Vikublaðið - 07.01.1994, Blaðsíða 7
VIKUBLAÐIÐ 7.JANUAR 1994
Viöhorf
7
Ofbeldi gegn börnum í Ijósmiðlum
- hefur það nokkuð að segja?
Ofbeldi í ljósmiðlum (sjón-
varpi, kvikmyndum,
myndböndum, tölvuleikj-
um) og áhrif þess á börn og ung-
linga hefur enn einu sinni náð at-
hygli fjölmiðla - um stund. Ein á-
stæða þess er nýgenginn dómur í
máli sem varðar morð á 2ja ára
gömlum breskum dreng, James
Bulger. Tveir 10 ára piltar drógu
hann afsíðis þegar móðir hans Ieit
af honum í stórmarkaði og murk-
uðu úr honurn lífið sér til afþrey-
ingar. Aðfarirnar voru sláandi líkar
því sem sjá má í vinsælli og vel-
heppnaðri bíómynd.
Morðið á Jamie litla verður hér
látið liggja milli hluta, en athygl-
inni beint að staðhæfingum þeirra
sem vilja gera lídð úr áhrifum kvik-
mynda- og sjónvarpsofbeldis.
Drottins bam og
Mammons
Sjónvarpsstjórar Islands vörðu
ofbeldið í umræðuþætti á dögun-
um, hvor fyrir sína stöð. Stjórinn á
Ríkisútvarpinu, víðlesinn í krism-
um ritum, benti á þá á hinni stöð-
inni - þeir væru mildu verri - og
þakkaði eflaust skapara sínum fyrir
það. Þótt við blasi að RÚV standi
sig ekki eins illa og Stöð 2, var sá
misskilningur ábyggilega nokkuð
útbreiddur að búast mætti við ris-
meiri málflutningi.
Sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 bar
fram gamla lummu um að engar
kannanir hefðu sýnt ótvírætt fram á
að ofbeldi í sjónvarpi hefði skaðleg
áhrif á börn. Jafnframt var auð-
sjáanlegt að honum var málsvörnin
óljúf og lofaði hann, blessunarlega,
bót og betrun. Og vonandi mun
Markaðurinn, sem margir vilja láta
létta af sér öllum siðferðilegum
byrðum, ekki beygja hans góða
vilja.
Fullyrðingin um að engar kann-
anir hafi sýnt ótvírætt fram á skað-
leg áhrif ofbeldis í sjónvarpi og
kvikmyndum er í meira lagi hæpin
og verður vikið að því síðar.
Staðhæfingar sem ganga í þá átt
að afsaka ljósmiðla eru fleiri; neína
má tvær sem heyrst hafa nýlega.
Hin fyrri er sú að þessir miðlar
endurspegli bara ofbeldið í þjóðfé-
laginu, rætur þess liggi í raun mun
dýpra. Því niiður ferst jafiian fýrir
að benda á þessar ræmr, sem ættí
að vera Iétt verk þeim sem hefur
fundið þær. Að auki trúa margir því
að sjónvarp og kvilunyndir endur-
spegli ekki eingöngu þjóðfélagið
heldur mótí það jafhframt. Aug-
lýsendur trúa þessu t.d. svo stíft að
þeir láta óhikað af hendi stórar
fjárfúlgur því tíl staðfestíngar.
Síðari staðhæfingin segir að
vissulega hafi ofbeldið skaðleg á-
hrif en aðeins að uppfyllmm öðr-
um skilyrðum: erfitt heimilisástand
eða geðræn vandamál, námserfið-
leikar, vanhirða o.s.frv. Víst hefur
sá mórall verið að vinna á að fátækt
og félagsleg eymd sé eðlilegur hluti
samfélaga sem þó búa við allsnægt-
ir (stærsta vandamálið er að torga
þeim) og að menn verði bara að
sætta sig við afföllin, taka þeim
með karlmannslund, þ.e. þeir sem
bemr eru settir. En sé hugsunin í
staðhæfingunni bomuð verður ekki
annað séð en að ofbeldi í ljósmiðl-
um skaði sérstaklega þau börn og
þá unglinga sem eiga á einhvern
hátt undir högg að sækja. Ekki skal
það dregið í efa en minnt á að börn
á íslandi eins og víðar eiga almennt
séð undir högg að sækja.
Hið átakanlega við þennan katt-
arþvott er hve rnenn eiga auðvelt
nteð að afneita skynsemi sinni og
margreyndum sannindum.
Boð og bönn
Orð dagsins er „frelsi“ og heyrist
aðallega þegar rætt er um hags-
muni bisnessmanna. Miklu sjaldn-
ar er það nefnt í sambandi við heil-
brigðismál, mennmn, atvinnumál,
börn og barnauppeldi. Hugtakinu
hefur reyndar verið nauðgað svo
herfilega undanfarið að það er vart
nema leppur, nothæfur til þess eins
að auglýsa greiðslukort og dömu-
bindi („fullkomlega frjáls“).
Umræða um ofbeldi í ljósmiðl-
um á erfitt uppdráttar m.a. vegna
þess að hún strandar á einhverju
andlausu mjálmi á borð við „ég er
svo gasalega mikið á inótí öllum
boðum og bönnurn". Þetta er að
sönnu ódýr afgreiðsla, en fýrst og
ffemst grundvallarmisskilningur,
&
m
CU
egar búddisminn barst tíl Kína fýrir um
það bil tvö þúsund árum, héldu margir
kínverskir menntamenn fýrst að hann
væri indversk útgáfa af taoisma. Sumir gengu
jafnvel svo langt að halda því fram að Búdda og
Laotse væru einn og sarni maðurinn, Laotse
hefði farið til Indlands eftir að ævistarfi hans
lauk í Kína. Surnir frumkvöðlar búddismans í
Kína ýttu undir þennan misskilning urn skyld-
leika við taoismann með því að nota taoísk
hugtök tíl að lýsa hugmyndum sínunt.
Þegar búddismi náði betri fótfestu í Kína og
fleiri búddísk rit höfðu verið þýdd, kom hins
vegar í Ijós að þetta var reginmisskilningur.
Kenningar búddisma og taoisma eru andstæðar
í veigamiklum grundvallaratriðum. Búddistarn-
ir telja t.d. að hinn duldi grundvöllur tilverunn-
ar sé tóm eða tilveruleysi. Taoistarnir telja hins
vegar að hinn sameinandi þáttur allra fýrir-
bæra, Tao, eigi sér raunverulega tílveru þótt
Tao sé óáþreifanlegt eitt sér og birtíst einungis
í gcgnum áhrif sín á umheiminn.
14. brot úr Bókinni um Veginn
Það scjíi borft er á en sést ekki, er nefnt hið
dulda. Það sevi blustað er á en heyrist ekki, er nefnt
hið danfa. Það sem þreifað er á enfinnst ekki, er
Umritun þýðanda
Það sem við sjáum ekki köllum við ósýnilegt,
það sem við heyrum ekki köllum við hljóðlaust
og það sem við getum ekki snert köllum við óá-
þreifanlegt. Þetta þrennt verður ekki skilgreint
nánar hvert fýrir sig og það rennur saman í eitt.
Það er ekki hægt að lýsa það upp og það
varpar engum skugga. Það er svo óljóst að við
höfúm engin orð tíl að lýsa því. Það á rætur að
rekja til hins óhlutbundna (upphafs veraldar-
innar). Því er lýst sem formlausu fýrirbæri með
óhlutbundna birtingarmynd sem er ákaflega
óskýr. Það sést hvorki móta fýrir upphafi þess
né enda þótt grannt sé gáð.
Gamalreyndar aðferðir, Tao, sem eiga rætur
í frumeðlinu duga best til að ná valdi á vanda-
málum nútímans. Með því að fylgja hinni
ævafornu leið, Tao, fortíðarinnar, er hægt að
ná valdi á vandamálum nútímans. Sagt er að
kjarni stefnunnar, Tao, sé fólginn í því að geta
skilið uppruna heimsins.
Þýðandi: Ragnar Baldursson.
nefiit hið óáþreifanlega. Ekki er hægt að
skýrgreina þetta þrennt ogþað rennurþvt
saman i eitt. Það lýsist ekki að ofan og sortn-
ar ekki að neðan. Það er svo óljást að ekki er
htegt að gefa því nafn.
Það er afturhvarf til hins óhlutbundna.
Sagt er að það hafi formlaust forrn og óhlut-
bundna mynd. Sagt er að það sé óskýrt og
þokukennt. Sé því mœtt sést ásýnd þess ekki,
og sé þvíjýlgt sést ekki á hak þess.
Sé leið fortíðariiinarfylgt næst vald á nú-
timanum. Sagt er að grunnþráður þessarar
leiðar séfólginn í hæfileikanum til að þekkja
upphaffortíðarinnar.
misskilningur sem ekki er með öllu
ómeðvitaður og snertir þjóðfélags-
umræðu yfirleitt.
Það að menn sammælist um að
ekki sé heppilegt að leggja bann við
einhverju fyrirbæri, felur ekki í sér
að þar með sé óheimilt að gagn-
rýna það eða hafa á því skoðun. Ef
fólk ætlar að láta alla hluti yfir sig
ganga vegna þess eins að þeir eru
ekki bannaðir með lögunt, þá er illa
komið. Siðað samfélag er til orðið
vegna þess að einhverjir höfðu fyr-
ir því að byggja það upp; þjóðfélag
þar sem borgararnir hafa enga
skoðun af þvf þeir eru svo ofsalega
„frjálslyndir og nútímalegir", það
stendur í sörnu sporum og þjóðfé-
lag þar sein ekkert skoðanaffelsi er
fyrir hendi.
Það er ekki örgrannt um að það
frjálslyndi sem menn vilja veifa sé
stundum meira í ætt við sinnuleysi
og doða, yfirborðsmennsku, hug-
leysi og fleira ókræsilegt - og hefur
þegar komið hart niður á íslensk-
um börnum og unglingum.
Ofbeldi er hluti tilveru mannsins
og um hana verður ekki fjallað án
þess að það komi einhversstaðar
við sögu. En hér er verið að tala um
oflieldi sem sérstaklega er beint að
börnum og unglingum, ofbeldi til
afþreyingar og skemmtunar. Of-
beldisdýrkun.
Reyndar er nær að tala um inn-
rætingu en afþreyingu eða
skemnttun. Þorbjörn Broddason
dósent segir í Morgunblaðinu
17.10. 1992: „Við 3 ára aldur cru
börn orðnir meðvitaðir og mark-
sæknir sjónvarpsnotendur; þegar
skólagöngu lýkur hafa þau eytt
meiri tíma ffaman við sjónvarps-
skjáinn en í skólastofunni“.
Skyldi þetta hafa einhver áhrif?
Skiptír einhverju máli á hvað er
horff?
Sérfrceðingar segja
Til þess að þreyta ekki með
sleggjudómum þá sem gera kröfur
um strangvísindalega hugsun skal
nú vitnað til Ólafs Ólafssonar land-
læknis og vísindamanns, en hann
hefur lagt drjúgan skerf tíl þessarar
umræðu. í grein sem birtist í
Morgunblaðinu 7.10. 1992 birtir
hann niðurstöður ýmissa fjölda-
rannsókna á áhrifum ofbeldis í
sjónvarpi. Hér er sýnishorn:
• „Rannsókn meðal bandarískra
fanga sem dæmdir voru fyrir of-
beldisverk leiddi í ljós að 22-36%
þeirra höfðu framið ofbeldisverk,
sem voru nákvæm eftirlíking á sen-
um úr ofbeldismyndum í sjón-
varpi.“
• „Birtar voru niðurstöður úr
rannsókn á föngum dæmdum
vegna ofbeldis og samanburður
gerður við aðra sem ekki höfðu
hlotið dóm fyrir ofbeldisverk. Eftir
að hafa tekið tillit til hugsanlegra
samverkandi þátta, s.s. ofbeldis í
heimahúsum, vímuefnaneyslu, ár-
angurs í skóla o.fl., kom í ljós
greinileg fylgni milli ofbeldisverka
á fullorðinsárum og áhorfs ofbeld-
ismynda í sjónvarpi í æsku.“
• „I kanadísku þorpi hófust
sjónvarpssýningar árið 1973. I ljós
kom að ofbeldisverkum ijölgaði
um 160% meðal unglinga í þorp-
inu á næstu 10-13 ámm“.
Ólafúr segir: „Ekki má skoða
tengsl milli oflieldismyndasýninga
annars vegar og hins vegar áreimi
og ofbeldi í daglegu lífi, sem sönn-
uð orsakatengsl með beinum töl-
fræðilegum líkum,...“ (Lbr. I IH.).
A þessum bláþæði hanga fullyrð-
ingar þeirra sem segja að engar
kannanir hafi sýnt ótvírætt ffam á
skaðleg áhrif ofbeldis í ljósmiðlum.
Enda bætír Olafúr við „... en óneit-
anlega hljóta framangreind tengsl
að vekja okkur til umhugsunar."
Vonandi stefnir landlæknir fræði-
mannsheiðri sínum ekki í voða
með því að opinbera svo óvísinda-
legar hugrenningar.
I lokin má nefna stórmerkilega
niðurstöðu úr könnun sem Olafur
birtír í sömu grein:
„I Bandaríkjunum og Kanada
fjölgaði morðum um nær 100% á
15-20 árum eftir að sjónvarp hélt
innreið sína. Aukningin varð fýrst
og fremst nieðal unglinga og síðan
fullorðinna. Höfundur dregur þá
ályktun að rekja megi þessa þróun
til óheppilegs áhorfs ungra barna á
sjónvarp. Hann rekur mörg dæmi
þess að börn læri mest af því sem
fýrir þeim er haft...“
Það er nefnilega það.
Þetta vissum við líka, þú og ég,
heimski Hans út í bæ: Börn læra
það sem fyrir þeim er haft. Það
yrði góð byrjun á andófi gegn of-
beldi í ljósmiðluin - og tilvalið að
heilsa með því nýju ári - að horfast
í augu við þessa reynslu mannkyns-
ins gegnum árþúsundin. Það er
fyrsta skrefið og mildl framför.
Höfúndur er verkeflnisstjóri
Rekstur einangrunar-
stöðvar í Hrísey
Hér með er óskað eftir tilboði í rekstur einangrunar-
stöðvar fyrir gæludýr í Hrísey frá og með 1. febrúar
1994.
Upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar veitir sótt-
varnadýralæknir stöðvarinnar. Sími 96-61781.
Tilboðum skal skila til yfirdýralæknis, Rauðarárstíg 25,
150 Reykjavík, fyrir 15. janúar nk.
Landbúnaðarráðuneytið,
27. desember 1993.