Vikublaðið - 04.02.1993, Blaðsíða 14
14
LISTIN
VIKUBLAÐIÐ 4. febrúar 1993
Ungt og leikur sér
Mikið hefur verið rætt og ritað um það
þegar eldri borgarar þessa lands setjast í
helgan stein. Sumir fara glaðir á sín eftirlaun,
en öðrum sem hafa enn fulla starfsorku
finnst stundum að þeir séu settir til hliðar og
setjast jafnvel með hendur í skaut og bíða.
Svo eru það þeir sem hella sér út í áhuga-
málin hver sem þau kunna að vera. Láta
stundum gamlan draum rætast, draum sem
ekki gaíst tími til að sinna þegar brauðstritið
átti hugann allan og ekkert annað komst að.
Félagar í leikfélagi Félags eldri borgara,
Snúður og Snælda, eru gott dæmi um þá
sem ekki bíða þess sem koma skal.
Leiklistin á hug þeirra allan og nú hafa þau
öðru sinni sett upp leikrit, „Sólsetur" eftir Sól-
veigu Traustadóttur. Fyrir ári sýndu þau 20
sýningar á leikriti Kristínar og Iðunnar Steins-
dætra „Fugl í búri“ fyrir fullu húsi. Þá voru
flestir leikararnir að stíga sín fyrstu spor á leik-
sviði. Nú segja kunnugir að þessir sömu leik-
arar séu sem óðast að nálgast það að líta út sem
atvinnumenn í faginu. Tíðindamaður VIKU-
BLAÐSINS brá sér á sýningu um daginn og
skemmti sér konunglega enda létt og skemmti-
legt leikrit sem gerist á elliheimili úti á lands-
byggðinni. Það er virkilega gaman að sjá fyrr-
verandi kennara, sjómenn og matráðskonur í
stórum hlutverkum á þessari ágætu sýningu.
Með helstu hlutverk fara: Þorsteinn Ólafsson,
Brynhildur Olgeirsdóttir, Sigrún Pétursdóttir,
Anna Tryggvadóttir, Ársæll Pálsson, Iðunn
Geirdal, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Sveinn Sæ-
mundsson og Björg Þorleifsdóttir. Leikstjóri er
Bjarni Ingvarsson.
Sigrún Pétursdóttir.
-Ð
-D
Verðlaunahafi fyrir nr. 9
Verðlaunahafi fyrir myndagátu nr.
9 er Dröfn Guðmundsdóttir, Álfa-
skeiði 96, 220 Hafnarfirði. Hún
fær bókina um Ástu Sigurðardótt-
ur, Minn hlátur er sorg, eftir Frið-
riku Benónýs.
Ráðning 8. myndagátu: Vigdís
lætur ekki vini sína hlaupa með sig
í gönur. Eining er markmið forset-
ans.
VERDLAUNAGÁTA 11
Lausnir sendist Vikublaðinu, Laugavegi 3, I0l Reykjavík. Skilafrestur er
tvær vikur. Verðlaun fyrir myndagátu nr. II er bókin Ó fyrir framan eftir
Þórarin Eldjárn.