Vikublaðið


Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 9

Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 9
VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. janúar 1993 9 VIÐTAL: ÞRÖSTUR HARALDSSON Háskólinn er stór- mál sem getur haft mikil áhrif ef hann fœr að dafna. Því miður býr skólastarfið í landinu við mikið fjársvelti, enda finnst mér það eitt það œgilegasta við þessa ríkisstjórn hversu mjög hún hefur þrengt að rannsóknum og menntun. því fyrirtækið skapar öryggi í bænum. Hins vegar mætti hugsa sér að til dæmis lífeyr- issjóðimir í bænum eignuðust stærri hlut í því.“ Hvaða verkefni á að flytja? Eins og Signður nefndi ekki hægt að afgreiða með látum. Nefnd félagsmálaráð- herra hefur að mörgu leyti unnið gott starf og tekist að skapa mikla umræðu um sam- eininguna. Sú umræða verður áfram mikil á næstu vikum og mánuðum, þótt ýmsar aðgerð- ir og framkoma ríkisvaldsins í garð sveitarfélaganna að und- anfömu hafi enn skert það traust sem nauðsynlegt er að ríki milli þessara aðila, ekki síst í stærri málum. En næstu skref sem tekin verða skipta miklu máli. Ég er ekki búin að gera það upp við mig hvaða málaflokka er rétt að flytja frá ríkinu. Það er rætt um að flytja rekstur gmnn- skóla til sveitarfélaganna, en gegn þeirri hugmynd hafa verið sett fram þau rök að að- staða til menntunar gæti orðið enn misjafnari eftir sveitarfé- lögum en nú er. A því er vissulega hætta, en er skólinn betur kominn í höndum ríkis- valdsins? Það hefur sýnt sig að svo þarf ekki að vera. Mörg verkefni eru best komin í höndum sveitarfélag- anna og sem næst fólkinu, en það hefur ekki tryggt að vel sé haldið á þeim málum í smærri sveitarfélögum. Til dæmis búa landsmenn við mjög mis- jöfn kjör á sviði félagsmála. í smærri sveitarfélögum er litlu Það var að mörgu leyti auðveldara að semja við Sjálf- stœðisflokkinn en hina flokkana vegna þess að ágreiningsefni flokkanna eru skýrari. Við viss- um hver þau voru og gengum í að semja um þau fyrst. Það sam- komulag hefur haldið . . . Ofurvald íslenska ríkisins „Mér finnst liggja beint við að stækka sveitarfélögin til þess að gera þau fær um að taka að sér aukin verkefni. Hins vegar hefur andstaðan gegn sameiningu verið mest í smæstu sveitarfélögunum. Að hluta til liggur það í venju- skipað fulltrúum fylkjanna. Þannig hafa fylkisstjórnir lög- formlegan rétt til áhrifa á lög- gjöfina, en þvf er ekki að heilsa hér á landi. Þegar sveitarfélög voru sameinuð í Baden-Wurttem- berg fyrir tuttugu árum var settur ákveðinn lágmarks- íbúafjöldi - 650 manns - sem sveitarfélag varð að hafa. Að öðru leyti réðu sveitarfélögin hverjum þau sameinuðust. Þar var líka ákveðið að halda gömlu sveitarstjómunum sem lægsta stjómstigi. Þær ráða enn ýmsum málum sem næst standa íbúunum, þótt flestu sé ráðið til lykta á vettvangi stóm sveitarstjórnanna." Mörgum spurningum ósvarað „Þessi atriði em ekkert í um- ræðunni hér, enda vantar al- veg í nefndarálitið hvemig stjómskipunin á að vera eftir sameininguna og hugmyndir um það hvernig á að kjósa um hana em ekki lýðræðislegar. Þetta veldur því að andstaðan hefur frekar verið að eflast í smærri sveitarfélögum en hitt. Þar em menn komnir í vamar- stöðu, þeir óttast að það eigi að valta yfir þá og sameina með valdi. Það er mörgum spuming- dvaldi fjölskyldan í Þýska- landi um eins árs skeið og kom heim í sumar. Þar kynnti hún sér m.a. sveitarstjórnar- mál, einkum í ljósi þess að fylkið Baden-Wurttemberg gekk í gegnum sameiningu sveitarfélaga fyrir tveimur áratugum. Þau mál eru eins og kunnugt er ofarlega á baugi hjá sveitarstjómarmönnum um þessar mundir. Hver eru viðhorf Sigríðar til samein- ingarhugmyndanna? „Ég er sannfærð um rétt- mæti þess að stækka sveitar- félögin og fá þeim fleiri verk- efni. En þetta er flókið mál og sem engu fé veitt til fjárhags- aðstoðar og enginn starfsmað- ur ráðinn til að sinna félags- málum. Þegar þrengir að em íbúar þessara byggðarlaga miklu verr settir en á stærri stöðum. Eins geta barnaverndarmál verið mjög erfið í fámennum byggðarlögum. Þegar búið er að skipa fimm manna bama- verndarnefnd eru afar litlar líkur á að hægt sé að fjalla um mál sem upp koma án þess að einn eða fleiri séu nátengdir málsaðilum. Það hefur verið rætt um að breyta þessu en lít- ið gerst.“ legri íhaldssemi, en einnig er þar á ferð óeðlilegur ótti við að missa það sem menn hafa. Því miður er íslenska stjómkerfið á margan hátt of vanþroskað til að taka á þess- um vanda. Það vantar í það lýðræðið. Ofurvald ríkisins á sviði löggjafar og fram- kvæmda er slíkt að sveitarfé- lögin hafa enga tryggingu fyr- ir því að tekjustofnar sem þau hafa í ár verði ekki af þeim teknir á næsta ári. I Þýska- landi getur Sambandsþingið ekki sett lög án þess að þau hljóti samþykki Sambands- ráðsins (Bundesrat) sem er um ósvarað. Hvað eiga til dæmis að vera mörg sveitar- félög hér við Eyjafjörð? Þetta þarf að ræða og umræðan þarf að vera meiri meðal almenn- ings. Hún hefur að mestu leyti verið einskorðuð við sveitar- stjómarmenn. Þetta verður eitt af stóm málunum næstu mánuðina, því þá ræðst í hvaða farveg það fer. Það þarf að hraða sameiningunni, en þó held ég að það sé of mikil bjartsýni að hægt verði að taka endanlega ákvörðun um hana fyrir lok þessa kjörtíma- bils,“ segir Sigríður Stefáns- dóttir. Landvernd Landgræðslu- og náttúruverndarsamtök íslands Styrkir til umhverfismála Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjóði Landverndar. 1. Um styrk geta sótt félög, samtök, stofnanir og ein- staklingar. 2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis- mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun, vernd- un, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rann- sókna. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu almenn- ings. 3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera vel af- mörkuð og skilgreind. 4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mót- framlag, sem getur falist í fjárframlögum, vélum, tækjum, efni eða vinnu. 5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok úthlut- unarárs. 6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Landvernd- ar fyrir kl. 17.00 þann 22. febrúar 1993. Þeir sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn þurfa að end- urnýja þær í samræmi við þessa auglýsingu. Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást á skrifstofu samtakanna. Landvernd, Skólavörðustíg 25,101 Reykjavík, sími 25242, myndsendir 625242. Alþýðubandalagið Kópavogi Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 3. febrú- ar kl. 20.30. Dagskrá: 1. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, ræðir viðhorfin í kjara- málum. 2. Önnur mál. Stjórnin. Alþýðubandalagið Kópavogi Heldur sína árlegu þorraveislu laugar- daginn 6. febrúar. Söngur og skemmtiatriöi. Lifandi tónlist. Aðalræðumaöur Guðrún Helgadóttir al- þingismaður. Miðaverð kr. 2.800. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin. Þorrablót Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldið föstudaginn 29. janúar í Hauka- húsinu við Flatahraun. Miðaverð kr. 1.900. - Þátttaka tilkynnist í síma 54065 (Páll) eða 652286 (Lára). Stjórn ABH

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.