Vikublaðið


Vikublaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 4

Vikublaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 4
4 Borgarmálin VIKUBLAÐIÐ 7. JANUAR 1994 Nú þegar bjartsýnisfólk eygir von um að fella borgarstjórnaríhaldið er ekki úr vegi að líta aðeins aftur til áranna þegar draumurinn rættist og vinstrimenn náðu meiri- hluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Hvernig gekk vinstri flokk- unum að stjórna borginni? Hver voru vandamálin og hverju náði vinstri stjórnin fram? vinstri flokkanna eru ekki svona fyrirferðarmikil og þau falla heldur ekki svona illa að umhverfi sínu. Þau eru görnlu húsin sem fengu að standa, börnin sem fengu inni á dagheimilum, aldraðir og fatlaðir sem fengu þjónustu við hæfi, ung- lingar sem fengu félagsmiðstöðvar. Ekkert af þessu varð til þess að steypa borginni í skuldir. Þvert á móti. Hún stóð mun betur fjár- hagslega þegar vinstri meirihlutinn skilaði af sér árið 1982, heldur en þegar hann tók við stjórn árið 1978. „ Við borguðum upp kosningavíxilinn frá 1974“ Með þessu á Sigurjón við þær skuldir sem Sjálfstæðisflokkurinn safnaði vorið 1974. Þá voru kosn- ingar bæði til þings og sveitar- stjórna og eins og jafnan á slíkum vorum var framkvæmt ótæpilega og oft án þess að eiga fyrir reikn- ingunum. Það var ekki fyrr en 1976 sem byrjað var að borga þessar skuldir niður. Þá voru skattar greiddir eftir á og í mikilli verð- bólgu varð það til þess að menn greiddu skatta af lægri tekjum en þeir höfðu á hverjuin tíma. Þetta kom sveitarfélögunum illa og Sig- urjón segir að flest önnur sveitarfé- lög hafi safnað skuldum á árunum '78 til '82, en traust fjárhagsstjórn vinstri meirihlutans hafi komið í veg fyrir að svo færi líka í Reykjavík og það þó að hann hafi ekki tekið við góði búi árið 1978. Hann bæt- ir við: „Fram til þessa hafði alltaf verið talað um vinstri glundroða og því verið haldið frain að vinstri menn gætu ekki stjórnað fjárhag borgar- innar. Við afsönnuðum það.“ Nú eftir bráðum tólf ára stjórn í- haldsins á borginni er fjárhagur borgarinnar aftur mjög slæmur þó að aðstæðurnar allt fram á síðustu ár hafi verið meirihlutanum mjög hagstæðar. Sigurjón vill orða það svo að Sjálfstæðisflokkurinn í borg- arstjórn hafi fengið þrjá happ- drættisvinninga í fjármálum borg- arinnar. Sá fyrsti hafi verið þegar verðbólgan lækkaði 1983 sem leiddi til þess að sama útsvarspró- senta gaf meiri tekjur í borgarsjóð. Annar vinningurinn var breyting á lögum um tekjustofha þannig að staðgreiðsla var tekin upp og í þriðja lagi hafi verið sett ný lög um vcrkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga sem komu Reykjavíkurborg mjög vel. Þrátt fyrir þetta safnaði meiri- hluti Sjálfstæðismanna skuldum. Sigurjón segir að á síðustu tveimur áruin hafi ffamkvæmdir umfram tekjur numið tveimur milljörðum króna. Nýr meirihluti vorið 1994 tæki því ekki við góðu búi. „Nei og það yrði enginn vafi á því að hann gæti ekki leikið sér að fjármunum og byggt monthallir eins og meirihluti Sjálfstæðis- flokksins hefur gert.“ —is. Borg í Ijóma En hvað gerðistvorið 1978? Var þetta síðbúin íslensk vinstrisveifla, tíu árum á eftir þeirri sem flæddi yfir megin- land Evrópul968? Var þetta svona óvenju heppileg skipting atkvæða eða hvað gerðist? Margir telja að persónufylgi Guðrúnar Ilelgadóttur hafi fært vinstri- mönnum sigurinn. Eitt er víst: Hann var óvæntur. Þannig lýsir Guðrún Helga- dóttur jiví sem gerðist: „Eg hafði tekið 4. sæti á lista Alþýðubanda- lagsins af greiðasemi við flokkinn. Eg bjóst aldrei við því að komast inn. Svo fengum við fimin menn inn. Við bjuggumst ekki við þessu og kannski brá okkur mest sjálf- um. Það datt engum lifandi manni í hug að við bætmrn við okkur þremur mönnum. En til- finningin var engu lík. Ég held að það gleymi þessarri nótt enginn, jiað voru allir svo glaðir. Veðrið var injög gott þessa nótt og þegar ég vaknaði daginn eftir fannst mér borgin standa í ljóma. Auðvitað gerðum við alls konar vitleysur. Þetta var aðeins eins manns meirihluti og því miður var einum fulltriia Alþýðuflokks- ins ekki treystandi. Hún átti það til að hlaupa út undan sér og styðja Sjálfstæðisflokkinn. Svo var fyrir í kerfinu magnaður stokkur af embættismönnum sem unnu gegn okkur. Hver einn og einasti var Sjálfstæðismaður og líklega hefur þeim ekkert litist á að eiga að fara að vinna fyrir einhverja vinstrimenn. Auðvitað áttum við að skipta þeim út og við höfum líklega ekki verið nógu hörð. Það voru líka mistök að ráða ó- pólítískan borgarstjóra. Hann þurfd alltaf að standa í málamiðl- unum milli flokkanna. Það er auðvitað miklu einfaldara að stjóma bara með borginni með pennastriki og láta svo rétta upp hönd fyrir sér. Við komum samt heilmörgu áleiðis. Við opnuðum heimili með leiguíbúðum fyrir aldraða að Lönguhlíð 3. Við gerðum heil- inikið í dagvistarmálum og létum gera áætlun til margra ára, sem Guðrúnu Helgadóttur var að stór- um hluta cignaður kosningasigur G-listans. „Eg held að enginn gleymi þessari nótt og þegar ég vaknaði daginn efiir fannst mér borgin standa í ljóma“. hefur ekkert verið farið eftir síð- an. Við keyptum heilmikið af leiguíbúðum fyrir skjólstæðinga borgarinnar og við byggðum upp Grjótaþorpið. Það má ekki gleyma því að á þessum árum stóð til að láta rífa það allt saman. Við eigum líka þá þróun sem hefur orðið í veitingahúsum í miðbæn- um. Það varð mikil breyting á borginni á þessum tíma. Sigurjón Pétursson borgarfúll- trúi Alþýðubandalagsins í Reykjavík var forseti borgar- stjómar á þessum ámm. Hann seg- ' ir vinstri meirihlutann hafa náð miklum árangri í stjórn borgarinn- ar. I Iins vegar hafi mikið af þeim breytinguin verið tekið til baka og það sem ekki hafi verið hægt að taka til baka hafi verið reynt að þegja í hel. „ Við lögðurn áherslu á að auka lýðrceðið“ Borgarfulltrúum var fjölgað úr 15 í 21 og var helsta röksemdin fyrir þeirri breytingu sú að auka lýðræðið. „Nú þegar borgarfúlltrúum hef- ur aftur verið fækkað em þeir jafn- inargir og árið 1907 þegar aðeins bjuggu 9000 manns í Reykjavík. Nú em þingmenn Reykjavíkur- kjördæmis 18 eða þremur fleiri en borgarfulltrúamir. Líklega er þetta einsdæmi í heiminum," segir Sig- urjón. Margar breytinganna fólust í því að draga vald frá embættismönnum til kjörinna fulltrúa. Það var ekki síst nauðsynlegt vegna þess að flestir ef ekki allir embættismenn Reykjavíkur voru góðir og gegnir Sjálfstæðismenn. Sigurjón segir að Reykjavfloirborg hafi á skipa hæf- um embættismönnum. Þeir hafi ekki unnið gegn vinstri meirihlut- anum en heldur ekki hjálpað mikið; „hinir pólítískt kjörnu fulltrúar þurftu að eyða meiri tíma í stefnu- mörkun en annars hefði verið.“ Vinstri meirihlutinn fól nefndum borgarinnar aukin völd og stofnaði framkvæmdaráð sein fjallaði um verklegar framkvæmdir á vegum borgarinnar. Hann heimilaði starfsmönnum stofnana og fyrir- tækja Reykjavíkurborgar að til- nefna menn í stjórnir, gerði borg- arskipulag að óháðri stofúun og réð óháðan borgarstjóra, Egil Skúla Ingibergsson. Sú ákvörðun var umdeild. Margir tala um að sterkara hefði verið að hafa pólítískan borgarstjóra sem væri meiri ímynd meirihlutans. Um þetta segir Sigurjón að Egill Skúli Ingibergsson hafi verið ákaflega vinsæll og farsæll í starfi. Ef litið er til þeirra breytinga sem vinstri mcirihlutinn gerði á stjórnkerfinu verða orð starfskonu Kvennalistans í nýlegri Pressu- grein dálítið hlægileg, en þar segir hún innan sviga eftir að hafa lýst því hve lengi Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið borginni: „mínus fjög- ur ár, sem þó breyttu engu um valdastrúktúr borgarkerfisins“. I næstu kosningum hafði flokkunum sem buðu fram til borgarstjórnar fjölgað um einn - Kvennaframboð- ið. Atkvæðin dreifðust, Sjálfstæðis- flokkurinn vann auðveldan sigur og var ekki lengi að taka til baka allar breytingar í lýðræðisátt sem vinstri meirihlutinn hafði gert. I fyrrnefndri grein segir Þórunn Sveinbjarnardóttir starfskona Kvennalistans einnig að þegar minnst sé á hugmyndir um vald- Mikil sigurvíma greip um sigþegar kosningaúrslitin 1918 urðu Ijós. Frá kosningagleði G-listans í Laugardalshöll íjúní. dreifingu og hverfisstjórnir falli öðrum minnihlutaflokkum en Kvennalistanum allur ketill í eld. „Þeir hafa nefnilega ekki hugsað sér að breyta valdastrúktúr Sjálf- stæðisflokksins.“, segir stjórnmála- fræðingurinn Þórunn Sveinbjarn- ardóttir. Hvað varðar hverfis- stjórnirnar þá standa orð gegn orði því að Sigurjón Pétursson segir það alltaf hafi verið þeirra tillaga að hverfin fái aukið vald. Hins vegar var vinstri meirihlutinn mjögtæp- ur og erfitt reyndist að koma mikl- um skipulagsbreytingum á. „Byggðum ekki stór- halUr en gerðum margt jyrirþá sem minna mega sín“ Á valdatíma vinstri meirihlutans voru opnuð tólf ný dagheimili. Biðlistar voru opnaðir öðrum en einstæðum foreldrum og skóla- fólki. Skipulagi var komið á dag- mæðrakerfið og dagheimili opnuð þroskaheftum. Það var líka vinstri meirihlutinn sem stofnsetti Ferða- þjónustu fatlaðra, nokkuð sem Sjálfstæðimenn hafa ekki haldið á lofti enda hefúr þessi þjónusta ger- breytt aðstæðum fatlaðra. Sigurjón segir þau líka hafa styrkt Oryrkja- bandalagið mjög rausnarlega til kaupa á vemduðum vinnustað. í málefnum aldraðra var líka mikið unnið. Byggðar vom leiguíbúðir fyrir aldraða enda hafa ekki allir efni á að kaupa þjónustuíbúðir. Komið var á fót dagvistun fyrir aldraða og hafin bygging B-álmu Borgarspítala sem ætluð var fyrir langlegusjúldingu en hefur undir stjóm Sjálfstæðismanna ekki enn komist í gagnið. Líka var inikið starf unnið í fræðslu og æskulýðs- málum, t.d. opnaðar þrjár félags- miðstöðvar fyrir unglinga. Líklega hafa flestir borgarbúa gleymt því nú en þegar vinstri meirihlutinn tók við árið 1978 stóð til að rífa Bernhöftstorfúna. Þá vom ráðandi öfl sem þóttu gömul Sigurjón Pétursson: „ Við afs 'ónnuðum stjóm áfjárhag horgarinnar“. hús ljót og engin ástæða til annars en að rífa þau til þess að rýma fyrir nýjum og „glæstum" steinhúsum. Komið var í veg fyrir þetta: Torfan var friðuð og nýju lífi hleypt í mið- bæinn á margan hátt, t.d. var opn- aður útimarkaður við Lækjatorg. Nú dettur engum í hug að rífa Torfuna, en heyrst hefur að til að vinstrimenn gtetu ekki haft góða standi að rífa eitthvað af húsum í nágrenni við Ráðhúsið til þess það njóti sín betur! Minnismerki urn stjórnun Sjálf- stæðisflokksins er þessi stóri steinkumbaldi sem meirihluti borgarbúa var á móti og fellur alls ekki inn í umhverfið. Minnismerkin um stjórnun Minnismerki meirihlutanna

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.