Vikublaðið


Vikublaðið - 21.01.1993, Side 10

Vikublaðið - 21.01.1993, Side 10
10 VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. janúar 1993 VÍSINDI OG FRÆDI EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON Eiga íslenskir fræðimenn að skrifa á ensku? Taugatítringur gerði vart við sig í félagsvísindadeild Háskóla íslands þegar Fréttabréf Haskólans kom út í desemb- er. í Fréttabréfinu var sagt frá úttekt sem Wolfgang Edelstein frá Max-Planck stofnuninni í Berlúi var fenginn tíl að gera á félagsvMndadeildinni. Skýrsla Edelsteins áttí ekki að koma fyrir sjónir almennings, að minnsta kostí ekki í bráð, heldur var hún hugsuð sem innanhússmál. I henni er fjaUað um einn viðkvæmasta þáttinn í starfi háskólakenn- ara; hversu vel þeir sinna vísindum og fræðum. Tveir mælikvarðar eru einkum lagðir á frammistöðu háskólakennara. Sá fyrri, og léttvægari, er mat nemenda sem gefa kennurum sínum umsögn að loknu námskeiði. Umsagnir nemenda eru not- aðar í háskólum meðal annars til að fylgjast með því hvort kennarar búa yfir nægilegri færni í mannlegum samskipt- um. Seinni mælikvarðinn er mikilvægari en það er mat á framlagi háskólakennara til fræðilegrar umræðu. Skýrsla Edelsteins tók til þess hluta en félagsvísindadeild fékk hann árið 1991 til að taka að sér út- tektina. Edelstein er virtur fræðimaður í Þýskalandi og forstjóri Max-Planck stofnun- arinnar í Berlín. Hann ólst upp á íslandi og starfaði hér um skeið, meðal annars við endurskoðun á kennslu í sam- félagsfræðum og tók oft til máls, í ræðu og riti, býsnavet- urinn 1983 þegar umræður um sögukennslu í skólum lands- ins tröllreið fjölmiðlum. Skýrslan sem Edelstein lagði fram í haust er hluti af viða- meiri úttekt á félagsvísinda- deild. Þótt menn í deildinni séu nánast á einu máli um að nauðsyn sé á slíkri úttekt og hún geti orðið til þess að efla skynsamlega umræðu um stöðu deildarinnar og framtíð- armarkmið þá varð skýrslan feimnismál um leið og hún var lögð fram. Sumpart var það vegna þess að deildin ótt- aðist að einstök atriði í skýrsl- unni yrðu slitin úr samhengi, túlkuð á versta veg í fjölmiðl- um og yrði félagsvísindadeild og Háskólanum til hnjóðs. Þegar DV birti frétt um skýrsluna jók það á tortryggn- ina gagnvart fjölmiðlum. Svo voru þeir sem töldu að ef efni skýrslunnar læki út þá myndu menn setja sig í vamarstöðu, hver gagnvart öðrum, og þar með yrði ekki til sá umræðu- grundvöllur sem að var stefnt. Deildarforseti félagsvísinda- deildar, Sigurjón Bjömsson prófessor, tók þess vegna þá ákvörðun að skýrslunni skyldi haldið innan deildarinnar. Þeirri niðurstöðu vildu sumir ekki una og skýrslunni var komið í hendur Sigurðar Steinþórssonar prófessors sem hefur umsjón með Frétta- bréfi Háskóla íslands. Samsæriskenningar Sigurður mat það svo að skýrsla Wolfgangs Edelsteins ætti fullt erindi í Fréttabréfið og þar sem einn af kennumm félagsvísindadeildar hefði komið með skýrsluna væri ekki ástæða til að láta við- kvæmni ráða ferðinni. Sig- urður birti snemma á síðasta ári hliðstæða umfjöllun um kennara eðlisfræðistofu og þar var komið fordæmi. Þegar það kvisaðist út að Fréttabréf Háskólans hygðist birta skýrslu Edelsteins var það túlkað af sumum starfmönn- um félagsvísindadeildar á þann veg að nú væri Sigurður, sem er prófessor í raunvís- indadeild, að koma höggi á félagsvísindadeild. I háskól- um er munurinn oft hárfínn á eljaraglettum og harðsvíraðri baráttu um fjárframlög, frama og völd. Sigurður segir til- ganginn með umfjöllun Fréttabréfsins þann einan að koma á framfæri upplýsing- um sem yrðu til einskis ef þær væru ekki lesnar og ræddar. En hvað er svona viðkvæmt í skýrslu Edelsteins? Jú, hann athugaði hversu mikil um- ræða væri á erlendum vett- vangi um ritverk kennara í fé- lagsvísindadeild og komst að þeirri niðurstöðu að hún væri hættulega lítil og menn þyrftu að taka á sig rögg til að koma deildinni á hið alþjóðlega landakort háskólanna. Að- ferðin sem Edelstein notar til að komast að þessari niður- stöðu er algeng en líka um- deild. Gamla aðferðin við að kanna hversu vel háskóla- menn stæðu sig var að skoða ritverkaskrá þeirra. Því fleiri útgefnar ritgerðir og bækur, því betri fagmenn var við- kvæðið. Þegar ofvöxtur hljóp í háskóla á Vesturlöndum, á árunum eftir seinni heims- styijöld, samhliða því sem út- gáfa fræðitímarita og bóka stórjókst, komu í ljós gallar þessarar aðferðar. Frumleg hugsun er aðal vísinda- og fræðimennsku og samhengið milli fjölda ritverka og frum- leika varð minna eftir því sem það varð auðveldara að gefa út. Önnur aðferð við að varpa Ijósi á hæfileika háskólaborg- ara þróaðist í Bandaríkjunum á sjöunda og áttunda áratugn- um. Hún er fólgin í því að telja hversu oft er vitnað í höf- unda fræðirita. Með þeim hætti er talið að hægt sé að koma mælistiku á gæði höf- undarverka. Hugmyndin, sem liggur hér að baki, er sú að vísindasamfélagið meti fram- lag einstakra fræðimanna með óbeinum hætti þegar vitnað er í verk þeirra; því fleiri tilvitn- anir, því mikilhæfari er fræði- maðurinn. Þessi leið til að meta frammistöðu vísinda- manna er umdeild fyrir margra hluta sakir. Það er bent á að tilvitnanir höfunda í sjálfa sig eru taldar með, vís- indamenn hafa myndað klíkur þar sem menn gera samkomu- lag um að vitna hver í annan, yngri fræðimenn eiga erfitt uppdráttar í tilvitnanagrein- ingu og tímarit þurfa að upp- fylla ákveðin skilyrði til að vera tekin með í þessa grein- ingu. Tímarit í fámennum vís- indasamfélögum eins og því íslenska eiga litla sem enga möguleika á því að vera talin með. Fyrir félagsvísindin er það sérstök útgáfa sem sér um að safna viðurkenndum fræðirit- um og telja í þeim tilvitnanir, Social Science Citation Ind- ex. Edelstein tók saman til- vitnanir í fræðirit kennara við félagsvísindadeildina árin 1988-1990 og meðalfjöldi til- vitnana á hvem kennara ligg- ur á bilinu 2-6. Ætli félagsvís- indadeild Háskóla íslands að komast á landakortið þyrfti að margfalda þessar tölur. En miklar efasemdir eru um hvort æskilegt sé að stefna að breytingum í þá átt. Ef átak yrði gert til að koma kennur- um deildarinnar á blað erlend- is, og þar með deildinni sjálfri, yrði að fóma einhveiju öðm. Þjóðskóli og alþjóðahyggja Markmið félagsvísinda- deildar Háskóla íslands er að „efla þekkingu og skilning á íslensku þjóðfélagi og ís- lenskri menningu", eins og segir í kynningu deildarinnar. Ef deildin ætlar að efla skiln- ing íslendinga sjálfra á þjóð- félagi sínu og menningu verða kennarar og sérfræðingar deildarinnar að rannsaka ís- lensk fyrirbrigði og birta nið- urstöður sínar á íslensku. En þar með er loku fyrir það skotið að félagsvísindadeild fái viðurkenningu á alþjóða- vettvangi, því að samkvæmt hefðbundnum mælingum, eins og þeirri sem Edelstein notar í skýrslu sinni, koma rit- verk á íslensku ekki til álita þegar framlag fræðimanna er metið. Það felst ákveðin hætta í því að leggja of mikla áherslu á séríslenskar rann- sóknir sem koma eingöngu fyrir sjónir þeirra sem læsir em á íslensku. Framþróun vísinda og fræða er háð opin- berri orðræðu þar sem vís- indamaður leggur fram verk sitt til gagnrýninnar umfjöll- unar sérfræðinga á sama sviði. í litlu vísindasamfélagi eins og því íslenska em ekki skilyrði til að gagnrýninn og sérmenntaður hópur vísinda- manna myndist, nema þá á ör- fáum sviðum. A hinn bóginn hefur smæðin ýtt undir fjöl- hæfni fræðimanna, því að þeir verða að sinna mörgum við- fangsefnum, en það er kostur sem víða erlendis er talinn nauðsynlegur til að hamla gegn þróun í átt til síaukinnar sérhæfingar þar sem fræði- menn afmarka sér afar þröng- an bás á kostnað yfirsýnar og heildarmats á tengslum fræða við umheiminn. Háskóli íslands var stofn- aður sem þjóðskóli fyrir rúm- um áttatíu ámm. Skólinn var hugsaður sem veigamikill þáttur í sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga, með það hlutverk að efla og varðveita innra sjálf- stæði þjóðarinnar. Háskólinn „bjó til“ þær starfsstéttir sem nútímaþjóðfélag með sjálf- stæða menningu og sögu get- ur ekki verið án; lögfræðinga, presta, lækna, verkfræðinga og kennara. Félagsvísinda- deild er ein yngsta deild Há- skólans, stofnuð 1976, en kennsla í einstökum greinum deildarinnar hófst fáeinum ár- um áður. Stofn félagsvísinda er félagsfræðin sem í mörgu er alþjólegri en aðrar fræði- greinar hugvísinda. Helstu kenningasmiðir félagsfræð- innar leituðu að sameiginleg- um einkennum samfélaga óháð sögu og menningu ein- stakra þjóða. Þess vegna er eðlilegt að starfsmenn deild- arinnar velti fyrir sér hvort að- aláherslan skuli vera á rann- sóknir sem birtar em íslensk- um lesendum eða hvort deildin ætti að leggja meira upp úr því að fá ritgerðir gefn- ar út í erlendum tímaritum. Algengt svar við spuming- unni hvort félagsvísindadeild eigi að alþjóðavæðast eða rækta garðinn sinn hér heima er að sinna hvorutveggja jöfn- um höndum. Hinsvegar eru þeir sem telja óhjákvæmilegt að skýrari meginlínur verði lagðar fyrir kennara og sér- fræðinga deildarinnar til að mönnum séu ljósari markmið starfseminnar. Umræðan um skýrslu Wolfgangs Edelsteins gæti orðið upphafið að átaki í stefnumótun deildarinnar, að því gefnu að akademískur skotgrafahernaður sé ekki hafinn vegna birtingar skýrsl- unnar og aðdraganda málsins. Háskólinn var stofnaður sem þjóðskóli en varð jafnframt hluti alþjóðlegs háskólasamfélags. Félagsvísindadeild glímir við þessa mótsögn sem snertir viðkvœma strengi í brjóstum háskólamanna.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.