Vikublaðið - 07.01.1994, Page 15
VIKUBLAÐIÐ 7. JANÚAR 1994
15
Rithöndin
Tímamót framundan í lífi þínu
Fáguð framkoma og kurteisi
eru áberandi í skriftinni
þinni. Þú ert glaðlynd og
lundin hlý. Svolítið kærulaus
smndum. Yfirleitt vingjarnleg og
hlý við alla og bjartsýn. Þú átt auð-
velt með að láta þér þykja vænt um
fólk en verður líka smndum fyrir
vonbrigðum þegar vinirnir hverfa
úr lífi þínu. En lífið gefur þér alltaf
í stað þess sem það tekur og svo er
það hjá þér. Oftast erm ánægð og í
jafnvægi.
Þú virðist hafa áhuga á mörgu,
tækni og bílum, ferðalögum, dýr-
um. En þú getur líka verið án þess
ef svo slæst. Þú hefur ágæta aðlög-
unarhæfhi. Lendir líka sjaldan í á-
rekstrum við aðra. Vinna finnst þér
líklega frernur leiðinleg, bæði
heima og heiman, en tekur henni
eins og öðru sem að höndum ber.
Þú ert vafalaust skemmtileg per-
sóna og hlýmr að eiga marga vini
og vinkonur. Þína nánusm þykir
þér mjög vænt um og ert þeim
trygg. Þú hefur góða greind en
virðist ekki alltaf beita henni, e.t.v.
skortir eitthvað á sjálfstraustið þó
svo sé ekki að sjá í fljótu bragði.
Þú átt létt með að mynda tengsl
við börn og ættir trúlega að vinna
við þau. Þú virðist nokkuð óráðin
eins og er, tímamót gæmr verið
framundan í lífi þínu. Líklega
þarftu að vera dálítið ákveðnari.
Góða framtíð.
R.S.E.
Hildur Björg
Hannesdóttir
símritari
Sviðsljós
EVA LUNA frumsýnd í kvöld
Skáldsagan Eva Luna eftir Isa-
bel Allende í þýðingu Tóm-
asar R. Einarssonar hefur
notið mikilla vinsælda meðal ís-
lenskra lesenda. Nú hafa _ þeir
Kjartan Ragnarsson og Oskar
Jónsson fært söguna í leikbúning
og verður frumsýningin í kvöld í
Borgarleikhúsinu. Egili Olafsson
hefur samið tónlist og söngtexta í
verkið og verður hún gefm út á
geislaplöm.
Þessi sýning er viðamesta verk-
efnið á sviðum Borgarleikhússins á
þessu ári. Tónlist Egils Olafssonar
er í sýningunni flutt af átta manna
hljómsveit undir stjórn Arna
Scheving. Ríkharður Orn Pálsson
útsetti fyrir hljómsveit
og söngvara, en alls
koma um þrjátíu leik-
arar og söngvarar fram
í sýningunni. Michaela
von Gegerfelt samdi
dansa og hreyfingar
fyrir sviðseminguna.
Oskar Jónsson hannaði
leikmynd og Láras
Bjömsson lýsingu.
Búninga annast þær
Guðrún S. Haralds-
dóttir og Þórunn El-
ísabet Sveinsdóttir og
era nær þrjúhundrað
búningar í sýningunni.
Sögusviðið er Suð-
ur-Ameríka. Eva Luna
er kynblendingur og
alin upp á trúboðsstöð.
Hún missir ung móður
sína og er komið fýrir í
vist. Sagan rekur síðan
hrakninga hennar um
samfélag Suður-Amer-
íku og kynni hennar af ógleyman-
legu fólki af háurn stigum og lágum
og kosmlegum uppátækjum þess.
Allstaðar skín hlýleg kímni í gegn-
um frásöguna, sem á köflum er
reyfarakennd.
Hlutverk Evu Lunu er leikið af
Sólveigu Arnardótmr, en í öðrum
helstu hlutverkum í sýningunni era
Edda Heiðrún Backman, Egill Ó-
lafsson og Pémr Einarsson. Þá era
ótaldir á annan mg leikara, söngv-
ara og dansara. Uppselt er á frant-
sýninguna í kvöled.
Sagt mei mynd
Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Puríður Hjartardóttir
Isíðasta blaði sem kom út
30. desember birmm við
myndarlega verðlaunagám á
heilli síðu og veittum frest til
12. janúar til að senda inn
lausnir. Dregið verður úr
rétmm lausnum og nafh
verðlaunahafa verður svo birt
í næsta tölublaði, sem kemur
út fösmdaginn 14. janúar.
Verðlaunin era úttekt á
bókum Máls og menningar
að andvirði 10.000 krónur.
Af þessum sökum er ekki
birt rétt lausn verðlaunagát-
unnar nú og verða lesendur
að bíða næsm viku, en þá
birtist líka lausn þessarar
gám.
Einn af stóra kostunum við Ijós-
vakamiðlana er að í ffétmm
þeirra verður mér ljóst hvaða skoð-
anir ég hef á hinum og þessum
málum. Að vísu er þetta oft á skjön
við það sem ég hef áður álitið en
ekki dregur það úr gildi miðlanna.
Það var til að mynda sjónvarpið,
sem upplýstd mig um skoðanir
mínar á hvalveiðum. Eins og Olaf^
ur Sigurðsson lagði áherslu á í
hverjum fréttatímanum á fæmr
öðram þá höfðum „við Islending-
ar“ ákveðnar skoðanir á þeim mál-
um. Okkur fylgdu síðan þeir sem
vit höfðu á málunum eða þeir sem
enn höfðu sína skynsemi í lagi. Á
móti vora allrahanda hassreykjandi
og tedrekkandi jurtaæmr ásamt
einhverju frægu fólki sem aldrei
hafði dýft hendi í kalt vam. En
fréttamenn vöraðu sig samvisku-
samfega á að tala urn stefnu ís-
lenskra stjórnvalda í málinu. „Við-
horf okkar Islendinga eru ...“ „Is-
lendingar telja...“ Og vinsamlegar
ábendingar um að til væra önnur
viðhorf meðal Islendinga hrakku af
fréttamönnum eins og vam af gæs.
Sjónvarpið þríefldist raunar og lék
stef úr þjóðlögum í bakgrunni þeg-
ar fjallað var um málið og sá til þess
að íslenska fánanum bry'gði fyrir
nokkram sinnum í hverri frétt um
hvalamál. Þá varð einnig áberandi
að miklu oftar var rætt við þá
stjórnmálamenn sem gengu í sel-
skinnsjökkum en þá sem enn vora í
Kórónafömm. Mátti þá einu gilda
um hvað rnálið snerist. Árni John-
sen mun raunar hafa látdð gera
hatt úr hvalsporði en það vakti ekki
þá athygli sem vonast var til. Raun-
ar hefur það heyrst og ntun vera
rétt, að það hafi verið rætt af fullri
alvöra innan fféttastofunnar að
enda hvern fréttatíma þar sem fjall-
að hefði verið um hvali, með því að
fréttamenn risu úr sæmm og gaul-
uðu „Öxar við ána.“
Samt var þetta ef til vill ekki svo
ýkja alvarlegt frá mínum bæjardyr-
um, frekar að ég fyndi fyrir létmm
pirringi. En skoðanir mínar á mál-
inu vora lítt mótaðar og helst ein-
hvers staðar mitt á milli viðhorfa
„Okkar Islendinga" og hassistanna.
Veralega hefur á hinn bóginn
reynt á söguffægt umburðarlyndi
mitt núna þegar vonir hafa vaknað
um að bandaríski herinn hypji sig
með sitt hafúrtask af Miðnesheiði.
Þá vakna ég skyndilega upp við það
að viðhorf „okkar íslendinga“ er að
halda dauðahaldi í herinn. Gegn
okkur er síðan eitthvað álíka lið og
í hvalamálinu, bláeygir hippar og
koinmúniskar ffiðarömmur.
Þannig átti einn fréttamanna
ríkisútvarpsins samtal við forsætis-
ráðherra um þessi mál og varpaði
meðal annars fram þeirri spurn-
ingu hvort „Við Islendingar“ hefð-
uni ekki getað nýtt okkur kosn-||([.
ingaúrslitin í Rússlandi málstað
„okkar“ til framdráttar. Ekki fór á
milli rnála að með þessu var átt við
að samningamenn íslendinga
hefðu átt að benda Könunum á að
það væri nú ef til vill ekki ýkja frið-
vænlegt í heiminum eftir góðan ár-
angur fasista í Rússlandi. Þetta er
ég ekki til í að skrifa undir að séu
mín viðhorf eða „okkar Islend-
inga.“ Það er ef til vill kominn tími
til að hressa uppá Samtök her-
stöðvaandstæðinga.