Vikublaðið - 21.01.1993, Side 16
VIKUBLAÐIÐ
) róUAKAO Í .AlKjANWJ
Athafnakonur á nám-
skeiði í fyrirtækjarekstri
Lumarðu á góðri hugmynd sem getur aílað þér atvinnu?
Orðin Ieið á að vinna hjá körlum sem skilja ekki hvað tillög-
urnar þínar eru góðar? Ertu að springa af athafnaþrá sem faer
ekki útrás við þá einhæfu vinnu sem í boði er í byggðarlaginu?
Kannski bara orðin atvinnulaus? Eða ertu ein þeirra sem reka
oggulítið fyrirtæki á eintómu stoltinu, vinnuseminni og sparn-
aðinum og vilt ekki stíga yfir háa þröskulda lánastofnana?
Ef þú ert kona og getur
svarað einhverri af þessum
spumingum játandi er líklegt
að námskeiðið Athafnakonur
- námskeið í hagnýtum
vinnubrögðum, sem Iðn-
tæknistofnun hyggst fara með
í öll kjördæmi landsins, eigi
erindi til þín. Nú þegar er búið
að halda námskeiðið á ísa-
firði, en konum sunnan heiða
gefst tækifærið 28. og 29. jan-
úar.
Upphaf námskeiðsins má
rekja til þess að félagsmála-
ráðherra ákvað í samráði við
nefnd kvenna úr dreifbýli að
láta gera fræðsluefni sem
tengdist nýsköpun í atvinnu-
málum kvenna á landsbyggð-
inni. Astæðan var sú að kon-
um í dreifbýli bjóðast færri og
einhæfari störf en körlum.
Líklega eru mörg atriði tek-
in fyrir á þessu námskeiði
sem venjulega eru ekki á
námskeiðum fyrir drengina
ungu og upprennandi sem
erfa eiga völd og auðæft þessa
lands. Dæmi: Sjálfsmyndir
veikar og sterkar, Fyrirmyndir
kvenna, Konur á vinnumark-
aði og karlar á vinnumarkaði,
Helstu áhrif atvinnuleysis,
Hvar er atvinnuþátttaka
kvenna vaxandi? - og svona
mætti lengi telja. Hinsvegar
má gera ráð fyrir að dag-
skrárliði eins og: Hvemig
sækjum við um peninga?
Stefnumótun og Gerð rekstr-
aráætlana, vanti ekki á stráka-
námskeiðin.
- A námskeiðinu er mikil
áhersla lögð á hópvinnu og
úrvinnslu hagnýtra verkefna,
segir Lilja Mósesdóttir hag-
fræðingur. Hún hefur ásamt
Hansínu B. Stefánsdóttur
verkefnisstjóra og Erni D.
Jónssyni félagsfræðingi borið
hitann og þungann af gerð
námskeiðsins. Og Lilja vill
benda á að námskeiðið sé
ekki síst ætlað fulltrúum í at-
vinnumálanefndum úti um
Áramótahappdrætti
Vinningsnúmer
hirt 11. febrúar
Dregið var í áramóta-
hiippdrætti Alþýðubanda-
lagsins 6. janúar sl. hjá
borgtirfógetaembíeltinu.
Vinningsnúmerin voru
innsialuð og verða birt i
vIkubl.adinu
II. febrúar nk.
land, sem sjálfir eiga að geta
veitt áframhaldandi ráðgjöf
við atvinnusköpun.
Konur veðsetja ekki
heimili sín
En hvað aðgreinir konur í
fyrirtækjarekstri frá körlum
sem sjálfir reka fyrirtæki?
- Almenna mynstrið er að
konur leita síður en karlar til
sérfræðinga um úrlausn á
vandamálum eða til að fá ráð-
gjöf, heldur fremur til fjöl-
skyldumeðlima og nánustu
vina, segir Lilja. - Þar með er
ekki sagt að karlar leiti endi-
lega til ráðgjafafyrirtækja eða
kaupi sér dýra sérfræðiþjón-
ustu. Þeir eiga oft kunningja
hér og þar sem eru sérhæfðir á
ýmsum sviðum og oft næla
þeir sér bæði í þekkingu og
ráðgjöf eftir óformlegum leið-
um með því að nýta sér víðara
tengslanet úti í atvinnulífinu.
En auðvitað ráða þeir oftar yf-
ir fjármagni til að fara beint til
færustu aðila sem kosta mik-
ið. Og hér er ég komin að fjár-
magninu. Konur eru mjög
tregar til að taka lán og veð-
setja helst ekki heimili sín.
Þess vegna eru þær oft aðeins
með sparibaukinn í höndun-
um og eins og allir vita eru
konur hvorki ríkar í þessu
landi né hafa þær forsendur til
að mynda mikinn spamað
frekar en flestir aðrir í þessu
þjóðfélagi.
Eigin rekstur engin
töfralausn
Aðstandendur námskeiðs-
ins hafa tekið saman upplýs-
ingar um bakgrunn kvenna
sem hafa farið út í eigin rekst-
ur á Islandi. Meðalkonan er á
aldrinum 33-52 ára, hefur
ýmist gagnfræðapróf, lands-
próf eða iðnnám (hárgreiðslu-
konur) að baki, hefur verið al-
mcnnur launþegi og býr í
Reykjavík. En hvaða þörf er á
að konum sem stunda eigin
rekstur fjölgi? Er ekki óðs
manns æði að etja konum út í
fyrirtækjarekstur á dögum
gjaldþrota og í lántökur með-
an vextir brjóta annað hvert
bak í landinu?
- Það er alls ekkert lausnar-
orð að nú eigi konur bara að
stofna fyrirtæki, þá dragi úr
launamisréttinu, valdaleysinu
og tvöfalda vinnuálaginu, við-
urkennir Lilja. - Það er vissu-
Vinnan er oft gífurleg og
launamunur milli kynja í stétt
atvinnurekenda ekki minni en
á vinnumarkaði. Auðvitað er
þetta líka ástæðan fyrir því að
konur veigra sér við að fara út
í eigin rekstur eða gefast fljótt
upp, segir Lilja
Markhópurinn er
aðrar konur
En hér er ekki allt sem sýn-
ist. Margrét S. Richter hefur
rannsakað hvers konar fyrir-
tæki það eru sem konur reka
einkum. I Ijós kom að þau
voru flest á sviði verslunar og
þjónustu, að mestu leyti hár-
greiðslustofur, sólbaðsstofur,
söluturnar og litlar gjafavöru-
verslanir. Sem sé fyrirtæki
Kvennamarkaðurinn er
að stækka
Eins og sagt var frá hér að
ofan er markhópur fyrirtækja
sem konur reka oftast aðrar
konur. Nú er skilningur að
vakna á því að konur eru
áhrifameiri viðskiptavinahóp-
ur heldur en áður var talið,
eða með öðrum orðum,
áhrifameiri en karlar hafa gert
sér grein fyrir, og að áhrifa
þeirra sem viðskiptavina gæti
á mun fleiri sviðum en gert
hefur verið ráð fyrir hingað
til. Bendir þetta ekki til þess
að „markaður" fyrir fyrirtæk
í eigu kvenna sé einfaldlega
að stækka?
- Jú, það tel ég tvímæla-
laust, samsinnir Lilja, - en
ein-
sem oft bera aðeins eigandann
sjálfan og í mesta lagi einn
annan í vinnu I rannsókn
Margrétar kom líka fram að
eigendumir, konumar, höfðu
byrjað svotil eingöngu með
eigið fjármagn og að þær
bjuggu sig mjög vel undir
stofnun fyrirtækisins. Það at-
hyglisverða við þessi fyrir-
tæki er einnig að flest þeirra
sinna mestmegnis konum og
þörfum þeirra.
Fyrirtæki njóta meiri
skilnings en einstaklingar
Þörftn fyrir nýsköpun í at-
vinnumálum kvenna er eftir
sem áður gífurleg, bendir
Lilja á og nefnir að víða sé
verið að fækka starfsfólki,
breyta störfum í hlutastörf og
láta fólk gerast verktakar í
stað þess að vera almennir
launþegar. Og Lilja heldur
áfram.
- Lítum á hvað gerist þegar
fólk gerist verktakar, svo ég
taki dæmi. Konur verða mun
oftar einyrkjar en karlar í stað
þess að stofna fyrirtæki sem
geta hugsanlega orðið starfs-
vettvangur fyrir fleiri, ,ráðið
við fleiri og stærri verkefni og
krafist hærri þóknunar. Það er
einu sinni svo að það er meiri
skilningur á því að fyrirtæki
þurfi að bera sig heldur en að
einstaklingarnir þurfi að lifa.
Og því tel ég einsýnt að fyrir-
tæki fái hlutfallslega meira í
sinn hlut fyrir verkefni en ein-
þessi áhrif eru margskonar.
Erlendar rannsóknir sýna
fram á svart á hvítu að konur
leitast við að skipta við fyrir-
tæki sem styðja félagsleg
framfaramál eins og kvenna-
athvörf, umhverfismál, eða
stuðla að jafnrétti kynja innan
sinna vébanda, svo fátt eitt sé
nefnt. En konur eru vannýttur
markhópur í víðari skilningi.
Hefðbundin karlafyrirtæki
gera sér oft ekki grein fyrir
þörfum kvenna og oft er það
ekki fyrr en þau hafa hleypt
konum í áhrifastöður sem þau
„uppgötva" þær. Tökum dæmi
af reiðhjólahnakki. Hingað til
hefur verið framleiddur ein-
hver kynlaus hnakkur fyrir
alla. Núna er farið að fram-
leiða sérstaka hnakka fyrir
konur og þeir renna út. Eins er
með bíla. Japanir eru famir að
leggja mikið upp úr því að fá
konur sem iðnhönnuði, því
þær gera sér oft betur grein
fyrir því en karlar hvaða þarfir
fjölskyldubíllinn þarf að upp-
fylla. Konur vita oft betur en
karlar hvað vantar á markað-
inn og þessa þekkingu hafa
þær úr reynsluheimi sínum
sem er annar en karla. Þar
hafa þær yfirburði.
Alþjóðakvennabankinn
A námskeiðinu verða
kynntar hugmyndir að stofn-
un Lánatryggingasjóðs
kvenna en í undirbúningi er
að sækja um aðild íslands að
banki lánar konum sem reka
eigin fyrirtæki og veitir þeim
jafnframt rekstrarráðgjöf og
ráðgjöf við þróun hugmynda.
En hvemig tengjast þessar
fyrirætlanir námskeiðinu?
- Erlendar rannsóknir sýna
að forráðamenn lánastofnana
eru tregir til að lána konum í
fyrirtækjarekstri. Á Islandi er
ástandið ekkert öðruvísi, tek-
ur Lilja fram. - I fyrmefndri
rannsókn Margrétar S. Richt-
er töldu 20% kvennanna sig
hafa orðið fyrir mismunun í
lánastofnunum hérlendis. Hér
komum við aftur að reynslu-
heiminum. Það hefur einfald-
lega komið í ljós að banka-
stjóramir hafa oft ekki hug-
mynd um hvað konumar eru
að fara þegar þær útskýra
hugmyndir sínar að þjónustu
eða framleiðslu og úrelt við-
horf á borð við „að konur eyði
en karlar afli“ svífa yfir vötn-
unum á þeim bæjum, segir
Lilja.
Konur eru góður bisness
Alþjóðakvennabankinn er
veðtryggingasjóður sem ekki
fer fram á veð frá konunum
sjálfum fyrir lánum. Sjóður-
inn er með 56 aðildarstofnanir
í 42 löndum og eru mikil
tengsl milli starfsmanna um
allan heim.
- Það er viðurkennt af öll-
um helstu efnahags- og hag-
fræðistofnunum heims að ör-
astan vöxt verði að finna í litl-
milli í einhvers konar fyrir-
tækjanetum, og þessir starfs-
hættir henta konum afskap-
lega vel. Þeirra er einfaldlega
framtíðin og framtíðin kemur
fyrr en seinna. En margir eiga
erfitt með að skilja að það geti
verið góður bisness að lána
konum. Reynsla Alþjóða-
kvennabankans er önnur. Ein-
ungis 2% útlána tapast og ég
held að hlutfallið gerist varla
betra. Konur sofa ekki á með-
an þær skulda og samvisku-
semi þeirra við að láta fyrir-
tækin ganga upp og endur-
greiða lánin er ótrúleg. Hér er
því ekki verið að ræða um
einhvers konar þróunarhjálp
til kvenna.
Styrkumsókn hafnað af
fjárveitinganefnd
Lilja segir að skilning
skorti meðal fjárveitinga-
valdsins á Islandi á að heppi-
legt sé að stofna íslenskt útibú
Alþjóðakvennabankans, en
hluti þess fjármagns sem lán-
að verður þarf að koma frá
innlendum aðilum. Markmið-
ið er að koma á fót 40 millj-
óna króna sjóði.
Undirbúningshópurinn fór
fram á þriggja milljóna króna
styrk frá fjárveitinganefnd Al-
þingis til að vinna frekar að
undirbúningi þessa máls, en
fékk neikvætt svar. Það er
óneitanlega skondið í ljósi
þess að hér er verið að hjálpa
konum til að hjálpa sér sjálfar
við nýsköpun í atvinnulífi,
spoma gegn atvinnuleysi og
auk þess að afla erlends fjár-
magns til atvinnusköpunar
hérlendis. Hefði einhvem
tíma mátt ætla að slíkt ætti
upp á pallborðið hjá þeirri rík-
isstjóm sem nú situr, eða
skyldi munurinn í þetta sinn
felast í því að hér er ætlunin
að beina fiármaeni til kvenna