Vikublaðið - 21.01.1993, Page 7
Fimmtudagur 21. janúar 1993
VIKUBLAÐIÐ
7
í DAGSINS ÖNN
Inn í hvunndaginn með gömlu gufunni
r
Eg er haldinn mikilli íhaldssemi viö val á fjölmiðlaefni,
hvort heldur dagblöðum, tímaritum, útvarpi eða sjón-
varpsrásum. Þarf mikið til að ég taki breytingum. Sumum
fjölmiðlamönnum tengist maður órjúfanlegum vináttu-
böndum, án þess að hafa nokkru sinni barið þá augum.
Maður treystir þeim t.d. langt umfram aðra menn til að
koma sér til lífsins að morgni. Ég hafði
um langan tíma treyst þeim félögum á
Rás 2, Leifi og Eiríki, til að koma mér úr
draumheimum næturinnar inn í kaldan
veruleika hversdagsins. Arftökum
þeirra við morgunútvarp Rásar 2 var því
ekki vorkunnarlaust að fylla í skarðið.
Satt best að segja vaknaði ég með
ólund við málskraf þeirra, tónlist og
hvað annað sem þeir fundu upp á til að
bregða birtu á skammdegið. í dag læt
ég mér vel líka að treysta gömlu guf-
unni til að koma mér inn í hvunndaginn.
Ég hef í áranna rás verið ákaflega
fréttaþyrstur. Það þýðir að fjölgun
fréttarása kallaði á stöðugt meira af
tfma mínum. Að kvöldi hef ég til
skamms tíma verið upptekinn frá klukk-
an 19:00 að útvarpsfréttir hófust, til
20:30 þegar fréttamenn og veðurfræð-
ingar Rfkisútvarpsins þökkuðu fyrir sig
og kvöddu. Nú eru breyttir tímar. Það
má segja að upp á síðkastið hafi ég ver-
ið haldinn óviðráðanlegri fréttafælni. Ástæðan er að efnis-
tök Ijósvakafjölmiðlanna af innlendum vettvangi, sem mér
þótti áhugaverðastur, eru svo fátækleg og einhæf að engu
tali tekur.
Þrátt fyrir allt eru fréttaþættir eins og „Auðlindin" veru-
lega upplýsandi. Þátturinn „Úr Jónsbók", fjölmiðlaspjall III-
uga Jökulssonar og þáttur Jóns Orms Halldórssonar eru
bæði áhugaverðir og skemmtilegir. Á föstudag kl. 18:03 er
áhugaverður þáttur með Árna Björnssyni „þjóðhætti", Eg-
ilssaga, sem hann flytur ásamt Ragnheiði Gyðu Jónsdótt-
ur.
Á leiðinni heim úr vinnunni hlusta ég gjarnan á Þjóðar-
sálina. Mér finnst einhvernveginn broddurinn hafa yfirgef-
ið sálina viö brotthvarf Stefáns Jóns Hafsteins. Kvöldgest-
ir Jónasar Jónassonar eru margir óborganlegir. Samt
finnst mér skorta verulega á kynningu þáttanna, sérstak-
lega hver sé gestur Jónasar hverju sinni.
Á sunnudag kl. 14:00 er áhugaverður þáttur um Vest-
mannaeyjagosið 20 ára og í sjónvarpi er Magnús Bjarn-
freðsson með þátt um sama efni. Það er eins og það hafi
gerst í gær, svo sterk er minningin í huga mínum og ann-
arra sem vöknuðu upp við fréttir morg-
unútvarpsins um atburðinn og óvissuna
sem fylgdi um örlög manna og málleys-
ingja sem bjuggu á Heimaey er ólagið
reið yfir.
Þættir Ævars Kjartanssonar eru alltaf
skemmtilegir. Eins er á dagskrá sunnu-
dagsins þátturinn „Kjarni máls. -
ATVINNULEYSI", sem ég tel að ætti að
vera á dagskrá þjóðarinnar að morgni,
um miðjan dag og að kveldi alla daga
meðan sá andskoti, atvinnuleysið, ríður
húsum þorra landsmanna, beint eða
óbeint.
Af sjónvarpsefni sé óg þátt sem höfð-
ar til mín „Úr ríki náttúrunnar" kl. 19:25
fimmtudaginn 21. jan. og Derrick. Ann-
að efni læt ég mér í léttu rúmi liggja,
nema á íþróttir er ég alæta.
Ákvörðun yfirmanna Sjónvarpsins að
auka útsendingu barnaefnis er mér sér-
stakt gleðiefni. Foreldrar hafa margir af
litlum efnum orðið að láta undan þrá-
beiðni barna sinna um áskrift að Stöð 2 vegna barnaefnis
stöðvarinnar á laugardags-og sunnudagsmorgnum. I bók-
staflegri merkingu hafa foreldrar orðið að kaupa sér frið
eða mátt vita af börnum sínum fyrir allar aldir á bæjarrápi til
að njóta efnisins hjá öðrum.
Kostnaður af kaupum á dagblöðum, sjónvarpsrás og út-
varpi er ekki svo lítill ef að er gáð. Kaupi fjölskyldan eitt
dagblað, aðgang að Stöð 2 og Ríkisútvarpinu-sjónvarp, er
kostnaðurinn kr. 66.324 - á ári. Safnast þegar saman kem-
ur. Ef síðbúin ákvörðun stjórnenda Ríkisútvarpsins um
morgunefni fyrir börn ( sjónvarpi gæti orðið til þess að
efnalitlir einstaklingar geti losað sig við eina áskrift, er það
ekki lítil kjarabót.
Gunnar Gunnarsson, starfsmaður
Sjúkraliðafélags íslands.
mmmmm í sviðsljósinu mmmmm
Ragnheiður Elfa syngur
í Borgarleikhúsinu
Ragnheiður Elfa Arnardóttir verður í sviðsljósinu annað
kvöld á sviði Borgarleikhússins í hlutverki frú John-
stone. Borgarleikhúsið hefur tekið til sýningar söngleikinn
Blóðbræður eftir Willy Russell í þýðingu Þórarins Eldjárns.
Stjórnandi sýningarinnar er Halldór E. Laxness. Höfundurinn
segir okkur áhrifamikla sögu af lífi venjulegs fólks, sem læt-
ur engan ósnortinn en megnar um leið að skemmta okkur
með alþýðlegri gamansemi og kunnuglegum manngerðum.
Ragnheiður Elfa er ekki að stíga sfn fyrstu skref á leiksviði.
Hún lék m.a. titilhlutverkið í „Guðrúnu" og í „Land míns föð-
ur". Láru lék hún í „Föðurnum", „Ég er hættur, farinn",
„Fröken Júlíu" og mörg önnur hlutverk. Og nú er það sem
sé söngleikur, sem Ragnheiður fæst við á fjölum Borgarleik-
hússins um helgina.
mmmmmm málhornið hhhhh
Viðvörunarveður
Tíðarfarið hefur verið umhleypingasamt að undan-
förnu. Við höfum heyrt og séð í fjölmiðlum aðvör-
unarorð um ófærð og óveður þar sem réttara er að
tala um viðvörun, t.d. stormviðvörun, eins og raunar
oft er sagt, því að við vörum við einhverju en vörum
ekki að. Þá tilkynnir Vegagerðin að ekkert ferðaveður
sé hér eða þar þegar mér finnst betra að tala um að
ekki sé ferðaveður á til-
teknu svæði.
Ótíðin hefur einnig haft
truflandi áhrif á skólastarf
í landinu. Það staðfesta til-
kynningar frá skólum þar
sem segir að skólahald
falli niður vegna veðurs.
Mér finnst einhvern veg-
inn að þetta sé ekki sann-
leikanum samkvæmt.
Rekstur skólakerfisins
leggst varla af þótt veðrið
sé vont, hins vegar getur
þurft að fella niður
kennslu eða loka skóla
um stundarsakir vegna óveðurs.
Og meira um veður. Heldur fannst mér kaldhæðnis-
leg fréttin um fyrirhugaðar loftárásir bandamanna á Ir-
ak þar sem þess var sérstaklega getið að veðrið á
þeim slóðum væri gott. Ósjálfrátt komu upp í hugann
Ijóðlínur Tómasar Guðmundssonar:
En Drottinn sagði við mig:
„Nú er vor um allan geiminn!
Nú er veður til að skapa!
Og lengi hef ég ætlað mér
að endurbæta heiminn".
bbhh spurt í skóla muammm
Eru foreldrar of strangir?
Sigurður Jónsson
frá Arnarvatni.
Þessir átta ára krakkar í 3 Sl í Hlíðaskóla voru spurðir hvort foreldrar væru of strangir. Fjórir nemendur voru á því að þeir
væru of strangir en afgangurinn vildi meina að foreldrarnir væru nú ekki sem verstir.