Vikublaðið - 03.12.1992, Side 10

Vikublaðið - 03.12.1992, Side 10
n 10 VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. desember 1992 LANGTÍMA VANDl ASÍ: STERKIR IDNAÐARMENN EN ÓFAGLÆRÐIR VANMÁTTUGIR ■HB , ' Jts£í.. mM Benedikt Davíðsson, forseti ASI, í hópi sinna manna á Akureyrarþinginu. Ljósm. Róbert Eftir Pál Vilhjálmsson Burtséð frá dægurmálum er það tvennt sem brcnnur á verka- lýðshreyfingunni innan Alþýðusambandsins: Lífeyrissjóðir hreyf- ingarinnar eru of margir, blankir og dýrir í rekstri og verkalýðsfé- lögin eru of mörg, fámenn og veita of litla þjónustu. Það sem verra er að andstæðurnar innan hreytingarinnar munu aukast vegna þess að félög iðnaðarmanna í ASÍ hafa náð miklu betri tök- um á skipulags- og lífeyrissjóðsmálum en félög ófaglærðra. Nýkjörinn forseti Alþýðusam- " bands íslands, Benedikt Davfðsson, hefur á síðustu árum starfað mark- visst að endurskipulagningu Sam- bands byggingamanna. Arangurinn sem Benedikt og félagar hans hafa náð er öfundarefni forystumanna í verkalýðshreyfingunni. í sumar leið sameinuðust Lífeyrissjóður bygg- ingamanna og Lífeyrissjóður málm- og skipasmiða um einn sjóð, Sam- einaða lífeyrissjóðinn. Samkomu- lagið markar tímamót því að þrátt fyrir áralangar umræður hefur sára- lítið orðið úr þeim ásetningi að fækka lífeyrissjóðum. Þegar sjóðir hafa sameinast hefur það hingað til verið neyðarbrauð, eins og þegar Lífeyrissjóður apótekara og lyfja- fræðinga kom fjárvana og illa til reika til Lífeyrissjóðs verslunar- manna fyrir tveim árum og bað um uppítöku. Verslunarmenn sam- þykktu gegn því að lífeyrisréttindi apótekara yrðu skert um 15 prósent. Það leið aðeins eitt og hálft ár frá því að Benedikt og Guðmundur Hilmarsson hjá Málm- og skipa- smiðum hittust til að ræða samein- ingu þar til samkomulagi var náð. Um áramót verða gömlu sjóðirnir gerðir upp og næsta víst að bygg- ingamenn verði að horfa upp á sín réttindi skert, en þeir eiga þó aðild að sjóði sem stendur undir skuldbind- ingum sem er meira en sagt verður um ýmsa aðra lífeyrissjóði. Málefni lífeyrissjóða eru feimnis- mál í verkalýðshreyfingunni og hjá stjórnvöldum sem veigra sér við að taka til hendinni. í þessu máli fer saman óvissa um raunverulega stöðu margra sjóða, miklir hagsmunir og flókið keifi. Þess vegna var það við- burður að byggingamönnum og málmiðnaðarmönnum tókst að ná samkomulagi um nýjan sjóð. í kjölfar þess að byggingamenn og málmiðnaðarmenn komu sér saman um einn lífeyrissjóð var farið að ræða um sameiningu félaganna. Að sögn Grétars Þorsteinssonar, for- manns Sambands byggingamanna, verður veturinn notaður til þess að kanna þann möguleika. Hann segir hugmyndina hafa fengið góðan hljómgrunn meðal byggingamanna. Byggingamenn og málmiðnaðar- menn njóta þess núna að um árabil hafa þeir átt í samstarfi, meðal ann- ars í deildaskiptum verkalýðsfélög- um úti á landi. Málm- og skipasmiðasambandið og Samband byggingamanna deila með sér skrifstofuhúsnæði á Suður- landsbraut og það var til þess tekið á þingi ASÍ í síðustu viku að þessir að- ilar áttu með sér gott samstarf. Innan þessara samtaka eru líka öflugir for- ystumenn á borð við Bénedikt Dav- íðsson, Grétar Þorsteinsson og Örn Friðriksson. Grétar og Örn gátu báðir fengið forsetastól Alþýðusambandsins ef þeir vildu en þeir tóku landssam- Hagstofa Islands - Þjóðskrá Er lögheimili yðar rétt skráð í þjóðskrá? Nú er unnið að frágangi árlegrar íbúaskrár 1. desember. Mikilvægt er að lögheimili sé rétt skráð í þjóðskrá. Hvað er lögheimili? Samkvæmt nýjum lögheimilislögum frá 1. janúar 1991 er lögheimili sá staður þar sem maður hefur fasta búsetu. Hvað er föst búseta? Föst búseta er sá staður þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma. Hvað er ekki föst búseta? Dvöl frá heimili um stundarsakir t.d. vegna orlofs, vinnuferða og veik- inda er ekki breyting á fastri búsetu og þar af leiðandi ekki breyting á lög- heimili. Sama gildir t.d. um dvöl í gistihúsum, sjúkrahúsum, heimavistar- skólum og fangelsum. Hvemig eiga hjón og fólk í óvígðri sambúð að vera skráð? Séu þessir aðilar samvistum eiga þeir að hafa sama lögheimili. Hvað barnafólk varðar er reglan sú að dvelji annar hvor aðilinn fjarri fjölskyldu sinni um stundarsakir, t.d. vegna atvinnu, skal lögheimili allrar fjölskyld- unnar vera skráð hjá þeim sem hefur böm þeirra hjá sér. Hvenær og hvar skal tilkynna flutning? Breytingu á fastri búsetu á að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutn- ing beint til Hagstofu íslands - Þjóðskrár eða lögregluvarðstofu í Reykja- vík. Tilkynningar skulu vera skriflegar á þar til gerðum eyðublöðpm: Hagstofa íslands - Þjóðskrá Skuggasundi 3 150 Reykjavík Sími: 91-609850 Bréfasími: 91-623312 böndin fram yfir það sem menn á há- tíðarstundum kalla „æðsta embætti verkalýðshreyfingarinnar". Það segir heilmikla sögu um ASÍ að hvorugur vildi. Benedikt, aftur á móti, fórnaði sér í starfið, enda af gamla skólanum þar sem menn lærðu að ganga í þau verk sam þurfti að vinna. Skipulagsóreiða Verkalýðsfélag, sem er smæsta skipulagseining hreyfingarinnar, getur tengst Alþýðusambandinu með þrennum hætti. I fyrsta lagi get- ur félagið átt beina aðild að ASÍ, eins og til dæmis Verkalýðsfélag Prest- hólahrepps á Kópaskeri. I öðru lagi getur verkalýðsfélag tengst ASÍ í gegnum svæðasamband og loks í gegnum landssamband. Mörg dæmi eru um að verkalýðsfélög tengist ASI á fleiri en eina vegu. Þessi skipulagsóreiða hefur þróast í ASÍ, meðal annars vegna persónulegra og pólitískra deilna milli forystumanna í verkalýðshreyfingunni sem oft eru margra áratuga gamlar. Iðnaðarmenn hafa skipað sér í landssambönd þar sem staðbundin verkalýðsfélög eiga aðild að lands- sambandi sem aftur tengist ASÍ. Það er yfirlýst stefna að Alþýðusam- bandið verði samband landssam- banda sem skipulögð eru eftir starfs- greinum. Það er samt langt í frá að þessi stefna hafi náð fram að ganga. Til að mynda treysti nýafstaðið þing Alþýðusambandsins sér ekki til að samþykkja tillögu Landssambands íslenskra verslunarmanna sem mið- aði að því að styrkja landssambönd- in á kostnað svæðasambanda. Þó eru þau aðeins tvö svæðasamböndin sem hafa bolmagn til að halda úti sér- stakri skrifstofu, á Austfjörðum og Vestfjörðum. Vanhöldin á skipulagi verkalýðs- hreyfingarinnar gera það að verkum að menn í sömu starfsgrein, til dæm- is bensínafgreiðslumenn og starfs- menn í mjólkuriðnaði, eru dreifðir í tvö eða þrjú landssambönd. - Skipu- lagið er endemis rugl á sumum stöð- um, staðhæfir Jón Karlsson, formað- ur Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki. Fámenn og veikburða félög A rneðan iðnaðarmenn eru í óða önn að endurskipuleggja samtök sín með tilliti til breyttra aðstæðna er fátt að frétta af slíkum tilburðum hjá Verkamannasambandinu sem er stærsta landssambandið í ASÍ. Vandi Verkamannasambandsins er að inn- an þess er fjöldi verkalýðsfélaga sem standa varla undir nafni sökum fá- mennis. í Verkamannasambandinu eru nú 53 félög. Af þeim eru 9 með færri en 100 félagsmenn, það fámennasta tel- ur 42 félaga. Ein 40 félög eru með færri en 500 félagsmenn og aðeins 4 verkalýðsfélög innan VMSI eru með yfir 2000 félagsmenn. Þórir Daníelsson, framkvæmda- stjóri Verkamannasambandsins, tel- ur enga von til þess að verkalýðsfé- lag með færri en 600-700 félags- menn geti veitt félagsmönnum nauðsynlega þjónustu. Þórir skrifaði um skipulagsmál í Vinnuna, tímarit ASÍ, og fór ekki í launkofa með skoðun sína. „Skipulag verkalýðs- hreyfingarinnar er í algerum ólestri. Það hefur engan veginn fylgt breyt- ingum á þjóðfélaginu, hvorki félags- legum né tæknilegum. Það hafa fengið að leika lausum hala smá- kóngasjónarmið og hrepparígur - sem verkalýðshreyfingin ætti að varpa út í hafsauga, ætli hún að mega sín einhvers í félagslegum efnum," skrifaði Þórir. Verkalýðsfélög í Verkamanna- sambandinu eru fámenn og veik- burða og það kemur niður á sam- bandinu. Hugmyndir forystumanna Verkamannasambandsins ganga út á' það að skipuleggja sig með líkum hætti og iðnaðarmenn hafa gert, með sterkri aðalskrifstofu sem hefur getu til að sinna málefnum félagsmanna á viðunandi hátt. Eitt félag innan Verkamanna- sambandsins hefur tekið kröftuglega á sínum skipulagsmálum, en það er Eining á Akureyri. Fyrir aldarfjórð- ungi hófst þróun á Akureyri og Eyja- fjarðarsvæðinu sem lauk með því að innan Einingar voru sameinuð verka- lýðsfélög á svæðinu og starfar Ein- ing nú í fimm deildum. Það er engin tilviljun að það var einmitt undir for- ystu Einingar að verkalýðsfélög á Norðurlandi ákváðu í haust að stofna sameiginlegan lífeyrissjóð. Þannig haldast í hendur skipulagsmál og líf- eyrissjóðir verkalýðshreyfingarinn- ar. Rafiðnaðarmenn framsæknir Einn stærsti hópur iðnaðarmanna í ASI eru rafiðnaðarmenn. Rafiðnað- arsambandið átti í viðræðum við byggingamenn og málmiðnaðar- menn um aðild að Sameinaða lífeyr- issjóðnum en hvarf frá þátttöku þar sem sjóður rafiðnaðarmanna er mjög sterkur. Rafiðnaðarmenn eru vel skipulagðir, eiga traustan lífeyris- sjóð og geysilega öflugt endur- menntunarkerfi sem hafist var handa við að byggja upp árið 1975. Rafiðnaðarsambandið hefur að verulegu leyti tekið í sínar hendur umsjón og eftirlit með menntun sinna manna, „enda teljum við okkur mun hæfari til að stjóma því en starfsmenn ráðuneytisins, fólk sem aldrei hefur inn í verkmenntaskóla stigið. Við eigum okkar sérfræðinga og höfum tekið þá stefnu að hafa fmmkvæði um þær breytingar sem sem gera þarf í mennamálum okkar, sem er mun eðlilegri stefna en að sitja með hendur í skauti og agnúast út í ráðuneytið,“ sagði Guðmundur Gunnarsson, varaformaður Rafiðn- aðarsambandsins, í nýlegu tímarits- viðtali. Innan Verkamannasambandsins er starfs- og endurmenntun mest í höndum einstakra félaga. Aðeins ör- fá ár eru síðan einhver vinna hófst í þessum málaflokki og starfs- og endurmenntun kom ekki í kjara- samninga fyrr en seint á síðasta ára- tug. Á meðan það fer eftir frumkvæði og getu verkalýðsfélaga heima í hér- aði hversu til tekst er viðbúið að smæð og fjárþröng margra félaga komi í veg fyrir að félagsmenn fái notið þeirrar menntunar sem í boði er. Vítahringur vanmáttugrar verkalýðshreyfingar Fámennari og veikburðug félög lenda mörg hver í vítahring; þau hafa lítil fjárráð, félagsstarfið verður metnaðarlaust, skipulagið fálmkennt og félagið verður áhrifalaust í stærri samtökum. Hringurinn lokast með því að menn forðast að taka að sér trúnaðarstörf fyrir félagið eða gera það aðeins til málamynda. Lands- samband sem hefur innan sinna raða slík félög dregur vitanlega dám af þessum aðstæðum og er ekki til stór- ræðanna. Á fyrsta miðstjórnarfundi ASÍ sem Benedikt Davíðsson stýrir í næstu viku, hittir hann fulltrúa tveggja verkalýðshreyfinga. Önnur hreyfingin, þar sem iðnaðarmenn eru fjölmennastir, er að gera sig klára að mæta 21stu öldinni. Hin verkalýðs- hreyfingin, þar sem fjölmennastir eru verslunarmenn og almennt verkafólk, á eftir að leysa vandamál frá fyrri hluta 20stu aldarinnar. € i

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.