Vikublaðið


Vikublaðið - 04.02.1993, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 04.02.1993, Blaðsíða 6
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993 Tilverara og ég - Þetta eru nú ljótu hremm- ingarnar sem ég hef lent í, sagði kunningi minn þegar ég hitti hann á förnuni vegi um daginn. Og allt útaf einum andskotans gíróseðli. - Hvað ertu að segja mað- ur? Hvað kom fyrir? - Jú, hérna um daginn lét konan mig fá gíróseðil og bað mig að borga hann. Ég lofaði öllu fögru en svo gleymdi ég seðlinum í vasanum eins og verða vill og síðan hefur til- veran ekki verið sjálfri sér lík. Þetta byrjaði nú strax um kvöldið. Þegar ég kom heim ætlaði ég að slaka á yfir ein- hverri góðri mynd en viti menn, það var alveg sama hvaða spólu ég setti í mynd- bandstækið, öllu var spýtt út. Nema Mary Poppins. Svo ég engdist yfir þeim ósköpum hálft kvöldið. Konan hélt ég væri farinn að drekka aftur. Um nóttina dreymdi mig síð- an að ég væri að verða gamall og Sighvatur væri orðinn fé- lagsmálaráðherra. Ég get sagt þér að hún var ekki hvfldsöm sú nóttin. Daginn eftir hélt þetta áfram. Þegar ég kom út um morguninn höfðu ein- hverjir ungkratar skrúfað öll dekkin undan Toyotunni minni og málað á hana „Evr- ópu allt“. I vinnunni var síðan tekið á móti mér með þeim tíðindum að annaðhvort yrði ég að lækka um helming í launum og þrífa auk þess ein- býlishús forstjórans tvisvar í viku eða einfaldlega hætta. Um nóttina dreymdi mig síð- an að Jón Baldvin hætti í pólitík og Ólafur G. gerði hann að prófessor í siðfræði við Háskólann. - Jesús Kristur! - Enda var ég rauðeygur daginn eftir. Og þó átti þetta enn eftir að versna. Um morg- uninn beit strákurinn stykki úr skottinu á kettinum og kvik- indið hentist upp á skáp og ruddi niður ævafornu dönsku matarstelli sem hafði verið í ætt konunnar svo lengi sem elstu konur mundu. Allt í mask. Og þegar ég ætlaði að reyna að ná kettinum rann ég og datt á brotin og var í fjóra tíma á slysavarðstofunni með- an þeir voru að ná öllu helvítis postulíninu úr mér. Læknirinn sem sinnti mér trúði mér líka fyrir því að hann hefði sann- frétt að við væntanlega upp- stokkun í ríkisstjóminni fengi Eiður fjármálin! Ég var nú að því kominn að gefast einfald- lega upp. Svo kom konan að sækja mig og skammaði mig í leiðinni fyrir að hafa ekki borgað þennan gíróseðil. Hún hafði loks drifið í því og nú fór ýmislegt að breytast. Við komum við í sjoppu og feng- um okkur happaþrennu og viti menn; við unnum 100.000 krónur. Um kvöldið fengum við svo hæsta vinninginn í lottó, gamall skólabróðir hringdi og bauð mér vinnu hjá nýju fyrirtæki í rífandi upp- gangi og tengdamamma bauðst til að taka köttinn til sín. Um nóttina dreymdi mig að ríkisstjómin segði af sér, Alþýðubandalagið fengi hreinan meirihluta í kosning- um og aftur yrði bjart yfir á íslandi. - Það eru engin smáræðis umskipti. Hvaða gíróseðill var þetta eiginlega? - Áskriftin að Vikublaðinu. útvarp og sjónvarp mmmmm Söngvakeppni og sunnudagsheimsókn að vill nú svo til, að tími til útvarps- og sjón- varpsneyslu verður trúlega lít- ill yfir helgina, en samt eru liðir, sem ég reyni að láta ekki fram hjá mér fara. Mig langar til að sjá þáttinn um þann mikla öðling Ingimar Eydal, sem er á dagskrá á föstudags- kvöldið í Ríkissjónvarpinu en læt svo gott heita. Það virðist hins vegar vera eitthvað varið í kvikmyndina á Stöð 2 á föstudagskvöldið, a.m.k. góð- ir leikarar, svo maður sér til. Ég er á fundum og svo á árshátíð allan laugardaginn og missi því sennilega af fimm fyrstu lögunum í Söngva- keppninni, sem er árvisst til- efni deilna hér á landi. f þetta sinn er vinur minn Gunnar Þórðarson, tónskáld og snill- ingur, hljómsveitarstjóri, en einhverra hluta vegna hefur hann aldrei komið lagi að í Helgi Pétursson. þessari keppni. Það er spurn- ing hvort það eru meðmæli með tónlist hans eða ekki. í útvarpi sé ég að ég ætti að hafa tíma til að hlusta á Ævar Kjartansson í heimsókn á Rás 2 kl. 13:00 á sunnudag. Það eru fínir þættir hjá Ævari og hann hefur náð góðum viðtöl- um við fólk á þessum tíma, sem reyndar er kjörtími til þátta af þessu tagi, bæði í út- varpi og sjónvarpi. Ég veit svo ekki með kvöld- ið, sennilega reyni ég að kíkja á myndina um Anthony Blunt um kl. 10 á sunnudagskvöldið, en trúlega verð ég sofnaður. Kreppuþræll Alþýðubandalagið í Hafnarfirði hélt sitt árlega þorrablót um síðustu helgi. Þar skemmtu sér allir hið besta, stungu saman nefjum og sungu Kreppuþræl- inn, sem hér birtist með leyfi höfundar. Lag: Nú er frost á fróni Komin er kreppa á fróni, kyrjar Davíð minn hræðslusönginn sinn, sveri strákurinn. Valda vondu tjóni víst til sjós og lands hetjur höfðingjans í hrunadans. Hnípin þraukar þjóð, þrýtur vonasjóð, vex í geði glóð, gripin þungum móð. Líkust særðu Ijóni leggja í harða vörn langþreytt launabörn. Gaular göm. Enn þótt fylgið falli Foringjanum hjá ekki annað sjá en frjálshyggju þá. Oft með aurabralli auka vanda skjótt, hratt á helveg sótt, húmar nótt. Sjúkir þola þraut, þunga feta braut. Öldnum skenkja í skaut skömm og sultargraut. Lífs á lágum stalli, leggja í götu stein. Gömlum græðir mein gröfin ein. Því skal betur beijast, bera merkið hátt, halda f eina átt, efla þrek og mátt. íhalds vá skal verjast, velta úr sessi fljótt auðvalds dauðu drótt þá dagar skjótt. Þetta þorra teit þreytir vaskleg sveit, djörf og hjartaheit hún sitt takmark veit. Mega ei lengur merjast manrdeg gildi dýr. I starfi styrkur býr, stefnan skýr. Verðlaunahafi frá Svíþjóð Nú stendur yfir í ís- lenskum heimilisið- naði sýning á peysum unn- um af Grétu Sörensen. Gréta stundar nám í Stokk- hólmi, en útskrifaðist úr textfldeild Myndlista- og handíðaskóla Islands 1983. Gréta Sörensen hlaut „Stockholms Modecenters Designpris“. Gréta sækir litasamsetning- ar og áferð fyrst og fremst í íslenska náttúru, hraun, mosa, skófir og hveraútfell- ingar. Með því að pijóna saman bómull og ull af lamadýrum nær hún til dæmis fram áferð mosans. Munstrin eru flestöll íslensk en nokkur sænsk. Á sameig- inlegri sýningu sjö helstu hönnunarskóla í Svíþjóð, sem haldin var í júní á sfð- asta ári, hlaut Gréta verð- launin „Stockholms Mode- centers Designpris" fyrir peysur sínar og fatnað unn- inn úr íslensku lambsskinni. Gréta notast mest við tölvu- tengda prjónavél sem gefur aukna möguleika á útfærslu munstra. Þarna er hugsan- lega kominn einn af litlu vaxtarbroddunum í íslensk- um iðnaði. Voru menn ekki að tala um að auka þyrfti út- flutning? Litasamsetning og áferð á peysum sótt í hraun, mosa, skófir og hveraútfellingar. í sviðsljósinu mnHmn Dúndrandi svíng Karl Möller píanisti, Guðmundur „papa-jazz“ Steingríms- son og Þórður Högnason kontrabassaleikari verða í sviðs- ljósinu annað kvöld á Sólon Islandus ásamt bandaríska tenór- saxófónleikaranum Harry Allen. Það er Djassvakning sem stendur fyrir tónleikunum og hefjast þeir kl. 21.00 stundvíslega. Harry Allen er þrátt fyrir ungan aldur í hópi virtustu svíngblás- ara og búast má við dúndrandi sveiflu. Karl Möller, Guðmundur og Þórður eru allir góðkunnir djassleikarar og sjóaðir í sveifl- unni. Það er mikill fengur í hingaðkomu Harry Allens, hér hefur ekki heyrst klassísk bandarísk sveifla síðan hinir átta stóru léku í Óperunni með Teddy Wilson í broddi fylkingar. Áheyrendur mega eiga von á númerum eins og „April in Paris“, „Strike up the band“ og „Just one of those things", ásamt „Desafinatóum" og „Parkerblúsum". Þetta ætti að verða hin notalegasta kvöld- stund á Sólon, enda réttir menn á réttum stað.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.