Vikublaðið - 03.12.1992, Side 13

Vikublaðið - 03.12.1992, Side 13
V I [!£.“ Fimmtudagur 3. desember 1992 i VIKUBLAÐIÐ 13 MYNDLISTARMAÐUR VIKUNNAR Hlutlægni Tuma Magnússonar an en breytist í fölbleikan tón efst. Hægri græni flöturinn hefur skörp skil við „hvíta“ flötinn. Á mörkunt grænu og hvítu flatanna eru tvær klukkur sín hvoru megin og sýna þær vinstra megin sama tíina eða um 25 mínútur í ellefu, en þær hægra megin sýna um það bil 18 mínútur í ellefu. Klukkurnar á loðnu mörkunum eru skarpt málað- ar, en þær á skörpu mörkunum hægra megin eru „úr fókus“. Ástæða þess að myndlistin kem- ur okkur við er fyrst og fremst sú, að hún fjallar um gildi sem endan- lega varða trú okkar á manninn og framtíð hans. Lengst af á þessari öld hefur framsækin myndlist tengst með einum eða öðrum hætti trúnni á vísindin, tæknibyltinguna, þúsund ára ríki kommúnismans eða óend- anlega möguleika mannsins til auk- ins frelsis og framfara. Frantsækin myndlist hefur falið í sér ákveðna útópíu og óbilandi trú á að listin hafi mikilvægu hlutverki að gegna í því að breyta heimin- um. Við lok kalda stríðs- ins hefur hinn vestræni og evrópski menningar- heimur hins vegar vaknað upp við það, að mælikvarðinn á fram- farirnar hefur eins og gufað upp í höndum okkar, og trúverðug framsækin list sem vís- ar okkur veginn fram á við verður við þessar aðstæður vandfundin. Þessi kreppa hefur ekki síst bitnað á málaralist- inni. Tumi Magnússon er einn þeirra málara sem hafa glímt við þennan vanda málverksins á sannfærandi hátt. Myndir hans vísa kann- ski frekar inn á við en fram á veginn, en þær eru fullkomlega heiðar- legar í öllum efnistökum. Hlutirnir sem Tumi málar eru settir fram í tví- víðu rými myndflatarins og eru af hversdagslegasta tagi: eyrnapinni, diskur, tala, hárgreiða, tannbursti, skrúfa, hnffapör eða spælegg, svo eitthvað sé talið. Hlutir sem ekki eru kallaðir til að breyta heiminum. Þeir taka af öll tvímæli urn að formgerð- in í myndum Tuma felur ekki í sér neina útópiu. Og þeir eru málaðir á eins látlausan hátt og frekast er unnt eins og til að undirstrika vanmátt þeirra og hlutleysi. Litaskalinn virðist sömuleiðis valinn af handa- hófi, þótt innan hans ríki ákveðið lögmál eða fagurfræðileg nauðsyn. Hlutlægnin í myndum Tuma beinist að hinum sjónrænu áhrifum. Litur- inn hefur ekki táknræna merkingu, cn það að hann breytist er mælanleg staðreynd sem varðar jafnt birtu, rými og tíma. Um leið og athygli augans skerpist á ákveðinn punkt dofna aðrir, og rýrnið verður ekki skynjað í heild án þess að skarpleik- inn breytist. Sú nafnlausa mynd af klukkum, sem hér er birt, dregur á skýran hátt fram þær sjónrænu eig- indir málverksins, sem Tumi er á höttunum eftir. Klukkurnar gefa til kynna að tíminn í myndinni líði frá vinstri til hægri. Og loðin litaskil andspænis skerpu vísa beint til sjónskyns okkar, sem er háð viljan- urn. Við getum litið á þetta verk sem eins konar hugleiðingu um möguleika málverksins. Þeir tengj- ast sjónskyni okkar á allt að því ljósfræðilegan hátt. Innan þessa myndmáls ríkir jafnframt ákveðin regla eða fagurfræðileg nauðsyn, en það er jafn augljóst að hún er ekki tilkomin til þess að koma skikk á óreiðuna í veröldinni. Myndir Tuma verða þannig afhjúpandi um van- mátt listarinnar gagnvart þeim sam- félagslega veruleika sem við stönd- um frammi fyrir. Og það er í þessari afhjúpun sem styrkur þeirra er ekki síst fólginn. Ólafur Gíslason Verk: Án titils 1992 Olía á striga 200x180 sm. Myndin hefur tvo græna fleti á köntum sent við nánari aðgæslu sýna skala í grænum lit sem hverfist frá dökku og örlítið blágrænu neðst til vinstri yfir í skærgrænni tón efst, sem síðan heldur áfram hægra meg- in að ofan og tekur í sig örlítinn gul- an lit eftir því sem neðar dregur. Vinstri flöturinn hverfur loðið út í „hvíla" flötinn í miðju, sem við nánari aðgæslu er gulleitur að neð- Tumi Magnússon Fæddur í Reykjavík 1957. Nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands 1976-78 og í AKl Enschede, Hollandi 1978-80. Tumi hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði í Reykjavík, Helsingfors, Biel í Sviss, Málmey í Svíþjóð, Álaborg, Frankfurt am Main, Zurich og Köln. Brennandí brú Kristján Kristjánsson, blúsarinn góðkunni KK, hefur sent frá sér aðra geislaplötu sína sem heitir BEIN LEIÐ. Þar er meðal annars að finna ljóðið BRENNANDI BRÚ eftir KK. Loforð, svikin og gleymd sönn ást, innantóm eymd enginn trúir á þig. Aleinn í vanvirðu og smán þögull og fár svellandi tár augun svo sár. Þreifar, leiðin er blind horfinn í logandi girnd sorg, þú lítur við. Horfir á brennandi brú ást, tryggð og trú hjálpið mér nú. Guð hvar ert þú? Leitar, engu er nær heyr heyr, myrkrið það hlær sorg, þú lítur við. Horfir á brennandi brú ást, tryggð og trú hjálpið mér nú Guð hvar ert þú? Ljóðmál Starra í Garði Dáir krata kenningar, köttur úr bóli Framsóknar. Lenínismi ætíð var Olafi til skapraunar. Þannig yrkir Þorgrímur Starri Björg- vinsson, bóndi í Garði II í Mý- vatnssveit, og birtir í nýútkominni bók sem hefur að geyma ljóðmál hans um Mývetninga og Mývatnssveit, landsmál, góðvini og flokksmenn Alþýðubandalagsins svo eitthvað sé nefnt. Húsfreyjan í Garði, Jakobína Sig- urðardóttir rithöfundur, skrifar örfá eftirmálsorð í bókina og segir þar meðal annars: „Starri er vissulega eins mývetnskur og nokkur Mývetningur getur verið og það hafa sveitungar hans metið, að minnsta kosti við kveðskap hans. Ef til vill hafa þeir, sem eru andsnúnir skoðunum hans, ómeðvitað tileinkað sér það viðhorf, að af því hann „elskaði mikið" sína og þeirra sveit skyldi honum „fyrir- gefast mikið“. Og einnig vegna þess, að honuni tókst að skopast án þess að særa.“ „Úr ruslakistu Starra í Garði“ nefnist bókin og eins og tamt er í slíkurn kistum ægir mörgu saman. Úr ruslakistu StarraíGarði Útgefið Afhófítndi Hér eru sem sýnishorn tvær stökur þar sem skopið og alvaran haldast í hendur: Er nauðsynlegt að halda jafn- vægi í byggð landsins? Stingist landið endutn á, austurhluta lyfti, Þingeyingar ofan á yrðu í þetta skipti. Að vera kaupfélagsmaður Bið ég guð um aðeins eitt eftir sólarlagið, að útförina geti ég greitt í gegnum kaupfélagið.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.