Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 4

Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 4
I 4__________________________________________________VIKUBLADIÐ Fimmtudagur 3. desember 1992 BÓKMENNTIR Forsetínn er trunaðar- maður fólks gegn kerfi Lýðveldishátíðarnefndin 1944: Jóhann Hafstein, kornungur rnaður þarna, tilnefndur af Sjálfstœðisflokknum, Ásgeir Ásgeirsson tilnefndur af Alþýðuflokknum, Alexander Jóhannesson háskólarektor, ritari nefndarinnar önnum kafinn tekur ekki eftir Ijósmyndaranum, Einar Olgeirsson og Guðlaugur Rósinkranz, fulltrái Fram- sóknarflokksins. Ásgeir Ásgeirsson er forseti Sam- einaðs alþingis á Þingvöllum 1930. Hann er fyrst fjármálaráðherra en síðan forsætisráðherra í kreppunni. Hann er fræðslumálastjóri þegar stórvirkjum í skólamálum um allt land er hrundið í framkvæmd. Hann er bankastjóri Útvegsbankans. Hann er forseti Islands í sextán ár. Er það nema von að sett sé saman þykk bók um þennan mann; er það nema von að þar sé á ferðinni metnaðarmikil útgáfa sem segir bæði kost og löst, aðallega kost auðvitað, en hefur þó yfir sér að minnsta kosti jafnvægis- blæ. Það hefur ævisaga Ásgeirs Ás- geirssonar eftir Gylfa Gröndal því miður ekki. Bókin kom út nú á dög- unum og hún er samfelldur lofsöng- ur um það hversu maðurinn hafi ver- ið gáfaður, skemmtilegur og snjall. Sem er allt rétt. En vafalaust hefði verið skynsamlegra - upp á langlífi bókarinnar - að hafa nokkurt jafn- vægi í efninu. Það er satt að segja beinlínis dapurlegt þegar ekki eru skrifaðar bækur um stjórnmálamenn sem eru að minnsta kosti jafnmerkar sem bækur og þeir eru sem stjórn- málamenn. En þrátt fyrir þetta hóf- leysi aðdáunar á Ásgeiri Ásgeirssyni sem fram kernur í bókinni er hún engu að síður afar fróðleg og tví- mælalaus skyldulesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á sögu og samtíð ís- lenskra stjórnmála. Fimm sinnum krati og fjórum sinnum framsókn Kaflinn um framboð Ásgeirs fyrst á Vestfjörðum er skemmtilegur. Þar segir frá viðureign Ásgeirs og Guð- jóns á Ljúfustöðum. I fyrstu virðist það ójafn leikur með þeint hætti að Guðjón hljóti að hafa alla yfirburði sakir reynslu og þekkingar í héraði. í raun snýst dæmið við í kosningabar- áttunni. Ásgeir Ásgeirsson reynist snjall og orðfimur frambjóðandi enda er hann það allt í senn sem þá þegar gekk í augu kjósendanna; Ungur, fríður, gáfaður og orðhagur. Það er ekki að sökum að spyrja. Hann hefur hreina yfirburði í kosn- ingunum. Mér nægir þó ekki kaflinn til að skilja þá yfirburði. Að vísu kemur fram að hann skaut að athuga- semdum sem urðu fleygar um Vest- ur-Isafjarðarsýslu að sögn sögurit- ara. Og tilvitnanirnar í bók Gunnars M. Magnúss skýra margt. En það vantar í rauninni margt í bókina til að skilja af hverju Ásgeir fékk allt þetta fylgi. Hverjar voru aðstæðurnar í samfélaginu sem leiddu til þess að hann náði þessu fylgi og náði að halda því í þrjátíu ár? Ásgeir Ásgeirsson hefur yfirburði yfir aðra frambjóðendur í þau skipti sem hann býður sig fram fyrir Fram- sóknarflokkinn. Þar á bæ er hins vegar ekki friðvænlegt. Flokkurinn rifnar í sundur. Forsætisráðherra flokksins, Ásgeir Ásgeirsson, er nánast rekinn úr flokknum. Bænda- flokkurinn er stofnaður. Atlagan að Tryggva Þórhallssyni er með endem- um. Ásgeir Ásgeirsson býður sig fram utan flokka. Hann glansar; fær 491 atkvæði í Vestur-ísafjarðarsýslu - næsti maður 223. Framsóknar- flokkurinn reyndi ekki að bjóða fram á móti Ásgeiri. (Framsóknarmenn nútrmans segja reyndar að flokkur- inn hafi ekki haft svigrúm til þess því að Ásgeir hafí tilkynnt að hann yrði utanflokka daginn áður en fram- boðsfrestur rann út.) Þegar til þings kemur styður hann ríkisstjórn Fram- sóknarflokksins og Alþýðuflokksins og situr síðan í þingflokki Alþýðu- flokksins sem utanflokkamaður í þrjú ár, en gengur þá í Alþýðuflokk- inn. Kosningar fara enn fram 1937. Þá er Ásgeir í framboði fyrir Al- þýðuflokkinn. En það breytir engu. Hann sigrar enn. Framsókn býður auðvitað fram og hamast gegn Ás- geiri. En það kom fyrir ekki og þó urðu úrslitin tæpari en nokkru sinni fyrr: Frambjóðandi Sjálfstæðis- flokksins, kornungur maður úr Reykjavík, fær 411 atkvæði en Ás- geir fær 497 atkvæði. Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins er tilvonandi tengdasonur Ásgeirs, Gunnars Thor- oddsen. Mér sýnist af bókinni að sá maður hafi lært marga listina af Ás- geiri Ásgeirssyni. Ásgeir Ágeirsson situr á friðar- stóli í Alþýðuflokknum; gegnir fyrir flokkinn margvíslegum trúnaðar- störfum en er ekki í fremstu víglínu. Hann flytur fyrstur frumvarp um kjördæmabreytingu sem verður, nokkuð breytt, að lögum með stuðn- ingi Sósíalistaflokksins og Sjálf- stæðisflokksins. Þar með er el'nt til tvennra kosninga 1942. í fyrri kosn- ingunum fær hann 460 atkvæði en Halldór á Kirkjubóli er næstur með 345 atkvæði. Og í seinni kosningun- um fær Ásgeir 384 atkvæði en Hall- dór á Kirkjubóli 351 atkvæði. Hann er enn kosinn 1946 og 1949 og situr því á þingi fyrir Vestur-ís- firðinga í 30 ár eða allt til þess tíma að hann er kosinn forseti. Hann er kosinn þingmaður 10 sinnum, fjórum sinnum fyrir Framsóknarflokkinn, einu sinni utan flokka og fimm sinn- um fyrir Alþýðuflokkinn. Hann er dæmigerður miðjumaður íslenskra stjórnmála og hann siglir síðan beggja skauta byr til þess að verða forseti íslands þegar rétt 30 ár eru liðin frá því að hann lagði fyrst Guð- jón á Ljúfustöðum. í lok kaflanna um þingmanns- og ráðherraferil Ásgeirs Ásgeirssonar segir höfundurinn, Gylfi Gröndal: „Ásgeir Ásgeirsson var í hópi þeirra íslensku stjórnmálamanna, sem aðhylltust vestrænt lýðræði, og létu ekki á sig fá árásir andstæðinga sinna, háð þeirra og spé, heiftaryrði og ógnanir. Hann var sannfærður um, að Islendingum væri fyrir bestu að skipa sér á bekk með lýðræðis- þjóðum Vesturlanda. Þeir höfðu rétt fyrir sér; um það þarf enginn að efast lengur. Sagan hefur fellt sinn dóm.“ Svona textar á bók sem vill láta taka mark á sér eru ekki taktfskir eins og það heitir á þeirri mállýsku sem okkur stjórnmálamönnum er tamt að nota. Uppreisn í forsetakosningunum Sá kafli sem maður les í þessari bók með mestri eftirvæntingu er kaflinn um forsetakjörið 1952. Þá ákveður Alþýðuflokkurinn, í stjórn- arandstöðu, að styðja Ásgeir Ás- geirsson. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn ákveða að styðja séra Bjarna Jónsson. Kosn- ingabaráttan er með ólíkindum óvægin og niðurstaðan er öllum kunn. I stuttu rnáli má segja að kosn- ing Ásgeirs Ásgeirssonar hafi frem- ur verið ósigur þeirra vinnubragða sem forystumenn Framsóknar- flokksins og Sjálfstæðisflokksins beittu en sigur forsetans. Það er sama hvar borið er niður í þessari sögu; stuðningsmenn Ásgeirs voru snjallari áróðursmenn í smáu og stóru. Úrslitum réð að sjálfsögðu Reykjavfk og sú staðreynd að borg- arstjórinn Gunnar Thoroddsen, vin- sæll ungur maður, studdi tengdaföð- ur sinn. í kosningu Ásgeirs samein- aðist því andstaða við þáverandi ríkisstjóm Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem var óvinsæl og kraftlaus. Þess vegna hlaut fram- bjóðandi gegn þeirri stjórn að vinna. Og Ásgeir Ásgeirsson synti ftmlega fram hjá boðum andróðurs. Leið- sögn Tímans og Morgunblaðsins var hafnað. Þetta var uppreisn. Svipuð saga endurtók sig svo 1968 þegar Kristján Eldjárn var kosinn en þá var Gunnar Thoroddsen í öðru hlutverki eins og kunnugt er. Og þegar hugsað er um málið í heild: Forsetakosningar hafa alltaf verið uppreisn gegn ríkjandi kerfi valda- stétta í þessu landi. Þessi staðreynd undirstrikar mikilvægi forseta ís- lands og þar með að forsetakosning- ar eru þjóðaratkvæðagreiðsla þar Tjald, Þingvellir, nr. J Farið verður til Þingvalla frá Hótel Borg miðvikudag 25. júni kl. 21 stundvíslega. Bifreið nr. /S Fatnaður á Þingvöllum: Almenn dökk föt. Hlý nærföt. Hlý yfirhöfn. Regnkápa. FOLMIÐ velur ítirst'laim'. FORSETAKOSNINGIN Eorsíða á kosningaliandbók. Eihn aðalkostur bókarinnar er myndirnar og góð nafnaskrá. Hcr er mynd afboðskorti á Þingvelli 25. jání 1950: Hlý nœrföt, takk.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.