Vikublaðið - 02.12.1994, Side 8
Munið
áskriftarsímann
17500
Ýmsar matvörur gætu horfið
af markaði vegna EES-reglna
Möguleiki er á því að ein-
hverjar innfluttar matvörur
frá löndum utan evrópska efha-
hagssvæðisins, ekki síst firá
Bandaríkjunum, hverfi af markaði
á Islandi vegna gildistöku EES-
reglna um merkingu og kynningu
matvæla. Þetta kom ffam í um-
ræðum á Alþingi nýlega þegar
Sighvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra svaraði fyrirspumum
Guðrúnar Helgadóttur og hún og
aðrir þingmenn tjáðu sig um efn-
ið. Ráðherra Ieitaðist við að gera
lítið úr þessum möguleika, en
aðrir höfðu af þessu meiri áhyggj-
ur og má geta þess að heildsalan
Islensk-Ameríska hefur eindregið
mótmælt þeim viðsldptahindmn-
um sem félagið telur að felist í
EES-reglunum gagnvart vömm í
Bandaríkjunum sem fluttar em
inn til Islands.
Viðskiptaráðherra svaraði fyrir-
spumunum og sagði að mat um-
hverfisráðuneytisins væri að mögu-
leg áhrif vegna þessa á samkeppnis-
stöðu og vömverð yrðu óveruleg.
„Auðvitað er viðbúið að þessar regl-
ur geti leitt til ákveðinna erfiðleika
þegar þær koma til ffamkvæmda en
innflytjendur ættu að geta fundið
lausnir, t.d. með ummerkingu eða
með límmiðamerkingum eins og
þeir gerðu svo að dæmi sé tekið þeg-
ar nauðsynlegt þótti að setja sérstak-
ar viðvaranamerkingar á innflutt
þvottaefni,“ sagði ráðherra.
Guðrún sagði alveg ljóst að menn
hefðu af þessu áhyggjur og kvaðst
sammála Inga Birni um að þetta væri
bara byrjunin.
„Aðeins byrjunin á því að nú eiga
meim efdr að lesa allar reglugerðim-
ar sem þeir em búnir að samþykkja
og uppgötva að þær geta valdið okk-
ur stórskaða í fleiri tilvikum heldur
en þær verða okkur að gagni,“ sagði
Guðrún.
Greiðsluþjónusta
Guðrún Helgadóttir: „Víst er að neyt-
endur mundu sakna fjölmargra vinsælla
vörutegunda sem unnið hafa sér sess á
íslandi... nægir þar t.d. að nefna ýmsar
tegundir af ungbarnamat sem við konur
könnumst harla vel við.“
Annars vegar spurði Guðrún um
hvort reglugerð um merkingu, aug-
lýsingu og kynningu matvæla á EES-
svæðinu gildi einnig um vömr sem
framleiddar em utan svæðisins þar
sem aðrar reglur gilda. Hins vegar
spurði Guðrún um hvort reglugerð
EES um /merkingu næringargildis
matvæla giltu um vörar sem era
framleiddar utan svæðisins. Sighvat-
ur upplýsti að svarið væri já í báðum
tilvikum og spurði Guðrún um áhrif
þessa á samkeppnisstöðu og vöra-
verð.
I umræðunum benti Guðrún á, að
umtalsvert magn matvæla væri flutt
inn til landsins frá löndum utan
EES-svæðisins og í mörgum tdlfell-
um væri Island eina eða næstum eina
Iandið á EES-svæðinu sem flytti við-
komandi vörar inn. „Það segir sig
sjálft að lítið markaðssvæði eins og
Island verður tæplega talinn svo
góður viðskiptaaðili að framleiðend-
ur leggi í verulegan aukakostnað fýr-
ir það og víst er að varan yrði þá mun
dýrari fyrir neytendur. Því verður
ekki annað séð en að áðurnefnd
reglugerð reynist nokkur viðskipta-
hindran fyrir ríki utan svæðisins,“
sagði Guðrún. „Víst er að neytendur
mundu sakna fjölmargra vinsælla
* vörategunda sem unnið hafa sér sess
á Islandi og hafa verið á betra verði í
mörgum tilvikum en evrópskar vör-
ur. Nægir þar t.d. að nefina ýmsar
tegundir af ungbamamat sem við
konur könnumst harla vel við.“
Sparisjóðurinn býður þér nú Greiðsluþjónustu,
sem er þægileg og örugg leið í fjármálum þínum
og heimilisins. Greiðsluþjónustan er fjölþætt
þjónusta sem kemur lagi á fjármál
ólíkra viðskiptavina sparisjóðsins.
Greiðsluþjónustan sparar þér tíma og fyrirhöfn,
skilvís greiðsla reikninga verður í takt við útgjöld
sem hægt er að jafna yfir árið ef þess gerist þörf.
Þessi þjónusta hentar þeim sem leiðist að standa
í biðröðum um hver mánaðamót og láta reikninga
ekki slá sig út af laginu.
ií
SPARISJÓÐIRNIR
-Jyrifþig ogþína