Eintak

Tölublað

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 6

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 6
Útflutningur á skreið til Nígeríu hefur sífellt farið vaxandi á síðustu árum og nú er flutt þangað að jafn- aði skreið fyrir 6- 700 milljónir króna á ári. Eingöngu er um að Fleyg urðu ummæli Jóns Baldvins Hannibalsson- ar, utanríkisráðherra, þegar hann sagði að fátt annað hefðu menn fyrir stafni í Seðlabankanum en að naga blýanta. Nú ætlar hann greinilega að sjá til þess að slíkt hangs verði ekki liðið lengur því hann ætlar aðstoðarmanni sínum, Þresti Ólafssyni, formanns- stöðuna í bankaráðinu eftir að Ág- úst Einarsson, sagði af sér í kjöl- far ráðningar Steingríms Her- mannssonar í embætti Seðla- bankastjóra. Þröstur getur þá gefið húsbónda sínum reglulegar skýrslur um blýantsnagið... Þegar íslenski markaðsklúbb- urinn hélt sina árlegu auglýs- ingahátíð í Borgarleikhúsinu varð auglýsingin F27 - trygging fyrir ungt fólk, frá Vátryggingafélagi ís- lands fyrir valinu sem besta sjón- varpsauglýsingin í ár. Þetta var þó ekki sú auglýsing sem dómnefndin var hrifnust af, því hún hafði áður valið auglýsinguna Staur - alveg þráðbeinn, sem þá bestu. Þegar dómnefndin fékk hins vegar í hend- urnar myndbandsspólu með aug- lýsingu frá Wrangler gallabuxna- framleiöandanum, sem þótti slá- andi lik Staurauglýsingunni, en þar var líka stúlka að baða sig í hvítum vökva og rappari, endurskoðaði hún niðurstöðu sína og valdi F27. Þess má geta aö það er auglýs- ingastofan P&Ó sem á heiðurinn af auglýsingunni um Staurinn... Sem kunnugt er leit langþráð- ur draumur Óla Björns Kárasonar dagsins Ijós í gær, en þá kom út fyrsta tölublað Viðskiptablaðsins undir ritstjórn hans. Helstu aðstandendur blaðs- ins eru valinkunnir menn í athafna- lífinu, en meðal annarra má nefna þá fóstbræður Hörð Einarsson og Svein R. Eyjólfsson hjá DV, sem prentar og dreifir blaðinu, og Friðrik Friðriksson útgefanda Pressunnar, sem annast framleiðslu blaðsins að öðru leyti. Meðal ann- arra hluthafa eru þeir Kristinn Björnsson og Friðþjófur Johnsson, sem tengjast helsta keppinauti hins nýja blaðs, sem er Árvakur, útgefandi Viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Viðbrögð Mogga- manna hafa heldur ekki látið á sér standa. Eins og lesendur hafa vafa- laust tekið eftir birtast sérstakar viðskiptasíður mun tíðar en áður auk þess sem meiri kraftur hefur verið settur í hið eiginlega Við- skiptablað Morgunblaðsins, sem kemur út á fimmtudögum, degi eftir blaðinu hans Óla Björns. Fastráðnir blaðamenn á hinu nýja blaði eru þeir Kristján Kristjánsson, Magnús Árni Skúlason og Örn Valdimarsson, en Jökull Tóm- asson ber ábyrgð á útliti þess. Út- gáfa fyrsta tölublaðsins var í strembnara lagi eins og lög gera ráð fyrir og fékk Óli Björn því Egil Helgason til liðs við sig undir lok- in og skrifaði Egill um viðskiptamál af miklu kappi, þrátt fyrir að hann hafi ekki komið nálægt þeirri grein fréttamennsku fyrr... ræða hausa og afskurð og er þessi útflutningur ágæt búbót fyrir mörg af stærri útgerðarfyrirtækjum landsins. Stór hluti af útflutningn- um er inniþurrkuð skreið þar sem jarðhiti er notaður við þurrkunina og má nefna í því sambandi að ný- lega var refabúi á Flúðum breytt í þurrkstöð fyrir skreið. Engin vand- ræði hafa verið með að fá skreiðina borgaða í Nígeríu þrátt fýrir ýmsar sveiflur í stjórnmálum landsins á liðnum árum. Laugafiskur hf. á Laugum í Reykjadal er stærsti framleiðandi á inniþurrkaðri skreið hérlendis og seldi fyrirtækið um 28.000 pakka af skreið til Nígeríu á síðasta ári eða 840 tonn. Lúðvík Haraldsson, framkvæmdastjóri Laugafisks, segir að þeim hafi gengið ágætlega á þessum markaði og engin vandræði hafi verið á að fá skreiðina borgaða. „Þessi starfsemi okkar skapar um 20 ársverk hér á staðnum og óhætt að segja að við séum ánægðir með hvernig til hefur tekist,“ segir Lúð- vík. Aðspurður um hráefnisöfiun segir Lúðvík að sterk útgerðarfyrir- tæki á borð við ÚA og Fiskiðju Húsavíkur standi á bak við Lauga- fisk og hjálpi það mikið til. „En samdráttur á kvótum hefur komið illa við okkur eins og aðra og nú sækjum við hráefni allt austur á Bakkafjörð og vestur á Snæfells- nes,“ segir hann. Útgerðarfélag Akureyringa er með stærri framleiðendum á úti- þurrkaðri skreið og Jóhann Malmquist, verkstjóri í fiskverk- unarstöð ÚA, segir að þeir hafi hengt upp um 2.000 tonn af haus- um og afskurði á síðasta ári. Út úr því hafi þeir fengið um 450-460 tonn af þurrkaðri skreið en skila- verð hennar nam 40-50 milljónum króna. Hann hefur svipaða sögu að segja af við- skiptunum og Lúðvík, það er að vel hafi gengið að fá greitt fyrir vöruna. „Þessi þurrkun er ein hagstæðasta framleiðslan hjá okkur,“ segir Jó- hann. Á heildina litið fluttu Islendingar um 200.000 pakka af skreið til Níg- eríu á síðasta ári en Lúðvík Har- Kaupmenn í Kringlunni æfir vegna könnunar níu nemenda á þjónustu verslana þeirra irog vinkon- UPr— tt/h urnar !MlJfH ÉSTÍI , • -> í-- -./•.* 1 f ;*• æa ine psrm W Mm BBS Á fundi verslunareigenda í Kringlunni í síðustu viku voru kaupmönnum kynntar niðurstöð- ur þjónustukönnunar sem einn bekkur í Viðskiptaskóla Stjórnun- arfélagsins og Nýherja gerðu. Nið- urstöðurnar voru miður góðar fyrir sumar verslanir og það er ekki hægt að lýsa viðbrögðum einstakra kaupmanna á fundinum öðru vísi en sem heiftarlegum. Nemendurnir voru vændir um allt frá því að vita ekki sínu viti og til þess að vera á mála hjá Laugavegssamtökunum. EINTAK hefur niðurstöður könnun- arinnar undir höndum en henni var dreift til þeirra kaupmanna sem mættu á fundinn. Nemendurnir, sem eru á sölu- og markaðsbraut, fengu það lokaverk- efni á námskeiði í sölutækni að at- huga þjónustulund starfsfólks í fimmtíu og átta verslunum, glugga- útstillingar, verðmerkingar, innan- búðarhönnun og skipulag og eins mátunarklefana. Loks var kannað hvernig eftirfylgni þjónustunnar var, en í því felst að kveðja við- skiptavininn og vekja áhuga hans á því að koma aftur. Þeir settu sig í spor viðskiptavinarins og prófuðu þjónustuna sjálfir. Síðan fylltu þeir út þar til gerð könnunareyðublöð. Heildarniðurstöðurnar eru þær að innkoma í verslanir þykir yfir- leitt góð nema hvað tæplega helm- ingur þeirra hirðir ekki um að hafa verðmerkingar í lagi. I ljós kom að ekki þykir sjálfsagður hlutur að bjóða góðan daginn og brosa til viðskiptavinarins. Þjónustulund er ábótavant í allt of mörgum verslun- um, að mati nemendanna, og það kom þeim á óvart hve almennt áhugaleysi virðist ríkja gagnvart viðskiptavininum, þörfum hans og óskum. Afgreiðslufólkið er al- mennt snyrtilegt og vöruþekking þeirra góð en nemendurnir segja að benda þurfi því á að hvetja við- skiptavininn til að koma aftur og láta hann finna að hann sé velkom- inn, of fáir þakki fyrir viðskiptin og kveðji hann. Nokkrar verslanir þóttu skara fram úr og veita góða þjónustu; Sœvar Karl og synir, Skœði, Genus, Hagkaup (efri hæð), Japis, Sport- kringlan, Blazer, Kúmen og Ólymp- ía. Umsagnir um þessar verslanir voru mjög jákvæðar. Verstu þjónustuna að mati nem- endanna veita hins vegar verslan- irnar Alessi, Sólblómið, lslandia, Herragarðurinn, Jack & Jones, Cara, Joss, Kókó og Cosmo. Umsagnirnar voru margvíslegar en mest ber þó á áhugaleysi gagnvart viðskiptavinin- um eins og sést hér á eftir. „Afgreiðsluaðilinn sat og prjón- aði og sýndi viðskiptavininum eng- an áhuga. Afgreiðsluaðilinn hafði meiri áhuga á að sópa gólfið en að af- greiða. Aldrei boðin þjónusta og aðrir Kaupmenn f Kringlunni sökuðu nemendur sem gerðu könnun á þjónustu verslana þeirra um að vera á mála hjá Laugavegssamtökunum. afgreiddir í staðinn. Afgreiðsluaðilinn hafði ekki áhuga á að selja. Afgreiðsluaðili var önnum kaf- inn við að kyssa og faðma vinkonu sína. Sýndi engan áhuga á að þjóna viðskiptavininum. Virti viðskiptavininn ekki viðlits, of upptekinn við að tala við vin- konu sína.“ Fleiri verslanir fengu dapra um- sögn. Þannig segir að afgreiðslu- maður í skóbúð hafi verið spældur þegar hætt var við kaup. I bóka- verslun var verið að raða í hillur og einhvers konar talning fór fram síð- degis á föstudegi fyrsta dag nýs kortatímabils. Afgreiðslufólk í leik- fangaverslun var að tala um það sín á milli hve tíminn væri lengi að Iíða og í heimilisverslun var það að masa í síma eða hvert við annað en ekki að afgreiða. Kaupmenn í þessum verslunum þurfa greinilega að taka til í eigin ranni en þess í stað þótti nokkrum þeirra skipta meira máli að gera nemendunum upp annarlegar hvatir. © aldsson segir að allar líkur séu á að sá útflutningur muni minnka á þessu ári niður í 140-150.000 pakka. „Það eru blikur á lofti á þessum markaði nú einfaldlega vegna efna- hagsástandsins í landinu,“ segir Lúðvík. „Nígería er olíuútflutn- ingsríki og verð á olíu hefur farið lækkandi á heimsmarkaði að und- anförnu. Þar með minnka gjaldeyr- istekjur þjóðarinnar og hún hefur úr minni fjármunum að spila en áður. Það er helst gæðavaran sem heldur sínu við þessar aðstæður en hin lakari dettur út.“ © Misjafnt gengi hjá hlutabréfasjóðunum Gengi Hluta- bréfa- sjóðs- ins féll um 30 punkta Gengi þeirra fjögurra hlutabréfasjóða sem skráðir eru á Verðbréfa- þingi fslands var nokkuð misjafnt á síðasta ári. Einna verst var það hjá Hlutabréfasjóðnum en gengi á bréfum í honum féll um 30 punkta á síð- astliðnu ári. Gengið var 1,30 er það var hæst um mánaðamótin janú- ar/febrúar á síðasta ári en var fallið niður í 1 í upp- hafi þessa mánaðar. Hjá öðrum sjóðum, Auðlind, Hlutabréfasjóði VÍB og Islenska hlutabréfasjóðn- um stóð gengið nokkurn veginn í stað á síðastliðnu ári. Gengi bréfa hjá Auð- lind fór hæst í 1,12 í lok síðasta árs en féll síðan niður í 1,03 í lok febrúar. Verðmæti sjóðsins nemur nú um 214 milljónum króna. Gengi bréfa hjá Hluta- bréfasjóði VÍB stóð nán- ast í stað allt árið. Gengið var skráð 1,05 í upphafi síðasta árs en var skráð 1,1 í upphafi þessa árs. Verð- mæti sjóðsins nemur nú um 314 milljónum króna. Gengi bréfa hjá Is- lenska hlutabréfasjóðn- um hefur einnig staðið í stað, var skráð 1,07 í upp- hafi síðasta árs en er nú skráð 1,1. Verðmæti bréfa í sjóðnum nemur nú um 292 milljónum króna. Hvað Hlutabréfasjóð- inn varðar var gengi bréfa í honum skráð 1,30 í upp- liafi síðasta árs en það féll nokkuð stöðugt, einkum á seinni hluta ársins, og var komið niður í 1 í upp- hafi þessa mánaðar. Verðmæti bréfa í sjóðn- um nemur nú 383 millj- 6 FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.