Vikublaðið - 03.12.1992, Page 12

Vikublaðið - 03.12.1992, Page 12
12 VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. desember 1992 ÍÍSÉgMÉÍ Sjálfur hefði ég senni- legci orðið forstjóri SVR árið 1951 efég hefði verið álitinn heil- brigður í stjórnmála- skoðumim. Og það má borgarstjórinn eiga að hann lét það ekki hafa áhrif á ákvörðun sína að ég varfrœndi hans. andi lífskjör og önnur lífsskilyrði fólks sem viðgengst bæði hér og í öðrum löndum. Og þó að komið hafi í ljós að fólkið í kommúnistaríkjun- um hafi kannski búið við mestu ves- öldina og versta óréttlætið af öllum Evrópuþjóðum áratugina eftir síðari heimsstyrjöldina, þá er það léleg rökvísi að álykta af þeirri reynslu að kapítalisminn sé rétta leiðin. Efínn Auðvitað hef ég hrifist af mörgu um ævina, fegurðinni, ekki síst fal- legum konum, fögrum hugsjónum, fögrum orðum, fögrum tónum og svo framvegis. En ég hrífst ekki þannig að ég fylgi fólki eða málstað í blindni. Síðan ég var unglingur og komst í kynni við Krishnamurti og kenningar hans held ég að mér sé al- veg óhætt að fullyrða að ég haft ekki trúað á neitt, aldrei raunverulega trú- að neinu. Það er nefnilega sitt hvað að vita eða trúa. Krishnamurti hefur verið mitt andlega leiðarljós í li'flnu. Að vísu hefur mér gengið misvel að lifa í samræmi við boðskap hans, aðallega vegna þess hvað ég er breyskur og ófullkominn. En þó hefur alltaf toll- að í mér kenning hans um mikilvægi efans og þess vegna trúi ég engu blint. Krishnamurti segir: ..Efinn vinnur skapandi starf, jákvætt starf, af því að hann leiðir í Ijós máttarviðina í mannlífinu. Þeir eru ekki þjóðfélags- bygging, heimspeki eða trú, þeir eru ekki neinir guðir, hvorki þessa heims né annars. Þeir eru hrein reynsla hins lifandi manns.“ Hann segir líka: „Gefstu upp fyrir því sem er. Það er ekki uppgjöf held- ur sókn, meira að segja gríðarleg þrekraun fyrir venjulega menn; við erum flestir þannig í stakk búnir.“ Og loks segir Krishnamurti: „Að skilja hvað þú ert, án afbökunar, er upphaf dyggðarinnar." Aðalbjörg Sigurðardóttir sagði mér frá því hvernig útsendarar eltu Krishnamurti á röndum, þegar átök- in milli öfgastefna var í algleymingi á þriðja áratug aldarinnar, og vildu fá hann til að mæla með kommúnism- anum sem hinni réttu aðferð til að jafna kjör fólksins og koma á réttlæti í heiminum þannig að öllum gæti liðið vel. En meistarinn sagði við þá að þeir væru ekki menn til að fram- fylgja hugsjón sinni. Það gerði van- þroski þeirra og eigingirni. Enda kom það aldeilis á daginn. Skömm á stéttaskiptingu En skarpskyggni Krishnamurtis er ekki öllum gefin. Margir góðir og gáfaðir menn trúðu því að sósíalism- inn myndi bylta veröldinni og gera hana að notalegri stað fyrir mann- eskjuna. Sjálfsagt hefði ég trúað því líka ef ég hefði ekki verið hættur að trúa nokkru. Það bjargaði mér. Hins vegar hef ég ævinlega fundið til sterkrar samkenndar með þeim sem búa við lökust kjör og aldrei dregið dul á það hvar ég stend í póli- tík. Jafnaðarstefnan er mér í blóð borin. Ég hef skömm á stéttaskipt- ingu og því hróplega misrétti varð- gefa mig á vald einhverju utan sjálfs mín. Ég viðurkenni að til er einhver æðri kraftur. Ég hef oft fundið fyrir honum og séð margt, sem ekki verð- ur skýrt með viðurkenndum vísinda- lögmálum, svo að það þýddi lítið fyrir mig að neita tilvist æðri máttar. En ég hef enga hugmynd um það hvaðan þessi kraftur kemur. Hann gæti rétt eins verið minn eigin lífs- kraftur, eða sameiginlegur kraftur allra manna, eins og að vera af öðr- um heimi, hvað sem það nú merkir. Það er betra að neita ekki því sem maður skilur ekki. En það er samt engin ástæða til að falla fram og til- biðja það. Ég kýs að umgangast þennan kraft af fyllstu kurteisi en láta þar við sitja. Maðurinn þarf að mínum dómi ekki að velta svo mikið fyrir sér þeim kröftum, sem búa utan hans skiln- ings. Hann hefur ærið verkefni að kanna sjálfan sig. Og það er fjandi erfitt verk eins og við vitum öll. Ekki síst vegna þess að tiltækasta ráðið við sjálfskönnunina, hugsunin, tækið sem við beitum yfirleitt, er okkar erfiðasta hindrun í því að ná árangri. Það er af því að hugsunin dregur okkur út úr augnablikinu, aftur eða fram í tímann. En allt sem máli skiptir er í núinu. Þar er fegurðin og kærleikurinn. (Millifyrirsagnir í kaflanum eru Vikublaðsins.) taka á mig þessa ábyrgð sem ljóst var að myndi trufla mig meira frá tón- listinni. Og okkur Eiríki varð líka mjög vel til vina. Svo undarlega vildi til að við vorum fæddir í sama húsi og meira að segja í sama herbergi á Flateyri, að vísu með sjö ára milli- bili. Við áttum fleira sameiginlegt, því að Einkur var áhugasamur um tónlist, spilaði ljómandi vel á har- móníku og það gutlaði líka á honum í píanóleik þannig að við spiluðum oft fjórhent þegar við vorum að skemmta okkur. Hann lék laglínuna en ég sá um flúrið. Eiríkur skildi vel þörf mína fyrir að vera laus við þegar andinn kom yfir mig. Ég kom oft seint á morgn- ana en vann þá bara lengur fram eftir á kvöldin. Ég tók mér líka stundum ríflegt hlé í hádeginu því að þegar ég var upp á mitt besta kom fyrir að ég gat samið heilt lag í einum matar- tíma. Það varð mér því til góðs, eftir á að hyggja, að ég skyldi vera látinn gjalda stjórnmálaskoðana minna. Æðri kraftur Annars hafa stjórnmál aldrei verið mér sérlega hugleikin. Sama er að segja um trúmál. Tónlistin og austur- lenska lífsspekin frá Krishnamurti hafa fyrst og fremst orðið til að móta lífsstefnu mína að svo miklu leyti sem hún hefur ráðist af öðru en því sem eðli mitt og áhrif umhverfisins bjóða mér að aðhafast hverju sinni. Ég hef aldrei fundið hjá mér neina þörf til að játast undir eitt eða neitt, þau kynni, sem ég hafði af áhrifum og ákvörðunum stjórnmálamanna í starfi mínu hjá Reykjavíkurborg alla þessa áratugi, urðu mér lærdómsrík og opnuðu augu mín fyrir því hvem- ig hugsjónir og réttlætiskennd víkja fyrir eiginhagsmununum og klíku- skap flokksins. Allt annað mál A morgnana fer ég í laugarnar. Sumir af sundfélögum mínum stað- hæfa í heita pottinum að hrun kommúnismans þýði að hugsjónin um jöfnuð manna hafi beðið svo mikið afhroð að nú sé best að rninn- ast aldrei á hana framar. Þá bendi ég þeim á það að það séu ekki hugsjón- irnar sem bregðist, heldur mennirnir sem reynast ekki þess megnugir að framfylgja þeim. Hvað til dæmis um kristindóminn? Nóg er þar um fal- legar hugsjónir. En eftir fimmtán hundruð ára streð hafði kristinni besta fólkið ræður sjaldnast ferðinni. Vondir kauðar ná oftast yfirhönd- inni. Og það er oftast sama meinið sem kemur í veg fyrir að hugsjónir kristindómsins og jafnaðarstefnunn- ar fái að njóta sín. Skortur á kær- leika. Það vantar kærleika í mann- inn. Ef nóg væri af honum væri allt í lagi. En þá þyrfti heldur engan sósí- alisma, og kannski heldur engan kristindóm. Maður verður leiftursnjall og kjafthýr þarna í heitu pottunum. Ekki alveg ósvipað því að fá sér einn léttan sjúss. Bein kynni mín af stjórnmálum og Ólafsson lét af störfum forstjóra. Jó- hann var mikill vinur pabba, sem sagt ekki skoffín. Staðan var ekki auglýst, heldur var Gunnari Ásgeirs- syni, syni besta vinafólks okkar á Flateyri, boðið embættið. En hann ætlaði sér stóran hlut í viðskipta- heiminum svo hann bauð fram yngri bróður sinn, Eirík, sem þá var ráð- inn. Til góðs Ég var að vissu leyti óánægður að vera ekki boðin forstjórastaðan, en um leið létti mér að þurfa ekki að kirkju ekki miðað lengra á veg en svo að örgustu illmenni settust á páfastól. Ég er ekkert viss um að Al- exander Borgia hafi verið neitt skárri maður en Jósef Stalín, sá armi þrjót- ur. Og nú, á tuttugustu öld kristninn- ar er allt logandi í styrjöldum og hroðalegustu fjöldamorð fyrir skömmu framin af yfirvöldum með vitund almennings í landinu þar sem lúterstrúin er upprunnin. Er þá ekki kristindómurinn að verða búinn að afsanna gildi sitt? „Nei, það er allt annað mál,“ segja þá karlarnir í laugunuin, vinir mínir. Vondir kauðar En á öllum tímum er gott fólk að berjast fyrir fögrum hugsjónum. Sannleikurinn er hins vegar sá að Flokkspólitík hjá SVR Ihaldið hefur alla tíð misnotað að- stöðu sína hjá Reykjavíkurborg, ekki síst við mannaráðningar. Á tímum kalda stríðsins voru gerðar árásir á ýmsar stofnanir borgarinnar og átti að hreinsa til. Árið 1951 var t.d. öll- um bílstjórum Strætisvagna Reykja- víkur sagt upp. Eftirlitsmönnum strætisvagnanna hafði verið uppálagt að flokka vagnstjórana eftir hæfni en allir vissu að hinn raunverulegi til- gangur var að bola burt þeim sem voru á röngu róli í stjórnmálunum. Vagnstjórarnir voru síðan endurráðn- ir nema sjö sem allir voru vinstri menn. Hæfni manna til að starfa hjá bænum, hvort sem var í háum eða lágum stöðum, þótti best tryggð með flokksskírteini eða skyldleika við pólitíska gæðinga. Sjálfur hefði ég sennilega orðið forstjóri SVR árið 1951 ef ég hefði verið álitinn heilbrigður í stjórn- málaskoðunum. Og það má borgar- stjórinn eiga að hann lét það ekki hafa áhrif á ákvörðun sína að ég var frændi hans. Ég var búinn að starfa hjá fyrirtækinu í 17 ár og þar af 10 ár sem skrifstofustjóri, þegar Jóhann Á myndinni, sem er úr œvisögunni Lífsins dómínó, eru Sigfús Halldórsson, Helgi Sœmundsson og Skúli Hall- dórsson í kjallaranum hjá Vilhjálmi frá Skáholti. Lífsins dóimnó Út er komin hjá Skjaldborg bókin Lífsins dómínó þar sem Örnólfur Árnason rithöfundur skráir öðruvísi ævisögu Skúla Halldórssonar tónskálds sem lengi var skrifstofustjóri Strætisvagna Reykjavíkur. Foreldrar Skúla voru Unnur, elsta dóttir Theódóru og Skúla Thoroddsen, og Halldór Stefánsson læknir. Mörgum mun þykja forvitnileg lýsing Skúla á heimilisbragnum á æskuheimiium hans á Flateyri og ísafirði og í húsi öntmu sinnar að Vonarstræti 12 í Reykjavík, þar sem hann bjó á kreppuárunum. í bókinni skoðar Skúli Halldórsson umhverfi sitt og samferðafólk af sömu hreinskilni og sjálfan sig. Vikublaðið birtir kafia úr bókinni þar sem hann talar um jafnaðarstefnuna og austurlenska lífsspeki Krishnamurtis. Hann greinir einnig frá misnotkun íhaldsins í Reykjavík á aðstöðu sinni.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.