum, hold- gerðist í því gangandi kraftaverki sem nefnist Keith Richards. Keith var þessi kjarkmikli, rómantíski einfari sem gerði hlutina eins og honum sýndist og gaf hvergi eftir. Mick Jagger var metnaðarfullur, ungur maður úr efri millistétt sem lék niður fýrir sig á kvöldin og um helgar og það er sagt að gamlir skólafélagar úr London School of Economics fái enn köst þegar þeir heyra Mick kljást við cockney- hreiminn. Brian Jones tilheyrði sömu stétt. Faðirinn var virtur flugvélaverkffæðingur og móðirin píanókennari og Brian var alla tíð haldinn smáborgaralegri angist um að geta ekki orðið „eitthvað“. Charlie Watts var jazzgeggjari af gamla skólanum sem var nokkurn veginn sama hvað hann gerði, bara ef hann fengi borgað fyrir það, og Bill Wyman sem var eldri en hinir og auk þess giftur, komst í bandið út á það hvað hann átti stóran bassamagnara, — faldi síðan eigin- konuna fyrir rokkpressunni og gerðist ötulasti grúppíugiljari sög- unnar. En einhvern veginn varð þessi ósamstæði hópur að hættu- legri heild sem braut niður múra fordóma, hræsni og stirðnaðra hefða og fór á margan hátt fýrir þeirri holskeflu breytinga sem varð þegar æskan áttaði sig á því að hún hafði rödd og völd. Sá sem gerði Stones að Stones er óumdeilanlega Richards og saga hans er um leið saga tíðarandans, breytinganna, tortímingarinnar, heimskunnar og upphafningarinnar. Ævisaga Keith Richards eftir Vic- tor Bockris er draumur sem rætt- ist: vel skrifuð, vel hugsuð og vel rannsökuð bók sem fellur ekki í þá gryfju að fegra viðfangsefnið og birtir manni ljóslifandi karaktera og uppákomur sem hafa mótað dægurmenningu síðustu áratuga. Þetta er lífsreynslusaga sem sneiðir hjá öllum siðapredikunum, en samt upplifir maður fólkið sem féll út við vegakantinn sakir úthalds- leysis (eða einfaldlega út af því að það var mennskt), sem fómarlömb, — ekki aumingja eins og oft vill verða í sukkarasögum af þessu kal- íberi. Bockris hefur áður ritað ævisögu Andy Warhol og skrifaði ásamt William Burraughs, A Reportfrom the Bunker, hvort tveggja verk sem bera honum fagurt vitni og hann er nú orðinn fyrir mér einhver skemmtilegasti skrásetjari samtím- ans eins og hann birtist, speglast og skrumskælist oft í persónum þeirra sem taka það á sig að lifa einhver ákveðin tímabil í botn. Að það verði oft á tíðurn bölvaður ólifnaður segir líka meira en margt annað. Ekki get ég lokið þessu án þess að hrósa þýðingu llluga Jökulssonar sérstaklega. Viðfangsefnið, Keith Richards, talar tungu sem oft á tíðum er undarleg samblanda af gömlu jazzslangri, hippafrösum og götumáli, og það að koma honum til skila á þann hátt að ég get vel heyrt hann fýrir mér með Bubba og Rúna Júl í rútunni á leið á Hvolsvöll, er ótrúlegt afrek. Og að geta bætt frasann „...all you need to play is five strings, three notes, two fingers, and one asshole“ í þýðingu, er ekkert annað en kraftaverk. Sjónvarp SIGURJÓN KJARTANSSON Ómissandi EIRlKUR STÖÐ 2 ★★★ Viðmælandinn horfir skeptískur á Eirík Jónsson og er auðsjáanlega að passa sig á að segja enga vitleysu. „Hvaðan hefurðu þessa vitn- eskju?“ spyr Eiríkur. „Þú ætlar þó ekki að segja mér að þú hafir hana frá Guði?!“ „Jújú, þetta er frá hæstu hæðum,“ muldrar viðmælandinn hálf vandræðalegur. „Guð hefúr sem sagt talað til þín og sagt þér að það læknaði öll sár að borða fimm möndlur á dag?!“ „Já, en það fer þó ekki að skila ár- angri fýrr en eftir fimm ár,“ svarar viðmælandinn spekingslega. Ofangreint samtal er nokkurn veginn dæmigert fýrir þætti Eiríks Jónssonar, sem hafa verið fastur liður á Stöð tvö alla virka daga í hátt á annað ár. Þættirnir litu í fyrstu út fyrir að vera misheppnuð tilraun til að stilla mönnum upp við vegg, spyrja þá ágengra spurn- inga og fá þá til að brotna niður í beinni útsendingu. En þeir hafa breyst í fýrirtaks skemmtiþætti. Eiríkur er oft spaugilegur í til- raunum sínum til að taka fólk á sálfræðinni. Hann beitir öllum brögðum og nýtir sér öll tækifæri. Hann er naskur á að ná sér í áhuga- verða viðmælendur. 1 síðustu viku voru nokkrir effirminnilegir. Til dæmis misheppnaði bruggarinn sem kom við hjá Eiríki á leiðinni á Litla Hraun, eiginkona Hjalta Úrsusar sem var mjög „kúl“ og karlinn sem læknaðist í ítalska loft- þrýstiklefanum fræga og klykkti út með því að fara úr sokkunum og sýna alþjóð fótinn á sér (sem var kannski óþarfi). Svo má náttúrlega ekki gleyma „möndlulækninum" sem ég minntist á í upphafi. Eiríki hefur tekist að sýna fram á að þjóðin á mun fleiri furðufugla en nokkurn hafði órað fýrir. Mér finnst ég varla nema hálfur maður ef ég missi af þó ekki væri nema einum Eiríki. Hann er hreint út sagt ómissandi. Barnaefni DAVÍÐ ALEXANDER, 9 ÁRA Fœrri brúðumyndir MORGUNSJÓNVARP BARNANNA RÚV ★* Morgunsjónvarp barnanna í Rikissjónvarpinu hefur lagast. Það er komið meira af skemmtiJegum teiknimyndum. Síðast þegar ég horfði á morgunsjónvarpið var of mikið af brúðumyndum. Brúðu- myndir eru alltaf svo barnalegar — mjög barnalegar. Kannski þykir litlum krökkum gaman af þeim. Ég held að mér hafi fúndist það þegar ég var lítill — en ég man það ekki. JÚLÍUS KEMP Löggulíf I KJÖLFAR MORÐINGJA STRIKING DISTANCE STJÖRNUBÍÓI OG LAUG- ARÁSBÍÓI *★ Nútíma súper töffarinn Bruce Willis leikur löggu (hvað annað?) í kvikmyndinni striking Distance sem sýnd er í Stjörnubíói og Laug- arásbíói um þesar mundir. Það sem einkennir þessa mynd helst eru ldi- sjur. Allar senur í myndinni hefúr maður séð áður og flestar mjög ný- lega í einhverri annarri löggu- og bófamynd sem aftur hefur verið stolið úr annarri löggu- og bófa- mynd. Persónurnar eru einnig samansafn af klisjum; til dæmis leikur Bruce drykkfelldan, fráskil- inn lögreglumann sem á kött (í flestum myndum eiga þeir hund). Besta atriði myndarinnar er eitt klipp þar sem klippt er firá sam- starfsmanni Bruce sem er með morðingjann inni í herbergi hjá sér án þes að vita af því yfir á Bruce heima sem er heima hjá sér að reyna að leysa morðgátuna. Það fór um mig þegar ég sá þetta á tjaldinu og ég hélt að nú færi eitthvað nýtt að gerast en svo var ekki. Þó ber að hrósa því sem vel er gert og er það val á tökustöðum og umhverfi sög- unnar, Pittsburg, heimabæ höf- undar. Ég hafði sérstaklega gaman að berja Pittsburg augum og skilar borgin hlutverki sínu með sóma. Sriking Distance er ekta iðnaðar- ffamleiðsla sem Hollywood dælir út á færibandi og hefúr eiginlega ekkert ffam að færa nema það sem flestir- bíógestir sækjast eftin Áreynslulaus, ágæt skemmtun. Stjömubió fœr stjömu fyrir að selja ís í bió eins og reynd- ar nokkur önnur bíó erufarin að gera Ævisaga Keith Richards eftir Victor Bockris er draumur sem rættist: vel skrifuð, vel hugsuð og vel rannsökuð bók sem fellur ekki í þá gryfju að fegra viðfangsefnið „Guð hefur sem sagt talað til þín og sagt þér að það læknaði öll sár að borða fimm möndlur á dag?!“ „Já, en það fer þó ekki að skila árangri fyrr en eftir fimm ár,“ svarar viðmælandinn spekings- lega. Morgunsjónvarp barn- anna í Ríkissjónvarpinu hefur lagast. Það er komið meira af skemmti- legum teiknimyndum. Síðast þegar ég horfði á morgunsjónvarpið var of mikið af brúðumyndum. Allar senur í myndinni hefur maður séð áður og flestar mjög nýlega í ein- hverri annarri löggu- og bófamynd sem aftur hef- ur verið stolið úr annarri löggu- og bófamynd. FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994 37

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.