Vikublaðið


Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 13

Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 13
VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. janúar 1993 13 TAMÍLAMÁLIÐ EFTIR ERLU SIGURDARDÓTTUR Fulltrúar Guðs á jörðu eða... Varla hafði Poul Schliiter Iokið lestri sínum á útdrætti skýrslunnar um Tamílamálið þegar hann ákvað að segja af sér forsætisráðherraembættinu. Nokkrum klukkustundum síðar sagði H.P. Clausen af sér sem forseti þjóð- þingsins. Flokkssystir þeirra, Grethe Fenger Mdller, fyrrum formaður dómsmálanetndar þingsins, og flokksbróðirinn Viggo Fischer stama á því að þau hafi samviskuna í lagi en verjast annars allra frétta. Aðalsökudólgurinn, samkvæmt Mogens Homslet dómara, Erik Ninn Hansen, fyrrv. dómsmála- ráðherra og fyrrv. forseli þingsins, kveðst ekki hafa tíma tíl að lesa skýrsluna og er hann því líklega eina sálin í Danaríki sem hefur ekki kynnt sér hana. Hann mætir ekki á þingflokkslúndi en hvikar annars hvergi. Hefúr það skapað urg innan Ihaldsflokksins og verða æ háværari raddir innan flokks- ins sem hvetja Ninn Hansen til að hverfa af þingL Ráðuneytisstjóri forsætis- ráðuneytisins og háttsettir embættísmenn í dómsmálaráðuneytinu mæta í vinnuna eins og ekkert sé, en eiga málaferli yfir hiifði sér. En hvers vegna öll þessi læti út af einni skýrslu? Myndu íslenskir ráð- herrar og þingmenn segja af sér ef ljóst yrði að þeir hefðu annað hvort brotið landslög eða legið á upplýs- ingum gagnvart þingheimi? Hansen-gate Rétt er að taka fram að skýrslan, þrátt fyrir nafn sitt, fjallar ekki fyrst og fremst um tamílska flóttamenn, þótt þeir hafi að vísu verið fómar- lömb vinnubragða í dómsmálaráðu- neytinu. Málið hefur einnig verið kallað „Hansen-gate“, sbr. Water- gate, enda fjallar það um valdamis- notkun dómsmálaráðherra, sem ákvað að brjóta landslög þegar hann gaf fyrirskipun um að frysta um- sóknir tamílskra flóttamanna um að fá nánustu skyldmenni sín (maka og böm) til landsins. Þá fjallar málið um embættismenn sem hlýddu skipunum ráðherra, þrátt fyrir að þeir vissu að þær brytu í bága við lögin, um forsætisráðherra og nýjan dómsmálaráðherra sem hylmdu yfir með Ninn Hansen og ýmist lugu eða þögðu þunnu hljóði. Þá em tvö flokkssystkin þeirra ávít- uð, þ.á m. Grethe Fenger Mpller, fyrmrn formaður dómsmálanefndar þingsins, sem sökuð er um að hafa komið með fyrirspurn frá nefndinni til ráðuneytisins í þeim eina tilgangi að tmfla rannsókn umboðsmanns þingsins á málinu. Hvað má læra? Á meðan menn sitja með sveittan skallann við myndun nýrrar ríkis- stjómar, er mikið rætt um afleiðingar skýrslunnar. Ekki um hvaða refsingu hver og einn eigi að fá heldur hvaða þýðingu þetta fái fyrir starfshætti ráðherra, þingheims og embættis- manna. Bent hefur verið á setu minni- hlutastjómar í áratug og hvaða áhrif hún hafi á starfsskiptingu ríkisstjóm- ar og þingsins. Ef allt væri með felldu setti þingið lög sem stjórnin ynni eftir, en sú sé ekki raunin. Mik- ilvægasta markmið fráfarandi stjórn- ar hafi verið að sitja sem fastast og hafi hún því látið þingmeirihlutann móta stefnu í t.d. menningar- og um- hverfismálum. Þótt hún hafi viljað breyta stefnu í t.d. málefnum flótta- manna, hafi hún séð fram á að stuðn- ingur fengist ekki fyrir lagafmm- vörpum þar að lútandi. Því hafi ein- staka ráðherrar freistast til að þenja lagabókstafmn meira en góðu hófi gegnir. Þessu vísar fráfarandi menntamálaráðherra Bertel Haarder á bug og segir hann minnihlutastjóm einmitt vanda vinnubrögð sín ein- staklega mikið því fjandsamlegt augnaráð meirihluta þingsins hvíli stöðugt á henni. Með öðmm orðum sé minnihlutastjórn trygging fyrir því að lögin séu virt. Tamílaskýrslan rennir ekki stoðum undir þá staðhæf- ingu. Aðstoðarmenn ráðherra óskast Margir þingmenn krefjast þess nú að þingið fái betri aðstöðu til að geta fylgst með vinnubrögðum ríkis- stjómar. Þá er einnig búist við að Jafnaðarmenn komi nú á aðstoðar- mönnum ráðherra, eða „statssekre- tær“, eins og það er kallað, þ.e.a.s. pólitískum millilið ráðherra og emb- ættismannakerfisins. Danir hafa ekki haft þetta kerfi þótt það tíðkist ann- ars staðar á Norðurlöndum. Embættismenn ráðgjafar eða meðreiðarsveinar? Þá emm við komin að embættis- mönnunum. Eiga embættismenn að hlýða skipunum ráðherra þótt þeir viti að þær em ólöglegar? Eða eiga þeir að vera ráðgjafar sem vara ráð- herra við slíkum hættum? Embættis- mennirnir sem gagnrýndir eru í Tamílaskýrslunni báru því við í yfir- heyrslum að þeir hefðu reynt að vara ráðherra við, en þar sem ekki hefði verið við hann tjónkandi hefðu þeir neyðst til að vinna gegn samvisku sinni. Ekki hafa margir klökknað yfir þessum hræðilegu örlögum embætt- ismannanna, enda má ætla að full- orðnir menn og þar að auki spreng- lærðir í lagabókstafnum, ættu að geta staðist slíkan þrýsting af hálfu ráðherra. Ef ekki annað þá ættu þeir að gera forsætisráðherra viðvart og það var einnig gert í þessu máli. En forsætisráðherra brást þannig við að hann ákvað að hylma yfir með flokksbróður sínum og læriföður. Þessi umræða um leikreglur og líftryggingu lýðræðisins er rétt hafin og fer fram á meðan unnið er að stjómarmyndun. I fyrra kviknaði annar hluti lýðræðisumræðunnar, þegar Danir tóku afstöðu til þátttöku sinnar í stórveldisáformum EB. Þá var sjónum beint að möguleikum smáþjóðar í alþjóðlegu samstarfi. Nú er það innra líf þjóðarinnar sem er til umræðu. Hún getur verið fróðleg og lærdómsrík fyrir íslendinga, sem velta fyrir sér svipuðum spurningum þessa dagana. Einstaka ráðherrar í minnihlutastjórn Schliiters þöndu lagabókstafinn meira en góðu hófi gegndi. Áttu emb- œttismennirnir að Itlýða ráðherrunum eðafara að lögum? SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Auka 28. janúar Myrkir músíkdagar Hljómsveitarstjóri: Eirtleikari: William Sweeney: Sally Beamish: Haukur Tómasson: Gunther Schuller Tommy Smith An Rathad Ur Konsert f. tenór sax og hljómsv. Sinfónía fyrir Róbert Afsprengi IÐJA, félag verksmiðjufólks Allsherjaratkvæðagreiðsla Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda fyrir næsta kjörtímabil. Tillögur skulu vera samkvæmt A-lið 19. greinar í lögum félagsins. Tillögum, ásamt meðmælum hundrað fullgildra félags- manna, skal skila á skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg 16, eigi síðar en kl. 11 fyrir hádegi, þriðjudaginn 26. jan- úar 1993. Kjörstjórn Iðju Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa í 1. flokki 1991 3. flokki 1991 Innlausnardagur 15. janúar 1993. 1. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 1.000.000 Innlausnarverð: 12.284 122.843 1.228.429 3. flokkur 1991 Nafnverð: 10.000 100.000 500.000 1.000.000 Innlausnarverð: 10.931 109.306 546.532 1.093.065 Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands Suðurlandsbraut 24. Kfcl HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ HÚSBRÉFADEILO • SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI696900

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.