Eintak

Tölublað

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 15

Eintak - 21.04.1994, Blaðsíða 15
Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari fær beiðni Sævars til sín en hann stjórnaði rannsókn Guðmund- ar- og Geirfinnsmálanna. Samkvæmt lögum á hann íkrafti emb- ættis síns að leggja tillögur fyrir hæstarétt um hvernig taka skuli á beiðninni. Það þýðir í raun að hann á að fjalla um eigin fram- göngu við stjórn rannsóknarinnar. Sævar M. Ciesielski hyggst leggja fram formlega beiðni um %ð Guð- nundar- og Geirfinnsmálin verði endurupptekin fyrir hæstarétti. rangar þá hlýtur þeim að vera akk- ur í að fá sig hreinsaða af áburðin- um og hafa rétt á því. Það er því varla hægt að líta framhjá því sem hann segir, sama hvernig á málið er litið. Og það eru fleiri fullyrðingar sem hæstiréttur getur vart litið framhjá. Brotið á rétti sakborninga til að hitta verjendur sína og fangaprestinn 1 viðtali við EINTAK 10. mars síð- astliðinn sagði Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður, verjandi Sævars, frá því að ýmis gögn hefðu verið tekin út úr möppunum sem geymdu málsskjölin áður en málið fór fyrir dóm sem er skýlaust lög- brot. Þessi gögn komu því aldrei fyrir dómendur og því ekki hægt að svara þeirri spurningu hvort þau varpi nýju ljósi á rannsóknina. En það er eitt af þeim atriðum sem hæstiréttur verður að taka tillit til við umfjöllun um beiðni Sævars. Jón benti á fleira. „Það sem sló okkur verjendurna fyrst þegar rannsókn Geirfinnsmálsins fór í gang var að það var sett samskipta- bann á milli verjenda og sakborn- inga. Örn Höskuldsson, rann- sóknardómari í málinu, fór þannig ekki að settum lögum.“ Jón er raunar þeirrar skoðunar að allur málatilbúnaðurinn hafi verið með þeim hætti að taka ætti upp málið aftur. Þá er haft eftir séra Jóni Bjarm- an, þáverandi fangapresti, í bók Þorsteins Antonssonar, Áminnt- ur um sannsögli, að sakborningum hafi verið neitað um að hitta hann. Það mun hafa gerst eftir að séra Jón fór fram á það við dómsmálaráðu- neytið að það léti kanna hvort sak- borningarnir væru beittir harðræði við rannsóknina. I 70. grein IX. kafla um gæsluvarðhald og aðra gæslu sökunauta segir hins vegar: „Rétt er að verða við óskum gæslu- fanga um að hafa samband við lækni og prest, ef þess er kostur.“ Hæstiréttur taldi rannsóknina gallaða en ekki nógu gallaða Þótt hæstiréttur hafi hafnað því að játningarnar hafi verið þvingað- ar fram gerði hann þó nokkrar at- hugasemdir við rannsókn málsins í dómi sínum. Þar segir meðal ann- ars að í fáein skipti verði ekki séð að þess hafi verið gætt að benda sök- uðum manni, sem yfirheyrður var fyrir rannsóknarlögreglu, á ákvæði 1. málsgreinar 40. greinar laga um meðferð opinberra mála. Þar er kveðið á um að benda eigi sökuð- um manni á þann rétt sinn að hon- um sé óskylt að svara spurningum sem varða beinlínis brot það sem hann er grunaður um, en um leið á að upplýsa hann um að þögn hans geti verið túlkuð honum í óhag. Þess er getið að borið hafi við að yf- irheyrsla hafi staðið samfellt lengur en sex klukkustundir en 40. greinin bannar það. Þá er sagt að stöku sinnum hafi ekki verið kvaddir til réttargæslumenn eða verjendur við yfirheyrslu þar sem slíkt hefði verið rétt. Loks er talað um að það hafí verið ámælisvert að fangavörður laust Sævar kinnhest við yfir- heyrslu. Þessi atriði, ein og sér, nægðu ekki til að vefengja rannsóknina í heild. Nú má hins vegar færa rök fyrir því að nægjanlegar forsendur séu fyrir hendi til að taka rannsókn Guðmundar- og Geirfmnsmálanna til gaumgæfilegrar athugunar. Frásögn Hlyns Þórs Magnússon- ar, fyrrverandi fangavarðar, vegur þar kannski þyngst. Ef hann hefði verið kallaður til vitnis þegar harð- ræðisrannsóknin fór fram hefði síður verið hægt að lita framhjá fullyrðingum annarra fangavarða. Þá hefur Jón Oddsson, hæsta- réttarlögmaður, bent á ýmis atriði við rannsóknina sem stönguðust klárlega á við lög. Fjölmargir aðrir hafa lýst yfír efasemdum sínum og telja að dæmt hafi verið af vanefn- um. Það er því ástæða til að fýlgjast vel með hvernig hæstiréttur tekur á beiðni Sævars Ciesielskis um end- málsins. © MMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 15

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.