Vikublaðið


Vikublaðið - 04.02.1993, Qupperneq 8

Vikublaðið - 04.02.1993, Qupperneq 8
8 ERLENT VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993 Karelía, Ladóga-Kar- elía eða Kirjála- skaginn er það svæði, auk hafnarborgarinnar PeLsamo við Ishafið, sem Finn- ar létu Sovétmönnum eftir, að undangengnum tveimur styij- öldum (vetrarstríðið 1939-40, framhaldsstríðið 1940-45) þar sem 90.000 manns létu lífið og helmingi fleiri særðust að ótöldu öðru tjóni. Við stríðslok fengu 400.000 íbúar Kiijála- héraða aðeins fáeina daga til að taka saman föggur sínar og hverfa bak við hin nýju landa- mæri. Sagt er að amma mín hafi tekið til, lagt dúk og blómavasa á borðið og sagt: „Þá geta þeir séð að hér hafa búið manneskjur“. Snúið aftur Sigurvegararnir skiptu svæðinu á milli Rússlands og Sovétlýðveldisins Karelíu, en þrátt fyrir nafn sitt hefur hið síðarnefnda aldrei verið finnskt. Eftir þetta fékk eng- inn Finni að heimsækja svæð- in, að undanskilinni Viborg, höfuðborg Ladóga-Karelíu. A síðustu árum hafa langar raðir áætlunarbifreiða flutt Karelíubúana heim á fornar slóðir. Flestir farþeganna eru aldnir að árum. Þeir reika þögulir um bæjarstæðin eða sitja á kvöldin og kyrja gömul lög. Loksins ratar gömul heimþráin út úr sálinni. Stríðið setti mark sitt á Uppgjofm fínt að vera af karelísku bergi brotinn. Miklar deilur risu ár- ið 1991 milli þeirra sem kröfð- ust endurheimtar Karelíu og þeirra sem vildu sitja við orð- inn hlut. Rök þeirra fyrrnefndu hafa verið sögulegs, fjárhagslegs og lögfræðilegs eðlis. Þeir vísa til sáttmála Hitlers og Stalíns. Að Sovétmenn hafi viðurkennt að það hafi verið þeir sem byrjuðu vetrarstríð- ið. Að svæðið hafi verið svo til eingöngu finnskumælandi fyrir stríð. Að vesalings út- slitna og fyrrum svo fagra Vi- borg hafi löngum verið næst- stærsta - og alþjóðlegasta borg - Finnlands. Að Japanir fái aftur eyjar sínar frá Sovét- mönnum. Hví ekki Karelía - hið goðsagnakennda land finnskrar menningar og Ka- levala? Land Kalevala of dýrt Rök andstæðinganna eru ekki síðri. Hvað á að gera við svæði sem er í efnahagslegri og stjórnarfarslegri rúst og sem myndi kosta milljarð á milljarð ofan að byggja upp á ný? Hvað á að gera við hálfa milljón Rússa sem hvorki kann finnsku né annað sem vestrænn kapítalisti er reiðu- búinn að greiða laun fyrir? Og ef við skyldum leggja landið undir okkur, hvað myndi ger- ast þegar rússneski nágrann- inn með aldalanga útþenslu- hefð að baki, verður sterkur á eða hvaða von sjá Finnar í austri? „Hvað viljið þið helst að við tökum með okkur?“ spurðum við Gennadij í srniann gegnum pabba sem túlk. „Takið hvað sem er, við eigum það hvort sem er ekki,“ svaraði bæjarstjórinn í Hiitola í Ladóga-Karelíu, heimabæ móður minnar. En bætti fljótlega við: „Góður gúmmíbátur eða myndbandstæki væri kannski ágætt“ Það virtist koma honum á óvart að við hefðum ekki ráð á slíku. Lauri E. Dammert blaðamaður er finnskur ís- landsvinur búsettur í Danmörku. Hann er rit- stjóri „Nord- isk Arbejds- marked“. þrjár kynslóðir af Karelíubú- um. Gamla fólkið náði sér aldrei eftir tapið og var ekki óalgengt að það flytti enda- laust, viðþolslaust árum sam- an. Unga fólkið missti af æsku sinni, hún skolaðist burt í umbreytingum sem voru of miklar til að hægt væri að kyngja þeim. Fólk sem nú lætur tár falla við rústir bernskuheimilanna getur kannski hægt á ferðinni. „Það er auðveldara að sætta sig við örlögin eftir heimsókn „þang- að,“ segir það. Við bróðir minn erum hluti af þriðju kynslóðinni, eða annarri kynslóð þeirra sem fluttir voru á brott, eins og sagt er. Við komum í fylgd eldri ættingja. Við ólumst upp meðal þeirra sem höfðu orðið að yfirgefa Kirjálahéruð, hlustuðum á frásagnir þeirra, glötuðum mállýskunni og vorum eldri ættingjum til mikils ama í róttækni 7. og 8. áratugarins. Oft vorum við jafnrótlaus og þeir. Nú sáum við með eigin augum víkina þar sem mamma og systkin hennar höfðu synt sem börn, tréð sem þau klifruðu í, brunninn sem þau drukku úr, lerkitréð sem afi gróðursetti rétt áður en stríðið braust út. Hvít-Rússar og mývargur Flestir sem nú byggja Kirj- álahéruð eru Hvít-Rússar sem fluttir voru þangað með valdi á sínum tíma. Þeir grétu ef- laust bitrum tárum þegar þeir voru sendir út í dimma skóga, sem þeir kunnu ekki á, innan um þrálátan mývarg, til að stuðla að uppbyggingu síð- ustu landvinninga heimsveld- isins. Þeim var sagt í skólan- um að Finnar hefðu byrjað sitt fasíska útþenslustríð árið 1939. Enn í dag eru margir hræddir um að „tsuhnan" snúi aftur og taki heimili þeirra. Hvert eiga þeir þá að fara? Þegar við komum til Hiit- ola sáum við að dúkurinn var horfinn. Sama gilti um blóma- vasann og húsið, eftir var ein- göngu steingrunnurinn. Búið var að rífa alla bóndabæi. Byggingarefnið hafði verið endumýtt til að reisa þorp sem virtust óþægilega hrörleg og illa byggð. Við hristum höfuðið þegar enginn sá til. Veltum því fyrir okkur hvort við værum svo dekraðir af veraldlegum gæðum að við héldum að fátækt væri sama og heimska. En amma og afi voru líka fátæk. Naglar voru munaðar- vara. Þeim var haldið til haga, þeir réttir við og eingöngu notaðir í ýtrustu neyð. Annars tálgaði afi skrúfur úr einivið. Hann gat gert hvað sem var með öxi og viði; húsgögn, sleða, vefstóla, allt. .. AlLsnægtir handan skógaríns Og hér sat smáfólk sigur- vegaranna og gat ekki einu sinni lagt tvær spýtur í kross, eða raðað saman þremur múr- steinum í beina röð. Meira að segja fuglakassamir héngu dapurlega í trjágreinunum. En það var snyrtilegt heima hjá Gennadij bæjarstjóra, því verður ekki neitað, og matur- inn var nægur og góður, ljóm- andi góður. Engin heimagerð viðarílát, ofin teppi eða heimasmíðaðir bátar sem finnskir bændur eru meistarar í. Við komumst að þeirri niðurstöðu að sökina væri að finna hjá verksmiðj- unni sem sér öreigunum fyrir ámm eftir þar til skipulögðum þörfum. Svei þeim sem grip- inn verður í þeirri kapítalísku einstaklingshyggju að tálga sínar eigin árar sjálfur. Kann- ski var hér að fmna ástæðuna fyrir ótrúlegum skorti á verk- kunnáttu og framtakssemi. Erfitt er að lýsa tilfmningu sem fylgir því að vera staddur í þorpinu og hugsa til þess að hinum megin við skóginn sé allsnægtaþjóðfélag með bens- ínsölum og myndbandaleig- um þar sem hillur í stórmark- aðnum svigna undan vöram. Vel vitandi að rússneskur gestgjafi okkar veit það líka. Áfallið er áþreifanlegt. Flestir ferðalanganna vilja aðstoða með því að láta smá fé af hendi rakna eða gefa aðr- ar gjafir. Þeir hafa sjálfir þekkt til fátæktar í kjölfar stríðsins. Margir hafa eignast vini fyrir austan. Meira en helmingur þeirrar neyðar- hjálpar sem Finnar senda til Rússlands fer til Karelíu. Svo ekki sé minnst á alla nýju bíl- ana sem seldir era, samstarfs- verkefni finnskra og rússn- eskra fyrirtækja, vegafram- kvæmdir o.s.frv. Karelía er nú sjálfstætt efnahagssvæði. Það skapar miklar væntingar - og kvíða. Rússarnir eru á leiðinni! Landamæri Rússlands og Karelíu sem liggja að Finn- Iandi era 1.300 kílómetra löng. Finnar vita mætavel, frá ferðum sínum austur á bóg- inn, að nágrannar þeirra era fátækir, svo og frá þeim hundraðum þúsunda ferða- manna sem koma frá Rúss- landi og Eistlandi. Helst háir það þeim að geta ekki náð sér í gjaldeyri eftir löglegum leið- um. Því selja þeir vodka, tóbak, gamla peningaseðla, blíðu sína og margt annað - á finnskum útimörkuðum. Yfir Finnska flóann berast bátar troðfullir af brennivíni. Verð- ið er oft skrifað með tússi á handarbakið. Hjá sumum sölumönnunum er um að ræða hreinar ránsferðir og eru þeir oft bendlaðir við rússn- esku mafíuna. U.þ.b. fjórð- ungi þess sem finnskir toll- verðir gera upptækt er smygl- að úr austurátt. Ævaforn Rússahræðsla og hatur Finn- anna er farið að láta á sér kræla. Vegfarendur era af- undnir, verslunarmenn hafa auga með rússneskum við- skiptavinum o.s.frv. Kvíðinn vex - ef þeir kæmu nú allir æðandi þegar matargeymslurnar tæmast? Finnskum landamæravörðum hefur ljölgað. Ef flóttamenn- imir koma verða það varla íbúamir í Hiitola, heldur Pét- ursborgarbúar í fæðuleit. Gennadij fyrrnefndi var með ýmsa fæðuöflun í gangi, hann var með kartöflubeð, gróður- hús úr plasti, rollu átti hann í félagi með öðram og nokkrar hænur. Það var mér ráðgáta hvenær hann hafði tíma til að sinna launavinnunni. Hann tíndi sveppi og veiddi fisk enda átti hann erfitt með að dylja áfergju sína þegar við færðum honum fiskinet. Hann vissi hvemig átti að bjarga Karelíu: - Klukkan tíu lýsum við yfir sjálfstæði okkar. Klukkan ellefu segjum við Finnum stríð á hendur og gefumst upp á hádegi. Hahaha. Meira vodka? Ja, hvemig væri að endur- heimta glataða landið? Eftir hran Sovétríkjanna hefur þótt ný? í því sambandi má láta hugann reika aftur til bardag- ans við Poltava árið 1709, þegar örlög sænska stórveldisins voru ráðin. Pétur miklu vildi reisa nýja höfuðborg við Finnska flóann og til að vemda hana sem best lagði hann meiri hluta Karelíu undir sig. Heikki Talvitie, sendiherra Finna í Moskvu, er borinn og bamfæddur í Viborg. Hann hefur þetta að segja um stöðu Finnlands: „í hvert skipti sem þetta svæði hefur verið finnskt á pappírnum hefur það krafist mikilla fórna þegar við höfum misst það aftur . . . Ef við viljum stöðva þessar sveiflur leyfum við landa- mærunum að liggja þar sem þau eru nú. Það er trú mín að það hlífi okkur við frekari fórnum. Ástandið við Eystra- salt er sérlega óstöðugt. Það eina sem getur tryggt stöðug- leika er að finnsk yfirvöld hrófli ekki við landamæran- um, þrátt fyrir þær réttmætu umræður sem nú eiga sér stað um Karelíu." (Suomen Kuv- alehti 4.12.1992.) Nýr vináttusamningur 1991 var vináttusamningur- inn við Sovétmenn endur- skoðaður og hann endanlega undirritaður. Hið nýja var að hvorki var minnst á hemaðar- aðstoð né Finnum bannað að ganga í félag með Þjóðverjum eða bandamönnum Þýska- lands, en það bann hefur verið helsti þrándur í götu fyrir því að Finnar gengju í EB. Þar segir einnig að ekki megi hreyfa við núverandi landa- mæram. Ef ágreiningur komi upp beri að leysa hann í anda Helsinki-sáttmálans. Finnsk yfirvöld era fáorð um þessi mál enda hvorki hverfur Rússland né veikist meir en orðið er. Frá stríðs-

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.