Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 27
íið
ír
anum
Björns Inga Hilmarssonar. Við
fengum nokkur atriði lánuð úr því í
„Frá kyrrstöðu til hagvaxtar" og
settum Morgunblaðstexta í stað
textans sem fyrir var.“
Þótt sýningin sé fyndin á köflum
er hún sjokkerandi og munar þá
mestu um atriði þar sem kona hef-
ur skrúfað af sér gervihandlegg.
„Okkur skilst að atriðið hafi
komið við marga en það var ekki
ætlunin að hneyksla fólk. Atriðin
koma úr mörgum áttum og var svo
bara skeytt saman þremur vikum
fyrir frumsýningut'Píanóleikarinn í
sýningunni bættist þó ekki við fyrr
en fjórum óögum fyrir frumsýn-
ingu.“
Það næsta sem Leiksmiðja
Reykjavíkur tekur sér fyrir hendur
er að taka upp aftur sýninguna
Lokasenuna og setja upp í Hafnar-
firði. Sýningin var fyrst sett upp
fyrir síðustu jól fyrir Asatrúarfélag-
ið og var samin upp úr norrænni
goðafræði.
Ætlið þið að spinna upp úr Sjáv-
arfréttum þegar sýningum á Loka-
senunni lýkur? „Maður veit aldrei,“
svarar Rut. ©
Snorrarnir opna fyrstu
Ijósmyndasýningu sína
á laugardaginn.
„Þetta er bara fólk sem okkur langar að mynda. Sumir eru að gera snið-
uga hluti, aðrir ekki. Fólk þarf ekkert endilega að vera að gera eitthvað
rosalegt eða vera sérstaklega töff tii þess að við höfum áhuga á því,“ segja
Eiður Snorri og Einar Snorri um viðfangsefni ljósmyndasýningar sem
opnar næsta laugardag í Gallerí einn einn sem er í húsi neðarlega við
Skólavörðustíginn. Þetta er fyrsta sýning Snorranna.
{ stærri sal gallerísins, sem er þó alls ekki stór, ætla Eiður og Einar að
sýna eitthvað á milli sextíu og sjötíu
portrett sem þeir hafa unnið í sam-
einingu. Ætla sem sagt að veggfóðra
salinn með andlitum sem öll horfa á
þennan einkennilega hátt í linsuna,
og á sýningargesti.
„Við ætlum að halda áfram að
mynda fólk úr samtíma okkar á
þennan hátt í einhvern tíma, þetta er
bara byrjunin, og gefa síðan út bók
eftir tíu til fimmtán ár með ljós-
myndunum. Þetta er á vissan hátt
eins og að skrásetja sögu sem getur
orðið mjög athyglisvert að skoða eft-
ir nokkur ár.“
En afhverju mynda þeirfólk á
þennan hátt?
„Það er mjög erfitt að blekkja
myndavélina frá þessu sjónarhorni.
Og þó fólk verði dálítið skuggalegt á
þessum myndum næst líka einhver
einlægni í svipinn. Svo er þetta bara
flottur vinkill.“
Eiður og Einar vinna einnig í sitt hvoru lagi. Afrakstur þeirrar vinnu
verður hægt að sjá í minni sal gallerísins. Einar lýsir sínum myndum
svona: „Þetta er myndasería þar sem ég tek mannslíkama og kortlegg
hann.“ Eiður er einnig að fást við líkama, ekki einn heldur marga og á allt
annan hátt. „Ef á að túlka mínar myndir eða lýsa þeint á einhvern hátt má
helst segja að viðfangsefnið sé ffelsi í víðasta skilning orðsins.“
Þessi hluti sýningarinnar er öllu tilraunakenndari og persónulegri en
portretthlutinn. Sá helmingur hefur yfirskriftina „Barflugur" en það er
Kaffibarinn sem styrkir sýninguna og er það vel við hæfi því margir af
þeim sem eru á myndunum eru þar tíðir gestir. ©
ll.t «•;.!»
sjálfa mig, fjölskyld-
una, heimilið, vinn-
una, hundinn ogyfir-
leittflest það fólk sem
er í kringum mig.
22.10 Gullnáman Bandarlsk gamanmynti um
tólk sem fréttir aí fjérsjóði undir húsi og keppist
við að vera fyrst að ná honum Pottþétt uppskrifl
að ónýtu kvöldi23.45 Dagskrárlok
STÖB TVÖ 14.30 Látlaus og hávaxin Ráðs-
kona tekur að sér móðurhlutverkið í kanadískri
fjölskyldu árið 1910 Aðaihiutverk Glen Close og
Christopher Walken 16.00 Hundaheppni
Pure Luck Grínmynd með Martin Short og
Danny Giover um hrakfallabálk sem leitar að
dóttur auðmanns sem er einnig hrakfallabálkur I
Mexíkó. Marlin Short reddar myndinni fyrir
horn 17.30 Með afa 19.1919.19 20.15 Eirík-
ur Er óþreytandi íað þjarma að þeim sem hon-
um tekst að draga inn í stúdióið til sín. 20.40
Systurnar. Reed-syslurnar og fjölskyldurþeirra i
sorg og gleði. 21.30 Á tímamótum Annarþáttur
afsex í nýrri breskri þáttaröð um tvo vini og
ferðalag þeirra i gegnum lífið og lilveruna.
22.00 Saga Olivers North Hann varsllsí
kúkur I landgönguliðinu sem hjálpaði Reagan
og Bush að reynaað fá gísla ÍUbanon lausa
meö því að selja írönum vopn og styðja kontra-
skæruliða i Honduras með ágóðanum. Dópsata
og annar subbuskapur blandaðisl einnig inn i
málið. 23.55 Leiksoppur Meðlimirnýnasista-
hreylingar spila með hégómagirnd misheppn-
aðs háskólaprófessors. Ólafur fíagnar kemur
málinu ekkert við 01.25 Hún gengur aftur
Bófar brjótast inn hjá hjónum og drepa eigin-
konuna Hún gengur aftur og er þeim og manni
sínum til ama. 02.55 Dagskrárlok
Föstudagur
P O P P
KK-band er á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki
með ball Iramundir rauðan morgun.
Bubbi slær hvergi af á ferð sinni um landið. í
kvöld er það Seyðisfjörður.
Þúsund andlit er komin með nýjan bassaleik-
ara, Eið Arnarson sem var í Todmobile, og
einnig nýjan gítarleikara, Ara Einarsson sem
m.a. var um tíma (Fræbblunum. Hljómsveitin er
fyrir norðan heiða (kvöld, nánar tiltekið á Sjall-
anum á Akureyri.
Rúnar Þór kallaði sig einhvers staðar Leonard
Coheri íslands, þegar hann opnar munninn er
röddin þó líkari bauli f kálfi en söngrödd kanad-
íska Ijóðskáldsins. Rúnar er með hljómsveit
sínaáTveimurvinum.
Örkin hans Nóa er á neðri hæð Bóhem með
sitt popp. Uppi dynur diskóið.
Mannakorn með Magnús Eiríksson og
Pálma Gunnarsson í aðalhlutverkum er í
Turnhúsinu.
BAKGRUNNSTÓNUST
J.J. Soul er hljómsveit sem dregur nafn sitt,
ótrúlegt en satt, at einum hljómsveitarmeðlima.
Hún eráSólon.
Fánar innihalda að hluta til Brimkló sálugu og
leika því væntanlega ýmis lög ættuð af þeim bæ
í bland viö erlenda slagara. Fánar eru á Feita
dvergnum.
Sín er ekki samband íslenskra námsmanna
heldur hljómsveit sem er á Rauða Ijóninu (
kvöld.
Kráartríóið er á Kringlukránni. Þetta eru tveir
menn á gítar og einn á fiðlu, þeir leika tónlist
sem hætir vel drykkju á áfengum veigum. Her-
mann Arason trúbador raular fyrir gesti minni
salar staðarins.
Mæðusöngvasveitin er hallærislegasta og
væmnasta hljómsveit sem sögur fara af. Hún er
á HM Café á Selfossi í kvöld. Sá staður er tek-
inn af sonum Hauks Morthens heitins og
skírður í höfuðið á honum.
FRUMSÝNING
Hugleikur sýnir Hafnsögur í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu kl. 20:30. Þetta eru 13 stuttverk,
örsögur, einþáttungar, örleikrit, gamanþættir og
óperur. Hugleikur hefur sjaldan brugðist leik-
húsunnendum - eiginlega bara aldrei.
L E I K H Ú S
Sumargestir í Nemendaleikhúsinu eftir Gorkí.
Meiriháttar sýning sem f byrjun fær leikhúsgesti
til að halda að þeir séu aö tara að skemmta sér
en þegar þeir ganga út uppgötva þeir að þetta
var í raun þerapía.
Gaukshreiðrið á Stóra sviöi Þjóöleikhússins
kl. 20:00. Hilmar Jónsson er frábær í hlutverki
mannsins sem er að farast úr taugaveiklun og
stamar sfnkt og heilagt. Sigurður Sigurjónsson
er líka mikill senuþjófur í litlu aukahlutverki.
Frá kyrrstöðu til hagvaxtar í Frú Emilíu kl.
21:00. Þetta er spunaverk sýnt af Leiksmiðju
Reykjavíkur. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson.
Verkið er spunnið upp úr texta Morgunblaðsins.
Gleðigjaf arnir sýndir kl. 20:00 á Stóra sviði
Borgarleikhússins. Skemmtileg sýning um
gamlar revfustjörnur sem hittast á nýjan leik.
PANSSTAÐIR
Aggi Slæ og tamlasveitin verður a ð venju á
Ömmu Lú. Örn Árnason skemmtir matargest-
T ó n I i s t
G a u k s
n s
n
s t u
FIMMTUDAGUR 21 apríl FÖSTUDAGUR 22. apríl LAUGARDAGUR 23. apríl SUNNUDAGUR 24. april MANUDAGUR 25. apríl ÞRIDJUDAGUR 26. apríl
VINIR VORS OG BLÓMA GAL í LEÓ GAL í LEÓ KROPPARNIR KROPPARNIR SIGTRYGGUR DYRAVÖRÐUR
u
MIÐVIKUDAGUR 27. april
SIGTRYGGUR
DYRAVÖRÐUR
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
27