Vikublaðið


Vikublaðið - 04.02.1993, Side 9

Vikublaðið - 04.02.1993, Side 9
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993 9 lokum hefur utanríkisstefna Finna mótast af ótta við hat- rammar deilur við nágrann- ann í austri. Ef hróflað er við ástandinu nú getur það haft afleiðingar seinna. Stefna Finna í öryggismál- um hefur þó breyst skjótt og afdráttarlaust. Parísarsáttmál- anum frá 1948 hefur verið rift, en hann kveður m.a. á um að sigurvegarar seinni heims- styrjaldarinnar haft sitt að segja um stærð herafla Finn- lands. Þá hafa finnsk stjóm- völd keypt 57 bandarískar Hornet-árásarvélar þrátt fyrir kreppu og samdrátt í þjóðfé- laginu. Að loknu samtali við Mauno Koivisto Finnlands- forseta lét Manfred Wörner, framkvæmdastjóri N-Atlants- hafsbandalagsins, hafa eftir sér jákvæðar athugasemdir um hugsanlega aðild Finna að NATO. Landvarnanámskeið njóta æ rneiri vinsælda, en hefðu ef- laust verið bönnuð á tímum annars konar stöðguleika. Kannski er það þessi kvíði sem rekur Finna í áttina að EB. El- isabeth Rehn, vamar- og jafn- réttismálaráðherra Finna, hefur sagt að „aðild að EB geti dreg- ið úr óheppilegum þrýstingi á öryggi okkar úr annarri átt“. Æðsti yftrmaður finnska hers- ins, Jan Klenberg, er ekki eins bjartsýnn: „Viðræður okkar við EB mega ekki mótast af því að við höldum að EB-aðild veiti okkur meira hemaðarlegt ör- yggi. Á hinn bóginn má segja að hernaðarlega mæli ekkert gegn aðild að EB . . . Öryggi okkar hefur alltaf verið tengt hernaðarstefnu Rússa. Við verðum því að vera reiðubúin þeirri stöðu að Finnland lendi aftur í hernaðarlegum sjón- auka þeirra.“ Afvopnun Rússa í ýmsum A-Evrópuríkjum hefur haft í för með sér að hermönnum hefur fjölgað við fmnsku landamærin. Rússar segja að þessar tilfærslur séu ekki hernaðarlegs eðlis, heldur verði einhvers staðar að koma hermönnunum fyrir. Lífsgæðasprengjan Hrun Sovétríkjanna hafði alvarlegar afleiðingar fyrir finnskt efnahagslíf. Þaðan kom helmingur útflutnings- tekna Finna og má hér finna eina orsök þess að atvinnuleys- ið þar í landi nemur nú 18%. 50.000 manns hafa misst at- vinnu sína í iðnaðinum vegna þessa. En samtímis liggja margir möguleikar í nýjum að- stæðum því rússneski markað- urinn er stór - og þarfimar miklar. Pétursborg með 6 millj- ónir íbúa liggur aðeins 250 km frá finnsku landamærunum. Hugsa sér að geta selt öllum föt, myndbandstæki, eggja- suðutæki og farsíma! En Rússamir em engir borgunarmenn. Þrátt fyrir ýmsar hernaðarlegar vanga- veltur er eina yfírvofandi hættan sú að Rússland hrynji saman. Rússnesk mánaðar- laun samsvara eins dags at- vinnuleysisbótum í Finnlandi. Allt virðist á niðurleið. Að mörgu leyti minnir ástandið í Rússlandi á Weimar-lýðveld- ið; versnandi Iífskjör, hrikaleg verðbólga og vaxandi urgur meðal fólks. Hvað gerðist ef rússneska þjóðin færi að svip- ast um eftir „sterkum leið- toga“? Jurí Derjabin, sendi- herra Rússa í Helsingfors, orðar það svo: „Hið eina sem Finnar, Evrópa og kannski Rússar hafa að óttast er að stefna Boris Jeltsins verði undir í valdabaráttunni í Kreml.“ Það styttist. . . Við kveðjum þorra með miklu blóti þann 20. febrúar nk. í Veislurisinu á Hverfisgötu 105. Miðaverðið það sama og í fyrra aðeins kr. 2.900.-. Félagar: tilkynnum þátttöku sem fyrst til Margrétar Tómasdóttur á skrifstofunni (sími 17500), Guðrúnar Kr. Óladóttur (sími 15874) eða Tryggva Þórhallssonar (sími 624031). Stjórn ABR. Utboð Gögn í eftirfarandi útboð eru til afhendingar á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík. 1. Sölvhólsgata 7, Reykjavík, fullnaðarfrág. 4. hæð. Skilatrygging kr. 10.000.-. 2. Þrif skólahúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Gögn seld á kr. 10.000.-. Innkaupastofnun ríkisins. „STJÖRNUBÓKIN HITTIR BEINT í MARK!“ Með spariáskrift að Stjörnubók er unnt að losa alla innstœðuna á sama tíma. SÍJORNUBOH BÚNAÐARBANKANS 4* Verðtrygging og háir raunvextir. 4* Vextir bókfærðir tvisvar á ári. Lausir til útborgunar eftir það. 4‘ Hver innborgun bundin í 30 mánuði.* Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar. 4* Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma. •4 Lántökuréttur til húsnæðiskaupa. Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir til allt að 10 ára. * Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til úttektar á bundinni fjárhæð gegn innlausnargjaldi. BUNAÐARBANKINN Traustur banki Eyjólfur Sverrisson, knattspymumaður

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.