Vikublaðið - 04.02.1993, Side 3
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993
ATVINNULEYSIÐ
3
Draumurinn
og martröðin
Samfara vaxandi atvinnuleysi á íslandi verða okkur ljósari þau ógnvænlegu vandamál sem slíkum vágesti geta
fylgt og þó nokkuð hefur verið fjallað um hér á síðum Vikublaðsins. Sjálfur lentí ég í því hér um daginn þegar ég
var á gangi niður Laugaveginn að morgni dags á leið til vinnu að maður, sem ég kannaðist ekkert við, vék sér að
mér. Hann kynntí sig sem atvinnuleysingja og spurði kurteislega hvort ég gætí séð af nokkrum krónum þannig
að hann ættí fyrir mat Eg hef ekki áður lent í því hérlendis að maður, sem ekki bar þess nokkur einkenni að eiga
við áfengisvandamál að stríða, betlaði á þennan hátt Islenskar atviiuiuleysLstnggingar eru á hinn bóginn með
þeim hættí að veruleg hætta er á að fjöldi manns komist í þá aðstöðu að þurfa að betía.
hvort ekki sé rétt að taka upp samfé-
lagslaun í einhverri mynd þannig að
samfélagið tryggi öllum ákveðna lág-
marksupphæð í laun. Allt em þetta
möguleikar sem þyrfti að ræða nú
þegar okkur er sagt að 10% atvinnu-
leysi verði í Evrópu til frambúðar.
Islenskar atvinnuleysistryggingar
og niðurskurðarstefna núverandi rík-
isstjórnar er hvort tveggja til þess
fallið að skapa hérlendis fátækt og
eymd í líkingu við það sem sjá má
víða erlendis. Þó svo við vonum að
takist að rétta úr kútnum þannig að aft-
ur verði full atvinna hérlendis er full
ástæða til að vinna að breytingum á
kjömm atvinnuleysingja. Atvinnurek-
endur og ríkisvaldið nota hörmuleg
kjör þeirra nú sem grýlu á verkafólk.
Það er því ekki aðeins eðlileg mann-
úðarkrafa að þau kjör séu bætt, það er
líka nauðsynlegt til að bæta vígstöðu
þeirra sem enn hafa vinnu.
Ingólfur V. Gíslason
Þar er fyrst til að taka að bætumar
sjálfar em fáránlega lágar. Ekki þarf
flókna útreikninga til að sjá að menn
draga illa fram lífið á ríflega 40.000
krónum á mánuði. En til að auka enn á
erfiðleika manna er þeim ætlað að lifa
á loftinu í 16 vikur þegar þeir hafa ver-
ið á bótum í 260 daga. Að þeim 16
vikum liðnum geta menn aftur fengið
bætur í 260 daga og svo framvegis.
Verkalýðshreyfingin þarf því að
setja á oddinn þrennskonar kröfur
um breytingar á lögum um atvinnu-
leysistryggingar. I fyrsta lagi að
þessi undarlega 16 vikna regla verði
felld niður. í öðru lagi að bæturnar
verði hækkaðar verulega, og má þá
vel taka til athugunar hvort ekki sé
rétt að tekjutengja þær. Það ætti nú
varla að verða torsótt, jafn spennt og
núverandi ríkisstjórn er fyrir tekju-
tengingu flestra bóta. í þriðja lagi er
eðlilegt að verkalýðshreyfingin hafi
frumkvæði að því að afnema það
skilyrði að menn verði að hafa verið
félagar í stéttarfélagi til að eiga rétt á
bótum. Þetta er nauðsynlegt meðal
annars til þess að fólk sem er að
ljúka námi eigi líka rétt á bótum.
Karl Marx var oft og tíðum illa
haldinn af byltingarrómantík og það
jafnvel þannig að hann taldi sigur
verkalýðsstéttarinnar óhjákvæmilegt
sögulegt lögmál. Marx dreymdi um
að sá sigur myndi í fyllingu tímans
leiða til jarðneskrar paradísar. En á
stundum bráði aðeins af honum og
hann þóttist sjá að annar möguleiki
væri í hinni sögulegu framvindu.
Það var hins vegar ekki draumur
heldur martröð.
í „Kenningum um gildisauka"
ræðir Marx lítillega þann möguleika
að aukin framleiðni samfélaga verði
notuð til að bæta kjör þeirrar stéttar
er standi milli verkalýðs og borgara.
Á þann hátt myndast stéttabandalag
borgara og miðstéttar en verkalýður-
inn er skilinn eftir. Því miður virðist
svo sem við horfum á eitthvað svip-
að vera að gerast víða í Evrópu. Um
það bil 10% íbúa eru skildir eftir í
svaði atvinnuleysis og örbirgðar.
Þeim sem þar eru fyrir ofan er síðan
sífellt ógnað með því að þeir geti nú
hrapað niður og því skuli þeir ein-
faldlega halda sig á mottunni. Borg-
ararnir geta þá stigið sinn neyslu-
dans í friði, þeir sem atvinnu hafa og
sæmilega afkomu sjá um að halda
hinum verst settu í skefjum.
Nú er það svo að það getur ekki
verið sjálfstætt markmið að allir full-
orðnir séu í 8 tíma vinnu hvern virk-
an dag án tillits til þess hvað þeir
vinna. Ef framleiðni samfélaga er
komin á það stig að hægt sé að hafa
10-15% mannaflans utan virkrar
starfsþátttöku er það verkefni verka-
lýðshreyfmgarinnar og flokka jafn-
aðarmennsku að sjá til þess að hér
verði réttlátlega skipt. í stað þess að
fóma hluta mannfólksins og neita
því um alla vinnu, er hægt að hugsa
sér margar aðrar lausnir. Ein er al-
menn stytting vinnutímans. Önnur er
stóraukin endurmenntun, sem í raun
yrði símenntun. Lenging fæðingar-
orlofs og möguleikar foreldra ung-
barna til að vinna hálfan daginn
hvort um sig er þriðji möguleikinn.
Jafnvel er full ástæða til að íhuga
Hjálpargagn
fyrír heimilisbokhaldið
og skattframtalið
Eitt af markmiöum íslandsbanka er aö standa vel
aö upplýsingagjöf til viöskiptavina bankans. Þeir eiga því kost á aö fá
heildaryfirlit yfir viöskipti sín viö bankann á árinu 1992.
Á viöskiptayfirlitinu kemur fram staöa innlána og skulda viöskiptavinarins
um áramót, ásamt ýmsum upplýsingum um vexti og margt fleira.
Hér er um aö rœöa hjálpargagn sem kemur aö góöum notum viö heimilis-
bókhaldiö og þá ekki síöur viö gerö skattframtalsins.
Þú pantar yfirlitiö í nœstu afgreiöslu íslandsbanka, þjónustugjald er 190 kr.